Bændablaðið - 23.06.2011, Side 4
4 Bændablaðið | fimmtudagur 23. júní 2011
Víða um heim eru mjólkurlömb
álitin herramannsmatur og er
kjötið af þeim selt dýru verði.
Á dögunum stóð Þorsteinn
Hjaltested, matreiðslumeistari og
bóndi á Vatnsenda í Kópavogi, fyrir
kynningu þar sem boðið var upp á
nýslátrað tæplega 6 vikna lamb.
Veislan var haldin í Turninum í
Kópavogi en það sem vakti fyrir
Þorsteini og hans samstarfsmönn-
um var að kynna þennan mögu-
leika fyrir gestum, bæði þyrfti að
efla sauðaostaframleiðslu í landinu
og koma kjöti af fráfærulömbum
á markað. „Ég fullyrði að veitinga-
menn myndu kaupa þessa vöru í
þónokkru magni. Það verður auð-
vitað að finna rétt verð á kjötið en
við myndum selja þetta sem lúxus-
vöru,“ segir Þorsteinn. Kjötið af
svo ungum lömbum er einstaklega
meyrt og liturinn er örlítið ljósari
en á kjöti af haustlömbum.
Gæti aukið nýsköpun í
sauðfjárræktinni
Þegar ær eru mjólkaðar þarf að sjálf-
sögðu að taka lömbin undan þeim. Á
þeim örfáu sauðfjárbúum hér á landi
þar sem mjólkin er nýtt til ostafram-
leiðslu er lömbunum komið á beit en
þeim ekki slátrað strax.
Þorsteinn segir að það sé nauð-
synlegt að efla alla nýsköpun í sauð-
fjárræktinni og þessi framleiðsla gæti
hjálpað til við það. Á boðstólum var
einnig innmatur úr mjólkurlambinu,
hjörtu, lifur og nýru sem smökkuðust
vel. Lítið framboð er af sauðaosti á
Íslandi en um nokkurt skeið hefur
mjólkurbúið í Búðardal framleitt
osta þar sem mjólkinni er safnað frá
nokkrum bændum. Þá hafa atorku-
samir bændur í Akurnesi í Hornafirði
stundað sauðaostaframleiðslu og
komið sér upp glæsilegri aðstöðu til
að fullvinna vörurnar.
Mjólkina má frysta
Sauðamjólkin hefur þann eiginleika,
eins og raunar geita- og kaplamjólkin,
að unnt er að frysta hana. Það gerir
það að verkum að hægt er að safna
henni saman og framleiða ostinn þegar
hentar.
Þorsteinn benti jafnframt á að
unglambaskinn séu eftirsótt vara og
nefndi tilraunir Eggerts Jóhannssonar
feldskera í þeim efnum en hann
hefur m.a. útbúið jakka og hanska
úr lambaskinnum. Bændur, sem hafa
safnað skinnum af lömbum sem fæðast
andvana, hafa fengið allt upp í 1.250
krónur fyrir skinnið að sögn Þorsteins.
Þekking er fyrir hendi
Nokkrar rannsóknir hafa verið gerðar
hér á landi í tengslum við nýtingu
sauðamjólkur til manneldis. Athuganir
voru m.a. gerðar upp úr 1982 á bænum
Kastalabrekku í Ásahreppi þar sem
kannað var mjólkurmagn, mjöltun og
ysting úr íslenskri sauðamjólk. Sveinn
Hallgrímsson, fyrrum skólastjóri á
Hvanneyri, hefur í rúm 30 ár verið
áhugamaður um efnið. Hann ásamt
öðrum hefur gert ýmsar tilraunir sem
hafa að hans sögn reynst vel og aflað
nauðsynlegrar þekkingar sem til þarf
svo hægt sé að framleiða sauðamjólk
hér á landi.
Suður-Evrópumenn vilja kjötið
Að sögn Sigurðar Eyþórssonar, fram-
kvæmdastjóra Landssamtaka sauðfjár-
bænda, hafa komið fyrirspurnir bæði
frá Spáni og Portúgal hvort íslenskir
bændur geti selt þangað kjöt af ung-
lömbum. Að hans sögn hefur ekki
verið unnt að verða við því en þetta
sé siður sem vart þekkist hér á landi.
