Bændablaðið - 24.05.2005, Blaðsíða 26

Bændablaðið - 24.05.2005, Blaðsíða 26
26 Þriðjudagur 24. maí 2005 Landgræðsla ríkisins úthlutaði 15 milljónum króna úr Landbótasjóði til 34 landbótaverkefna víðsvegar um land. Alls bárust 64 umsóknir um margfalda þá upphæð sem var til ráðstöfunar úr sjóðnum. Hæstu styrkina, að upphæð 1 milljón króna hver, fengu Landgræðslufélag Biskupstungna til uppgræðslu á Biskupstungnaafrétti, Upprekstrar- og landbótafélag Vopnfirðinga til upp- græðslu á Vopnafjarðarheiði, Landgræðslufélag Öxar- fjarðarhrepps til stöðvunar jarðvegseyðingar og upp- græðslu á Öxarfjarðarheiði og Búnaðarfélag Álftavers til uppgræðslu á Atleyjarmelum og Atleyjarmoldum. Sótt var um styrki til fjölbreyttra verkefna. Mörg verk- efni tengjast beint úrbótum í landnýtingu vegna gæðastýring- ar í sauðfjárrækt og er ljóst að þörf er á mun meira fjármagni í sjóðinn vegna þessara umfangsmiklu verkefna. Fjárveiting- ar í landbótasjóð eru mun lægri en ráð var fyrir gert í núgild- andi landgræðsluáætlun. Það er ánægjulegt að sjá af um- sóknum hversu margir landsmenn eru tilbúnir að leggja á sig mikla vinnu og erfiði til að bæta land sem þeim er af ein- hverjum ástæðum umhugað um. Björn H. Barkarson Sviðsstjóri landverndarsviðs Landgræðslu ríksins Matra náði þeim árangri að verða sigurvegari í veggspjalda- gerð á Fræðaþingi landbúnaðar- ins 2005. Veggspjaldið var hannað í tengslum við verkefnið ,,Sýrustig í íslensku lambakjöti“. Höfundar þess eru Ásbjörn Jónsson og Óli Þór Hilmarsson. Verkefnið var styrkt af Fram- kvæmdanefnd búvörusamninga og unnið af starfsmönnum Matra. Megin markmið verkefnisins var að kanna og kortleggja orsakir og umfang þess vanda er hlýst af háu sýrustigi í íslensku lambakjöti og áhrif þess á kjötgæðin. Talað er um hátt sýrustig þegar pH í vöðva er 5.8 og hærra u.þ.b. hálfum sól- arhring eftir slátrun. Þekkt er að röng meðferð sauðfjár fyrir slátrun getur valdið því streitu og þannig haft áhrif á kjötgæðin. Ef sauðfé verður fyrir miklu álagi fyrir slátr- un eða er svelt í of langan tíma getur gengið svo á orkuforða þess að sýrustig í vöðvunum fellur ekki nægilega eftir slátrun. Áhrif á kjötgæðin eru þau að kjötið verður dökkt, stíft og þurrt og hefur skert geymsluþol.Ásbjörn Jónsson var spurður um helstu niðurstöður verkefnisins og hvað þær hefðu leitt í ljós varðandi streitu í sauðfé. Hæfileg hvíld og hæfilegt svelti fyrir slátrun nauðsynleg ,,Helstu niðurstöður bentu til þess að flutningsvegalengd í slát- urhús sé ekki afgerandi orsaka- valdur streitu í sauðfé eins og al- mennt hefur verið talið. Margt bendir til þess að samspil margra þátta eins og veðráttu fyrir flutn- inga, langur sveltitími og ónóg hvíld sláturdýra fyrir slátrun hafi veruleg áhrif á streitu í sauðfé. Úr mælingum okkar kom í ljós að hærra hlutfall dilkaskrokka mæld- ist með hátt sýrustig þegar dýrun- um var slátrað á flutningsdegi. Því er nauðsynlegt að sauðféð fái hæfilega hvíld