Bændablaðið - 24.11.2011, Blaðsíða 23

Bændablaðið - 24.11.2011, Blaðsíða 23
24 Grænir orkugjafar BLAÐAUKI BÆNDABLAÐSINS 24. NÓVEMBER 2011 Notkun varmadæla til húshitunar á köldum svæðum hefur aukist verulega hin síðustu ár. Má þá þróun ekki síst rekja til breytinga á lögum um niðurgreiðslur hús- hitunarkostnaðar frá árinu 2009. Í breytingunni felst að íbúðar- eigendur sem vilji taka upp umhverfisvæna orkuöflun og/eða ráðast í aðgerðir sem leiða til bættr- ar orkunýtingar við húshitun geti fengið eingreiðslur sem nýta má til að standa straum af stofnkostnaði slíkra framkvæmda, ef kveðið er á um ráðstöfun fjár til niðurgreiðslna í fjárlögum. Eingreiðsla til hvers notanda getur numið allt að átta ára áætluðum niðurgreiðslum á rafmagni eða olíu til húshitunar, miðað við meðalnotkun til húshit- unar næstu fimm ár á undan. Til skamms tíma voru varmadæl- ur lítt notaðar hér á landi. Skýringin á því er einkum að kostnaður við upphitun hefur í sögulegu sam- hengi verið lágur. Þar sem ekki hefur verið aðgangur að jarðvarma hafa niðurgreiðslur jafnað kostnað vegna upphitunar. Þá hefur nokkuð hár stofnkostnaður við varmadælur verið fólki þyrnir í augum. Sprenging með breyttum lögum Í skýrslu sem Ragnar K. Ásmundsson hjá Ísor vann fyrir Orkustofnun og kom út árið 2005 kemur fram að fyrsta varmadælan var sett upp á Íslandi, eftir því sem best er vitað, í Búrfellsvirkjun árið 1969 en rafall í virkjuninni var hit- aður með dælunni. Á árunum 1977 og 1978 var sett upp varmadæla við Bændaskólann á Hvanneyri sem nýtt var til súgþurrkunar. Ekki þótti hagkvæmt að nýta dæluna þar, meðal annars vegna kostnaðar við raforkukaup. Í skýrslunni eru tilteknar 19 varmadælur sem voru eða höfðu verið í notkun hér á landi. Höfundur tekur fram að líklega sé ekki um tæmandi lista að ræða en leiða má líkur að því að á þessum tíma, árið 2005, hafi ekki verið mjög margar varmadælur aðrar í notkun á land- inu. Samkvæmt upplýsingum frá Orkustofnun hafa verið gerðir á bilinu 180 til 200 samningar um eingreiðslur til uppsetningar á varmadælum frá ársbyrjun 2010. Benedikt Guðmundsson verk- efnisstjóri hjá Orkustofnun bendir hins vegar á að sá fjöldi gefi ein- göngu vísbendingar um aukningu á notkun varmadæla, því ljóst sé að gríðarlegur fjöldi fólks hafi sett upp hjá sér varmadælur án þess að fá umrædda eingreiðslu. Fjöldi fólks hafi sett upp varmadælur í sumarbústöðum, til að mynda. Þá sé greinileg mikil vakning varðandi uppsetningu varmadæla í dreifbýli. Lausn þar sem hitaveita er óhagkvæm Einar Ófeigur Björnsson, bóndi í Lóni í Kelduhverfi, setti upp varma- dælu í búðarhúsi sínu og fjölskyldu sinnar á síðasta ári. Kelduhverfið er strjálbýlt og á köldu svæði og þó að mögulega sé hægt að finna þar heitt vatn valda langar vegalengdir því að óhagkvæmt væri að fara í hitaveituframkvæmdir þar. Einar Ófeigur fór því fyrir nokkru síðan að horfa í kringum sig eftir leiðum til að ná kostnaði niður, en áður en varmadælan var sett upp var raf- magnskynding í íbúðarhúsinu. „Ég var fyrst og fremst að velta fyrir mér leiðum til að lækka hér rafmagnsreikninginn, sem var orð- inn óheyrilegur, hann var kominn í 600.000 krónur á ári. Ég fór að velta þessu fyrir mér og þegar eingreiðslan vegna framkvæmda af þessu tagi kom til fór ég að skoða þetta af alvöru. Það er hægt að fara nokkrar leiðir að þessu, það er hægt að afsala sér hluta af þeim niðurgreiðslum sem heimild er fyrir. Ég tók ákvörðun um að afsala mér 75 prósentum þeirra og fara út í þessa framkvæmd.