Bændablaðið - 23.06.2011, Síða 14

Bændablaðið - 23.06.2011, Síða 14
14 Bændablaðið | fimmtudagur 23. júní 2011 DALVEGI 16c · 201 KÓPAVOGI · SÍMI 568 6411 · WWW.RAFVORUR.IS VÉLADEILD ehf. TAKMARKAÐ MAGN - AÐEINS EINN AF HVERRI GERÐ * 91 hö. 3.190.000 · Mótor, 4 cyl. 91 hestöfl, m. forþjöppu og millikæli · 14 gírar áfram – 4 aftur á bak. Samhæfðir · Farþegasæti · Bremsur í olíubaði · Loftpressa · 540/1000 snúningar á aflúrtaki · 3.800 kg lyftigeta á beisli · Lyftu- og dráttarkrókur · Framdekk 360/70R24 Afturdekk 18,4R34 · Þyngdarklossar að aftan og framan · 24V start (2 rafgeymar) · Geislaspilari * 105 hö. 3.490.000 · Mótor, 4 cyl. 105 hestöfl, m. forþjöppu og millikæli · 16 gírar áfram – 8 aftur á bak. Samhæfðir · Farþegasæti · Bremsur í olíubaði · Loftpressa · 540/1000 snúningar á aflúrtaki · 4.300 kg lyftigeta á beisli · Lyftu- og dráttarkrókur · Framdekk 360/70R24 Afturdekk 18,4R34 · Þyngdarklossar að aftan og framan · 24V start (2 rafgeymar) · Geislaspilari Nánari tæknilegar upplýsingar eru á www.rafvorur.is eða í síma 568 6411 * Ve rð e ru á n VS K. ti l b æ nd a á lö gb ýlu m · Mótor, 6 cyl. 130 hestöfl, m. forþjöppu og millikæli · 16 gírar áfram – 8 aftur á bak. Samhæfðir · Farþegasæti · Bremsur í olíubaði · Loftpressa · 540/1000 snúningar á aflúrtaki · 4.500 kg lyftigeta á beisli · Lyftu- og dráttarkrókur · Framdekk 420/70R24 Afturdekk 18,4R34 · Þyngdarklossar að aftan og framan · 24V start (2 rafgeymar) · Geislaspilari * 130 hö. 3.995.000 SUMAR TILBOÐ m 91, 105 og 130 hö. til afgreiðslu Sumardagur á sveitamarkaði í Eyjafjarðarsveit hefur nú göngu sína sjötta sumarið. Eins og áður er markaðurinn á blómum prýddu torgi Gömlu Garðyrkjustöðvarinnar við Jólagarð- inn. Óhætt er að segja að á markað- inum sé fjölbreyttur varningur í boði. Má þar nefna brodd, brauð og kökur af ýmsu tagi, sultur og saft svo eitt- hvað sé nefnt. Einnig allskonar hand- verk svo sem prjónavörur, þæfða ull, vörur úr mokkaskinni, dúkkuföt, skartgripi og ótal margt annað sem gleður augað. Notalegt er að setjast niður og gæða sér á nýbökuðum vöfflum með rabarabarasultu beint úr pottinum og rjúkandi kaffi og kakói. Seljendur eru flestir heimamenn og úr nágrannasveitum eða hagleiks- fólk sem á leið um og staldrar við með vöru sína. Þetta skapar skemmti- lega fjölbreytni sem markaðurinn er þekktur fyrir. Samstarfshópurinn Fimmgangur heldur utan um sveitamarkaðinn og leggur mikið upp úr að varningurinn sem boðinn er sé heimaunninn eða falli vel að umhverfinu og sveita- lífinu. Fyrsti markaður sumarsins verður 10. júlí og svo alla sunnu- daga í sumar til og með 14. ágúst. Sveitamarkaðurinn er opinn frá kl. 11 til 17. /MÞÞ Sveitamarkaður í Eyjafjarðarsveit Sveitamarkaðurinn er þekktur fyrir skemmtilega fjölbreytni og þangað leggja margir leið sína. Mynd / MÞÞ Formaður Bændasamtaka Íslands í heimsókn hjá Noreges bondelag: „Eigum gott samstarf með þeim á alþjóðavettvangi bænda“ - Í aðalatriðum rætt um sömu mál og brenna á íslenskum bændum Aðalfundur Noreges bondelag var haldinn í Lillehammer, 8. og 9. júní síðastliðinn. Líkt og áður var Bændasamtökum Íslands boðið að senda fulltrúa á fundinn og þangað fór formaður Bændasamtakanna Haraldur Benediktsson. „Það er mikilvægt að styrkja og rækta góð tengsl á milli samtaka bænda á Íslandi og í Noregi. Ekki aðeins að norskir bændur hafi sýnt íslenskum kollegum sínum mikinn stuðning, heldur er margt sem við eigum gott samstarf við þá á alþjóða- vettvangi bænda. Að sjálfsögðu, samt fyrst og fremst í bændapólitík,“ segir Haraldur. „Um margt er land- búnaður þjóðanna líkur. Því er ekki síður áhugavert að skynja hve öflugt málefnastarf norsku samtakanna er á vettvangi þjóðfélagsumræðu. Í Noregi er náin samvinna á milli samtaka bænda og sambands sam- vinnufélaga bænda. Það spannar allt frá verslun, afurðastöðvum í flestum búgreinum til bankastarfsemi.