Bændablaðið - 05.07.2005, Blaðsíða 18
18 Þriðjudagur 5. júlí 2005
Óhætt er að segja að vel sé staðið
að þjálfun starfsfólks í verslunun-
um. Námið, sem nær eingöngu er
verklegt, stendur yfir í tvö ár og
lýkur með prófi. Að námstíma
loknum þarf neminn að geta svar-
að til um uppruna hverrar vöruteg-
undar sem hann selur úr sínu kjöt-
borði ásamt upplýsingum um nær-
ingarinnihald, eldunarleiðbeining-
ar, hvaða meðlæti passar best með
steikinni og svo skammtastærðir.
Kennsluefni
Starfsmenn Matra hafa undanfarn-
ar vikur verið að útbúa kennslu-
efni að beiðni Samtaka verslunar
og þjónustu, sem ætlað er starfs-
fólki í kjötdeildum verslana, og
var þessi ferð liður í þeirri náms-
gagnagerð. Að sögn Óla Þórs og
Ólafs vissu þeir fyrirfram að
WFM er þekkt fyrir fallega fram-
setningu á kjöti og matvörum al-
mennt en óhætt er að segja að það
hafi komið á óvart hversu gríðar-
lega vel er staðið að þjálfun starfs-
fólks og hversu vel það er upplýst
um innri mál fyrirtækisins. Öll
launamál eru opin starfsmönnum,
innkaupsverð á aðföngum , kostn-
aðartölur vegna reksturs og sölu-
tölur. Þetta eru allt upplýsingar
sem öllum eru aðgengilegar, ekk-
ert falið.
Lambakjötsins sárt saknað!
Óli Þór sagði WFM metnaðarfullt
fyrirtæki og ákaflega nútímalegt
og ljóst að starfsfólkið er stolt af
að vinna hjá því. Þegar þeir félag-
ar voru kynntir og hvaðan þeir
komu þá fengu þeir nær undan-
tekningarlaust að heyra að ís-
lenska lambakjötsins væri sárt
saknað og að beðið væri með
óþreyju eftir að það kæmi í versl-
anir. „Öllum ætti að vera orðið
ljóst að betra söluumhverfi fyrir
íslenskt lambakjöt er ekki til,“
segir Óli Þór.
Kjötborð með öðru sniði
Þess má líka geta að kjötborðin
sjálf eru með allt öðru sniði en
hér þekkist en þau eru lokuð, þ.e.
að afgreiðslumaður þarf að opna
glerhurð til að ná í vöruna. Með
þessu móti er ferskleiki og
geymsluþol vörunnar aukið til
mikilla muna þar sem hitastig er
mun stöðugra og minni hætta á
utanaðkomandi mengun auk þess
sem það býður upp á vinnuhag-
ræði að þurfa ekki að tæma kjöt-
borðið, það er í raun lokaður kæl-
ir, aðeins þarf að yfirfara og
snyrta hvern bakka að morgni.
Þau kjötborð sem algengust eru
hér á landi hafa aðeins gler að
framanverðu en opið að aftan,
þau eru þægileg að standa að sölu
úr þeim en vissulega verður rýrn-
un meiri og vinnan líka því þau
þarf að tæma að kveldi og fylla
að morgni.
„Þetta var lærdómsrík ferð og
að sitthvað mun rata inn í vænt-
anleg kennslugögn og reynt verð-
ur að miðla þessari reynslu út til
starfsmanna kjötdeilda í íslensk-
um verslunum. Það er ljóst að
þótt ástandið hér á landi sé ekki
alslæmt þá má ýmislegt bæta á
þessu sviði t.d. þekkingu starfs-
fólks og færni þess í framsetningu
og meðhöndlun jafn viðkvæmrar
matvöru og ferskt kjöt er,“ segir
Óli Þór.
Í liðnum mánuði fóru kjötiðnaðarmeistararnir Óli Þór Hilmarsson hjá
Matra og Ólafur Júlíusson hjá Ferskum kjötvörum í náms- og kynnis-
ferð í verslanir Whole foods Market (WFM) í Washington DC, Mary-
land og Virginíu. Þetta er sú verslanakeðja sem hefur verið aðalkaup-
andi á fersku lambakjöti frá Íslandi til Bandaríkjanna undanfarin ár.
