Bændablaðið - 23.06.2011, Blaðsíða 29

Bændablaðið - 23.06.2011, Blaðsíða 29
28 Bændablaðið | fimmtudagur 23. júní 2011 Lista- og menningarvika var hald- in á Ytra-Lóni á Langanesi nýverið og var dagskráin fjölbreytt, m.a. var boðið upp á vinnusmiðjur þar sem áhugasamir gátu komið og fengið leiðsögn í að tálga í tré, þæfa upp og setja mósaík á garðhellur. Á meðan á Lista- og menningarvikunni stóð var mál- verkasýningin „Rassar í sveit“ í fjárhúsinu á staðnum. Á Ytra-Lóni búa hjónin Mirjam Blekkenhorst og Sverrir Möller ásamt börnum sínum. Þar er rekið sauðfjárbú en einnig er þar ferða- þjónusta og er gistiaðstaða m.a. í gamla bæjarhúsinu á staðnum sem byggt hefur verið upp frá grunni. „Þegar Mirjam sá umfjöllun um mig og mín verk í Bændablaðinu þar sem ég sagði frá þeim draumi mínum að halda sýningu í fjárhúsi hafði hún samband og bauð mér sýningarsal í fjárhúsinu á Ytra-Lóni í tengslum við Lista- og menningarvikuna sem þar var haldinn um daginn,“ segir Jóhanna Bára Þórisdóttir. Hún hefur gert garðinn frægan fyrir verk sín sem bera yfirskriftina „Rassar í sveit,“ og frá var sagt í Bændablaðinu í vor. Kindunum boðið á sýningu Jóhanna Bára segir að fyrst þegar Mirjam hafi rætt við sig hafi hún verið sannfærð um að fjárhúsin yrðu svo gott sem tóm þegar húm myndi birtast á staðnum, búið yrði að loft vel út og ekki yrði mikill raki og lykt í húsunum. Afleitt veðurfar í allt vor og það sem af er sumri hafi hins vegar sett sitt strik í reikninginn. Ekki var unnt að setja út allt fé og var talsvert af kindum á húsi þegar Jóhanna Bára kom á staðinn. „Við veltum fyrir okkur hvort best væri að fresta sýningunni, en ég tók það ekki í mál, ég vildi endilega láta af þessu verða. Mætti því bara á staðinn og fann strax góðan stað í fjárhúsinu þar sem ég hengdi upp myndir mínar og leyfði kindunum að njóta listaverkanna í heila viku,“ segir Jóhanna Bára. /MÞÞ Lista- og menningarvika á Ytra-Lóni á Langanesi: Allir draumar geta ræst Draumur Jóhönnu Báru Þórisdóttur um að sýna verk sín í fjárhúsi rættist á dögunum, en hún hengdi nokkur þeirra upp í fjárhúsinu að Ytra-Lóni. Þar sem veðurfar hefur verið afleitt á norðan- og austanverðu landinu var fé enn á húsi og nutu kirndurnar þess að berja listaverkin augunum og stytta sé þannig stundir meðan beðið var eftir betri tíð. Mynd / MÞÞ

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.