/TB
Fréttir
Matreiðslumenn vilja kaupa unglömb af bændum
- gæti ýtt undir sauðaostaframleiðslu segir Þorsteinn bóndi á Vatnsenda
Matreiðslumenn í Turninum í Kópavogi standa hér við nýeldað unglamb. Frá
-
Mynd / TB
„Við höfum nú oft verið með
vindinn í fangið,“ segir Aðalsteinn
Jónsson bóndi á Klausturseli í
Jökuldal. Þar hefur hann búið
frá árinu 1971 eða í 40 ár og
segir að í sinni búskapartíð hafi
veðurfar ekki alltaf verið hagstætt.
Það sem sé sérstakt nú sé hversu
lengi kuldakaflinn hafi staðið yfir,
komið fram yfir sumarsólstöður og
enn kalt í lofti.
Aðalsteinn nefnir að vorið 1979
hafi verið mjög erfitt og allt á kafi
í snjó síðari hluta maímánaðar, en
hann tók þá allan upp á skömmum
tíma þegar fór að hlýna og þegar
komið var fram í júní var veður
orðið þokkalegt. „Það sem pirrar
mann mest núna er að komið er langt
fram í júní og enn er kalt, það lætur
nærri að hér sé næturfrost,“ segir
hann, en Klaustursel liggur um 280
metra yfir sjávarmáli.
Um 40% túna á jörðinni eru kalin
og því gefur auga leið að heyskapur
verður minni en vant er. „Ljósi
punkturinn í þessu er kannski sá að
maður þarf að kaupa minna af rúllu-
plasti en vant er,“ segir Aðalsteinn.
Fé var lengi á húsi vegna tíðar-
farsins, sem hafði í för með sér aukna
vinnu og meiri útgjöld, „og svo er
viðbúið að afurðir verði eitthvað
minni í haust vegna þessa, þannig
að allt spilar þetta saman og ekki
undarlegt að margir hafi áhyggjur
yfir stöðunni,“ segir Aðalsteinn. Það
sé þó ekki háttur Jökuldælinga að
væla yfir hlutunum, þeir taki lífinu
bara eins og það er hverju sinni.
„Menn læra ekki að meta lífið nema
upplifa bæði góða og slæma daga,“
segir hann. „Það getur allt breyst
á skömmum tíma ef aðeins fer að
hlýna, þá tekur sprettan við sér og
menn verða bjartsýnni.“ /MÞÞ
Aðalsteinn Jónsson bóndi í Klausturseli í Jökuldal:
„Ljósi punkturinn að kaupa
þarf minna af rúlluplasti“
Garðyrkjustöðin Kvistar í
Reykholti í Biskupstungum er
staðsett við afleggjara skammt frá
þjóðveginum við Reykholt. Hefur
aðkoman verið þægileg bæði fyrir
rekstararaðila og viðskiptavini
stöðvarinnar. Allt bendir til að
þetta breytist í næsta mánuði því
Vegagerðin áformar að loka heim-
reiðinni fyrir fullt og allt, þrátt
fyrir að það muni fyrirsjáanlega
valda stöðinni tjóni. Raunar var
heimreiðin grafin í sundur fyrir
skömmu en eigendur Kvista fengu
bráðabirgðaleyfi hjá Vegagerðinni
til að hafa opið fram í miðjan júlí.
Hjónin Steinar Á. Jensen raf-
vélavirki og Hólmfríður Geirsdóttir
garðyrkjufræðingur eiga og reka
Garðyrkjustöðina Kvista. Segir
Steinar málið allt hið furðulegasta og
einkennilegt að opinberir aðilar skuli
með þessum hætti vera að bregða fæti
fyrir starfsemi af þessu tagi.
„Þeir lokuðu hér innkeyrslunni
fyrir skömmu og grófu veginn í
sundur. Það hefur verið stefnan hjá
Vegagerðinni að fækka öllum inn-
keyrslum inn á þjóðveginn eða úr tíu
í tvær. Í staðinn átti að setja upp tvö
hringtorg. Málið er hinsvegar það að
það hafa ekki allir möguleika á að
nýta sér þessi hringtorg og á það m.a.
við um nágranna minn í Friðheimum.
Hann á enga aðra aðkomu en þennan
veg hér þó ég hafi möguleika á að
komast um krókaleiðir út úr hverfinu
en þarf þá að fara í stóran hring.
