Bændablaðið - 25.02.2010, Qupperneq 2
2 Bændablaðið | fimmtudagur 25. febrúar 2010
Reka ætti svínarækt á sömu for-
sendum og aðrar greinar íslensks
landbúnaðar og sú samþjöpp-
un sem orðið hefur í svínarækt
á Íslandi er varhugaverð m.a.
í ljósi sjúkdómahættu, fæðu-
öryggis og efnahagslegra þátta.
Umhugsunarefni er hvort ekki er
rétt að stuðla að fjölgun smærri
svínabúa á landinu og færa
svínaræktina í átt til fjölskyldu-
reksturs á nýjan leik, líkt og
meðal annars hefur verið reynt
í Noregi, í stað hinna stóru ein-
inga sem nú eru ráðandi. Hætta
er fólgin í stórum rekstrarein-
ingum vegna sjúkdómahættu
sem gæti ef illa færi kostað hið
opinbera háar fjárhæðir í formi
greiðslu skaðabóta ef til niður-
skurðar kæmi vegna sjúkdóma.
Þetta eru meðal annars nið-
urstöður starfshóps sem skipaður
var til að vinna tillögur um hvern-
ig efla megi innlenda svínarækt
með sérstöku tilliti til íslenskra
aðstæðna hvað varðar fæðuröryggi,
fóðuröflun og umhverfissjónarmið.
Starfshópurinn sem var skip-
aður í október á síðasta ári af Jóni
Bjarnasyni sjávarútvegs- og land-
búnaðarráðherra skilaði á dögunum
niðurstöðum vinnu sinnar.
Sjúkdómar gætu kostað
gríðarlega fjármuni
Í niðurstöðum starfshópsins er
meðal annars bent á að ef til nið-
urskurðar á svínabúum kæmi til að
sporna við útbreiðslu svokallaðra
A-sjúkdóma gæti það kostað hið
opinbera gríðarlegar fjárhæðir en
slíkur niðurskurður er skaðabóta-
skyldur. A-sjúkdómar eru bráð-
smitandi sjúkdómar sem ráðast
þarf gegn með öllum ráðum. Með
stækkun svínabúa og samþjöpp-
un svínaræktarinnar á undan-
förnum áratug hefur þessi hætta
aukist mjög enda eru mjög stórar
rekstrareiningar vandamálasæknari
en minni og tjón meira ef til nið-
urskurðar kæmi.
Þá er bent á að í Noregi sé unnið
að því með stuðningi hins opinbera
að hamla gegn því að svínabú verði
mjög stór. Umhugsunarefni sé því
hvort að ekki eigi með einhverjum
slíkum hætti að stuðla að fjölg-
un smærri svínabúa. Eftirlit með
heilbrigði og aðbúnaði yrði mun
öruggara og auðveldara hjá smærri
einingum.
Í skýrslunni er einnig bent á að
líkur séu á að hægt sé að stórauka
hlutdeild byggs og íslensks korns
í fóðri svína. Því sé mikilvægt að
svínarækt og akuryrkja þróist sam-
hliða með það að markmiði að
stuðla að hagkvæmni í báðum grein-
um. Ekki síst sé þetta mikilvægt í
ljósi mikillar hlutdeildar svínakjöts
á innlendum kjötmarkaði.
Starfshópurinn leggur einnig
til að ríkisvaldið og svínabændur
geri með sér samning um stuðning,
starfsskilyrði og samfélagslegar
skyld ur búgreinarinnar, á svipuðum
nót um og búvörusamningar við
mjólk ur framleiðendur, sauðfjár-
bændur og garðyrkjubændur eru
gerðir.
Ósammála ýmsu í skýrslunni
Geir Gunnar Geirsson svínabóndi
á Vallá er ósammála ýmsum þeim
ályktunum sem dregnar eru um
stór svínabú í skýrslu starfshópsins.
Geir Gunnar er framkvæmdastjóri
Stjörnugríss sem á og rekur mjög
stór svínabú á Vallá og á Melum.
