Bændablaðið - 05.07.2005, Qupperneq 23
Þriðjudagur 5. júlí 2005 23
Ótrúlegt verð
Gæði á góðu verði
„Aðildarfélög Skógræktarfé-
lags Íslands eru nú 59 að tölu
með tæplega átta þúsund fé-
lagsmenn. Síðustu vikurnar
hefur félagsmönnum fjölgað
um rúmlega sex hundruð, en
það er einmitt eitt af áhersluat-
riðum félagsins á afmælisárinu
að fjölga félögum í hreyfing-
unni. Skógræktarhreyfingin er
nú lang fjölmennasta umhverf-
isbótahreyfing í landinu. Skóg-
rækt skógræktarfélaganna hef-
ur miðað vel áfram og félögin
hafa komið upp skógarreitum
við flesta þéttbýlisstaði landsins
sem henta vel til útivistar og
eru notaðir í vaxandi mæli af
íbúum byggðanna og ferða-
mönnum. Talið er að á vegum
skógræktarfélaganna hafi verið
plantað um 40 milljónum
plantna í um 230 skógarreiti
sem þekja um 200.000 hektara
lands. Margir þessara skógar-
reita eru nú vinsælustu útivist-
arsvæðin í viðkomandi byggð.
Það má því með sanni segja að
menningin vaxi í lundi nýrra
skóga eins og Hannes Hafstein
sá fyrir sér í margrómuðu alda-
mótakvæði fyrir rúmlega eitt
hundrað árum,“ sagði Magnús
Jóhannesson, formaður Skóg-
ræktarfélags Íslands, þegar 75
ára afmælis Skógræktarfélags
Íslands var minnst í Vinaskógi
þann 25. júní að viðstöddum
fjölda góðra gesta.
Um framtíðarverkefni og
áherslur Skógræktarfélags Ís-
lands sagði Magnús að það
væri að vera „bakhjarl skóg-
ræktarfélaganna og styðja
starfsemi þeirra bæði faglega
og eftir atvikum fjárhagslega,
en félögin sjá um að koma
markmiðum félagsins til fram-
kvæmda. Svo mun verða
áfram. Þó að nýgróðursetning-
ar verði með svipuðum hætti og
verið hefur er augljóst að vöxt-
ur skóganna kallar á nýjar
áherslur félaganna í grisjun,
stígagerð og betri aðkomu fyrir
almenning til að njóta skógar-
reitanna. Einnig er mikilvægt
að félagið haldi uppi almennri
fræðslu um skógrækt, bæði
gildi skógræktar og leiðbeining-
um um skógrækt og stuðlaði
þannig að enn meiri þátttöku
almennings og fyrirtækja í upp-
græðslu landsins. Þá mun félag-
ið leggja sitt af mörkum til að
uppeldisgildi skógræktar fái
notið sín enn betur fyrir ungu
kynslóðina.“
Skógræktarfélag
Íslands 75 ára
Vöxtur skóganna kallar á nýjar áherslur fé-
laganna í grisjun, stígagerð og betri aðkomu
fyrir almenning til að njóta skógarreitanna
- sagði Magnús Jóhannesson formaður í hátíðarræðu