Bændablaðið - 24.05.2005, Page 24
24 Þriðjudagur 24. maí 2005
Á hverju ári fara þús-
undir ungmenna úr þétt-
býlinu í heimsókn í sveitina.
Fimm bæir taka á móti
börnum í samstarfi við
Bændasamtökin en þeir eru
Miðdalur og Grjóteyri í
Kjós, Bjarteyjarsandur á
Hvalfjarðarströnd, Hraða-
staðir í Mosfellsdal og
Stóri-Dunhagi í Hörgárdal í
Eyjafirði.
Bændablaðið var á ferð-
inni í Miðdal á dögunum og
hitti fyrir hóp barna úr
Snælandsskóla í Kópavogi.
Með þeim í för voru tveir
kennarar og tveir stuðn-
ingsfulltrúar, þær Sigríður
Þórisdóttir, Þórey Guð-
mundsdóttir, Steinunn Pét-
ursdóttir og Hugrún Gunn-
arsdóttir. Blaðamanni lék
forvitni á að vita hvaða
gildi heimsókn sem þessi
hefði fyrir börnin. Þær
voru sammála um það að
heimsóknin væri í senn
fróðleg og skemmtileg en
mörg barnanna hafa aldrei
komið í sveit eða í snertingu
við dýrin. Hér væru þau í
miklu návígi, gætu haldið á
lömbunum og klappað hest-
unum. Sigríður sagði að
bekkirnir hefðu undirbúið
heimsóknina. „Krakkarnir
hafa unnið með íslensku
húsdýrin síðustu vikurnar.
Við erum með sérstakt
kennsluefni, bókina Æsa og
Gauti í sveitinni. Síðan eru
unnin verkefni og upplýs-
inga aflað á vefnum.“ Að-
spurðar um framboð á
námsefni, sem fjallaði um
landbúnaðinn og lífið í
sveitinni, sögðu þær að það
væri ágætt - a.m.k. fyrir
yngri stig grunnskólans.
Borgarbörn í návígi við dýrin í sveitinni
Svanborg Magnúsdóttir og Guðmundur Davíðsson í Miðdal hafa tekið á móti skólabörnum um árabil. Hér eru þau
í hesthúsinu ásamt ungum hestaáhugamönnum.
Krakkarnir í þriðja bekk Snælandsskóla létu fara vel um sig í lautinni í Miðdal
þar sem þau drukku mjólk í boði MS. Sauðburður í fullum gangi og margt að sjá.
Sigríður Þórisdóttir, Þórey Guðmundsdóttir, Steinunn Pétursdóttir og Hug-
rún Gunnarsdóttir, starfsmenn Snælandsskóla í Kópavogi, voru sammála
um að heimsókn í sveitina væri fróðleg og skemmtileg fyrir börnin
Landgræðslufélag Héraðsbúa
var stofnað árið 2001 að frum-
kvæði heimamanna og er hefting
jarðvegseyðingar og bætt ásýnd
landsins meginmarkmið félags-
ins. Félagar eru milli 30 og 40 og
starfssvæðið Fljótsdalshérað
eins og það leggur sig.
Árið 2001 var byrjað að vinna
við girðingu við Sænautasel og þar
var haldinn landgræðsludagur því
tengdur. Sumarið 2004 mátti heita
að girðingin væri orðin algróin og
gróður sjálfbær. Þessi árangur er
mjög sérstakur í ljósi þess að upp-
græðslusvæðið er í 550 til 600
m.y.s., meðalárshiti um 1,5 C°
(sbr. 5°C í Reykjavík) og úrkoma
um 350 mm (sbr. 950 mm í
Reykjavík ) á ári. Nær eingöngu
hefur verið notast við áburðargjöf
og dreifingu á heyrúllum við upp-
græðslu svæðisins. Að auki hefur
náðst mjög góður árangur utan
girðingarinnar með sömu aðferð-
um. Annað svæði sem mikil
áhersla hefur verið lögð á er Hjarð-
arhagaaurar við Hjarðarhaga í Jök-
uldal. Þar er um að ræða gamlar
skriður og rofabörð í gróðurjaðri
þar sem jarðvegsrof var mjög
virkt. Nú er svæðið að lokast og
virkt jarðvegsrof er nánast ekkert.
Mjög mikilvægur þáttur í starf-
semi félagsins er rekstur rúllutæt-
ara sem keyptur var árið 2002.
Heyrúllur eru tættar í rofabörð og á
illa farið land og hefur það reynst
skila skjótum árangri. Þessi aðferð
hefur verið notuð við Sænautasel
og Hjarðarhaga auk þess sem
bændum á Héraði hefur gefist
kostur á að nýta sér tætarann.
Notkun á tætaranum er því mikil
og má nefna að sumarið 2004 var
um 1500 rúllum dreift á vegum fé-
lagsins.
Uppgræðslustarf Landgræðslu-
félags Héraðsbúa er fjármagnað
með styrkjum og þar hefur Poka-
sjóður farið fremstur í flokki með
rausnarlegum framlögum en eins
hafa verið sóttir styrkir í Landbóta-
sjóð Landgræðslu ríkisins og víð-
ar.
Ekkert lát er á starfsemi félags-
ins og sumarið 2005 er áætlað að
unnið verði mikið starf í upp-
græðslu með áburðar- og rúllu-
dreifingu. Meðal annars verða tek-
in fyrir ný svæði utan girðingar við
Sænautasel og borið á Hjarðar-
hagaaura auk þess sem til stendur
að finna ný svæði til uppgræðslu.
* Upplýsingar um veðurfar
eru fengnar af vef Veðurstofu Ís-
lands, www.vedur.is
Gústav Ásbjörnsson
Landgræðslufélag Héraðsbúa
Rúllutætarinn að störfum við Sænautasel.