„Það eru nokkrir punktar í þessari
skýrslu sem ég hef athugasemdir
við. Það er meðal annars fullyrt að
meiri sýkingarhætta sé á stórum
búum en smærri og ég tel það
engan veginn standast. Þróunin í
allri Evrópu og um allan heim hefur
verið í átt að stærri búum og ég hef
ekki orðið var við að það séu meiri
vandamál en voru til staðar fyrir
áratug. Ég tel að menn geti ekki
stöðvað þá þróun sem er í landbún-
aði í dag, í svínarækt, kjúklingarækt,
eggjaframleiðslu, mjólkurfram-
leiðslu og líka fjárbúskap. Búin eru
að stækka og verða hagkvæmari
og það af fullri nauðsyn. Það þarf
líka stór bú og stærðarhagkvæmni í
kornframleiðslu sem er nú hinn hluti
skýrslunnar. Ég er sammála því að
það eru vaxtartækifæri í kornrækt
fyrir svínaræktina en þá þarf að
koma til hagkvæmni í því líka.“
Geir Gunnar segist jafnframt
vera þeirrar skoðunar að ekki sé
þörf á ríkisstyrkjum í svínarækt-
inni. „Ég held hins vegar að ef
menn ætla að fara að hella sér út í
mikla kornrækt þá mætti koma til
einhver aðstoð við slíkt. Það ætti þá
að mínu mati bara að eiga við um
kornræktina, ekki á öðrum sviðum
í svínaræktinni.“ fr
Fréttir
Svo virðist sem opinbert eftir-
lit með kjötvörum fari eingöngu
fram í eftirliti með vörumerking-
um. Stefán Vilhjálmsson, fags-
viðsstjóri hjá Matvælastofnun
(MAST) segir að hann viti ekki
til þess að kjötvörusýni hafi verið
send til kjöttegundagreiningar af
hálfu MAST. „Slíkum aðferðum
verður varla beitt, einkum vegna
kostnaðar, nema fyrir liggi rök-
studdur grunur um vörusvik.“
Þann 8. október sl. birtist frétta-
skýring í Bændablaðinu undir yfir-
skriftinni Er eftirliti með kjötvörum
ábótavant? og átti hún að varpa
ljósi á stöðu mála hér á landi. Kom
sú umfjöllun til vegna ummæla
Þórarins Jónssonar, bónda á Hálsi
í Kjós, í viðtali á sjónvarpi mbl.
is, en þar sagði hann að það væri
opinbert leyndarmál að víða í kjöt-
vinnslum á landinu væri blönd-
uðu kjöthakki og öðru tilfallandi
hráefni, s.s. hrossakjöti, svínafitu
og kartöflumjöli, blandað saman
við nautahakk. Var gefið í skyn að
svo væri varan seld sem nautahakk,
án þess að íblöndunarefnanna væri
getið.
Reglugerðir skýrar
Reglugerðir eru skýrar varðandi
merkingar og innihaldslýsingar á
matvörum. Óli Þór Hilmarsson,
kjötiðnaðarmeistari og sérfræð-
ingur á nýsköpunar- og neyt-
endasviði Matís, sagði í fréttaskýr-
ingunni í Bændablaðinu þann 8.
október sl.: „Sum matvæli hafa
nafnvernd sem þýðir að ekki má
blanda öðrum kjöttegundum eða
aukefnum við þær eigi nafngiftin
að haldast – samanber hamborg-
ari sem eingöngu skal unninn úr
ungnautakjöti. Ef öðrum efnum er
blandað saman við verður að hafa
annað forskeyti framan við nafnið
borgari.“ Enn fremur sagði hann:
„Hvorki fagmenntaðir sérfræðing-
ar né almennur neytandi geta séð
á vörunni hvort lögum og reglum
hafi verið framfylgt, til þess þarf
ítarlegri skoðun, annað hvort með
skoðun á starfsemi viðkomandi
kjötvinnslu og/eða mælingum og
greiningu á sjálfri vörunni.“
Læsi neytenda
á merkingar matvæla
Það virðist vera kappsmál hjá
ýmsum aðilum og stofnunum sem
bera hag neytenda fyrir brjósti að
skjólstæðingar þeirra séu vel upp-
lýstir um reglugerðir sem snúa að
innihaldslýsingum á matvöru. Til
marks um það má nefna að reglu-
lega eru í boði fyrir neytendur ein-
hvers konar námskeið þar sem þeim
er leiðbeint um læsi á merkingar
matvæla. Í einu námskeiði á dög-
unum á vegum Endurmenntunar
Háskóla Íslands, sem haldið var í
samstarfi við Matvæla- og næring-
arfræðafélag Íslands, kom fram í
námskeiðslýsingu að „Merkingar á
matvælum eru oft einu upplýsing-
arnar sem við höfum í höndunum
til þess að velja matinn okkar á
upplýstan hátt. Merkingarnar þurfa
að fylgja ákveðnum reglum, sem
segja til um hvað þarf að koma
fram. Þær eiga að vera skýrar og
ekki villa um fyrir okkur.“
Er verið að blekkja neytendur?
