Bændablaðið - 24.05.2005, Qupperneq 30
30 Þriðjudagur 24. maí 2005
Á forsíðu er greint frá því að Al-
þjóðadýraheilbrigðistofnunin
(OIE) og FAO hafi haldið ráð-
stefnu í Paris í byrjun apríl til
þess að ræða úrræði svo draga
megi úr hættu á heimsfaraldri
vegna fuglaflensunnar.
Á ráðstefnunni kom fram það
álit sérfræðinga að förgun alifugla
í Hong Kong árið 1997 hafi komið
í veg fyrir að nýr heimsfaraldur í
fólki hafi farið af stað á þeim tíma.
Í SA-Asíu býr fólk, alifuglar
og svín afar þétt - en svín eru talin
mikilvægur hlekkur í því að fugla-
flensuveiran smiti milli manna.
Aðstæður á þessum slóðum eru
þannig að nú telja sérfræðingar að
stökkbreytingin muni eiga sér stað
- aðeins sé spurning um tíma hve-
nær það gerist.
Er fuglaflensa hættuleg fyrir
okkur hér á Íslandi? Getur þessi
faraldur borist til Íslands? Þessu
svarar Jarle Reiersen, dýralæknir
alifuglasjúkdóma, þannig að þegar
fuglaflensuveiran stökkbreytist -
þannig að hún smiti milli manna -
þá geti afleiðingarnar orðið alvar-
legar eins og sóttvarnarlæknir hef-
ur ítrekað bent á. „Fram til þess að
stökkbreytingin á sér stað verðum
við að gera allt til þess að koma í
veg fyrir að fuglaflensan berist til
landsins. Innflutningslöggjöf um
bann við innflutning fugla/dýra og
-afurða er mjög mikilvægur liður
til að sporna við að smit berist til
landsins,“ sagði Jarle.
Fuglaflensusmit getur borist
með farfuglum og er reiknað með
að vatnafuglar séu heilbrigðir
smitberar sem flytja smit milli
landa og heimsálfa. Á OIE-ráð-
stefnunni í París, sem Jarle sat, var
sýnt að smit hafði borist með gæs
frá Egyptalandi til Suður-Afríku.
Mjög lítið er vitað um fuglaflensu-
smit í farfuglum sem koma til Ís-
lands á hverju vori. Hérlendis
greindist ein villiönd með flensu-
veirunni í rannsókn á villiöndum
við Mývatn í byrjun áttunda ára-
tugarins. Síðan er ekki vitað til að
rannsóknir hafi verið gerðar á
fuglaflensuveirum í farfuglum hér-
lendis.
„Fyrir okkur skiptir miklu máli
að vera laus við fuglaflensu,“ sagði
Jarle „þegar kemur að milliríkja-
viðskiptum með landbúnaðaraf-
urðir. Ef fuglaflensa er ekki á Ís-
landi er auðveldara að flytja út
landbúnaðarafurðir til allra landa.
Nú hafa ESB og Ísland bannað all-
an innflutning á alifuglaafurðum
frá suðaustur Asíu. Fjárhagslegar
afleiðingar fyrir Taílendinga eru
gríðarlegar því þeir eru einn stærsti
útflytjandinn á alifuglakjöti í
heiminum.“
Á OIE/FAO-fundinum í París
var lagt til að hvert land kannaði
útbreiðslu fuglaflensunnar með
kerfisbundnum sýnatökum. „Þó að
síðasta könnun á fuglaflensuveiru
hérlendis í alifuglum hafi verið í
lok árs 2002, er mikilvægt að
kanna hvort fuglaflensa er til stað-
ar nú. Ef hún greinist, eru góðir
möguleikar á að beita markvissum
aðgerðum til þess að minnka af-
leiðingar hennar. Ef hún greinist
ekki í farfuglum eða alifuglum, er
það góð staðfesting á hreinleika af-
urðanna,“ sagði Jarle.
Fuglaflensan
Sérfræðingar telja aðeins
tímaspursmál hvenær
veiran stökkbreytist
Viðbragðsáætlanir yfirdýralæknis vegna tilkynningarskyldra
dýrasjúkdóma byggjast á því að skilgreind séu viðbrögð almennings,
dýralækna og yfirvalda þegar grunur vaknar um slíkan sjúkdóm.
Grunsemdir um smitsjúkdóm berast yfirdýralækni eftir ákveðnum
boðleiðum. Hann kemur svo boðum um hættuástand til þeirra sem
við eiga; dýralækna, opinberra stofnana og hagsmunaaðila svo
eitthvað sé nefnt, skv. skilgreindu viðvörunarkerfi og stýrir þeim
aðgerðum sem nauðsynlegar eru til að koma í veg fyrir útbreiðslu
smits. Á heimasíðu Embættis yfirdýralæknis eru upplýsingar um
réttar boðleiðir og hvað beri að gera vakni grunur um alvarlegan
smitandi dýrasjúkdóm á Íslandi.
Í mörgum löndum Asíu geisar nú fuglaflensa,
þar sem fuglar og alifuglar drepast og er eytt í stór-
um stíl, segir í tilkynningu frá yfirdýralækni á
heimasíðu embættisins.
