Bændablaðið - 23.06.2011, Blaðsíða 31
30 Bændablaðið | fimmtudagur 23. júní 2011
Lesendabásinn
Aðföng til sauðfjárframleiðslu
hafa hækkað gífurlega á síðustu
fjórum árum en afurðaverð til
bænda lítið sem ekki neitt. Í
verðlagsgrunninum sem reikn-
aður var hér áður fyrr var ekki
langt frá að helmingur af brúttó-
tekjum sauðfjárbænda færi í
kostnað. Hækkanir á aðföngum,
síðast liðin ár, hafa rýrt tekjulið
bóndans svo um munar. Stór
hluti tekna bóndans er horfinn.
Menn kenna gjarnan hruninu
um, en það er einföldun. Þó
við, í þessari umfjöllun, berum
saman verð hér og í Evrópu þá
erum við engir sérstakir tals-
menn Evrópusambandsins. Við
höfum enga trú á að við séum á
leið þangað inn.
Ullarverð
Ullarverð í heiminum hefur
í áratugi verið ótrúlega lágt.
Langt undir framleiðslukostnaði.
Bændur hafa reynt að þrauka í
von um betri tíð. Nú er svo komið
að smátt og smátt hefur sauðfé í
helstu framleiðslulöndum fækkað
um tugi milljóna. Það og það að
ull er er orðin tískuvara, hefur þau
áhrif að ullarverð á mörkuðum
erlendis hefur hækkað töluvert.
Verði til okkar frá verksmiðj-
unni og styrkjum frá ríkinu hefur
verið blandað saman að ástæðu-
lausu. Í raun er verksmiðjan, Ístex,
að borga 160 kr. á hreint kíló af
fyrstaflokks ull. Lopapeysa, sem
í fer eitt kg. af ull er gjarnan seld
á kr. 18.000. Ullarverðið (sem
fulltrúi verksmiðjunnar sagði besta
hráefni í heimi) er innan við 1% af
útsöluverði lopapeysunnar.
Góð merínóull er í dag seld á
mörkuðunum á kr. 1.600 kg. Það
stendur á veraldarvefnum (sjá
uppl. neðst) að ullarjakkaföt hafi,
vegna hækkunar á ull, hækkað
un 8.000 kr. íslenskar. Það er því
ljóst að það verð sem verksmiðjan
borgar okkur fyrir ullina þarf að
margfaldast.
Eðilegast væri að miða verð
til okkar sem hlutfall af verði á
merínóull (19μ). Ef til dæmis
verðið væri 40% af merínóull
ættum við að fá utan við styrkina
kr. 640. Verð á lopapeysunni þyrfti
að hækka um 500-600 krónur, úr
kr. 18.000 í 18.600 út úr búð.
Kjötverð
Eins og styrkirnir eru reiknaðir nú
mætti líta svo á að við séum að
fá styrki fyrir útflutninginn. Það
er blekking. Ef verð á kindakjöti
fyrir innanlandsmarkað yrði fært
að framleiðslukostnaði þyrfti
allan þann styrk sem við fáum
í dag, jafnvel meira til að hægt
væri að selja á því verði sem við
erum að selja á í dag. Það er mjög
hæpið að haga styrkjum þannig
að ætla mætti að útflutningurinn
sé styrktur.
Hér um árið lagði þáverandi
landbúnaðarráðherra, Steingrímur
Sigfússon, útflutningsbæturnar
niður. Engin pólitískur stuðningur
var við að borga þær, var okkur
sagt. Saman með þjóðarsáttmál-
anum sem kom um svipað leyti
voru laun sauðfjárbænda þá, skert
um 46% að meðaltali.
Samanburður við Skotland
Fyrir nokkrum árum gerðum við
samanburð á framleiðslukostnaði á
kindakjöti hér og í Skotlandi. Það
sem kom á óvart var að algengt
var að þeir þurftu jafnmikið af
aðföngum og við, til dæmis áburð
á framleitt kíló af kjöti. Þó við
þurfum meira af byggingum þá
er land dýrara í Skotlandi.
Ef við fengjum aðföng á svip-
uðu verði virðist ekkert út í hött
að við gætum framleitt kindakjöt
á ekkert svo miklu hærra verði en
Skotar. Það er aftur á móti fráleitt
að reikna með að við getum fram-
leitt kjöt hér á lægra verði. Það er
því fróðlegt að bera saman verð á
kindakjöti hér og í Evrópu.
Verð á kindakjöti í Evrópu,
ákvarðast á uppboðsmörk-
uðum svipað og verð á fiski
hér á landi. Verðið er mjög
breytilegt eftir árstímum og eins
er það ekki það sama í öllum
löndum Evrópusambandsins.
Meðfylgjnadi línurit er fyrir kíló
af kjöti til bænda 2010 og í byrjun
á 2011 á Bretlandseyjum.