Ég er mjög hissa á þessum aðgerð-
um og ekki síst miðað við stöðuna í
þjóðfélaginu. Það er ekkert tekið tillit
til aðstæðna.”
Fleiri opinberar aðgerðir hafa
valdið tjóni
Þetta er þó ekki eini vandi stöðv-
arinnar því sparnaður ríkisins
með niðurskurði á framlögum til
Landshlutabundnu skógræktar-
verkefnanna hefur þegar stórskaðað
stöðina sem hefur framleitt plöntur
fyrir skógabændur víða um land. Þar
með hefur tapast fjöldi starfa enda
er vinnan við gróðrarstöðvarnar
mjög mannfrek og nánast eingöngu
handavinna.
„Það er spurning um líf eða dauða
fyrir okkur að reyna að auka heima-
söluna. Það er eins og mönnum sé þó
alveg sama eða að þeir hreinlega skilji
þetta ekki, ” segir Steinar.
Hólmfríður bendir líka á að skóg-
rækt bindi koltvísýring sem stjórn-
málamenn hafi lagt mikla áherslu á
fyrir síðustu kosningar. Einnig hafi
áhersla verið í orði um að skapa sem
flest störf. - „Hvað varð um öll þessi
áform, var þetta bara innantóm tísku-
bóla,” spyr Hólmfríður.
Segir sveitarfélagið andsnúið
Hefur ekkert verið rætt við ykkur áður
um þessi mál?
„Jú, við erum búin að margræða
við sveitarstjórnina (Bláskógabyggð
innskot blm.) um þetta en þeir eru
okkur ekkert sérlega hlynntir við að
hjálpa okkur í þessu máli. Menn haga
sér eins og naut í flagi. Við ætlum
samt að reyna að fá þessu breytt.
Hér komu reyndar upp tilvik þar
sem verið var að brjótast inn í gróður-
hús á nóttinni. Þá var rokið til og sett
hlið á afleggjarann. Þá fengum við
lykil til að opna. Síðan var ákveðið
að setja breytingar á þjóðveginum
inn á skipulag. Þegar sú umræða fór
fram í sveitarstjórn seinnipartinn í
maí vorum við bara á fullu við vinnu
hér í gróðurhúsunum við að gera
að plöntum og því fór sú umræða
framhjá okkur. Þegar við áttuðum
okkur á hvað var að gerast komum
við okkar sjónarmiðum á framfæri við
sveitarstjórnina. Hún virðist bara ekk-
ert sérlega spennt fyrir að halda fyrir-
tækjum lifandi hérna,” segir Steinar.
Sveitarfélagið ekki andsnúið
Drífa Kristjánsdóttir oddviti
Bláskógabyggðar segir af og frá að
stjórn sveitarfélagsins sé eitthvað
andsnúin rekstri Kvista, þvert á móti.
„Það var samþykkt deiliskipulag
fyrir Reykholt fyrir tveim eða þrem
árum sem þau eigendur Kvista gerðu
ekki athugasemdir við og Vegagerðin
vinnur samkvæmt því. Þau hafa viljað
breyta skipulaginu og við höfum
boðið þeim ýmsa kosti í þeim efnum
en þau neita því."
Drífa segir að ekki komi til greina
að heimila þessa heimreið áfram
einfaldlega vegna slysahættu. „Við
erum búin að bjóða þeim upp á ýmsa
möguleika en þau vilja ekki ræða
það," segir Drífa. /HKr.
Vegagerðin gróf heimreiðina að Garðyrkjustöðinni Kvistum í Reykholti í sundur:
„Spurning um líf eða dauða fyrir okkur“
- segja eigendur og furða sig á skilningsleysi opinberra aðila gagnvart starfseminni
Síðast liðin þrjú ár hafa verið
mikill álagstími fyrir bændur.
Efnahagskreppan, Eyjafallagosið í
fyrra, og nú í vor Grímsvatnagosið.
Þetta eru stórir atburðir. Samhliða
Grímsvatnagosinu hefur verið
eitt kaldasta vor, síðustu áratuga.
Tíðarfar sem breytir vinnuvenjum
og skapar óvissu um heyfeng og
aðrar afurðir jarðar, sem og óvissu
um ferðaþjónustu.
