Bændablaðið - 05.07.2005, Page 8

Bændablaðið - 05.07.2005, Page 8
8 Þriðjudagur 5. júlí 2005 Fyrir nokkru hófst gróðursetning trjá- plantna á Norðurlandi en lengi var beðið eft- ir að næturfrostin hættu. Næsta vandamál var þurrkurinn en Valgerður Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Norðurlandsskóga, segir að oft hafi ástandið verið verra en núna. „Auðvitað eru svæði sem geta verið mjög þurr sem er þá skynsamlegt að geyma, eins og t.d. melar þar sem á að fara lerki. Ef þeir eru mjög þurrir þá er betra að geyma þá - það hlýtur nú að rigna einhvern tímann! Þó við miðum við að gróðursetja ekki nema fram um mánaðamót júní/júlí þá er betra að draga gróðursetningu fram í júlí en að gróð- ursetja ef það er alltof þurrt.“ Eru allar skógarplöntur jafn viðkvæmar fyrir frosti? „Nei, það er svo misjafnt hvað þær fara snemma af stað. Öspin er t.d. viðkvæm þótt það fari reyndar mikið eftir klónum af henni. Sumt af henni var orðið ansi laufgað þegar frostin byrjuðu. Stafafura og hvítgreni eru einna harðastar, þær fara ekki af stað svo snemma - og birkið náttúrulega, það lætur ekk- ert blekkja sig, er sallarólegt ennþá. Menn verða bara að nota skynsemina í þessu og nota tímann til að bera á meðan tíðarfarið er svona.“ Hvað er ráðgert að planta miklu núna? „Við erum að vonast til þess að við náum einni og hálfri milljón plantna í sumar. Það verður algjört met ef við náum því. Tvö síð- ustu ár höfum gróðursett rúma milljón á ári. Af þessu er áætlað að planta um 900 þúsund plönt- um nú í vor.“ Er það rétt að plönturnar sem fara í Norður- landsskóga í sumar komi víðs vegar að af land- inu? „Já, við erum með samninga við fimm gróðrarstöðvar. Við erum skyldug að bjóða út alla plöntuframleiðslu og síðan fer það bara eft- ir því hver er með hagstæðustu tilboðin hvaðan við fáum plöntur. Þannig að okkur er ekki heimilt að semja við gróðrarstöðvar sem liggja hagkvæmast fyrir okkur. Reyndar sjá stöðvarn- ar um að flytja plönturnar þannig að tilboðin eru miðuð við afhendingu á ákveðnum stöð- um.“ Er þá ekki heimilt að taka tillit til þess að það geti verið óheppilegt fyrir plöntu sem er alin upp á einum stað á landinu að vera gróðursett á öðrum? „Jú, ef það eru einhver skynsamleg rök fyrir því. En það er hins vegar ekki talið að svo sé, þetta er ekki það stórt land. Hins vegar getum við t.d. sagt að við viljum ekki fá ösp frá Suður- landi af því að þar er asparyð. Þannig rök get- um við notað. En auðvitað ef við erum að fá plöntur frá Suðurlandi viljum við ekki fá þær fyrr en er orðið frostlaust hér, við verðum að stýra því þannig. En útboðsreglurnar eru svona. Gróðrarstöðin Kjarni er að selja plöntur austur á Hérað og Barri og Sólskógar á Héraði eru að selja okkur - bílarnir mætast á leiðinni. Þetta er eiginlega algjör vitleysa. Auðvitað er gott að hafa fleiri en eina gróðrarstöð en það er hins vegar mjög kjánalegt að maður geti ekki stýrt þessu aðeins. Þetta eru víst lögin um opin- ber innkaup. Af því við erum ríkisfyrirtæki þá þurfum við að bjóða út öll innkaup. Þannig að nú er aðalviðfangsefnið að púsla saman öllum þessum ferðum. Núna er t.d. verið að keyra plöntur að austan í Húnavatnssýslurnar og Skagafjörðinn. Hins vegar er það alveg bylting fyrir okkur að fá dreifingarstöðvarnar. Við byrjuðum með þær í fyrra. Vð semjum við bændur á nokkrum stöðum og þeir eru í vinnu hjá okkur við að passa plönturnar. Síðan geta bændur í nágrenn- inu komið og náð sér í þann skammt sem þeir vilja. Þrjár af fimm dreifingarstöðvum