Tilgangur heimsóknarinnar var hjá Óla Þór að kynna sér hvernig
staðið er að kennslu og þjálfun starfsfólks í kjötborðum og kjötdeildum
þessara verslana. Ólafur Júlíusson var skoða almennt rekstur kjöt-
borðanna og framsetningu kjöts og kjötvara en Ferskar kjötvörur er
rekstraraðili á kjötborðunum í verslunum Hagkaups. Ferð þessi var
styrkt af Bændasamtökum Íslands og Samtökum verslunar og
þjónustu en Baldvin Jónsson, verkefnisstjóri hjá Áformi skipulagði
heimsóknir þeirra félaga ytra.
Verslanir WFM eru orðnar þekktar í Bandaríkjunum fyrir frábæra fram-
setningu á matvörum almennt ásamt því að vera leiðandi í sölu á lífræn-
um, umhverfisvænum og náttúrulegum kjötvörum og grænmeti. Ein-
kunnarorð þessara verslana eru „Leiðandi markaður á heimsvísu í sölu á
náttúrulegum og lífrænum matvörum“. Fyrsta verslunin var stofnsett ár-
ið 1980 í Austin í Texas og nú eru þær orðnar 170 bæði í Bandaríkjunum
sem og í Bretlandi. Auk skoðunarferða í verslanir störfuðu Óli Þór (t.v.)
og Ólafur með starfsfólki í kjötborði WFM í P-stræti í Washingtonborg.
Bblmynd: Guðni.
Íslenska lambakjötsins sárt
saknað í verslunum Whole Foods!
Mikil mildi var að ekki varð
stórslys á héraðssýningu kyn-
bótahrossa í Kópavogi í júní.
Kolbrún Grétarsdóttir, hesta-
kona frá Grundarfirði, var að
sýna hryssu sína, Sóleyju frá
Þorkelshóli, í yfirlitssýningu
þegar hryssan fór utan í grind-
verk við brautina, missti jafn-
vægið og steyptist yfir grind-
verkið með knapann á baki.
Kolbrún varð á milli grind-
verksins og hryssunnar og lenti
svo undir henni hinum megin.
Byltan var gríðalega hörð og leit
út fyrir að um stórslys væri að
ræða.
Kolbrún var þó með meðvit-
und en gat sig lítið hreyft. Hún
var flutt með sjúkrabíl á Landspít-
alann, en til allrar hamingju
reyndist hún óbrotin, aðeins illa
marin, bólgin og tognuð. Hún
hefur verið að jafna sig undan-
farna daga og vonast til að geta
riðið á Fjórðungsmóti hesta-
manna á Kaldármelum, en þegar
þetta er ritað liggur ekki fyrir enn
hvort það tekst. Kolbrún segir
reiðhjálminn hafa bjargað lífi
sínu, það sé engin spurning. Hún
hafi verið nýbúin að kaupa sér
nýjan og vandaðan öryggishjálm
og hann hafi verndað hana og
komið í veg fyrir alvarlegan höf-
uðáverka. Hún vill hvetja alla
hestamenn til að nota vandaða
hjálma og bendir á að slysin geri
ekki boð á undan sér. Hryssan
sem hún var á er fullorðin og hef-
ur Kolbrún sjálf þjálfað hana og
sýnt í gegnum tíðina og þekkir
hana vel, þannig að ekki var um
ungt og óreynt hross að ræða.
„Þetta var einfaldlega slys og þau
geta gerst hvenær sem er.“ Kol-
brún fór þó ekki tómhent heim
þrátt fyrir byltuna því henni tókst
að hækka hryssuna fyrir þrjú at-
riði og fór hún í fyrstu verðlaun.
Slys sem þetta vekja mann þó
til umhugsunar og eru það helst
tvö atriði sem standa upp úr þegar
horft var á sýninguna í Kópavogi.
Annars vegar það að grindverkið
skyldi ekki gefa neitt eftir, sem
veldur því að hrossið missir jafn-
vægið og steypist yfir, og hins
vegar það að enn er fjöldi knapa í
kynbótasýningum að sýna hross
með hjálma eða reiðhatta sem
standast engar öryggiskröfur og
myndu ekki vernda knapann ef
hann félli af baki. Er ástæða til að
hvetja umsjónarmenn kynbóta-
sýninga til að gera strax bragarbót
þar á og setja kröfur um notkun
löglegra öryggishjálma líkt og
gert er í öðrum hestasýningum.
/HGG
Hjálmurinn kom í veg fyrir stórslys
Kolbrún og Sóley rétt áður en slysið varð. Bændablaðsmynd: HGG