70% hærra verð í Bretlandi
Jafnvel þó við tökum lægstu verð
á Bretlandseyjum árið 2010 er
verð samt 70% hærra til bænda
á Bretlandseyjum en hér. Hér
var, sl. haust, verð til bænda um
kr. 400 á kg. en um kr. 670 í
Bretlandseyjum. Nú er verð um
20% hærra á Bretlandseyjum en
það var í fyrra og er því spáð að
sú hækkun haldist þannig að verð
til bænda verði um kr. 800 í haust.
Ef borin eru saman verð á lif-
andi fé, lömbum með gæru, verður
munurinn jafnvel enn meiri. Það
er því ljóst að það er dapurlegt ef
það verð sem bændur í Evrópu eru
að fá, á þessum sömu mörkuðum
sem við erum að selja á, næst ekki
sem skilaverð til bænda á Íslandi.
Er þá yfirleitt nokkur framtíð fyrir
útflutning á kindakjöti frá Íslandi
ef ekki er hægt að gera betur.
Okkur bændum þykir sárt að
horfa á eftir hverju lambi sem
deyr. Ef einhverjir tugir lamba
deyja bera bændur sig illa, eins
og eðlilegt er. Það verð sem sauð-
fjárbændur á Íslandi fá fyrir sínar
afurðir er svo miklu lægra en það
verð sem t.d. skoskir bændur eru
að fá, að það er hægt að líta á það
sem ígildi náttúruhamfara, en
sauðfjárbændur æmta hvorki né
skræmta. Látum heyra í okkur!
Mögulegar lausnir
Það þyrfti að ráða einhvern erlend-
an markaðssérfræðing til að líta á
hvort og hvað væri hægt að gera.
Ef ekkert er hægt að gera þá er
gott að vita það líka.
(Fljótlegt er að finna þær
upplýsingar sem hér er að finna
með því að gúgla woolprices og
lambprices UK, þá koma upp upp-
lýsingar ).
Gunnar Einarsson og
Guðrún S. Kristjánsdóttir
Sauðfjárbændur
Daðastöðum
Núpasveit, Norðurþingi.
Verð á sauðfjárafurðum
Benedikt Erlingsson leikari er
kannski í huga pöpulsins meira
tengdur gríni og glensi en dramatík
og alvöru. Hann hefur birst lands-
mönnum á sjónvarpsskjánum í
hlutverki trúðsins um margra ára
skeið. Á hitt ber þó að líta að í leik-
húsinu hefur Benedikt fengist við
háalvarleg hlutverk. Hann vinnur
nú að undirbúningi myndar sem
ber vinnuheitið Hross í oss sem
að hans sögn er best að lýsa sem
einhvers konar tragíkomedíu, ef
menn á annað borð vilja setja
merkimiða á alla hluti.
Benedikt segir að nú beri nýrra við
í þessari fyrirhuguðu mynd. „Ég geri
mér grein fyrir því að hestamönnum
finnist ég vera trúður því að ég hef
nokkrum sinnum trúðast með þeim.
Ég hef látið temja mig í Reiðhöllinni
og sýnt gagntegundir á landsmóti
þannig að ég hef verið að grínast með
hesta. En núna er mér mikil alvara,
með þessari mynd. Þessi mynd er
mikið til fyrir hestamenn, ég er að
gera hana fyrir þá en auðvitað líka
fyrir heiminn allan.“
Dramatískar sögur
Mynd af þessu tagi, sem hugsuð er til
alþjóðadreifingar, getur opnað ýmsa
glugga og skapað mörg tækifæri að
mati Benedikts. „Einhvers staðar í
þessari mynd erum við líka að selja
fólki upplifunina af íslenska hestin-
um á Íslandi, sem eitthvað verðmæt-
ara og stórbrotnara en bara íslenska
hestinn í stykkjatali í útlensku gerði.
Rannsóknir sýna að myndefni er
í raun ein helsta kveikjan að ferðum
fólks til Íslands. Í þessari mynd eru
ekki mörg samtöl. Sögurnar eru mjög
dramatískar og ekki bornar upp af
einhverju blaðri heldur atburðum
og myndmáli. Hún ætti því að geta
gengið í útlendinginn.“
Mynd um skepnuna í manninum
„Þetta er svona ný tegund af sveit-
arómantík en kannski, dálítið brútal
en samt með miklu umburðarlyndi
og kærleika fyrir viðfangsefninu.
Þessi mynd er á einhvern hátt röð
af baráttusögum þar sem maðurinn
er að beisla dýrið, bæði hrossið og
dýrið í sjálfum sér. Þó að hesturinn
sé í forgrunni og sjónarhornið sé oft
hestsins þá er þessi saga auðvitað um
manneskjur. Hún er ekki eingöngu
óður til hestsins og íslenskrar hesta-
menningar heldur um leið verður hún
tilraun til að afhjúpa hið frumstæða
afl í manneskjunni. Hún er kannski
svolítið um skepnuna í manninum
sem afhjúpast í glímunni við þetta
göfuga dýr,“ segir Benedikt.
Hesthúsið torkofi
Benedikt segist vera búinn að ganga
með hugmyndina lengi í maganum.
