Bændablaðið - 24.05.2005, Qupperneq 14

Bændablaðið - 24.05.2005, Qupperneq 14
14 Þriðjudagur 24. maí 2005 Íbúar á Bíldudal fögnuðu vel þegar nýr slökkvibíll renndi í hlaðið við slökkvistöðina á Bíldudal föstudaginn 22. apríl sl. Sigurður Pétur Guðmunds- son, slökkvistjóri Brunavarna Vesturbyggðar, sagði í samtali við Bændablaðið að mikil þörf hafi verið orðin fyrir nýjan slökkvibíl á Bíldudal. Fyrir voru tveir gamlir og illa gang- færir slökkvibílar á staðnum. Nýi slökkvibíllinn var keyptur notaður frá Þýskalandi en gerður upp sem nýr væri eftir að hafa far- ið í gegnum verksmiðjur Toma í Þýskalandi, Hann stendur undir öllum væntingum og meira en það að sögn Sigurðar Péturs. Sett- ur var búnaður í bílinn fyrir nokk- ur hundruð þúsund krónur og kostaði bíllinn hingað kominn 4,3 milljónir króna. Bíllinn er árgerð 1983 af gerðinni MD Iveco með aldrifi. Slökkvilið Brunavarna Vest- urbyggðar er þrískipt. Á Bíldudal er þessi nýi slökkvibíll og 8 slökkviliðsmenn búa þar. Á Pat- reksfirði eru tveir slökkvibílar og 12 slökkviliðsmenn og á Barða- strönd sér bjögunarsveitin um rekstur eins slökkvibíls. Sigurður Pétur segir að ef um alvöru bruna sé að ræða, til að mynda á Pat- reksfirði, koma liðsmenn frá Bíldudal og Tálknafirði til að- stoðar og öfugt því samstarfið sé gott. Nýr slökkvibíll til Bíldudals Guðni Ágústsson landbúnaðar- ráðherra verður í opinberri heimsókn í boði norska landbún- aðarráðherrans, Lars Sponheim, dagana 22.-24. maí í Hörðalandi í Noregi, en Hörðaland er mikið landbúnaðarhérað og jafnframt kjördæmi norska ráðherrans. Í ferðinni verður lögð áhersla á að kynna nýsköpun í landbúnaði, en norska ríkisstjórnin hefur nú um nokkurt skeið verið með sér- stakt átaksverkefni nefnt „Land- bruk +“ til að efla atvinnu og byggð í sveitahéruðum. Megin markmið verkefnisins hefur ver- ið að efla heimavinnslu afurða, bændamarkaði ásamt þróun og vinnslu þjóðlegra sér-norskra landbúnaðarafurða. Þriðjudaginn 24. maí munu ráðherrarnir funda um málefni landanna ásamt aðstoðarmönnum. Fundurinn á m.a. að fjalla um tví- hliða samninga milli Íslands og Noregs, samstarfið innan Norður- landaráðs og þróun EES-samnings- ins. Í för með Guðna Ágústssyni landbúnaðarráðherra eru kona hans frú Margrét Hauksdóttir, Eysteinn Jónsson aðstoðarmaður hans, Há- kon Sigurgrímsson skrifstofustjóri í landbúnaðarráðuneytinu, Ágúst Sigurðsson rektor Landbúnaðarhá- skóla Íslands, Bjarni Guðmunds- son prófessor við Landbúnaðar- háksóla Íslands og Haraldur Bene- diktsson formaður Bændasamtaka Íslands. Opinber heimsókn landbún- aðarráðherra til Noregs www.bondi.is

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.