Bændablaðið - 24.11.2011, Blaðsíða 1

Bændablaðið - 24.11.2011, Blaðsíða 1
38 21. tölublað 2011 Fimmtudagur 24. nóvember Blað nr. 360 17. árg. Upplag 24.000 8 16 Samkvæmt áliti Lagastofnunar Háskóla Íslands bendir margt til að innheimta búnaðargjalds, í því horfi sem nú er, standist ekki ákvæði stjórnarskrárinnar né Mannréttindasáttmála Evrópu um félagafrelsi. Hægt er að full- yrða að innheimta búnaðargjalds sem rennur til búgreinafélag- anna standist ekki stjórnarskrá. Þá leikur vafi á að innheimta búnaðargjalds, sem rennur til Bændasamtaka Íslands annars vegar og til búnaðarsamband- anna hins vegar, standist að fullu umrædda löggjöf. Þó má færa rök fyrir því að innheimta búnaðar- gjalds til þessara samtaka geti fall- ið undir undanþáguákvæði með breytingum en nauðsynlegt er að skoða lagalega stöðu þeirra frekar. Þetta eru niðurstöður álitsgerðar Lagastofnunar um lögmæti bún- aðargjalds sem Sigurður Líndal lagaprófessor vann að beiðni Bændasamtakanna. Sigurður kynnti álitsgerðina á formannafundi bún- aðar- og búgreinasambandanna í gær. Sambærilegt við iðnaðarmálagjald Til grundavallar vinnu Lagastofnunar lá dómur Mannréttindadómstóls Evrópu frá því í apríl 2010 í máli Varðar Ólafssonar gegn íslenska ríkinu um lögmæti iðnaðarmála- gjalds. Dómstóllinn úrskurðaði að innheimta iðnaðarmálagjalds sem rynni til Samtaka iðnaðarins, án þess að Vörður væri þar félagi, jafngilti skylduaðild sem gengi gegn félagafrelsi hans. Þá lá einnig til grundvallar dómur Hæstaréttar frá því í október 2010 í máli Víkurvers gegn Landssambandi smábátaeig- enda og Gildi lífeyrissjóði þar sem tekist var á um skyldu Víkurvers til greiðslu á hlutfalli aflaverðmætis til Landssambandsins. Niðurstaða dómsins var að Víkurveri væri ekki skylt að greiða umrædd fjárframlög til Landssambandsins enda stæði fyrirtækið utan þess. Sigurður sagði á fundinum að innheimta búnaðargjalds væri í veigamiklum atriðum sambærileg við umrædd dæmi, einkum þó inn- heimtu iðnaðarmálagjalds. Í lögum um búnaðargjald kemur fram að það skuli innheimt af búvöruframleið- endum eins og þeir eru skilgreindir í lögum og ekki verði annað ráðið en það sé óháð því hvort þeir séu félagsmenn í Bændasamtökunum, búnaðarsamböndum eða búgreina- samtökum, en til þeirra renna tekjur af búnaðargjaldi. Því telst skylda til að greiða búnaðargjald jafngilda skylduaðild að umræddum samtök- um, sem aftur gengur gegn ákvæðum um félagafrelsi. Áfram unnið með Lagastofnun Í máli Sigurðar kom jafnframt fram að ekki væri hægt að sjá með óyggjandi hætti að undanþágu- ákvæði frá lögum um félagafrelsi gætu átt við um innheimtu búnaðar- gjalds. Dómafordæmi gæfu ekki til- efni til að ætla að svo væri. Ekkert væri hins vegar til fyrirstöðu því að breyta lögum á þann veg að félögum og samtökum sé falið hlutverk í þágu almannahagsmuna eða réttinda ann- arra og þeim fylgi því skylduaðild. Slíkt væri vissulega hægt að gera varðandi búnaðargjald ef vilji væri fyrir hendi af hálfu löggjafans. Haraldur Benediktsson for- maður Bændasamtakanna segir að áfram verði unnið í samstarfi við Lagastofnun við að útfæra þær breytingar á lögum um búnaðar- gjald sem væntanlega þurfi að gera. „Ráðherra hefur boðað frumvarp til breytinga á lögunum og gefið okkur ákveðið andrými til að koma okkar sjónarmiðum á framfæri og gera til- lögur og það er það sem liggur fyrir að gera.