Bændablaðið - 24.05.2005, Blaðsíða 16

Bændablaðið - 24.05.2005, Blaðsíða 16
16 Þriðjudagur 24. maí 2005 Undirritaður fór ásamt for- manni Félags skógarbænda á Suðurlandi til Póllands síðastlið- ið haust. Fékk ég styrk til farar- innar frá Vesturlandsskógum. Erindið var að sækja fund eða ráðstefnu á vegum Skógarstofn- unar Evrópu (EFI). Upphaf málsins má rekja til þess að haldnar hafa verið nokkrar ráð- herrastefnur um verndun skóga í Evrópu. Stefnur þessar ganga undir hinu sameiginlega heiti: the Ministerial Conferences on the Protection of Forests in Eur- ope, skammstafað MCPFE. Út frá MCPFE hafa sprottið ýmis rannsóknaverkefni. Ráðstefnan í Póllandi var síðasti sameiginlegi fundur vinnuhóps sem meta átti leiðir, sem farnar hafa verið af hálfu hins opinbera, til að örva skógrækt í Evrópu og möguleika á að gera leiðir þessar skilvirk- ari. Hér verður gerð grein fyrir þeirri gerjun sem nú er í Evrópu varðandi aðkomu hins opinbera að skógrækt og rökunum fyrir því að Evrópumenn vilja við- halda og helst auka útbreiðslu skóga í löndum sínum. Auk þess leitast ég við að draga ályktanir af stöðu skógarmála í Evrópu og set fram hugleiðingar byggðar á þekkingu sem er öllum aðgengi- leg um þýðingu aukinnar út- breiðslu skóga fyrir íslenskt samfélag, bæði sveitafólk og íbúa þéttbýlis. Mikilvæg auðlind Skógur hefur á undanförnum ára- tugum verið vaxandi auðlind í Evr- ópu, bæði að umfangi og þýðingu. Efnahagsleg þýðing skóganna er óumdeild. Þó hefur á allra síðustu árum hallað undan fæti hvað varð- ar tekjur af timbri pr. hektara skóg- ar. Þessu valda tímabundnar að- stæður, einkum mjög aukið skóg- arhögg í Eystrasaltslöndunum eftir hrun járntjaldsins. Aukning skóg- arhöggsins í nefndum ríkjum er ekki sjálfbær þar sem meira hefur verið höggvið en nemur heildar- viðarvexti í skógum þeirra. Þessu veldur m.a. einkavæðing skóga, án þess að byggt hafi verið upp réttar- og lagaumhverfi, sem tryggir sjálf- bæra nýtingu auðlindarinnar. Því er ljóst, að fljótlega mun draga úr timburframleiðslu á grundvelli skóganna í Eystrasaltsríkjunum. Jafnframt vex eftirspurn eftir við- arafurðum ár frá ári. Einkum mun- ar þar um risann í austri, Kína. Skógur þekur nokkra tugi pró- senta af yfirborði flestra landa Evr- ópu. Einna lægst er hlutfallið í löndum, þar sem fátækt hefur ver- ið landlæg, svo sem á Írlandi og í Moldavíu eða tæp tíu prósent. Hlutfall skóga er raunar langlægst á Íslandi, eða 0,3%, sé miðað við alþjóðlega skilgreiningu á skóg- lendi. Írland var í okkar sporum fyrir nokkrum áratugum, en hefur náð sér vel á strik í skógrækt á síð- ustu tuttugu árum og notið til þess verulegra styrkja úr þróunarsjóð- um Evrópusambandsins (sem Ís- lendingar greiða meðal annars í). Íslendingar vilja framsæknari markmið í skógrækt Nýleg Gallupkönnun leiddi í ljós að mikill meirihluti landsmanna vill aukinn skóg á Íslandi. Því miður gera lög ráð fyrir að aðeins verði ræktaður skógur á 5% láglendis Íslands á næstu fjórum áratugum. Eins og fram kom í skýrslu Ríkisendurskoðunar í lok síðasta árs duga fjárveitingar eng- an veginn til þess að þetta hógværa markmið náist. Veita þarf miklu meiru fé til skógræktar og setja sér metnaðarfyllri markmið. Tryggja þarf skógrækt mark- aða tekjustofna með mengunar- gjöldum á jarðefnaeldsneyti og á þá stóriðju sem gefur frá sér gróð- urhúsalofttegundir, sbr. hina gull- vægu mengunarbótareglu: að láta mengunarvaldinn borga. Meta þarf útivistargildi skóg- anna að fullu og þann sparnað í heilbrigðisútgjöldum, sem aukin útivist mun hafa í för með sér. Með aukinni skógarþekju verður Ísland byggilegra og slepp- ur við þá blóðtöku, sem fylgir stöðugum brottflutningi fólks, sem flýr land væntanlega ekki af efna- hagslegum ástæðum, en e.t.v. af því að það vill búa við meiri skjól- sæld og að mörgu leyti vænna