Bændablaðið - 24.05.2005, Side 1

Bændablaðið - 24.05.2005, Side 1
Auglýsingasíminn er 563 0300 Netfang augl@bondi.is Næsta blað kemur út 7. júní Upplag Bændablaðsins 14.257 Þriðjudagur 24. maí 2005 10. tölublað 11. árgangur Blað nr. 218 Ferðaþjónusta bænda í nýtt húsnæði 15 Sáð í 100 hektara á Mýrdalssandi 21 Bændablaðinu sem kemur út 7. júní verður dreift með Morgunblaðinu. Auglýsendur eru beðnir um að hafa samband sem fyrst við auglýsingastjóra Bændablaðsins í síma 563 0300. Fyrsta brautskráning frá Land- búnaðarháskóla Íslands á Hvanneyri verður föstudaginn 27. maí næstkomandi kl: 14:00 í Reykholtskirkju. Tólf nemendur úr háskóla- deildum verða brautskráðir með B.S.– 90 gráðu og fjórir nemar með B.S.– 120 gráðu (kandidats- próf). Ennfremur verður fyrsti meistaraneminn brautskráður frá skólanum. Af búfræðibraut verða að þessu sinni brautskráðir tuttugu nemendur, þar af fjórir fjarnemar. Að athöfn lokinni er boðið til kaffiveitinga í matsal LBHÍ á Hvanneyri. Svipmynd frá Hvanneyri. Myndina tók Björn Þorsteinsson Fyrsta brautskráning frá LBHÍ Fuglaflensa er vandamál sem þjóðir heims taka æ fastari tökum. Alþjóða- dýraheilbrigðistofnun (OIE) og FAO héldu ráðstefnu í Paris í byrjun apríl til þess að ræða úrræði til þess að draga úr hættu á heimsfaraldri vegna fuglaflensunnar. Markmið ráðstefn- unnar var að fræða stjórnendur og fræðimenn aðildarlandanna um stöðu mála er varðar fuglaflensu í heimin- um. Á ráðstefnunni kom fram að al- gengasta smitleið fuglaflensu væri með villtum fuglum, einkum farfugl- um. Jarle Reiersen, dýralæknir alifugla- sjúkdóma, sagði í samtali við Bænda- blaðið að hann teldi afar mikilvægt að kanna hvort fuglaflensa sé í fuglum hér- lendis, en það mætti skipta þeirri könn- un í tvö verkefni. Annars vegar þyrfti að kanna hvort mótefni gegn fuglaflensu sé til staðar í alifuglum í stærstu alifugla- búum hérlendis. Þá þyrfti að kanna hvort mótefni gegn fuglaflensu sé til staðar í villtum fuglum, einkum öndum og öðrum vatnafuglum. Jarle sagði að hann hefði síðast tekið blóðsýni úr alifuglum á stærstu alifugla- búum landsins í desember 2002 og þá fannst ekki mótefni gegn AI. Síðan hafi ekki fengist fjármunir til þess að fylgj- ast með þróun mála. Vitað er að fugla- flensuveiran fannst í villiönd við Mý- vatni í byrjun áttunda áratugarins, en Jarle sagði að hann vissi ekki til þess að fuglaflensa hafi verið könnuð í villtum fuglum síðan. "Það er afar mikilvægt að kanna stöðu okkar varðandi fuglaflensuna - einkum með tilliti til þess að geta gripið til aðgerða ef hún finnst eða til þess að staðfesta að Ísland sé laust við fuglaflensu," sagði Jarle og skoraði á stjórnvöld að veita nægilegt fjármagn svo hægt verði að framkvæma ofangreind verkefni. Fuglaflensa er sjúkdómur sem kemur upp í fuglum og veldur mismunandi skaða eftir því hvaða fuglategund og hvaða afbrigði fuglaflensunnar er á ferð- inni hverju sinni. Í versta falli getur flensan drepið nær alla fugla, eins og dæmi eru nú um að gerist í suðaustur As- íu. Einkum eru kalkúnar og hænsni mjög móttækileg fyrir veirunni, en einnig hef- ur komið upp fuglaflensa í vatnafuglum og villtum fuglum eins og í kríum. Nú er fuglaflensuveiran landlæg í alifuglum og villtum fuglum í mörgum löndum í suð- austur Asíu. Eitt hættulegasta afbrigði fuglaflens- unnar sem smitar fólk hefur orðið rösk- lega 50 mönnum að aldurtila síðan í lok árs 2003. Hér er um að ræða stökkbreytt veiruafbrigði sem getur borið smit á milli fugla og fólks. Ef þessar stökkbreytingar verða að veruleika er hægt að tala um möguleika á nýjum