“ /fr Unnið að tillögum um breytingar á innheimtu búnaðargjalds Nýjar markaskrár verða gefnar út um land allt 2012 en þær koma út á átta ára fresti. Útgáfan er orðin mjög tímabær því að mörg ný fjár- mörk hafa verið skráð, einkum síð- ustu þrjú árin, og stöðugt bætast við ný frostmörk fyrir hross. Bændasamtökin hafa nú þegar sent öllum markavörðum ýmis gögn vegna söfnunar marka og annars undirbúnings fyrir útgáfuna en þeir eru nú 22 að tölu. Reiknað er með að markaskrárnar verði samtals 17 eða 18 . - Sjá nánar bls. 18 Nýjar markaskrár um land allt Starfsmenn Skógræktarfélags Eyfirðinga hafa verið önnum kafnir að undanförnu við að höggva jólatré. Einkum og sér í lagi einbeita þeir sér að stærri trjám sem prýða torg eða standa við fyrirtæki hér og þar og eru allt að 10 metra há. Ingólfur Jóhannsson, fram- kvæmdastjóri Skógræktarfélags Eyfirðinga, segir að félagið sinni aðallega fyrirtækjum og bæjar- félögum, þeim sem kaupa stærri tré, og byrjað sé í lok október eða byrjun nóvember að fara um skógarreiti félagsins í leit að heppilegum trjám. Síðustu tvær vikurnar í nóvember er svo nóg að gera við að höggva trén, flytja þau og koma fyrir á þeim stöðum þar sem þau eiga að vera. „Við höfum líka tekið að okkur að smíða kassa undir trén, eins konar stand og er hann gerður úr lerki úr Kjarnaskógi. Þá förum við eftir jól og sækjum trén, bjóðum sem sé alla þjónustu við uppsetningu og að taka trén niður og fjarlægja þau. Það kunna okkar viðskiptavinir vel að meta,“ segir Jóhann. Skógræktarfélagið hefur einnig boðið almenningi að koma út í skóg, Laugaland á Þelamörk og höggva sitt eigið jólatré. Gjarnan er þá boðið upp á ketilkaffi að hætti skógarmanna, rjúkandi heitt kakó „og eitthvað gert til að gera stundina skemmtilega og eftirminnilega,“ segir Jóhann og bætir við að æ fleiri kjósi að hafa þennan háttinn á. Jólatré úr bændaskógum Sólskógar sjá um sölu á jólatrjám til almennings og fær fyrirtækið tré sín frá skógræktarfélögum, Skógrækt ríkisins og í vaxandi mæli úr bændaskógum í héraðinu, þannig að stærsti hluti þeirra jólatrjáa sem þar er seldur er úr eyfirskum skógum. „Mér finnst fólk í æ meira mæli vilja íslensk jólatré, enda finnst mörgum einkennilegt að flytja inn tré með tilheyrandi flutningskostnaði og mengun. Íslenskir framleiðendur eru í sókn og mér sýnist sem sá siður að hafa lifandi jólatré á heimilum sé alls ekki á undanhaldi,“ segir Jóhann. /MÞÞ Átaksverkefni LbhÍ og BÍ í orkumálum bænda: Íslenskur landbúnaður verði sjálfbær um orku Rekstur Sjávarleðurs og Loðskinns á Sauðárkróki blómstrar nú sem aldrei fyrr og stöðug aukning er milli ára í                              á dögunum þegar gærusöltun var á síðustu metrunum þetta haustið. Hér sjást starfsmennirnir Logi Birgisson og Guttormur Stefánsson setja gærur í söltunarvélina. Mynd / ehg - Sjá umfjöllun á bls. 14 Skógræktarfélag Eyfirðinga: Starfsmenn önnum kafnir við að höggva jólatré Ingólfur Jóhannsson og Jónas Godsk Rögnvaldsson í óða önn að     ! "  (LbhÍ) og Bændasamtök Íslands (BÍ) hafa ákveðið að hrinda af stað sannkallaðri byltingu í orkumál- um landbúnaðarins. Takmarkið er að orka sem bændur kaupa að minnki um 20% fyrir árslok 2015 og um 80% fyrir árslok 2020. Ákveðið hefur verið að efna til samstarfs um stórátak á sviði orkuvinnslu og orkunýtingar í landbúnaði til næstu fjögurra ára. Langtímamarkmiðið er að gera íslenskan landbúnað sjálfbæran um orku þegar fram líða stundir og hámarka nýtingu hennar. Takmarkið er sem bændur kaupa að minnki um 20% fyrir árslok 2015 og um 80% fyrir árslok 2020, eða eftir aðeins níu ár. Verkefninu er ætlað að styðja með faglegum hætti við bændur sem hafa áhuga á að framleiða orku úr lífrænum hráefnum á búum sínum og yfirfæra þá þekkingu sem aflað er hérlendis og erlendis til allra sem málið varðar. - Sjá nánar á bls 21 Með bestu hrútana tvö ár í röð Viðamiklar rannsóknir koma þjóðarbúinu til góða Bærinn okkar Sveinsstaðir Sigurður Líndal. Mynd / HKr.

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.