um- hverfi en hinar manngerðu auðnir Íslands bjóða upp á. Vantar Ísland fleiri auðlindir? Í þjóðmálaumræðu hérlendis er gjarnan vísað til auðlinda þjóðar- innar, þ.e. fiskimiðanna og orku- lindanna. Má segja það einkenna þessa umræðu að aldrei er minnst á jarðveginn sem auðlind. Samt er jarðvegur ennþá til staðar víða á Íslandi og er sem slíkur auðvitað verðmæt auðlind. Bændastéttin hefur, þrátt fyrir hina óupplýstu þjóðfélagsumræðu ýmissa forystu- manna í samfélaginu, alla tíð vitað um tilvist jarðvegsauðlindarinnar enda byggt afkomu sína á henni. Jarðvegur hefur mjög eyðst síðan land byggðist, bæði runnið með straumvötnum til sjávar og fokið út í hafsauga. Eins og í Evrópu mætti stuðla að varðveislu jarð- vegs á Íslandi með aukinni skógar- þekju, þ.e. með því að rækta skóg á grónu landi. Jafnframt væri til- tölulega fljótt hægt að byggja upp jarðveg á auðnum landsins á sjálf- bæran hátt með skógrækt í kjölfar eða samtímis uppgræðslu. Land- græðsluaðgerðum þarf helst að fylgja eftir með öflugri skógrækt. Þar sem land hallar mikið þolir það betur húsdýrabeit, án hættu á upp- blæstri eða vatnsrofi, ef á því vex skógur. Með því að efla úthaga- gróður verða landið og bændurnir í stakk búin til að stórauka kjötfram- leiðsluna, þegar 1.300 milljónir Kínverjar, sem hingað til hafa að- allega lifað á hrísgrjónum sökum fátæktar, taka upp kjötát í vaxandi mæli. Í þeim samanburði verða fyrri draumar um útflutning á kindakjöti hjóm eitt. Hæglega má ná viðundandi árangri í skógrækt á örfoka landi með því að notast við niturbindandi tegundir eins og lú- pínu og elri til að flýta uppbygg- ingu jarðvegs, enda frá umhverfis- verndarsjónarmiði mikilvægt að lágmarka óþarfan áburðaraustur. Með því að stórauka útbreiðslu skóga, og þá ekki síst með tegund- um sem nýta má til timburfram- leiðslu, myndi þjóðin eignast enn eina náttúruauðlindina, að vísu af- leidda af jarðveginum, nýja auð- lind sem gæti orðið undirstaða mikils iðnaðar í framtíðinni. Benda má á að í Finnlandi hefur skógur- inn álíka þýðingu fyrir efnahagslíf- ið eins og fiskimiðin fyrir Íslend- inga. Samfélagsleg þjónusta íslenskra skóga Nokkuð vantar upp á að sumar stofnanir eftirlitsiðnaðarins séu nógu vel upplýstar um samfélags- legt gildi skóga. Hafa starfsmenn þeirra oftar en ekki leitast við að afflytja samfélagslega þýðingu skóganna. Þetta hefur því miður skilað sér inní skipulagsgeirann, sumpart í gegnum lagasetningu. Þannig hefur við gerð aðalskipu- lags fyrir sveitarfélög víðs vegar um land verið fjallað um skógrækt sem hálfgerða vá, einkum vegna áhrifa hennar á vatnsauðlindina. Hafa starfsmenn landshlutaverk- efna í skógrækt og Skógræktar rík- isins reynt eftir mætti að leiðrétta slíkan misskilning áður en hann festist í sessi í staðfestu aðalskipu- lagi. Nær væri t.d. að hvetja sveit- arfélög til að rækta skóg á vatns- verndarsvæðum en að vara við slíku. Á vatnasviðum bergvatnsánna eru miklir hagsmunir í húfi. Í upp- hafi sl. árs beittu Vesturlandsskóg- ar sér fyrir því að haldin var ráð- stefna að Laugum í Sælingsdal þar sem fjallað var um áhrif aukinnar skógarþekju á lífið í ferskvatni. Þótt margt sé enn órannsakað hér á landi, hvað þessi áhrif varðar, benda rannsóknir, sem gerðar hafa verið hérlendis sem og erlendis, til þess að aukin skógarþekja muni bæta árnar sem búsvæði laxfiska. Bændur, sem búa við slíkar ár, ættu því að taka sig saman um að efna til stórfelldrar skógræktar á vatnasviðum ánna til að auka fisk- gengd í þær. Hið sama á vitanlega við um fiskivötn á láglendi. Í því ljósi er óskiljanleg sú afstaða, sem tekin var í aðalskipulagstillögu fyrir Þingvallasvæðið, að banna skógrækt á 100 m breiðu svæði meðfram Þingvallavatni, en tak- marka hana annars staðar á vatna- sviði vatnsins (sem er meira en 130.000 ha!) við tegundir sem