Bændablaðið - 05.07.2005, Qupperneq 14
14 Þriðjudagur 5. júlí 2005
35 tegundir fugla
Tjörnin hafði þurrkast upp við
framræslu í kringum 1960 en hefur
nú verið endurheimt. Hún er nú
um 10 hektarar og hafa verið taldar
þar um 35 tegundir fugla. Yfir
sumartímann hafast við að stað-
aldri 15 til 20 tegundir fugla en
helsta skrautfjöðrin er flórgoðinn.
Fleiri tegundir má finna þarna eins
og óðinshana, grafönd, skúfönd og
stokkönd.
En þrátt fyrir að fuglalífið á
Gauksmýrartjörn sé líflegt er það
ekki síst aðstaðan sem dregur
ferðamenn að staðnum. Byggt hef-
ur verið sérstakt fuglaskoðunarhús
þar sem er að finna kíkja, fugla-
bækur og ýmsan fróðleik um fugl-
ana á tjörninni.
Skjólbelti og skógrækt
Ferðamálafélag V-Húnavatnssýslu
hefur haft forgöngu um lagningu
göngustígs að fuglaskoðunarhús-
inu við Gauksmýrartjörn. Stígur-
inn er gerður úr pallaefni. Poka-
sjóður hefur styrkt verkefnið og
takmarkið er að stígurinn verði að-
gengilegur fyrir alla, það er að
segja hjólastólafær. Áformað er að
halda áfram við stíginn í sumar.
„Það er mjög auðvelt er að
komast að tjörninni og liggur stíg-
ur að húsinu en lögð hefur verið
braut úr timbri ofan á stíginn
þannig að það er hjólastólafært að
mestu leyti. Þar sem þjóðvegur
númer 1 liggur í gegnum land
Gauksmýrar er tilvalið fyrir fólk
að staldra við og virða fjölbreytt
fuglalífið fyrir sér,“ segir ábúend-
urnir, sem eru þátttakendur í Norð-
urlandsskógum. Plantað er í skjól-
belti og skógrækt. Þessa dagana er
verið að planta í skjólbelti í ná-
grenni gistihússins. Í haust er
áformað að planta áfram skógar-
plöntum. Síðasta haust var hafist
handa við að planta í 50 ha girð-
ingu í fjallinu fyrir ofan bæinn.
Heillandi hestaferðir
Á Gauksmýri er boðið upp á gist-
ingu í eins og tveggja manna her-
bergjum með handlaug. Alls 26
manns geta gist í einu. Veitingar
eru í boði fyrir þá sem panta fyrir-
fram og getur veitingasalurinn tek-
ið 50 manns í sæti. Staðurinn hefur
vínveitingaleyfi. Í mat er sérstök
áhersla lögð á hollustu og bragð-
gæði.
Hestaleiga er starfrækt allt árið
sem og kennsla í hestamennsku.
Undanfarið hafa staðið yfir reið-
námskeið fyrir börn. Hefur hver
hópur dvalið í eina viku í reið-
kennslu, leikjum, kvöldvöku og
fleira. Reiðnámskeið þessi hafa
staðið til boða í júnímánuði. Þetta
árið var fullbókað og því miður
þurfti að vísa nokkuð mörgum frá.
Næsta ár er áformað að bjóða upp
á fleiri vikur auk þess sem þá verð-
ur boðið upp á sérstök unglinga-
námskeið. Hestaleigan hefur yfir
að ráða traustum og góðum hestum
við allra hæfi. Mest er um eins til
tveggja stunda langar ferðir. Í upp-
hafi hvers reiðtúrs eru kennd und-
irstöðuatriði í reiðmennsku. Hægt
er að koma á staðinn, dvelja, fá til-
sögn í hestamennsku og stunda út-
reiðar. Hefur það færst í vöxt að
hjón komi og dvelji á staðnum,
njóti matar og drykkjar, slappi af
og skreppi á hestbak.
Flórgoði og ferðaþjónusta á
Gauksmýri í Húnaþingi vestra
Á Gauksmýri í Húnaþingi vestra reka hjónin Jóhann Al-
bertsson og Sigríður Lárusdóttir ferðaþjónustu. Starfsemin
er fjölbreytt en þó er áhersla lögð á náttúru- og hestatengda
ferðaþjónustu. Gauksmýri er aðili að Ferðaþjónustu bænda
og fylgir umhverfisstefnu þeirra. Staðurinn er nú í aðlögun
hvað varðar GreenGlobe 21 umhverfisviðurkenningu, en
annars eru það snyrtimennska og listrænir hæfileikar hús-
móðurinnar sem gestir taka gjarnan fyrst eftir. „Eitt helsta
aðdráttaraflið á Gauksmýri er þó vafalaust aðstaðan sem hér
er til fuglaskoðunar, hún er án efa ein sú besta á landinu. Í
samvinnu við Votlendisnefnd fórum við út í það verkefni að
endurheimta tjörn eina sem nú blasir við vegfarendum sem
leið eiga um Norðurlandsveg,“ segja Jóhann og Sigríður.
Vera Roth, sem var á reiðnámskeiði í síðasta mánuði. Hrossið heitir
Baugur.
Hér má sjá Jóhann Albertsson og Sigríði Lárusdóttur. Í baksýn er
Gauksmýrartjörn sem er endurheimt votlendi. Þess má geta að fatlaðir
eiga auðvelt mað fara niður að tjörninni, en búið er að leggja
timburgöngustíg niður að svokölluðu fuglaskoðunarhúsi. Í húsinu eru
bækur um fugla og sjónauki.
Þetta er Rakel Sunna frá Þórukoti í Víðidal í jafnvægisæfingum. Slíkar æfingar eru hluti af námsefni krakkanna.