Bændablaðið - 23.06.2011, Page 35

Bændablaðið - 23.06.2011, Page 35
34 Bændablaðið | fimmtudagur 23. júní 2011 Rannsókn á stofni íslensku landnámshænunnar Hænsn af stofni íslensku landnámshænunnar (Mynd tekin að Háafelli í Hvítársíðu). Rýrnun erfðaauðlinda er flestum sérfræðingum um búfjárrækt áhyggjuefni en þessi varhuga- verða þróun hefur þó ekki fengið þá umfjöllun sem eðlileg getur talist. Rannsóknir sýna að helstu framleiðslustofnar búfjárkynja eru margir úr sér gengnir hvað varðar erfðafjölbreytileika á sama tíma og margir minni stofnar eru að hverfa af sjónarsviðinu (Meuwissen, 2009; Muir et al., 2008). Mikilvægi þess að varðveita búfjár- kyn liggur meðal annars í því að kyn sem eru við að glatast geta geymt ómetanleg verðmæti, svo sem sérstaka framleiðslueiginleika eða eiginleika sem haft geta áhrif á sjúkdómaþol. Landnámshænan vinsæl Íslenska landnámshænan hefur að undanförnu átt auknum vinsældum að fagna hjá fjölmörgu áhugafólki um hænsnarækt en þrátt fyrir ein- staka sögu hefur þetta áhugaverða kyn ekki farið varhluta af áðurnefndri þróun. Líkt og mörg önnur staðbundin hænsnakyn þykir það ekki ákjósan- legt til framleiðslu og hefur því vikið fyrir öðrum afkastameiri kynjum. Því má þó ekki gleyma að rannsóknir hafa undirstrikað sérstöðu íslensku búfjárkynjanna og sýnt að þau geta geymt einstakan breytileika þrátt fyrir takmarkaða stofnstærð (Kantanen et al., 2000; Tapio et al., 2005). Það má því vel vera að íslenska hænsnakynið geymi einstaka eiginleika sem seinna megi nýta við kynbætur þó svo að stofninn teljist ekki arðvænlegur í dag. Rannsókn á vegum LbhÍ og MATÍS Starfsmenn og nemendur Landbúnaðarháskóla Íslands ásamt starfsmönnum MATÍS hafa undan- farið unnið að rannsókn á íslensku landnámshænunni í samstarfi við hænsnaeigendur með það að markmiði að skjóta frekari stoðum undir það ræktunarstarf sem unnið hefur verið undanfarin ár. Rannsókninni er ekki lokið en fyrstu niðurstöður og næstu skref verða kynnt hér í stuttu máli. Um 300 sýnum safnað Í fyrsta hluta rannsóknarinnar var lífsýnum safnað víðsvegar á land- inu með aðstoð ræktenda. Tæplega þrjú hundruð sýni söfnuðust af sex hænsnakynjum og úr sýnunum var einangrað erfðaefni til arfgerða- greininga. Niðurstöðurnar sýndu að íslenski stofninn stendur ágætlega þegar skoðaðar eru stærðir sem lýsa erfðafjölbreytileika en slíkt þarf þó ekki að koma á óvart enda er sýni- legur breytileiki mikill (mynd 1). En auk þess að veita upplýsingar um erfðafræðilega stöðu þá má nýta niðurstöðurnar til að skoða byggingu stofns, en á meðfylgjandi mynd sjást niðurstöður meginhlutagreiningar á erfðafjarlægð milli einstaklinga af íslenska stofninum (mynd 2). Sjá má að hluti íslensku sýnanna sker sig nokkuð frá meginhluta stofnsins (grænir hringir á mynd 2A) en þau sýni eru öll upprunnin frá einum og sama ræktandanum. Samanburður milli kynja sem finnast á Íslandi þar sem hópar í stað einstaklinga eru greindir sýnir að umræddur undir- hópur sker sig með skýrum hætti frá meginhópnum (mynd 2B). Hér eru því komnar vísbendingar þess efnis að stofngerð íslensku landnámshæn- unnar sé ef til vill flóknari en áður var talið. Í þessu dæmi endurspeglast eitt af mikilvægustu verkefnum þeirra er vinna að verndun erfðaauðlinda, en það