Bændablaðið - 25.02.2010, Page 20
20 Bændablaðið | fimmtudagur 25. febrúar 2010
Tónlistarhátíðin Bræðslan á
Borg arfirði Eystri hlaut Eyrar-
rós ina 2010 við hátíðlega athöfn
á Bessastöðum. Áskell Heiðar
Ásgeirsson og Magni Ásgeirsson,
forsvarsmenn Bræðslunnar,
veittu verðlaununum viðtöku úr
hendi frú Dorritar Moussaieff,
sem er verndari Eyrarrósarinnar.
Árlega eru þrjú verkefni til-
nefnd til verðlaunanna, sem ætlað
er að efla fagmennsku og færni
við skipulagningu menningarlífs
og listviðburða á landsbyggðinni.
Auk Bræðslunnar voru Eiríksstaðir
í Haukadal og Skjaldborg, heim-
ildarmyndahátíð á Patreksfirði, til-
nefnd. Aðstandendur Bræðslunnar
voru að vonum ánægðir með
verðlaunin en viðurkenningin er
fjárstyrkur að upphæð 1,5 millj-
ónir króna og verðlaunagripur eftir
Steinunni Þórarinsdóttur auk flug-
miða frá Flugfélagi Íslands.
„Við erum afar stoltir yfir þess-
um verðlaunum og það ber mörg-
um að þakka fyrir, enda margir
sem koma að þessu verkefni. Í
okkar huga sýnir þetta að það er
margt hægt að gera á litlum stöð-
um með gamla síldarbræðslu sem í
byrjun var full af drasli. Nú hefur
hátíðin fest sig í sessi og eflir ekki
eingöngu menningu staðarins og
mannlíf heldur einnig ferðaþjón-
ustu, þannig að þetta hefur mikil
samlegðaráhrif,“ sagði Áskell
Heið ar Ásgeirsson.
Tónlistarhátíðin Bræðslan á
Borgarfirði eystra er haldin árlega í
húsi gamallar síldarbræðslu Kaup-
félags Héraðsbúa, sem breytt hefur
verið í tónleikahús. Hátíðin hefur
vaxið jafnt og þétt allt frá upp-
hafi hennar árið 2004 og á síðasta
ári voru gestir Bræðslunnar um
tvö þúsund talsins. Aðalsmerki
Bræðslunnar er hin einstaka
stemmning sem myndast í síld-
arbræðslunni á tónleikakvöldinu
sjálfu. Með alúð við skipulagn-
ingu hátíðarinnar og metnaði
stjórnenda hefur Bræðslunni tekist
að efla menningarlíf, mannlíf og
ferðaþjónustu svæðisins og virkja
sköpunargleði og samtakamátt íbúa
Borgarfjarðar eystra. Þannig hefur
þessu samstarfsverkefni nokk-
urra heimamanna tekist að skapa
Borgarfirði eystra fastan sess í tón-
leikaflóru sumarsins og varanlegt
sóknarfæri á sviði menningar-
tengdrar ferðaþjónustu. ehg
Það er fátt sem lýtur að stáli
sem við og okkar samstarfsaðilar
getum ekki klárað okkur af!
Hýsi Merkúr ehf - Völuteigur 7 - 270 Mosfellsbær - Sími: 534 6050 - Fax: 534 6051 - www.hysi.is
Reiðhöll Harðar í Mosfellsbæ. 30 X 81m. 2.430m2
Íþróttahús á Borgarfirði eystra, 16 X 30m. 480m2
Bogahús við Hól 2 í Eyjafirði, 5 X 6m. 30m2
Gróðurhús fyrir ávaxtatré í Heklubyggð. 5 X 6m. 30m2
Gaflinn á fjölnota gripahúsi að
Egilsstaðakoti í Flóa. 16 X 39m. 624m2
Bræðslan hlaut Eyrarrósina 2010
Dorrit forsetafrú afhendir bræðrunum Magna (t.v.) og Ásgeiri Heiðari
Ás geirssonum Eyrarrósina 2010 á Bessastöðum.
Garðyrkjufélag
Akureyrar
Grænir
fimmtudagar
fram á vor
Nú þegar daginn er farið að
lengja hefur Garðyrkjufélag
Akureyrar starfsárið með stutt-
um, opnum fundum næstu
fimmtu dagskvöld. Hið fyrsta í
röð inni er í kvöld, fimmtudags-
kvöldið 25. febrúar og verður þá
fjallað um sáningu og undirbún-
ing fyrir sumarið. Fundurinn
verður í Ræktunarstöð Akur eyr-
arbæjar.
Hallur Gunnarsson, formaður
Garðyrkjufélags Akureyrar, segir
að félagið hafi legið í dvala um
nokkurra ára skeið, en starfsemi
þess endurvakin í fyrravetur og
nú eigi að endurtaka leikinn. „Við
ætlum að vera með græna fimmtu-
daga fram á vorið, þetta verða
stuttir fundir og allir velkomnir.
Við verðum með stutta fyrirlestra
eða fræðslu um ákveðið efni á
hverjum fundi, jafnvel sýningu og
ræðum um margvíslega hluti sem
tengjast garðrækt,“ segir Hallur, en
alls verða haldnir sjö fundir.
Hann segir að mikill áhugi sé
fyrir garðrækt, góð viðbrögð við
opnun matjurtagarða Akureyringa
sýni það best, þannig að Hallur
telur að fólk verði duglegt að mæta
á fundina og fræðast um þessi mál-
efni. Annan fimmtudag verður ein-
mitt fjallað um matjurtagarðana,
einnig í ræktunarstöðinnni. Næstu
fundir verða síðan haldnir í Gömlu
gróðrarstöðinni við Krókeyri á
Akureyri, þar verður fjallað um tré
í görðum, því næst um klippingar
trjáa og runna, þá um klifurjurtir
og kartöfluræktun. Hlé verður gert
í kringum páskana en síðasti fund-
urinn í röðinni verður um blóma-
beð, þann 8. apríl næstkomandi.