En hvernig geta neytendur verið
vissir um að það sé ekki verið
að villa um fyrir þeim í sjálfri
framleið slunni? Stefán segir að
opinbert eftirlit hafi að stærstum
hluta falist í eftirliti með vöru-
merkingum; að vöruheiti séu í
samræmi við ákvæði reglugerðar
um kjöt og kjötvörur (R331/2005)
og innihaldslýsing öll samkvæmt
ákvæðum gildandi reglugerða.
„Sameiginlegt verkefni um sam-
anburð uppskrifta fyrirtækja við
innihaldslýsingar á tilteknum
vörum var fyrirhugað 2009, en var
af ýmsum ástæðum frestað til 2010.
Bendi niðurstöð-
ur slíks verkefni
til þess að í ein-
hverjum tilfellum
sé ekki allt sem
skyldi, verður
það rannsakað
nánar með við-
eigandi hætti.“
Stefán segir að ekki hafi verið
fylgt þeirri stefnu hér á landi að til-
greina um útkomu einstakra fyrir-
tækja úr opinberu matvælaeftir liti,
líkt og gert er t.a.m. í Danmörku
með hinu svokallaða „Smiley-
kerfi“. Þar sér vefurinn www.find-
smiley.dk neytendum fyrir greinar-
góðum upplýsingum um tíðni
eftir lits heimsókna og niðurstöður
þeirra, sem eru svo uppfærðar jafn-
óðum og breytingar eiga sér stað.
Hann segir að vel sé látið af þessu
kerfi og vissulega þurfi Íslendingar
að vera vakandi gagnvart möguleg-
um stefnubreytingum á þessu sviði.
Þegar Stefán er spurður að
því hvort honum finnist í lagi að
eingöngu sé haft eftirlit með inni-
haldslýsingum á kjötvörum en
ekki innihaldinu sjálfu segir hann:
„Nauðsynlegt er að merkingar
matvæla séu samkvæmt gildandi
reglum og vel úr garði gerðar. Að
sama skapi er mjög gott fyrir neyt-
endur að kunna á
þeim skil og geta
lesið úr þeim þær
upplýsingar sem þar er
að finna.“
Ábyrgðin hjá stjórnendum
matvælafyrirtækja
Stefán er að lokum spurð-
ur um lagalegar skyldur MAST og
hver eigi að sjá um að neytendur
séu ekki blekktir af kjötvinnslum
t.a.m.; hvort fjármagn úr vösum
skattgreiðenda eigi ekki að nýt-
ast til þess að koma í veg fyrir það.
„Stofnanir sem sinna opinberu eftir-
liti með matvælaframleiðslu og mat-
vælum (Heilbrigðiseftirlit sveitar-
félaga og MAST) hafa úr ákveðnu
fjármagni að spila. Það er yfirleitt
ekki sérmerkt ákveðnum eftirlits-
þáttum. Stofnanirnar verða því að
forgangsraða verkefnum þannig
að fjármagn nýtist sem best. Þættir
sem varða heilnæmi og öryggi mat-
væla sitja að jafnaði í fyrirrúmi.
Stjórnendur matvælafyrirtækja bera
ábyrgð á því að öll starfsemi fyr-
irtækjanna sé í samræmi við lög og
reglugerðir. Þessi ábyrgð stjórnenda
er gerð enn skýrari en áður í nýrri
matvælalöggjöf sem tekur gildi í
áföngum næstu misseri.“
-smh
Fréttaskýring: Matvælaeftirlit
Hvaða tilgangi þjónar eftirlit með innihaldslýsingum?