Norður- landsskóga eru hjá bændum; á Krithóli í Skaga- firði, Hólabaki í Húnavatnssýslu og Sandfells- haga í Öxarfirði. Þetta er svona mánaðartími vor og haust sem bændurnir hafa hlutavinnu af þessu. Þeir sjá um að vökva með áburði, annast og afhenda plönturnarog skrá hvað hver tekur. Þetta er miklu betra fyrirkomulag en þegar var verið að keyra beint heim á bæina. Þá fengu menn kannski 20.000 plöntur í einu heim á hlað og voru svo að smásetja þær niður í margar vikur. Þá voru þær orðnar næringarlausar því menn höfðu auðvitað ekki græjur til að gefa áburð. Við leiðbeinum dreifingarstöðvunum og leggj- um til áburðarblandara og annað sem til þarf. Þetta hefur heppnast mjög vel. Það er líka alltaf betra þegar er smá nálægð, menn hittast og það myndast svona ræktunarkjarni. Þetta er auðvit- að aukakostnaður fyrir okkur en hann skilar sér margfalt í betri plöntum og betri vinnubrögð- um.“ Hvað eru margir þátttakendur í Norðurlands- skógum? „Það er búið að gera samninga við um 120 jarðir og tæpar fjórar milljónir plantna eru farn- ar niður. Reyndar eru ekki alveg allir að gróð- ursetja í vor því sumir eru búnir að fullnýta svæðin. Svo eru utan við þetta þeir sem eru í skjólbeltunum, sem eru mjög margir - það eru um eða yfir hundrað jarðir. Ætli verði ekki sett- ir niður um 60 km á þessu ári, sem skýlir þá ein- um 20 til 30 km því beltin eru oftast tvöföld eða þreföld og jafnvel upp í fimm raðir. Þetta lítur allt bara vel út og við erum loks- ins búin að tæma biðlistann. Sumir voru búnir að bíða alveg frá því árið 2000. Þannig að nú eru allir komnir með samning nema bara þeir sem hafa sótt um á þessu ári - því það eru alltaf að berast nýjar og nýjar umsóknir. Við gerum ráð fyrir að geta heimsótt þá í sumar sem sóttu um núna fyrir vorið, tekið út svæðin og þá ætti að vera hægt að byrja að kortleggja hjá þeim næsta ár. Það var afleitt þegar menn þurftu að byrja á að bíða einhver ár eftir að geta hafist handa og er vonandi úr sögunni,“ sagði Val- gerður Jónsdóttir. /AÓ Davíð og Sigríður í Glæsibæ við Eyjafjörð eru efalítið meðal þekktustu skógarbænda lands- ins. Eftir að hafa komið sér upp myndarlegum skógarreit, þar sem þau byggðu glæsilegan sumarbústað til að eiga til elli- áranna, hófust þau handa við alvöru skógarbúskap. Plöntun í Hálsaskóg, sem er um 260 ha að stærð, hófst árið 1992 og er nú lokið að undanskildum þeim svæðum sem ekki teljast hæf til skógræktar vegna bleytu. Þarna hafa þau plantað á sjötta hundruð þúsund plöntum af a.m.k. tólf trjátegundum. Af þeim er lerkið mest áberandi enn sem komið er en greniteg- undir láta væntanlega meira á sér bera þegar fram líða stund- ir. Hálsaskógur liggur að þjóð- vegi númer eitt, skammt norðan við bæinn Moldhauga, svo veg- farendur sem eru á leið til Akur- eyrar úr vestri ættu að líta til vinstri á þeim slóðum og festa sér útsýnið í minni - þar má búast við breyttri sýn þegar árin líða. Það er uppörvandi að sjá hve stór og glæsileg mörg trén eru orðin á að- eins þrettán árum, og þaðan af styttri tíma, sem sýnir okkur að þótt stundum sé talað um skóg- rækt sem framtíðarverkefni, sem í besta falli komi afkomendunum til góða, eru talsverðar líkur á að ef við drífum í framkvæmdum njótum við ávaxta erfiðisins nema við séum hreinlega komin á graf- arbakkann. En skógræktin er ekki frekar en annar búskapur eintómur dans á rósum. Sigríður og Davíð segja veðurfarið stundum hafa sett strik í reikninginn og leggja mikla áherslu á að þau vilji alls ekki byrja að planta á meðan enn fryst- ir