Bændablaðið - 05.07.2005, Blaðsíða 21

Bændablaðið - 05.07.2005, Blaðsíða 21
Þriðjudagur 5. júlí 2005 21 Grasmaðkur er búin að leggja undir sig stór landsvæði í Skaftárhreppi nú í vor. Gras- maðkurinn hefur klárað úthagagróður á þúsundum hektara, bæði á láglendi í Meðal- landi og Álftaveri og á afréttum. Í fyrra olli maðkurinn miklu tjóni á gróðri á afréttum og í heiðarlöndum, nú er hann á sömu stöðum á afréttunum og jafnframt búin að hreinsa um úthagagróður á láglendinu. Þessar myndir eru teknar í Álftaveri - en þar er jörðin sviðin jörð eftir grasmaðkinn Myndirnar tók Elín Heiða Valsdóttir, héraðsfulltrúi Landgræðslunnar Grasmaðkur veldur miklum skaða Í nýju tölublaði Freys er m.a. fjallað um hjálparefni við hey- verkun, afurðahæstu kýr á Íslandi, afkvæma- rannsóknir á Hesti, nýj- ar reglur ESB um mat- vælaframleiðslu, ferða- þjónustu og umhverfis- vottun. Ítarleg umfjöll- un er um svínabúið á Melum í Leirár- og Melasveit en þar er uppeldisbú fyrir 8.000 grísi og fullkomin fóðurstöð. Rætt er við Geir Gunnar Geirs- son, framkæmdastjóra Stjörnu- gríss, um stöðu svínaræktarinnar og búið á Melum. Þá er viðtal við Ingimar Einarsson á Hvanneyri sem nú lætur af störfum eftir 33 ár við Nautastöðina. Nýr greina- flokkur um steinsmíði lítur einn- ig dagsins ljós en í fyrsta þætti er fjallað um það hvernig á að kljúfa stein. Þriðja tölublaði hef- ur verið dreift til kynn- ingar til allra bænda og segir Tjörvi Bjarnason, ritstjóri Freys, að breyt- ingum hafi verið vel tek- ið hjá lesendum og áskrifendum fjölgað. „Með því að stækka blaðið í A4 og prenta í lit hefur Freyr fengið nýtt yfirbragð. Við höf- um líka breytt skipulagi blaðsins með því að hætta með búgreinaskiptingu á tölublöðum. Viðtökur hafa almennt verið jákvæðar en lesendur, ekki síður en auglýsendur, þurfa að venjast breyttum áherslum. Ég hef fulla trú á því að áskrifendum eigi eftir að fjölga verulega enda er þarna margvíslegt efni að finna sem á erindi við bændur. Freyr hefur markað sér stöðu sem fagtímarit landbúnaðarins og henni ætlum við að viðhalda og efla,“ sagði Tjörvi. Áskrifendum Freys fjölgar

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.