Eðlilega taka slíkir atburðir mikið
á fólk, bæði líkamlega en ekki síður
andlega. Bændablaðið leitaði til
Kristins Tómassonar, yfirlæknis
Vinnueftirlitsins, og spurði hann út
í með hvaða hætti fólk gæti brugðist
við andlegri deyfð og þunglyndis-
einkennum sem það yrði vart við
hjá nágrönnum sínum, ættingjum
og vinum.
Kristinn bendir á að í grein sem
birtist í 11. Tölublaði Læknablaðsins
árið 2009 hafi komið fram að geð-
heilsa bænda væri almennt nokkuð
góð og almennt betri en gerust meðal
almennings. Greinin var byggð á
gögnum sem safnað var árið 2002.
Ein af forsendum þess að ráðist
var í að gera rannsóknina var sú að
bændur höfðu á þessum tíma dregist
aftur úr í kjörum miðað við aðrar
stéttir og efnahagsleg staða þeirra til
lengir tíma litið erfiðari en almennt
gerðist. „Það kom nokkuð á óvart
að geðheilsa bænda var almennt
nokkuð góð og betri en gerist meðal
almennings. Á þessu kunna að vera
ýmsar skýringar, svo sem þær að við-
kvæmir einstaklingar bregða frekar
búi, þannig að þeir sem halda áfram
í starfi séu úrval hraustra einstak-
linga sem hefur heilsu og getu til að
glíma við erfiðleika. Það sem olli
þó áhyggjum var að ef bændur urðu
veikir á geði þá leituðu þeir síður
hjálpar en aðrir,“ segir Kristinn.
Endurtekin eldgos á svæðum
sem liggja ekki langt frá hvort öðru
er gríðarleg ógn og segir Kristinn
þau vitanlega til þess fallin að valda
hugarangri og þungum áhyggjum,
sérstaklega meðal barna, gamalla
og þeirra sem veikir eru eða illa
þreyttir. „Gosunum fylgdi líka
mikil óvissa á meðan á þeim stóð
fyrir alla starfsemi bænda, hvort sem
var hefðbundin starfsemi eða óhefð-
bundinn landbúnaður. Samantekið
hefur þetta þýtt mikla aukna vinnu
og aukna óvissa um búskaparhætti
og framtíð búskapar.“
Slæmt tíðarfar ógnar heilsu
Kristinn segir að alveg sé ljóst að
þrátt fyrir að ógnin sem stafi af
slæmu tíðarfari sé ekki hliðstæð við
ógn af eldgosi og öskufalli þá sé
hún til staðar. „Þessir bændur búa
hvorki við samfélagslega athygli né
stuðning. Stuðningur við þá er ekki
almennur og meiri líkur eru því á
að þeir finni sig eina í sínu basli.
Kringumstæður sem þessar eru til
þess fallnar að auka líkur á geðein-
kennum sem hamla vinnugetu og
spilla vellíðan. Einkenni sem hafa
þarf í huga, eru t.d svefnmissir, við-
varandi áhyggjur sem menn losna
ekki undan í dagsins önn, minnkuð
matarlyst, þreyta sem ekki hverfur
við hvíld og minnkað þrek til verka.
Þá þarf að hafa vakandi auga og
bregðast við sinnuleysi um eigin
velferð meðal granna eða fjölskyldu-
meðlima.“
Þurfum að gæta bróður okkar
„Þessar miklu hamfarir sem hafa
dunið á okkur síðust tvö ár hér á
landi eru okkur áminning um hvar
við búum. Við þurfum góða heilsu
til að takast á við miklar hamfarir.
Til að njóta góðrar heilsu þurfum við
hófleg verkefni og hóflega hvíld. Við
þurfum að finna til samfélagslegrar
ábyrgðar um að huga að og hjálpa
granna okkar, og ef á heilsuna bjátar
leita læknis tímanlega áður en í óefni
er komið. Stuðningur einstaklinga og
samfélags er mikilvægur til að lina
þær áhyggjur sem þessu fylgja og
hjálpa mönnum við að halda góðri
geðheilsu samhliða því sem þeir
ná nauðsynlegri hvíld og fá aðstoð
viðað ljúka brýnum verkum,“ segir
Kristinn að lokum. /fr
Eldgos og harðindi
- Aðgátar er þörf varðandi andlega heilsu bænda
Kristinn Tómasson. Mynd / Læknablaðið
Hávar Sigurðsson.