eftir komu í rétt sláturhúss. Svelti hefur sömuleiðis áhrif á kjötgæðin, þ.e. sauðfé sem hafði verið án heys eða fóðurs í 48 klst. og lengur mældist með of hátt sýrustig,“ segir Ásbjörn. Margir hafa haldið því fram að lengri flutningsleiðir við fækkun sláturhúsanna hafi áhrif á kjöt- gæðin. Ásbjörn segir niðurstöður benda til þess að flutningsvega- lengdin ein og sér hafi ekki mark- tæk áhrif á orsakir streitu í sauðfé, ef slátrað er daginn eftir. Hins vegar eru áhrifin marktæk ef slátr- að er samdægurs, en þá eru aðrir þættir að hafa áhrif, eins og slæm veðrátta. „Það má nefna að við skoðuð- um lömb sem höfðu verið flutt 400 km leið í sláturhús og mæld- ust með eðlilegt sýrustig eftir slátrun. Einnig mældum við lömb sem höfðu verið flutt um 50 km til sláturhúss, með hátt sýrustig. Í mörgum af þeim tilvikum var veðráttan mjög slæm. Ekki er búið að vinna úr öllum niðurstöðum en ljóst er að veðrátta, ónóg hvíld og of langt svelti fyrir slátrun hefur veruleg áhrif á sýrustig í skrokk- um og þar með áhrif á kjötgæðin,“ sagði Ásbjörn Jónsson. Sýrustig í íslensku lambakjöti Flutningsvegalengd í sláturhús er ekki afger- andi orsakavaldur streitu í lambakjöti Landbótasjóður Landgræðslu ríkisins - úthlutun til verkefna 2005 Uppgræðsla og stöðvun jarðvegseyðingar á Biskups- tungnaafrétti, við Sandvatnshlíð og Rótarmannatorfur, norðan Sandár-Fremstaver og í Tjarnheiðarbrún. Stöðva gróður- og jarðvegseyðingar og skapa möguleika til beitar á svæði með Rauðá á Gnúpverjaafrétti. Stöðvun jarðvegsrofs og uppgræðsla á Hrunamannaa- frétti. Uppgræðsla, stöðva fok og jarðvegsrof á vikrum í Þjórs- árdal og neðarlega á Flóamannaafrétti vestanverðum. Stöðva gróður- og jarðvegseyðingu og græða upp land á Hlöðuvöllum á Laugardalsafrétti. Uppgræðsla á Vopnafjarðarheiði við Kálffell. Stöðva jarðvegsrof og bæta ásýnd lands með rúlludreif- ingu og áburðardreifingu í Sænautaseli, Jökuldalsheiði og Hjarðarhagaaurum. Bæta ásýnd landsins, friðun og síðan beit á afgirtu landi í Teigi milli Staðarár og Skakkalækjar ofan þjóðvegar. Styrkja staðargróður og bæta ásýnd lands milli Kinna og Húshólsfells í landi Möðrudals. Stöðva jarðvegseyðingu og uppgræðsla í Öxarfjarðar- heiði. Uppgræðsla með fræi og áburði í Öxarfjarðarheiði, Háls- um, Hvammsheiði og Dalsheiði. Endurheimt lands til nota fyrir Sveinungsvík á svæði aust- ur og suður frá bænum. Friðun fyrir beit. Uppgræðsla rofabarða og mela á svæði austan túna, liggur austur á Öxarfjarðarheiði meðfram veginum yfir heiðina. Uppgræðsla illa gróins lands norðan slóðar sem liggur að girðingu við Grjótfjöll og að merkjum Valþjófsstaðar. Uppgræðsla mela vestan Tröllagjár á Fljótshlíðarafrétti. Uppgræðsla og stöðvun jarðvegsrofs vestan Valafells á Landmannaafrétti. Áburðardreifing á sáningar undanfarinna ára á Almenn- ingum. Landgræðslufélag Biskupstungna Skeiða- og Gnúpverja- hreppur Hrunamannahreppur Afréttamálafélag Flóa- og Skeiða Búnaðarfélag Laug- dæla Upprekstrar- og