heimsfaraldri á borð við spönsku veikina sem geisaði árin 1918-1919. Sérfræðingar á ráðstefnunni voru sammála um að ekki væri til nein ein ein- föld lausn, en niðurskurður er sú leið sem farin yrði ef faraldur er takmarkaður og einangraður. Bent var á að öllum alifugl- um var fargað í Hong Kong árið 1997 þegar stökkbreytta veiruafbrigðið dró fyrstu menn til dauða. Fargað var 1,5 milljón alifugla í Hong Kong og 21 milljón fugla í Hollandi árið 2003. Fuglaflensa er því mjög kostnaðarsöm þegar faraldur kemur í löndum sem byggja á alifuglaræktun. Nánar á bls. 30. Algengasta smitleið fuglaflensu er með farfuglum Fuglaflensa hefur komið upp í vatnafuglum og villtum fuglum eins og í kríum Jarle Reiersen, dýralæknir alifuglasjúkdóma Ef stökkbreytingar verða að veruleika vofir yfir hætta á nýjum heimsfaraldri á borð við spönsku veikina Nýr búnaðarlagasamningur var undirritaður 18. maí sl. en samn- ingurinn er á milli ríkisins og Bændasamtaka Íslands um verk- efni og framlög sem það styður á sviði hvers konar þróunar og fram- faramála í landbúnaði. Sigurgeir Þorgeirsson, framkvæmdastjóri Bændasamtakanna, sagði að skipta mætti framlögunum í þrjá megin flokka. ,,Það eru framlög til Bænda- samtakanna og búnaðarsambanda til að halda uppi ráðgjafarþjónustu og búfjárræktarstarfi. Í öðru lagi þróunar- og jarðarbótaframlög, sem greiðast bændum út á nokkra verkefnaflokka, og að lokum eru það framlög til Framleiðnisjóðs landbúnaðarins og markaðsstarf- semi í útflutningi búvara," sagði Sigurgeir. Samningurinn er gerður sam- kvæmt búnaðarlögum sem sett voru 1998 og tóku við af gömlu jarðræktar- og búfjárræktarlögun- um. Fyrsti búnaðarlagasamningur- inn var gerður í árslok 1999 til fimm ára, en samninginn á að end- urskoða annað hvert ár og fram- lengja um tvö ár. Að þessu sinni hafði dregist um eitt ár að endur- skoða samninginn og því er hann framlengdur um þrjú ár og gildir til ársins 2010. Hvað fjárhæðir varðar gildir nýi samningurinn fyr- ir árin 2008 til 2010. Sjá nánar á bls. 12 Vopnfirðingurinn Borgar Páll Bragason er að ljúka BS prófi af landnýtingarbraut við Landbún- aðarháskóla Íslands. Lokaritgerð hans heitir Veiða/sleppa og fjallar um ýmis atriði er varða þá um- deildu laxveiðiaðferð að sleppa löxum sem veiðast. Hann varði ritgerð sína við skólann í gær, 23. maí. Leiðbeinandi hans í loka- verkefninu var Sigurður Már Ein- arsson, fiskifræðingur hjá Vestur- landsdeild Veiðimálastofnunar. Borgar sagðist hafa skoðað endurveiðihlutfall þeirra laxa sem sleppt er í Hofsá og Selá í Vopna- firði. Í þessum ám eru um 50% veiddra laxa sleppt aftur. Af þeim fjölda, sem sleppt var veiddust á milli 20 og 30% aftur í ánum síðar. Þetta er mjög hátt hlutfall og það skiptir því orðið máli að sleppa fisknum, að sögn Borgars. En það verður að fara varlega með þann fisk sem á að sleppa því að hreistur- skemmdir auka mjög líkur á að hann drepist. ,,Hlutfall þess fisks sem veidd- ist aftur í þessari könnun minni, er sem fyrr segir mjög hátt, hærra en gerist erlendis. Það stafar af því að veiðiálagið í íslenskum laxveiðiám er yfirleitt mun hærra en erlendis. Þess vegna skiptir aðferðin veiða/sleppa miklu meira máli hér á landi en erlendis og er býsna gott veiðistjórnunartæki. Það eru til ár hér á landi með svo miklu veiði- álagi að hrygningarstofn laxins er orðinn of lítill og í slíkum ám getur aðferðin að veiða/sleppa skipt máli," sagði Borgar. Á milli 20 og 30% þess lax sem sleppt er veiðist aftur Framhald á bls. 30 Nýr búnaðarlaga- samningur undirritaður

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.