um nætur. Reyndar sé aldrei hægt að verjast næturfrostum sem geta komið jafnvel þótt langt sé liðið á júní en ef of snemma er plantað sé verið að bjóða hætt- unni heim. Versta veðurskaða sem skógræktin þeirra hafi orðið fyrir segja þau þó vera vetrarveð- ur sem gerði fyrir um tíu árum. Hvassa suðvestanátt sem reif upp skara og stórskemmdi plöntur. Þrátt fyrir áföll hafa þau hjón- in haldið ótrauð áfram og bætt við skógræktarlandið eftir að þau luku plöntun í Hálsaskógi. Stefn- an er að bæta einum átján þúsund plöntum í hópinn í sumar enda segja þessir fyrrum sauðfjár- og kúabændur að trén séu skemmti- legasti bústofn en þau hafa haft. /AÓ Næturfrostin skógarbúskapnum skeinuhætt Ólöf Erlingsdóttir, starfsmaður í Gróðrarstöðinni Kjarna, og Davíð Guðmundsson, skógarbóndi í Glæsibæ. Þau halda þarna á fyrstu plöntubökkunum sem Davíð sækir þetta vorið. Bbl./AÓ Valgerður Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Norðurlandsskóga Það var bylting að fá dreifingarstöðvarnar - áætlað að planta 2,5 milljónum í sumar Úr dýra- ríkinu Bókaútgáfan Hólar hefur gefið út fyrsta ritið í ritröðinni Náttúru- skoðarinn eftir Bjarna E. Guðleifs- son náttúrufræðing. Þetta fyrsta hefti nefnist Úr dýraríkinu og er þar fjallað á alþýðlegan hátt um 20 fyrirbæri úr dýraríkinu svo sem köngulær, rækjur, farfugla, snjó- tittlinga, keldusvín og kýr. Flestir þættirnir byggja á eldri erindum höfundar, sem hafa verið aukin og endurbætt. Ekki er um fræðilega útekt að ræða á fyrirbærunum heldur auðlesinn fróðleik um for- vitnileg fyrirbæri úr ríki dýranna með persónulegu ívafi úr reynslu- heimi höfundar. Fyrirhugað er að næstu hefti fjalli um fyrirbæri úr jurtaríkinu og síðan úr steinarík- inu. Höfundurinn, Bjarni E. Guðleifs- son, er starfsmaður Landbúnaðar- háskóla Íslands og hefur starfað við rannsóknir á plöntum og smá- dýrum við tilraunastöð Rann- sóknastofnunar landbúnaðarins á Möðruvöllum í Hörgárdal og er búsettur þar. Hann hefur einkum fengist við rannsóknir á vetrarþoli plantna og áhrifum mannlegra at- hafna á smádýralíf í mold og á gróðri. Rúmlega þriðjungur þátt- anna í þessu fyrsta hefti er um fugla sem augljóslega eru höfundi hugleiknir. Því var ákveðið að af- henda fyrsta eintakið formanni Fuglaverndarfélags Íslands sem vinnur að verndun búsvæða fugla sem mannlegar athafnir geta ógn- að. Náttúruskoðarinn fæst í bókabúð- um og hann er einnig hægt að panta í síma 587-2619. Landbúnaðar- sýning í Skagafirði Dagana 18. til 21. ágúst verð- ur efnt til landbúnaðarsýn- ingar á Sauðárkróki. Þetta er í fyrsta sinn sem haldin er landbúnaðarsýning í reiðhöll- inni Svaðastöðum á Sauðár- króki. Húsið er 2.600 fermetr- ar að stærð með gríðalegu úti- svæði og og þegar hefur sýnt sig að það hentar vel til sýn- ingahalds. Í tilkynningu segir að fjöldi fyrirtækja muni kynna vörur sínar og þjónustu s.s. afurðasöl- ur, búvélafyrirtæki, innréttinga- fyrirtæki og tryggingafélög og því gefist bændum og búaliði kjörið tækifæri til þess að sjá og reyna það nýjasta sem er í boði á markaðnum. „Sýningargestir mun fá innsýn í flest það sem íslenskur landbúnaður felur í sér og meðal dagskráatriða verður kúasýning, fjárhunda- keppni og kynbótasýning hrossa. Lagt verður upp úr því að um fjölskylduvæna skemmt- un sé að ræða með fjölbreyttri afþreygingu fyrir börnin.Það er Fluga hf á Sauðárkróki sem stendur fyrir sýningunni í sam- vinnu við Leiðbeiningamiðstöð- ina ehf og búgreinafélögin í Skagafirði.“

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.