land- bótafélag Vopnfirðinga Landgræðslufélag Héraðsbúa Hofteigur ehf Vernharður Vilhjálms- son Landgræðslufélag Öx- arfjarðarhrepps Landgræðslufélag Svalbarðshrepps Gunnar Guðmundsson Félagsbúið Sandfellshaga 2 Gunnar Einarsson Uppgræðslufélag Fljótshlíðar Fjallskilanefnd Land- mannaafréttar Fjallskilanefnd V-Ey- fellinga Bláskógabyggð Skeiða- og Gnúp- verjahreppur Hrunamannahreppur Árborg Bláskógabyggð Vopnafjarðarhreppur Norður Héraði Norður Héraði Norður Héraði Öxarfjarðarhreppi Svalbarðshreppi Svalbarðshreppi Öxarfjarðarhreppi Öxarfjarðarhreppi Rangárþing eystra Rangárþing ytra Rangárþing eystra Árnessýsla Árnessýsla Árnessýsla Árnessýsla Árnessýsla N-Múlasýsla N-Múlasýsla N-Múlasýsla N-Múlasýsla N-Þingeyjar- sýsla N-Þingeyjar- sýsla N-Þingeyjar- sýsla N-Þingeyjar- sýsla N-Þingeyjar- sýsla Rangárvalla- sýsla Rangárvalla- sýsla Rangárvalla- sýsla 1.000.000 400.000 330.000 300.000 100.000 1.000.000 750.000 200.000 115.000 1.000.000 750.000 650.000 500.000 110.000 300.000 250.000 210.000 Stöðva jarðvegsfok úr hvítavikursflákum austast í Bol- holti. Endurheimt Brimesskóga og uppgræðsla rofsvæða. Girð- ingar til friðunar svæðis. Stöðvun landrofs og uppgræðsla örfoka lands ofan Grensborgar á Goðdalafjalli. Almennar landbætur og uppfylling skilyrða v. gæðastýr- ingar í sauðfjárrækt í heimalöndum í Bárðardal og Fnjóskadal og á afréttum. Uppgræðsla, stöðvun jarðvegsrofs og styrking á gróðri austan Jörundar og þar áfram norður. Stöðvun jarðvegseyðingar og endurheimt landgæða á Reykjaheiði. Stöðva jarðvegseyðingu á Leirdalsheiði með uppgræðslu. Ýta niður rofabörðum og græða þau upp á heiðinni milli Svartárkots og Víðikers. Stöðva jarðvegsrof og endurheimta fyrri landgæði upp af Máná á Tjörnesi. Endurbætur á vegi við Suðurá þar sem gróður er að eyð- ast. Ýta niður rofabörðum og græða þau upp eftir Sandfellinu milli Stangar og Engidals. Uppgræðsla og hefting sandfoks á sandsvæði í Breiðu- vík. Friðun þar til viðunandi árangur næst. Uppgræðsla á Atleyjarmelum og Atleyjarmoldum á Álfta- versafrétti. Uppgræðsla molda og styrking gróðurs í moldum við Leiðólfsfell og í Geldingadölum, rofsvæði við Eintúnaháls á Síðumannaafrétti. Uppgræðsla molda í Búlands- og Ljótarstaðaheiði. Uppgræðsla molda og gróðurrýrra svæða við Miklafell á Austursíðuafrétti. Stöðva jarðvegsrof og auka við beitiland í Kletteyjarmold- um. Skógræktarfélag Ran- gæinga Kolkuós ses. Sigþór Smári Borgars- son Þingeyjarsveit Landgræðslufélag Reykjahlíðar Sigurður Þórarinsson Grýtubakkahreppur Páll Kjartansson Búnaðarfélag Tjörnes- inga Tryggvi Harðarson Sigurður Kristjánsson Keran Stueland Ólason Búnaðarfélag Álftavers Fjallskiladeild Land- brots- og Miðafréttar Búnaðarfélag Skaftár- tungu og fjallskiladeild Skaftártunguafréttar Búnaðarfélag Hörgs- landshrepps og Fjallskiladeild Austur- síðuafréttar Jóhannes Siggeirsson Rangárþing ytra Skagafjörður Skagafjörður Þingeyjarsveit Skútustaðahreppi Reykjahreppi