Bændablaðið - 24.05.2005, Blaðsíða 25
Þriðjudagur 24. maí 2005 25
Vöxtur er alhli›a fjármálafljónusta sem
samanstendur af bankafljónustu KB banka,
tryggingafljónustu frá VÍS, Lífís og Alfljó›a
líftryggingarfélaginu og bílafjármögnun frá
L‡singu.
Vöxtur færir flér ekki a›eins aukna fljónustu
heldur n‡tur flú hagræ›isins í beinhör›um
peningum.
fiú fær› meira me› Vexti!
• Endurgreiddir vextir af skuldabréfalánum
• Frítt kreditkort
• Afsláttur af debetkortafærslum
• Frí innbúskaskótrygging
• Afsláttur af grunntryggingum
• Afsláttur af líf- og sjúkdómatryggingum
• Afsláttur af bílafjármögnun
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
15
10
8
Veiðifélag Reykjadalsár og Ey-
vindarlækjar er þessa dagana að
reisa nýtt veiðihús sem á að
verða tilbúið 10. júní nk. Um er
að ræða 126 fermetra timburein-
ingahús frá Finnlandi. Það er
staðsett rétt sunnan við þéttbýlið
að Laugum.
Haraldur Bóasson, formaður
veiðifélagsins, sagði í samtali við
Bændablaðið að aldrei fyrr hefði
verið veiðihús við Reykjadalsá og
Eyvindarlæk. Ástæðan er sú að
Húsvíkingar voru alltaf með árnar
á leigu og þurfti því ekkert veiði-
hús því þeir keyrðu bara á milli. En
fyrir tveimur árum tók Pétur Pét-
ursson árnar á leigu en hann er líka
með Vatnsdalsá á leigu og helstu
viðskiptavinir hans eru útlending-
ar, Frakkar mest, og þá varð ekki
hjá því komist að byggja veiðihús.
Haraldur segir að Reykjadalsá
hafi farið mikið niður í laxveið-
inni. Á árum áður var veiðin á
milli 200 og 400 laxar á sumri en
hún var komin niður fyrir 100 laxa.
Síðastliðin fimm ár hefur öllum
laxi sem veiðst hefur verið sleppt
og eingöngu veitt á flugu. Við
þetta hefur laxinn aukist í ánni sem
og seiðabúskapur hennar að sögn
Haraldar.
Hann segir að leigutakinn leggi
jafnvel meiri áherslu á silungsveiði
í ánni en mikið er af silungi í henni.
Reykjadalsá sé því eiginlega leigð
sem silungsá með laxa von.
Reykjadalsá er um 20 km löng og
rennur í Vestmannsvatn en Ey-
vindarlækur rennur úr því niður í
Laxá í Aðaldal. Eyvindarlækur er
ekki nema um einn km að lengd og
ekki margir veiðistaðir í honum.
Laxinn fer því upp í Vestmanns-
vatn og þaðan upp í Reykjadalsá.
Veiðifélag Reykjadals-
ár og Eyvindarlækjar
reisir veiðihús
Vesturbyggð
Verið að
skoða
möguleika á
vatnsútflutningi
Á fundi bæjarstjórnar
Vesturbyggðar fyrir skömmu
var skipuð nefnd til að skoða
möguleika á vatnsútflutningi.
Guðmundur Guðlaugsson
bæjarstjóri á sæti í nefndinni.
Hann sagði að Vesturbyggð ætti
borholu með mjög góðu vatni og
því hefðu menn ákveðið að
skoða málið sem væri á algeru
frumstigi. Til er skýrsla sem
gerð var á sínum tíma þegar
menn voru að skoða sama mál
og segir Guðmundur að hún
hafi aftur verið dregin fram.
Hann sagði að ákveðinn aðili
væri að skoða markaðsþáttinn og
þar hefði engin ákvörðun verið
tekin en meiri líkur væru taldar á
að reynt yrði að markaðssetja
vatnið í Evrópu en Ameríku.
Guðmundur segist vona að málið
geti gengið hratt fyrir sig en
sagðist ekki geta gert sér grein
fyrir því hve langan tíma
viðræðurnar og skoðun á málinu
tæki.
Fjör í Flóanum
Kynningarhátíð ferðaþjónustu í Austur-Flóa 27.-29. maí
Mjólkurkvótakerfið í ESB
Frá 1984 hefur verið kvótakerfi í
mjólk í aðildarlöndum ESB. Lönd
sem hafa gerst aðilar að ESB síð-
ar hafa gengið inn í það fyrir-
komulag sem hluta af landbúnað-
arstefnu ESB. Þannig var það eitt
af samningamálunum við Austur-
Evrópulöndin hver mjólkurkvóti
hvers og eins þeirra ætti að vera
og skapaði það sérstök vandamál
að hluti framleiðslunnar (misstór
eftir löndum) hafði fram að því
verið seldur beint frá bændum til
neytenda og skýrslur um það af
skornum skammti. Herluf Dose
Christensen hjá Markaðsráði
mjólkur í Danmörku (Danske
Mejeriers Mælkeudvalg) segir að
til að framleiða og markaðssetja
mjólk í Danmörku verði viðkom-
andi bóndi að búa á jörð sem
mjólkurkvóti er skráður á. Mjólk-
urframleiðsla hvers framleiðenda
má síðan ekki fara umfram kvóta
og er skattur að fjárhæð 2,50 dkr.
lagður á hvert kg sem lagt er inn
umfram hann. Eftirlit með því að
aðeins bændur með kvóta leggi
inn mjólk í afurðastöð fer meðal
annars fram með tilviljanakennd-
um heimsóknum eftirlitsaðila til
bænda. Fulltrúi eftirlitsaðilans fer
þá með mjólkurbílnum og fylgist
með því að aðeins sé sótt mjólk til
búa með mjólkurkvóta. Einnig
hafa Samtök danska mjólkuriðn-
aðarins með höndum eftirlit með
að skýrslum mjólkurbúa og ein-
stakra framleiðenda beri saman.
/EB