er að tryggja að leyndir undirhópar fái nauðsynlega athygli í verndaráætlunum og tapist ekki óaf- vitandi. En þessar niðurstöður vekja jafnframt upp þá spurningu hvort hugsanlegt sé að enn fleiri hópar af landnámshænunni fyrirfinnist sem vert væri að gefa sérstakan gaum og því verður haldið áfram að safna líf- sýnum til greininga. Litlar upplýsingar um útbreiðslu Þrátt fyrir aukinn áhuga á ræktun landnámshænunnar eru upplýsingar um útbreiðslu og útlitseinkenni af skornum skammti. Skipulegar skráningar á útlitseinkennum og eiginleikum hænsnanna eru ekki til og ekki liggur fyrir hvað telja má upprunalegt varðandi eiginleika svo sem liti, egg og fjaðrir, en slíkar upplýsingar eru mikilvægur þáttur í ábyrgu ræktunarstarfi. Í öðrum hluta rannsóknarinnar sem hefst nú í sumar verður því hafist handa við talningu og kortlagningu á dreifingu hænsna á landinu. Nauðsynlegt er að þeir sem koma að verndunarmálum hafi skýra yfirsýn yfir stærð stofns og því er þetta mikilvægt verkefni. Þegar þær niður- stöður liggja fyrir verður hafist handa við lýsingu á útlitseinkennum íslensku landnámshænunnar og samanburði á útlitseinkennum íslenskra og erlendra stofna sem finnast hér á landi. Slík þekking er mikilvæg sé ætlunin að halda hér stofn íslenskra landnáms- hænsna án blöndunar við aðra stofna, en þetta er sérstaklega mikilvægt í ljósi þess að mörg önnur hænsnakyn fyrirfinnast hérlendis. Tvö atriði sér- staklega hafa vakið upp spurningar um hvort og þá hversu mikil áhrif erlendir stofnar hafa haft á íslensku land- námshænuna en það er annarsvegar eggjagerð (stærð og litur) og hins vegar fiður á fótum. Allnokkur breyti- leiki virðist finnast í gerð og lit eggja en jafnframt finnast innan stofnsins hænur misfiðraðar á fótum Því verður sérstök áhersla lögð á greiningu þess- ara tveggja þátta. Hugmyndin er sú að þessi úttekt geti orðið vísir að lýsingu á íslenska landnámshænsnakyninu en slíkt væri mikilvægt skref í átt að sjálf- bærri ræktun til framtíðar. Ólöf Ósk Guðmundsdóttir, búfræðikandídat frá Landbúnaðarháskóla Íslands. Ásta Þorsteinsdóttir, nemandi við Landbúnaðarháskóla Íslands. Birna Kristín Baldursdóttir, starfsmaður Erfðalindaseturs LbhÍ. Emma Eyþórsdóttir og Jón Hallsteinn Hallsson, erfða- fræðingar við Auðlindadeild LbhÍ. Heimildaskrá: Kantanen, J., Olsaker, I., Holm, L. E., Lien, S., Vilkki, J., Brusgaard, K., Eythorsdottir, E., et al. (2000). Genetic diversity and population structure of 20 North European cattle breeds. J. Hered., 91(6), 446-457. Meuwissen, T. (2009). Genetic management of small populations: A review. Acta Agr. Scand. A-An, 59(2), 71-79. Muir, W. M., Wong, G. K. S., Zhang, Y., Wang, J., Groenen, M. A. M., Crooijmans, R. P. M. A., Megens, H. J., et al. (2008). Genome-wide assessment of worldwide chicken SNP genetic diversity indicates significant absence of rare alleles in commercial breeds. Proc. Natl. Acad. Sci. U. S. A., 105(45), 17312-17317. Tapio, M., Tapio, I., Grislis, Z., Holm, L. E., Jeppsson, S., Kantanen, J., Miceikiene, I., et al. (2005). Native breeds demonstrate high cont- ributions to the molecular variation in northern European sheep. Mol. Ecol., 14(13), 3951-3963. Kortlagning hænsnahalds Í sumar hefst verkefni á vegum Landbúnaðarháskóla