val- inkunnur einstaklingur telur „ís- lenskar“. Íslendingar hafa bæði undirrit- að og staðfest Kyotosamninginn um ráðstafanir til að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda. Í samningi þessum er gert ráð fyrir að binding koltvísýrings sé jafnmikilvæg að- gerð eins og samdráttur í losun hans, enda áhrifin á loftslagið hin sömu, hvor leiðin sem farin er. Ís- lendingar eru svo heppnir að búa í víðfemu landi, sem býður upp á mikla möguleika á að rækta nýja skóga, en nýræktun skóga er skv. Kyotosamningnum helsta leið mannkynsins til að binda koltví- sýring. Má því segja að á okkur Ís- lendingum hvíli nánast sú siðferði- lega skylda að stórauka skógrækt í því augnarmiði að binda koltvísýr- ing. Svo vel vill til að með slíkri aðgerð værum við ekki aðeins að gera allri heimbyggðinni greiða heldur fengjum við líka greitt fyrir vikið, enda losunarkvóti fyrir kol- tvísýring nýlega orðinn verslunar- vara! Lokaorð Skógrækt er greinilega einhver hagkvæmasta leið sem hugsast getur til að viðhalda búsetu í dreif- býli og mun jafnframt skapa þjóð- inni ótrúlega mikla auðlegð til framtíðar, sé hún unnin á vísinda- legum grunni. Búist er við að WTO-viðræðurnar og samningar í kjölfar þeirra leiði til þess að svo- kallaðar grænar greiðslur leysi af hólmi hinar, sem eru framleiðslu- tengdar. Þegar vélað verður um fyrirkomulag hinna grænu greiðslna, bera Bændasamtökin vonandi gæfu til að meta að verð- leikum þá möguleika sem aukin skógrækt færir - ekki aðeins bænd- um, heldur þjóðinni allri. Sigvaldi Ásgeirsson, skógarbóndi og fram- kvæmdastjóri Vesturlandsskóga. Mikilvægi skóga í Evrópu Talið er að raunverð á timbur- afurðum muni hækka á næstu áratugum vegna aukinnar eft- irspurnar jafnhliða minna framboði. Hið lága verð hin allra síðustu ár hefur þó orðið til þess, að auðlindahagfræð- ingar hafa í ríkari mæli en áð- ur beint sjónum sínum að samfélagslegri þjónustu skóg- anna. Þjónusta þessi er af ýmsu tagi og kannast margir hér á landi við hugtökin sem þar um ræðir: 1. Jarðvegsvernd. Jarðveg- urinn er mikilvægasta auðlind jarðarinnar, enda undirstaða fæðuöflunar. Skógur er talinn gegna lykilhlutverki við verndun jarðvegsauðlindar- innar. 2. Vatnsvernd. Drykkjarvatn er jafnnauð- synlegt mannkyni og matur. Í Evrópu er leitast við að rækta skóg á vatnsverndarsvæðum. Skóg- urinn veldur því að stærri hluti regnvatnsins leitar niður í jörðina og myndar grunnvatn í stað þess að renna til sjávar á yfirborði. Skógur- inn síar um leið mengunarefni (sem sum eru mikilvæg næringarefni trjáa, svo sem ýmis nit- ur- og brennisteinssambönd) úr regninu og bindur þau í trjánum, þannig að þau skila sér síður í vatnsból og vatnsföll. Einnig stuðlar skógurinn að betri lífsskilyrðum fyrir fisk í ferskvatni og eykur frjósemi strandsjávar. Þannig leitast Japanir við að viðhalda og helst auka skógarþekju á Hokkaídó, hinni nyrstu af stóru eyjunum í japanska eyjaklasanum, beinlínis í þeim tilgangi að stuðla að vexti og viðgangi fiskistofna í sjónum. 3. Hreinsun andrúmslofts- ins. Skógur bindur kolefni. Aukin skógrækt vinnur því gegn hinum svokölluðu gróð- urhúsaáhrifum. 4. Bætir skilyrði til útivist- ar. Offita er orðin faraldur. Besta ráðið gegn offitu og sjúkdómum, sem henni tengjast, er aukin hreyf- ing og útivist. Hægt er að milda vetrarveðrin með ræktun skóga. Fólk sækir í skógana til skíðagöngu, gönguferða og útreiða. Aukin útivist og þar með hreyfing er mikilvægt ráð við öðru vaxandi heilbrigðisvandamáli - þunglyndi. 5. Skógur verndar lífbreytileika. Almenning- ur mun upplifa meiri fjölbreytni í landslagi og gróðurfari ef skógar vaxa upp á stórum hluta láglendis á Íslandi. Nóg verður samt víðáttan á heiðum uppi! /SÁ Samfélagsleg þjónusta skóganna Göngufólk í skógi í Skotlandi.

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.