Bændablaðið - 05.07.2005, Síða 9
Þriðjudagur 5. júlí 2005 9
Íslenskur
matur í NATO
Á árinu 2003 gerði Viðskipta-
þjónusta utanríkisþjónustunn-
ar, VUR, verkefnasamninga við
allar sendiskrifstofur Íslands
um störf þeirra að viðskiptamál-
um. Samkvæmt samningunum,
sem sniðnir eru að hlutverki
hverrar sendiskrifstofu, eiga
þær allar að inna af hendi vinnu
við útflutningsaðstoð og vera
meðvitaðar um störf að við-
skiptamálum. Og þótt annar
vinkill sé á starfsemi sendiskrif-
stofanna er einnig hlutverk
þeirra að liðka fyrir og sjá við-
skiptatækifæri og kynna ís-
lenskar afurðir.
Sem dæmi um sendiskrifstofu
sem ekki hefur viðskiptamál að
aðalstarfi en sinnir þeim þó er
fastanefnd Íslands hjá Atlantshafs-
bandalaginu, NATO, í Brussel, en
fastanefndin stóð fyrir kynningu á
íslensku hráefni í lok apríl sl. Hjá
alþjóðastofnunum vinna að jafn-
aði þúsundir manna og borða dag-
lega í mötuneytum þessara stofn-
anna. Slík mötuneyti geta verið
kjörinn vettvangur til að kynna ís-
lenskar afurðir og matseld. Fasta-
nefndin fékk Hilmar B. Jónsson
matreiðslumeistara Samband of
Iceland til að elda fisk í mötuneyti
NATO með íslenskum hætti og
var því vel tekið. Að sögn Þóris
Ibsen, varafastafulltrúa, sóttu
margir í fiskinn og fengu færri en
vildu. Að sögn Þóris er fasta-
nefndin vakandi fyrir tækifærum
til að koma íslenskum vörum og
þjónustu á framfæri og eru frekari
viðburðir fyrirhugaðir síðar á ár-
inu.
Rík hefð er fyrir því að stunda
landbætur og vernda landgæði í
Þistilfirði og taka þá jafnan
bændur og sveitarfélagið hönd-
um saman í að efla gróðursæld í
héraðinu.
Síðastliðinn vetur ók Gunnar
Þóroddsson, bóndi í Holti í Þistil-
firði, 70 heyrúllum út á gróðurlitla
mela inn á Háuhæðum í afréttar-
landi Holts og Laxárdals í Þistil-
firði. Stefán Eggertsson, bóndi í
Laxárdal, og Ragnar Sigfússon,
bóndi á Gunnarsstöðum, fóru svo
á dögunum og afklæddu rúllurnar
plasti og garni og skáru þær í
sundur með vélum.
Unglingavinnan í Svalbarðs-
hreppi lagði svo lokahönd á verkið
20. júní sl., að dreifa heyinu á mel-
ana.
Unglingavinnu í Svalbarðs-
hreppi er haldið úti í nokkrar vikur
í senn árlega og er hún í sumar
undir stjórn Ragnars Skúlasonar á
Ytra-Álandi. Mætti hann á svæðið
með 7 vaska unglinga úr sveitinni,
vopnuð heykvíslum, eins og sjá
má á meðfylgjandi mynd.
Nú er tími til að mála !
Þú nærð góðum árangri með réttum efnum.
Við höfum allt sem þú þarfnast.
Afsláttur á útimálningu og viðarvörn
í verslunum Hörpu Sjafnar
10 ltr. 4.990 kr.
10
25
42
Stórhöfða 44
Skeifan 4
Snorrabraut 56
www.harpasjofn.is
Bæjarlind 6
Dalshraun 13
Hafnargata 90
www.flugger.com
Austursíða 2
Austurvegur 69
Hlíðarvegur 2-4
Tilboð
Fjölakrýl 50
Vatnsþynnt akrýlmálning.
Hefur einstaka viðloðun,
sveigju- og veðrunarþol.
Hentar sérstaklega á þök.
Texolín
Þekjandi alkýðviðarvörn,
terpentínuþynnanleg.
Hörpusilki
Akrýlbundin, alhliða
málning, úti og inni.
Áratuga góð reynsla.
Gæðamálning l Fagleg ráðgjöf l Frábær hula
F.v. Bóas Jónasson, Garði, Ragnar Skúlason, Ytra-Álandi, Halla Dagný Úlfarsdóttir, Hvammi, Halldóra Sigurðar-
dóttir, Hvammi, Aðalbjörg Jóhannesdóttir, Brúarlandi, Margrét Sigurðardóttir, Hvammi, Jóhanna Friðriksdóttir,
Hvammi og Sigtryggur Brynjar Þorláksson, Svalbarði.
Uppgræðsla mela í Þistilfirði
Frá Geitfjárræktar-
félagi Íslands
Umsókn
um lífkið
Í landinu eru nú um 400 vetr-
arfóðraðar geitur hjá um 40
eigendum. Skyldleikarækt er
veruleg og reynt er að draga
úr henni og viðhalda stofnin-
um með því að flytja lífgeitur,
einkum hafra, á milli hjarða.
Geitaeigendur
sem vilja sækja
um leyfi til að
kaupa lífkið á
komandi hausti
eru minntir á að
senda umsókn til
yfirdýralæknis
fyrir 31. júlí,
samanber auglýsingu á bls.
28 í síðasta Bændablaði.
Ýmsir annmarkar eru á
flutningi geita enda gilda
sömu reglur um sjúkdóma-
varnir og fyrir sauðfé þótt
riðuveiki hafi aldrei greinst í
geitum hér á landi. Áhugi er
á að nýta betur afurðir geita
en nú er gert, einkum mjólk
og kjöt, og ljóst er að nokkur
markaður er fyrir slíkar af-
urðir.