Íslands og Erfðalindaseturs LbhÍ sem miðar að því að kortleggja dreifingu íslensku landnámshænunnar og annarra minni hænsnastofna. Í kjölfarið verður safnað upplýsingum um helstu útlitseinkenni sem finnast í hænsnastofnum hérlendis. Skráð verða útlitseinkenni svo sem litur, kambgerð, fjaðrir á fótum, sem og stærð eggja, lögun og litur. Lögð verður áhersla á einkenni sem tengjast fiðruðum fótum en skiptar skoðanir eru meðal ræktenda um hvað telja má upprunalegt í þeim efnum. Auk þess verður safnað upp- lýsingum um varp, frjósemi í útung- un og vanhöld á ungum. Verkefni þetta er hluti af stærri rannsókn á stofni íslensku landnámshænunnar sem hófst árið 2009 og miðar að því að lýsa stofninum og stuðla þannig að áframhaldandi varðveislu hans. Í fyrstu verður lögð áhersla á upplýsingar um fjölda eigenda, fjölda hænsna á hverjum stað og hænsnakyn. Eftir að þær upplýsingar liggja fyrir verður haft samband við eigendur varðandi lýsingu á útlits- einkennum. Hænsnaeigendur eru hvattir til að taka þátt, óháð fjölda hænsna og því hvaða hænsnakyn þeir halda. Áhugasamir eru vinsam- legast beðnir að hafa samband við Birnu Kristínu Baldursdóttur sem halda mun utan um gagnasöfnun (birna@lbhi.is eða í síma 433-5081). Greining á erfðafjölbreytileika innan íslenska hænsnastofnsins með megin- hlutagreiningu á erfðafjarlægð. (A) Greining á einstökum sýnum úr íslenska stofninum. (B) Samanburður milli kynja þar sem sýni úr íslenskum land- námshænum eru greind í tvennt, annars vegar „Íslenskar“ og hins vegar „Íslenskar (Sey)“. Landssamband hestamanna- félaga, Landsmót hestamanna ehf. og Samskip hf. hafa undirritað víðtækan samstarfs- og styrktar- samning sem tekur til nokk- urra af helstu viðburðum hesta- mennsku og hestaíþrótta til loka árs 2013, þar á meðal landsmóta, Íslandsmóta og bæði heimsmeist- aramóts og Norðurlandamóts íslenskra hesta. Stuðningur Samskipa er með margvíslegum hætti, svo sem flutn- ingar og flutningatengd þjónusta, verðlaunagripir, tæki og búnaður að því er fram kemur í fréttatilkynn- ingu. Haraldur Þórarinsson, stjórnar- formaður Landssambands hesta- mannafélaga og Landsmóts hesta- manna ehf., og Ásbjörn Gíslason, forstjóri Samskipa, undirrituðu sam- starfssamninginn. Haraldur segir að stuðningur Samskipa sé afar mikilvægur og hafi þau áhrif að auðveldara verði að halda niðri kostnaði við móts- hald og útgerð landsliða, sem ella myndi lenda á hestamönnum og mótsgestum að greiða í formi hærri aðgangseyris og þátttökugjalda. Ásbjörn segir að Samskip horfi meðal annars til þess að íslenski hesturinn beri hróður lands og þjóðar víða um veröld og höfði til fjölda fólks á öllum aldri. Það sjáist best á því að um 11.500 manns manns stundi hestamennsku á Íslandi og um 60.000 manns innan alþjóðasamtaka íslenska hestsins í 19 þjóðlöndum og þremur heimsálfum. Hestamót hérlendis og erlendis séu fjöldasam- komur sem dragi sífellt að sér meiri athygli fólks, langt út fyrir raðir sjálfra iðkendanna. Samskip vilji leggja samtökum hestmanna lið og styrkja enn frekar öfluga starfsemi þeirra í þágu iðkenda hestaíþrótta og allra aðdáenda íslenska hestsins nær og fjær. Samskip í samstarf við samtök hestamanna - Gildir til ársloka 2013

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.