Bændablaðið - 23.06.2011, Page 43
42 Bændablaðið | fimmtudagur 23. júní 2011
Unnsteinn Smári og Þuríður hófu
búskap að Laxárholti árið 1988
með 14 kýr og 40 hektara tún.
Árið 2001 fluttu þau í nýtt 1.000
fermetra fjós, sem hefur gjör-
breytt öllu til betri vegar. Í dag
mjólka þau 50 heilsárs kýr, tún
og akrar eru rúmir 100 hektarar.
Einnig hófu þau skógrækt fyrir
um 10 árum og hafa sett niður
um 12 þúsund plöntur.
Býli? Laxárholt.
Staðsett í sveit? Borgarbyggð
(Hraunhreppi).
Ábúendur? Unnsteinn
Smári Jóhannsson og Þuríður
Gísladóttir.
Fjölskyldustærð (og gæludýra)?
Tvö í heimili. Tveir hundar.
Stærð jarðar? Um 600 hektarar.
Tegund býlis? Kúabú.
Fjöldi búfjár og tegundir? 120
nautgripir og 18 ær.
Hvernig gengur hefðbundinn
vinnudagur fyrir sig á bænum?
Hann byrjar klukkan sjö með
mjöltun og fóðrun gripa og er
því lokið milli 09 og 10. Svo fer
það eftir árstíma. Á veturnar er
það viðhald véla, síðan vorverk,
sáning og á sumrin heyskapur og
fleira. Fjós aftur klukkan sex og
tekur það um einn og hálfan tíma.
Skemmtilegustu/leiðinlegustu
bústörfin? Vorverkin eru skemmti-
legust, en leiðinlegast er að þurfa að
lóga dýrum.
Hvernig sjáið þið búskapinn fyrir
ykkur á jörðinni eftir 5 ár? Það er
ekki gott að segja.
Hvaða skoðun hafið þið á félags-
málum bænda? Þau eru í góðum
höndum.
Hvernig mun íslenskum land-
búnaði vegna í framtíðinni?
Ekki vel með ESB í fararbroddi.
Hvar teljið þið að helstu tækifærin
séu í útflutningi íslenskra búvara?
Við erum of lítil eining fyrir útflut-
ing.
Hvað er alltaf til í ísskápnum?
Mjólk og að sjálfsögðu bjór.
Hver er vinsælasti maturinn á
heimilinu? Grillað lambakjöt.
Eftirminnilegasta atvikið við
bústörfin? Þegar við fluttum í
nýtt 1.000 fermetra fjós árið 2001.
2 7
3 9 8 7
3
5 8 2
8 9 5 3
5 1 8
1
3 5 6 4
8 6
9 5 4
3
3 2 5
7 4 2
1 5 6 4 8
9 7 6
3 5 8
4
2 4 6
7 1
4 7 8
6 3
4 6 1 9
1 9 5 2 3
5
8 2 6 3
9 2 8
5
Sudoku
Galdurinn við Sudoku-þrautirnar er
að setja réttar tölur frá 1-9 í eyðurn ar.
Sama talan má ekki koma fyrir tvisvar
í línu lárétt og lóð rétt og heldur ekki
innan hvers reits sem afmarkaður er
af sverari lín um.
Þrautirnar eru miserfiðar, sú sem
er lengst til vinstri er léttust og sú
til hægri þyngst en sú í miðjunni
þar á milli.
Hægt er að fræðast nánar um
Sudoku-þrautirnar á vefsíðunni
www.sudoku2.com og þar er einnig
að finna fleiri þrautir ef þessi
skammtur nægir ekki.
Líf og lyst
BÆRINN OKKAR
Jafnvægiskúlur á hverju strái
Í síðasta Bændablaði var upp-
skrift að hollustukúlum og nú
ætlar matarskríbentinn, í til-
efni af sumarkomunni, að halda
áfram á sömu braut með kúlum
og hollustu því að þessu sinni
urðu jafnvægiskúlur og sumar-
legur hollustuís með kasjúhnetum
fyrir valinu.
Jafnvægiskúlur
15-20 stykki
2 dl dökkar rúsínur
2 dl heslihnetur
1 ½ tsk. möluð kardimomma
1 hnífsoddur vanilluduft
2 dl flysjuð hampfræ
Aðferð:
Blandið öllum hráefnunum saman
í matvinnsluvél, þar til áferðin er
mjúk og jöfn, og búið síðan til
litlar kúlur. Veltið þeim upp úr
hampfræjum og þá eru þær tilbúnar.
Kúlurnar þarf að geyma í kæli.
(Úr Matur sem yngir og eflir).
Ávaxta- og kasjúhnetuís
Fyrir 3-4
125 g kasjúhnetur
500 ml hreinn appelsínusafi
240 g mjúkar döðlur, saxaðar gróft
150 g mangó (einungis kjötið), saxað smátt
1 stór banani, vel þroskaður
Aðferð:
Setjið kasjúhneturnar í matvinnslu-
vél og malið þær í allavega 2 mín-
útur. Skafið hliðar matvinnsluvélar-
innar og malið áfram í 2-3 mínútur
eða þangað til hneturnar eru mjög
fínt malaðar/maukaðar. Setjið í
stóra skál. Saxið döðlurnar gróft
og setjið í matvinnsluvélina ásamt
appelsínusafanum. Blandið í 1-2
mínútur eða þangað til döðlurnar
eru vel maukaðar. Setjið í skálina.
Afhýðið mangóið og skerið 150
g af kjötinu í litla bita. Afhýðið
bananann og skerið í bita. Setjið
mangó og banana í matvinnsluvél
og blandið í 1 mínútu eða þangað
til vel maukað. Setjið í skálina.
Hrærið allt vel saman í skálinni.
Hellið blöndunni í grunnt plastílát
og setjið í frystinn. Takið úr fryst-
inum á um hálftíma - klukkustundar
fresti og brjótið ískristallana ef
þeir myndast. Endurtakið þangað
til erfitt er orðið að hræra í blönd-
unni. Látið ísinn þiðna í ísskáp í
um 30-40 mínútur áður en hann er
borinn fram. Þannig verður auð-
veldara að skafa úr boxinu.
(Úr smiðju Café Sigrúnar).
/ehg
MATARKRÓKURINN
Aðaluppskriftin er að
þessu sinni sótt í bókina
og nefnist jafnvægis-
hollar og góðar.
Laxárholt
Unnsteinn Smári og Þuríður.