Í augnablikinu eru staðfest tilfelli í Norður Kór-
eu, Víetnam, Tælandi, Kína, Indónesíu, Pakistan,
Kambódíu, Laos og Taiwan, þar sem margar millj-
ónir fugla eru annað hvort dauðar eða hefur verið
fargað sem lið í baráttunni við sjúkdóminn. Ekki
eru í gildi neinar takmarkanir á ferðum fólks til
þessara landa vegna sjúkdómsins.
Fuglaflensa er ekki hættuleg fólki við venjuleg-
ar aðstæður. Veiran sem veldur sjúkdómnum skilst
út í miklu magni gegnum saur smitaðra fugla, þess
vegna er ferðamönnum ráðlagt að forðast beina
snertingu við lifandi fugla, t.d. á mörkuðum þar
sem lifandi fiðurfénaður er seldur. Veiran þolir ekki
suðu þannig að hættulaust á að vera að borða soðn-
ar alifuglaafurðir. Sjóða ber allar fuglaafurðir vand-
lega. Sama gildir um egg. Til að draga úr smithættu
er hreinlæti mikilvægt t.d. að þvo hendur vel og
vandlega. Þvoið hendur vel upp úr heitu vatni og
sápu eða með efnum sem innihalda spritt.
Til að forðast það að smit berist til Íslands
hvertur embætti yfirdýralæknis til að fólk fylgi eft-
irfarandi leiðbeiningum:
1. Hafi ferðamaður komist í nána snertingu við lif-
andi fiðurfénað á ferðalögum sínum, skal hann
forðast að koma í beina eða óbeina snertingu við
fugla og fiðurfénað hér á landi í a.m.k. 48 tíma
eftir heimkomuna til Íslands.
2. Við heimsóknir á staði þar sem eru lifandi fuglar
ber að nota einnota hlífðarfatnað sem síðan er
skilinn eftir á staðnum. Ef notaður er skó- og
hlífðarfatnaður sem hægt er að þrífa ber að gera
það vandlega á staðnum.
3. Þrífa ber og sótthreinsa allt sem komið hefur í
beina snertingu við fiðurfénað og egg, ef ætlunin
er að taka það með til Íslands.
4. Bannað er að taka með sér lifandi fiðurfénað og
hráar afurðir fugla frá ofangreindum löndum.
5. Tollayfirvöld eru sérstaklega á varðbergi gagn-
vart afurðum frá þessum löndum.
Fuglaflensan
Hættulaust að borða
soðnar fuglaafurðir
Brúðarkjóll Höllu til sýnis á hátíðinni Fjör í Flóanum!
Margrét í kjólnum. Á myndinni t.h. eru þær saman Jóhanna og Margrét.
Á meðfylgjandi mynd má sjá
kjól sem varð í 2. sæti í
hönnunarkeppni
framhaldsskólanna en hún var
haldin á Akureyri í apríl.
Kjólinn hönnuðu og saumuðu
þær Jóhanna Þorbjörg
Magnúsdóttir í Bitru í
Hraungerðishreppi og Margrét
Gísladóttir í Glaumbæ í
Skagafirði, en þær eru báðar
nemendur í
Hússtjórnarskólanum á
Hallormsstað.
Þær nefna kjólinn Brúðarkjól
Höllu og eiga þar við Höllu konu
Fjalla-Eyvindar. Í hann notuðu
þær satín og þæfða ull, mórauða
gæru sem Elísabet í Bitru, móðir
Jóhönnu sútaði, hrútshorn og
fleira og myndar gæran
nokkurskonar slóða á kjólinn.
Skartgripi gerðu þær meðal annars
úr völubeinum og hrosshári.
Þessi óvenjulegi brúðarkjóll
verður til sýnis í félagsheimilinu
Þingborg á hátíðinni Fjör í
Flóanum síðustu helgina í maí.
Sjón er sögu ríkari, lítið á
http://www.floi.is
Víða er afar þéttbýlt í Asíu.
Fyrir utan endurveiðihlutfallið
kannaði hann hvort endurveiði-
staðurinn væri ofar eða neðar í
ánni sem getur sagt til um hegðun
laxins eftir sleppinguna og tímann
sem leið frá því að fiski var sleppt
eftir veiði og þar til hann veiddist
aftur. Að meðaltali liðu um þrjár
vikur þar til fiskurinn var veiddur
aftur. Þessi tími var hins vegar frá
einum degi og upp í meira en 60
daga.
,,Þetta segir okkur að ef menn
ætla að auka veiðina í ám þar sem
hrygningarstofninn er í lagi er til-
gangslaust að sleppa fiski á haust-
in en ef það er gert fyrri hluta
veiðitímabilsins eykur það að öll-
um líkindum veiðina. Þar sem arf-
gengi meðal stórlaxa fyrir að
ganga í árnar er hátt er þó alltaf
æskilegt að sleppa honum vegna
hnignunar hans undanfarin ár",
sagði Borgar Páll Bragason.
Framhald af forsíðu.
Á milli 20 og 30% þess lax sem sleppt er veiðist aftur