Bændablaðið - 05.07.2005, Blaðsíða 20
20 Þriðjudagur 5. júlí 2005
Tilnefning í fagnefnd
búfræðibrautar LBHÍ
Á síðasta stjórnarfundi
Bændasamtaka Íslands var lagt
fram bréf Landbúnaðarháskóla
Íslands þar sem óskað er
tilnefningar Bændasamtaka
Íslands á einum fulltrúa til setu í
fagnefnd fyrir búfræðibraut
skólans.
Stjórnin samþykkti að tilnefna
Gunnar Guðmundsson, sviðsstjóra
ráðgjafarsviðs, sem fulltrúa
Bændasamtaka Íslands í
fagnefndina.
Skipan
samninganefndar
sauðfjárbænda
Á síðasta stjórnarfundi stjórnar
BÍ var lagt fram bréf
Landssamtaka sauðfjárbænda,
dags. 11. maí sl., þar sem óskað
er eftir því að Bændasamtök
Íslands hefji undirbúning að
skipan samninganefndar fyrir
nýjan sauðfjársamning með það
að leiðarljósi að hægt verði að
hefja samningagerð strax á
þessu ári.
Framkvæmdastjóra var falið
að óska eftir því við
landbúnaðarráðherra að hafin
verði undirbúningur að gerð nýs
sauðfjársamnings þannig að
samningaviðræður geti hafist
þegar næstkomandi haust.
Jafnframt var samþykkt
samhljóða að þeir Haraldur
Benediktsson og Gunnar
Sæmundsson sitji í samninga-
nefndinni fyrir hönd Bændasam-
takanna. Ennfremur var sam-
þykkt að leita eftir tilnefningum
Landssamtaka sauðfjárbænda á
tveimur fulltrúum í nefndina, auk
þess sem formönnum BÍ og LS
var falið að gera tillögu um skipan
eins sameiginlegs fulltrúa beggja
aðila í nefndina.
Í nútímanum er Mosdalur í
Arnarfirði ein af yfirskyggðum
byggðum þessa lands. Tilheyrði
Auðkúluhreppi, síðar Þingeyr-
arhreppi og loks Ísafjarðarbæ
og er vestust byggð í Ísafjarð-
arsýslu. Aðalsteinn Guðmunds-
son bjó á Laugabóli gegnt
Hrafnseyri til hárrar elli en þá
keypti jörðina fólk að sunnan
og byggði upp myndarlega. Þar
er einkum búið með hross. Ós
er næstur bær innan Laugabóls
og þar býr einbúi með fjárhóp
sinn, Þorbjörn Pétursson,
fæddur á Ósi. Pétur faðir hans
er enn á lífi og einnig talinn
bóndi á Ósi.
Þorbjörn Pétursson býr með
eitt hundrað og áttatíu fjár á Ósi
og er mjög elskur að bústofni sín-
um. Samband hans við fé sitt
minnir á fjárhirðinn á Jesúmynd-
unum og þar ber hver skepna
ákveðinn persónuleika og fullt
traust til eiganda síns. Flest fé á
Ósi er ættað norðan úr Árnes-
hreppi og kom þaðan í fjárskipt-
um eftir að riða var talin finnast í
Mosdal fyrir um aldarfjórðungi.
Frítt fé, kollótt og gáfulegt. Þor-
björn Pétursson er fæddur árið
1953, ólst upp í systrahópi og
hefur alið allan sinn aldur á Ósi. Í
seinni tíð hefur hann búið einn á
Ósi og fer lítt af bæ. Hann ekur
þá um á dráttarvél sinni því eng-
an á hann bílinn. ,,Því hvað á
maður sem aldrei fer neitt að gera
við bíl,“ segir Pétur með sinni
heimspeki. Vor var kalt og þurrt
á Vestfjörðum, lítið gróið og fé á
gjöf í maímánuði.
Svartagengið á sérbýli
Svartagengið er tiltekinn fjárhóp-
ur á Ósi og bar gengið í endaðan
apríl og var haft sér í húsi. Aðrar
skepnur báru á hefðbundnum tíma
og voru lömb sem óðast að koma í
heiminn þegar blaðamann bar að
garði á Ósi í ofanverðum maímán-
uði. Guðmunda, systir Péturs,
kom þá vestur til að aðstoða bróð-
ur sinn í sauðburðinum. Og ánum
umbunaði Pétur með mjólkurkexi
eftir hvern burð, sem þær þágu
með miklu þakklæti.