“ Svipuð viðfangsefni „Umræður á aðalfundinum voru í aðalatriðum sömu mál og brenna á íslenskum bændum. Þar, eins og hér, eru aðfangaverðshækkanir þungar í búrekstri. Verri afkoma bænda, erfiðleikar við að endurnýja tæki og tól og umræða um rándýr. Afföll vegna rándýra eru mjög íþyngjandi í rekstri bænda í Noregi, sérstaklega sauðfjárbænda. Þar er reyndar nokkuð fjölbreytt flóra rán- dýra, úlfar, birnir og gaupa sem er kattardýr. Í umræðum kom fram að allt að 25% afföll eru á lömbum á einstaka svæðum. Meðaltal skráðra afalla yfir landið er nú á milli 5 og 6%, af völdum rándýra. Þá er önnur plága sem við þekkjum líka en það er tjón af völdum gæsa. Umræða um rándýrapláguna er mál sem flest norrænu bændasam- tökin þurfa að kljást við. Við höfum ref og mink. Verður þetta málefni væntanlega til frekari umræðu á vettvangi NBC, norrænu bænda- samtakanna, seinna í sumar.“ Kjaramálin „Í umræðu um kjaramál var að sjálfssögðu nýgerður landbúnaðar- samningur. Árlega semja bændur og ríki um landbúnaðarsamning. Það fór ekki framhjá neinum að talsverð ólga var um niðurstöðuna. Samtök smábænda, sem eru systursamtök Norges bondelag, skrifuðu ekki undir samninginn og vildu margir fundar- menn að forysta þeirra hefði gert slíkt hið sama. Landbúnaðarráðherra Noregs sat fundinn og tók þátt í umræðum um samninginn og var ánægjulegt að sjá hvernig hann varði gjörðir ríkisstjórnarinnar og skýrði málið frá þeim sjónarhóli. Þannig var umræðan miklu málefnalegri, þar sem fulltrúi ríksvaldsins var til svara.“ Rætt um EES og ESB tilskipanir Af þessari upptalningu má sjá að sem gestur var maður nokkuð vel heima í heitustu málunum. Umræðan um aðild að ESB, var ekki mikil. En frekar á þeim nótum að Norðmenn telja nú að EES samninginn verði að endurskoða því það henti ekki norskum aðstæðum að taka upp til- skipanir ESB. Var pósttilskipunin sérstaklega nefnd sem dæmi um slíkt. Vegna harðinda hér á landi í vor, kom líka fram á fundinum að í ákveðnum héruðum Noregs var í fyrrasumar lélegt heyskaparár, þannig að umfangsmikil miðlun á fóðri, korni og heyi varð að eiga sér stað. Kannski áþekk og sú staða sem við gætum hugsanlega horft til, ef tíð fer ekki skána, - sem við sannarlega vonum. Fundarmenn voru líka vel með- vitaðir um okkar vanda og fyrsta spurning Norðmanna í okkar garð snerist alltaf um hvernig bændum á áhrifasvæði Grímsvatnagossins reiddi af. Þannig fannst mér ég upp- lifa þennan sterka bænda og frænda- þráð sem á milli okkar liggur,“ segir Haraldur Benediktsson. Formannshjón BÍ á fundi hjá norsku bændasamtökunum. Talið frá vinstri; Lilja Guðrún Eyþórsdóttir, Haraldur Benediktsson með dóttur þeirra Guð- björgu í fanginu og Nils T. Bjørke, formaður Noreges bondelag. Árshátíð Landssambands kúabænda 2011 þakkar eftirtöldum fyrirtækjum kærlega fyrir veittan stuðning

x

Bændablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.