Grunnurinn að myndinni, sögunum
sem þar eru sagðar, sé allt að því að
tíu ára gamall. Benedikt hefur hins
vegar lengi verið í hestamennskunni.
Tólf ára gamall fór hann í sveit í
Möðrudal og smitaðist þar af hesta-
bakteríunni. Ljósmynd af afabróður
Benedikts, Guðna Ólafssyni apótek-
ara, þar sem hann var með tvo til
reiðar á stæðilegum brúnum klárum
var hálfgerð altaristafla í æsku hans.
„Ég hef eiginlega haft hesta á
húsi frá sextán ára aldri, þá byggði
ég mér hesthús með pabba uppi í
Grafarholti, í gömlum tóftum þar.
Við tyrfðum þar yfir og vorum
með þrjú hross í litlum torfkofa,
sem reyndar stendur ennþá upp við
golfskálann í Reykjavík. Það myndi
þykja frumstætt í dag, við vorum
m.a. bara með vatn í brunni.“
Stórleikarar í kippum
Benedikt hefur fengið stórleikara
til liðs við sig í verkefninu Hross
í oss. Ingvar E. Sigurðarson og
Charlotte Bøving fara með aðal-
hlutverkin en í aukahlutverkum eru
ekki ómerkari leikarar en Baltasar
Kormákur, Hilmir Snær Guðnason
, Steinn Ármann Magnússon og
Maria Bonnevie sem er ein af virt-
ari leikkonum norðurlanda og hefur
meðal annars leikið í kvikmyndinni
Jerusalem í leikstjórn Billy August.
Íslensku leikarana þarf vart að kynna
frekar enda eru þeir með ástsælustu
leikurum þjóðarinnar síðustu ár.
Að sögn Benedikts er verkefnið
nú á lokastigum fjármögnunar en
þegar hefur fengist vilyrði um stuðn-
ing frá Kvikmyndasjóði Íslands.
Framleiðendur ásamt Benedikt
eru þau Friðrik Þór Friðriksson og
Guðrún Edda Þórhannesdóttir. Þá
hafa norrænir meðframleiðendur
bæst í hópinn. En svona verkefni er
langhlaup. „Þetta er sumarmynd og
við stefnum á að hefja tökur í ágúst
næsta sumar. Þá stefnum við á tökur í
Hvítársíðunni og í Skagafirði,“ segir
Benedikt. Stefnt er að því að myndin
verði frumsýnd árið 2013.
Tökum okkur skáldaleyfi
Staðsetning myndarinnar er í raun
óræð þrátt fyrir tökustaðina að sögn
Benedikts. „Þetta er þessi sveit þar
sem sér á milli bæja og nágrannarnir
fylgjast hverjir með öðrum, í kíkin-
um. Lengi vel hafði ég Svarfaðardal
í huga en ég hef mikið skoðað bæði
Vesturdal og Unadal í Skagafirði
og svo í Borgarfirðinum. Þarna eru
líka mikil tengsl við hálendið. Það
verður kannski erfitt fyrir Íslendinga
og sveitamenn að horfa á myndina
þegar þeir upplifa það að bóndi
úr Hvítársíðunni fer í kaupstað á
Hofsós. Við erum hins vegar að búa
til svona sérheim, við tökum okkur
ákveðið skáldaleyfi.“ Benedikt
segist vilja staðsetja söguna í tíma í
kringum 1985 en hún geti samt sem
áður einnig gerst í dag.
Búið að ráða móvindótta stjörnu
Benedikt segir að myndin verði
erfið í tökum enda sé ekki einfalt
að leikstýra hrossum. „Þetta verður
töluverður sirkus enda þarf ég að
hafa góða hestamenn með mér. Ég
hef fengið til liðs við mig þá Snorra
Dal og Helga Leif Sigmarsson að
ógleymdum nafna mínum Benedikt
Líndal. Hlutverk þeirra er bæði það
mikilvægasta og það erfiðasta í
myndinni.
Við erum núna að leita að stjörn-
unum í myndina. Ég er reyndar búinn
að ráða eina stjörnu, móvindótta,
eðlisstygga meri. Þú getur ímyndað
þér prísinn á skepnunni sem fær heila
tveggja tíma kynningarmynd í full-
um gæðum í alþjóðlegri dreifingu.
Ég er eiginlega nánast að hugsa um
að fjárfesta sjálfur í öllum hrossunum
og selja svo grimmt árið eftir,“ segir
Benedikt hlæjandi.
Skagfirðingar geta verið rólegir
Myndin mun enda í stóðréttum. „Þar
sem menn og hestar renna saman.
Við erum að horfa á Skagafjörðinn,
við stefnum þangað. Þar er Mekka
hestamennskunnar og mikið um
stóðréttir. Á tímabili var ég að hugsa
um að falsa þetta og búa til stóð-
réttir í Borgarfirði en ég get alveg
róað Skagfirðinga með að það verður
ekki gert. Við munum hafa Málmey
í baksýn.“
/fr
Benedikt Erlingsson.
Íslensk sveitamenning með augum hrossa:
Hross í oss
- Stórmynd um samskipti manns og hests í undirbúningi