Landpóstur sinnir byggðinni í
Mosdal og kemur hann á báti sín-
um frá Bíldudal yfir vetrartímann
en ekur þegar heiðar opnast. Póst-
urinn færir Mosdælingum mat-
föng og aðrar nauðsynjar sam-
kvæmt gamalli hefð. Lengi þjón-
aði Halldór Jónsson á Bíldudal
byggðinni, en í seinni tíð sonur
hans Jón Halldórsson. Talsími er á
Ósi en ekki veiturafmagn.
Rafmagnið sýnd
veiði en ekki gefin
Þó er Mjólkárvirkjun innan seil-
ingar við botn Arnarfjarðar við
innfjörð sem heitir Borgarfjörður.
Hafið er þó lengra frá Mjólká að
Ósi en staðlar rafmagnsmanna
miða við og mundi kosta bóndann
milljónir króna að fá heimtaug til
sín þar sem styst er; yfir Arnar-
fjörð. Hundrað og áttatíu kinda
fjárhópur dregur ekki svo dýr-
mæta taug.
Ekki eru salir hátimbraðir á
Ósi og dyr lágar, en öll umgengni
ber vott um snyrtimennsku í hví-
vetna. Að fornu mati var Ós met-
inn á tólf hundruð. Jörðin var ekki
talin góð heyskaparjörð, en þeir
Ósmenn eiga einnig Kirkjuból í
Mosdal sem var tuttugu og fjögur
hundruð að fornu mati. Þar er
einnig leitað slægna. Pétur J. Sig-
urðsson og bústýra hans, Þuríður
Jónsdóttir, hófu búskap á Ósi árið
1949, en Þorbjörn tekur við búi
ásamt föður sínum árið 1977.
Hann segist una sér vel á Ósi í
umgengni við blessaðar kindurn-
ar, en hefur mótast nokkuð af ein-
verunni og einföldum lífsháttum
eins og gerist. Það mundi vera
kallað lífsstíll nú á dögum og
mætti sá lífsstíll vera ýmsum til
eftirbreytni í þeirri miklu eftir-
sókn eftir vindi sem mjög tíðkast
um þessar mundir.
Lýkur hér heimsókn og hug-
leiðingu um lífið á Ósi við Arnar-
fjörð vestra.
Heimildir: Firðir og fólk
1900-1999, útg. Búnaðarsamband
Vestfjarða 1999.
Texti og myndir:
Finnbogi Hermannsson
Lífið á Ósi er ekki skekið
af vindum nútímans
Nýfætt lamb borið á hús. Móðirin fylgir á eftir og ef til vill amma lambsins einnig eins og ömmum er lagið við barnsfæðingar.
Pétur á Ósi lætur vel að Klettu
sinni, sem fætt hafði tvö hraustleg
lömb í heiminn um morguninn.
Hann óttaðist að Kletta yrði feimin
við komumann, sem ekki reyndist.
Jón Halldórsson, landpóstur í ann-
an lið, ásamt Pétri, að færa varn-
inginn heim.
Ós í Mosdal í Arnarfirði. Ketildal-
ir í fjarsýn.
Vinnusam-
festingarnir
eru vinsælastir
„Bændur eru mjög jákvæðir
gagnvart þessu framtaki og það
hefur verið mikil sala á síðustu
vikum, enda er verðið á
fatnaðinum lægra en gengur og
gerist. Sem dæmi má nefna þá
kostar flott flíspeysa úr þykku
og endingargóðu
flísi með
kvensniði 5.500.
Vinnusam-
festingarnir eru
á mjög við-
ráðanlegu
verði og þeir
eru vin-
sælastir,“
sagði Vilborg
Stefáns-
dóttir,
starfsmaður
á Útgáfu- og
kynningarsviði
hjá Bænda-
samtökunum, en
hún hefur
umsjón með sölu
á þessum vörum.
Það eru 66° N
sem framleiða
þennan fatnað,
en boðið er upp
á flíspeysur,
vinnusamfestinga, stuttermaboli
og derhúfur. Fatnaður er merktur
með merki íslensks landbúnaðar
og á honum stendur skýrum
stöfum: Ég er bóndi. „Það er bara
von okkar að sem flestir bændur
nýti sér að kaupa fatnaðinn á
þessu góða verði,“ sagði Vilborg.