Grýtubakkahreppur Þingeyjarsveit Tjörneshreppur Þingeyjarsveit Skútustaðahreppi Vesturbyggð Skaftárhreppi Skaftárhreppi Skaftárhreppi Skaftárhreppi Skaftárhreppi Rangárvalla- sýsla Skagafjarðar- sýsla Skagafjarðar- sýsla S-Þingeyjar- sýsla S-Þingeyjar- sýsla S-Þingeyjar- sýsla S-Þingeyjar- sýsla S-Þingeyjar- sýsla S-Þingeyjar- sýsla S-Þingeyjar- sýsla S-Þingeyjar- sýsla V-Barðastrand- arsýsla V-Skaftafells- sýsla V-Skaftafells- sýsla V-Skaftafells- sýsla V-Skaftafells- sýsla V-Skaftafells- sýsla 250.000 300.000 100.000 750.000 500.000 450.000 400.000 300.000 200.000 130.000 100.000 750.000 1.000.000 650.000 530.000 430.000 190.000 Verkefni Umsækjandi Sveitarfélag Sýsla Upphæð Verkefni Umsækjandi Sveitarfélag Sýsla Upphæð Yfirlit yfir verkefni sem styrkt eru af Landbótasjóði 2005 Ljóst er að menningarsamning- ur við Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi verður ekki gerður á næstunni samkvæmt svari menntamálaráðherra við fyrir- spurn Önnu Kristínar Gunnars- dóttur um hvað liði gerð menn- ingarsamningsins. Menntamálaráðherra sagði for- sendur breyttar frá því að þáver- andi menntamálaráðherra féllst á viðræður við Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi árið 2001. Hann svaraði ósk Vestlendinga á eftir- farandi hátt. „Menntamálaráðuneytið er reiðubúið til viðræðna við yður um samstarf á grundvelli sérstaks samnings sem byggist á sömu grundvallarsjónarmiðum og samn- ingur ráðuneytisins við sveitarfé- lög á Austurlandi.“ Þorgerður Katrín Gunnarsdótt- ir sagði að Fjórðungssamband Vestfjarða hefði óskað eftir sam- starfi við ríkið um menningarmál og menningartengda ferðaþjón- ustu. Ráðherra sagðist vilja að samstarf yrði í þessum málum milli Vestlendinga og Vestfirðinga þrátt fyrir að Vestlendingar hefðu hafnað slíku samstarfi fyrir 4 ár- um. Þá sagði ráðherra að ekki væri gert ráð fyrir neinum nýjum menn- ingarsamningum á fjárlögum árs- ins 2005. Hún sagði ennfremur í svari sínu að sveitarfélögin yrðu að taka meiri fjárhaglegan þátt í menningarsamningum en verið hefur til þessa. Anna Kristín Gunnarsdóttir sagði í samtali við Bændablaðið að það væri hrein og klár hneisa hvernig búið væri að fara með Vestlendinga í þessu máli og ljóst væri af svari menntamálaráðherra en enn ætti að draga málið á lang- inn. Hún sagðist líta á tillögu menntamálaráðherra um samstarf Vestlendinga og Vestfirðinga, sem þegar hefur verið hafnað, sem leið til að tefja málið enn frekar. Anna Kristín segir menntamálaráðherra bera fyrir sig að ekki séu til pen- ingar á fjárlögum til að gera þenn- an samning en Anna Kristín bendir á að það komi ekkert fjármagn inn á fjárlög nema barist sé fyrir því og það hafi menntamálaráðherra ekki gert. Það sé því alveg óljóst hvenær þessi menningarsamningur verður gerður. Menningarsamningur við Vestlendinga dregst enn Fjárflutningur 3    !" ""0   & 0 %   5 & '  0()*+'     6 '  1 '  #    $

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.