“ Volgar uppsprettur lykilatriði Það sem gerði framkvæmdina hag- kvæma hjá Einari Ófeigi og fjöl- skyldu var að í Lóni er gott aðgengi að volgu vatni, vatni sem er 8-9 gráðu heitt auðveldlega komið heim í hlað. Hefði því ekki verið til að dreifa er ólíklegt að farið hefði verið í að setja upp varmadælu í Lóni, þó að hægt sé að nýta kaldara vatn í þessu skyni. Ekki var raunhæft að setja upp varmadælu sem vinnur Vakning í notkun á varmadælum – hagkvæmur kostur til að bæta orkunýtingu og draga úr kostnaði á köldum svæðum Líf- eða hauggas (biogas) er sam- heiti yfir þær lofttegundir sem myndast við niðurbrot örvera á lífrænum efnum (t.d. mykju, mat- arleifum, grasi og garðaúrgangi) án þess að súrefni komi að ferlinu. Metan er jafnan fyrirferðarmest- þeirra lofttegunda sem myndast í slíku ferli, eða í kringum 55-75%. Koltvísýringur er um 25-45% en aðrar tegundir, s.s. kolmónoxíð, köfnunarefni, vetni og brenni- steinsvetni, í mun minna mæli. Hvað er metan? Metan er orkurík lofttegund og sam- svarar einn rúmmetri af óþjöppuðu metani einum lítra af jarðefnaolíu – eða 10 kílóvattstundum. Hagnýting á lífgasi á sveitabæjum virðist þannig blasa við sem ákjósanlegur kostur þar sem mikið fellur þar til af lífrænum úrgangi, t.a.m. hús- dýraúrgangi. Í ýmsum nágranna- löndum okkar Íslendinga er enda metangasvinnsla til orkunotkunar vel þekkt og þar hafa ýmsar leiðir verið farnar; bæði í smáum stíl og stórum. Svokölluð samlagsver eru t.a.m. algeng bæði í Danmörku og í Þýskalandi, þar sem ýmist hús- dýraúrgangi og/eða plöntum, eins og maís og korni, er safnað saman til metangas- og raforkuframleiðslu. Í Þýskalandi eru bændum í slíkri starfsemi tryggðar ákveðnar lág- marksgreiðslur fyrir rafmagn sem fer inn á landsnetið. Sorphaugar eru sömuleiðis ákjósanlegir staðir fyrir myndun á metangasi. Á Íslandi háttar málum þannig til, að vinnsla á metani er ennþá nánast eingöngu bundin við sorphauga höfuðborgarsvæðisins í Álfsnesi, en uppi eru hugmyndir um uppbyggingu á svipuðum vinnslu- stöðvum víðar. Frumkvöðlarnir í Hraungerði Frumkvöðlar í þesskonar vinnslu heima á sveitabæ eru feð garnir Jón Tryggvi Guðmundsson og Guðmundur Stefánsson í Hraungerði í Flóanum. Við höfum í tvígang sagt frá þróun mála hjá þeim feðgum hér í Bændablaðinu, frá því að mælitæki voru sett upp í byrjun árs 2009. Jón Tryggvi sagði þá í viðtali að stefnan væri sett á að með metangasvinnsl- unni yrði kúabúskapurinn sjálfbær um orkuöflun fyrir bæinn. Vinnsluferlið í Hraungerði nær þó tæpt ár lengra aftur í tímann, því fyrsta skóflustungan að tilrauna- stöðinni var tekin um vorið 2008. Í febrúar árið 2009 voru framkvæmd- ir á fyrsta stigi af þremur; þegar reynslu var aflað í vinnslu á gasinu. Mælingar gáfu til kynna að vinnsla á gasinu væri vænleg og komst Jón Tryggvi að þeirri niðurstöðu að hag- kvæmara væri að hreinsa gasið og Vatn í vatn varmadæla. Loft í loft varmadæla. Metangas og hagnýting þess á bæjum Jón Tryggvi Guðmundsson er véltæknifræðingur og hefur unnið þetta verkefni að mestu leyti einn – í frítíma sínum.

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.