Bændablaðið - 24.05.2005, Qupperneq 17

Bændablaðið - 24.05.2005, Qupperneq 17
Þriðjudagur 24. maí 2005 17         Í rannsóknaverkefninu SKÓG- VIST eru könnuð áhrif nýskóg- ræktar á jarðveg, vöxt trjáa, kolefnishringrás og fjölbreyti- leika gróðurs, smádýra og fugla. Verkefnið er unnið í samvinnu Náttúrufræðistofnunar Íslands, Skógræktar ríkisins og Land- búnaðarháskóla Íslands. Í byrjun voru rannsóknirnar á Fljótsdalshéraði, þar sem skóg- laust land var borið saman við birki- og lerkiskóga á mismunandi aldri. Sambærilegar rannsóknir fara nú fram í Skorradal, þar sem skóglaust land er borið saman við birki-, greni- og furuskóga. Um 80% árlegrar gróðursetningar á Ís- landi er með þessum fjórum trjá- tegundum. Bjarni Diðrik Sigurðsson (S.r.) og Ásrún Elmarsdóttir (NÍ) segja að SKÓGVIST hafi þegar skilað umtalsverðum niðurstöðum, sem að miklu leyti eru ný þekking á líf- ríki skóga og á umhverfisáhrifum skógræktar hér á landi. Í því sam- bandi má nefna að litlar sem engar breytingar hafa orðið á sýrustigi jarðvegs undir barrskógum í sam- anburði við íslenska birkiskóga á sama aldri. Það á því það sama við um barrskóga á Íslandi og mýrarn- ar, þessi vistkerfi eru ekki eins súr og sambærileg vistkerfi á megin- landi Evrópu. Skýringuna má rekja til sérstakra eiginleika ís- lensks eldfjallajarðvegs og þess að hér er súr mengun minni. Þessar niðurstöður, auk nýrra upplýsinga um fuglalíf, smádýralíf, gróðurfar og sveppi, verða kynntar á alþjóðlegri ráð- stefnu sem haldin verður dagana 19.- 21. júní í Reykholti. Ráð- stefnan er opin öllum og frekari upplýsingar er að fá á heimasíð- unni www.skogur.is/page/af- fornord eða hjá Eddu Oddsdótt- ur í síma 5154500. Nýjar rannsóknir á áhrifum skógræktar á lífríkið. Jarðvegur er ekki súr- ari undir barrskógum SAUÐBURÐARKVER eftir Sigurð Sigurðarson dýralækni hefur verið endurútgefið. Þeir sem áhuga hafa panta það hjá honum í síma 892 1644 eða í tölvupósti sigsig@hi.is og gefi upp kennitölu við greiðslu í banka. Verð með burðargjaldi kr 1.000. Bæjarráð Sveitarfélagsins Hornafjörður ítrekaði í vor erindi til fjárlaganefndar Al- þingis sem lagt var fram á fundi nefndarinnar í septemb- er 2004 varðandi samgöngu- mál. Þar kemur fram áhersla á að ný brú yfir Hornafjarð- arfljót sé mesta samgöngubót- in innan héraðsins. Sú fram- kvæmd myndi stytta vega- lengdir innan sveitarfélagsins verulega og auðvelda öllum íbúum sveitarfélagsins að njóta þjónustu og sækja at- vinnu í sveitarfélaginu öllu. Einnig er tekið fram að ný brú yfir Hornafjarðarfljót yrði einnig samgöngubót á þjóðvegi 1 og auðvelda bæði fólks- og flutningabílum um- ferð um svæðið. Ákveðið hef- ur verið að fresta fram- kvæmdum við Hornafjarðar- fljót og mótmælir bæjarráð þeirra frestun. Albert Eymundsson, sveitar- stjóri á Hornafirði, sagði í sam- tali við Bændablaðið að núver- andi brú yfir Hornafjarðarfljót væri einbreið rúmlega 40 ára gömul brú. Hún er hætt að full- nægja nútíma kröfum vegna þeirra miklu landflutninga sem nú eiga sér stað. Þá segir hann að bæjarráð vilji leggja áherslu á að fækka einbreiðum brúm í sveitarfélaginu. Hann segir að það eigi að breyta vegastæðinu og hring- vegurinn styttist um allt að 11 km eftir því hvar vegastæði verður valið. Nefnir hann sem dæmi vegalengdina frá þjón- ustukjarnanum á Hornafirði í vestari hluta sýslunnar og Suð- ursveit sem styttist verulega og væri mikil samgöngubót. Það er ekki síst mikilvægt vegna þess að eftir sameiningu hrepp- anna er um eitt atvinnu- og þjónustusvæði að ræða. Vilja nýja brú yfir Hornafjarðarfljót Smáauglýsingar sem skila árangri!

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.