– ef ekkert eftirlit er með innihaldinu sjálfu
Nautahakk? Engin leið
virðist vera fyrir neytendur
að átta sig á því hvort inni-
haldslýsingar eru réttar.
Landsmót hestamanna
2010
Forsala að-
göngumiða
hafin
Forsala aðgöngumiða er hafin
á Landsmót hestamanna 2010,
sem fer fram á Vind heima-
melum í Skaga firði dagana 27.
júní-4. júlí. Forsalan fer fram
rafrænt á slóðinni www.lands-
mot.is. Söluferlið er einfalt og
er væntanlegur landsmótsgest-
ur leiddur í gegnum það skref
fyrir skref.
Frábær vildarkjör eru í boði
fyrir félaga í aðildarfélögum
Landssambands hestamanna-
félaga og Bændasamtökum
Íslands. Afsláttur er verulegur
sé miði keyptur í forsölu, allt að
25%, og að auki fá félagar í LH
og BÍ 25% afslátt.
Unnt er að kaupa vikupassa
og helgarpassa í forsölu. Lægra
gjald er greitt fyrir unglinga
14-17 ára og ekkert fyrir börn
13 ára og yngri. Einnig er hægt
að kaupa stúkusæti og hjól-
hýsa stæði með aðgangi að raf-
magni í forsölu. Með því að
kaupa miða fyrirfram er hægt
að spara bæði fé og fyrirhöfn.
Forsölunni lýkur 1. maí
2010 og eftir það hækkar miða-
verð. Hver miði sem keyptur
er í forsölu gildir einnig sem
miði í happdrættispotti lands-
mótsins og samstarfsaðila. Um
hver mánaðamót verður dregið
um veglega vinninga sem eru
til að mynda tveir vikupassar á
Landsmót, leikhúsmiðar fyrir
tvo í boði VÍS, beisli og DVD
diskar frá versluninni Líflandi.
Frá Landsmótinu 2004.
Blómaval býður nú upp á ókeypis fræðslunámskeið tengd garðyrkju öll
fimmtudagskvöld fram í lok maí og hafa viðbrögðin ekki látið á sér standa.
Um hundrað manns komast á hvert námskeið og er uppbókað á helming
þeirra 11 námskeiða sem ætlunin er að halda. Segjast námskeiðshaldarar
finna fyrir auknum áhuga á garðyrkju og jarðrækt eftir að kreppan skall á
svo líkja megi við hugarfarsbreytingu.
Samþjöppun í svínarækt sögð varhugaverð
Starfshópur leggur til að stuðlað verði að fjölgun smærri svínabúa. Svína bóndi
Ríkisstjórnin fjallaði nýverið um
til lög ur iðnaðarráðherra um marg-
vís legar aðgerðir í atvinnu- og ný-
sköp unar málum. Meðal þess sem
ríkis stjórnin hefur sam þykkt að
hrinda í framkvæmd er að vinnu-
hópur um aðkomu lífeyris sjóða að
stórframkvæmd um útfæri stofnun
sérstaks ferða mála sjóðs.
Í hann renni þau gjöld sem
lögð verða á ferðamenn og eiga
að standa undir uppbyggingu fjöl-
sóttra ferðamannastaða á Íslandi,
auk annarra brýnna verkefna í þágu
ferðaþjónustu. Markmiðið er að
þegar á þessu ári verði tiltækar á
bilinu 500 til 750 milljónir króna
til slíkra uppbyggingarstyrkja.
Hugmyndin er sú að tryggja grein-
inni þannig nýjan tekjustofn, ferða-
málagjald, en nefnd á vegum fjár-
málaráðuneytis með aðkomu aðila
í ferðaþjónustu hefur það verkefni
að vinna að nánari útfærslu þess.
Stefnt er að því að iðnaðarráðherra
leggi fram frumvarp um nýja ferða-
málasjóðinn strax í vor. Fram hefur
komið að sjóðurinn verður að lík-
indum vistaður hjá Ferðamálastofu,
sem hafi umsjón með samninga-
gerð og eftirfylgni, en fjölskipuð
nefnd fagfólks meti umsóknir.
Nýr sjóður til uppbyggingar
ferðamannastaða