Bændablaðið - 24.11.2011, Blaðsíða 31

Bændablaðið - 24.11.2011, Blaðsíða 31
32 Bændablaðið | fimmtudagur 24. nóvember 2011 Líf og starf Ég velti því stundum fyrir mér hver raunveruleg staða kúabænda er, bæði fjárhagslega en ekki síður félagslega. Fjárhagslega skiptist stéttin að mér sýnist í tvennt; þá sem eru með gamlar, skuldlausar fjárfestingar og því viðunandi afkomu, og svo þá sem eru með nýlegar fjárfestingar og skuldugir, þess vegna í tvísýnni stöðu og eru jafnvel líkur á að sumum þeirra búa verði ekki forðað frá gjald- þroti. Nú kann einhver að segja, var þeim ekki nær, ekki þurfa allir að búa stórt í nýjum fjósum. Ef til vill er eitt- hvað til í því en gallinn er hins vegar sá að skuldugu búin eru væntanlega stærðar- og vinnulega best búin til að takast á við framtíðina þar sem krafa verður áfram um lækkun fram- leiðslukostnaðar, sem flestir hugs- andi menn eru sammála um, enda viðurkennt í stefnumörkun LK þar sem beinlínis er stefnt að 35% lækkun á næstu árum. Skuldlausu búin eru hins vegar flest i smærri kantinum með gamlar byggingar sem henta illa framtíðinni. Þegar erfiðleikar steðja að eins og nú er staðreynd að oft koma fram harðar umræður og upp spretta einstaklingar og samtök sem reyna að koma fram breytingum, hvort heldur er á þjóð- félaginu sem heild eða umhverfi ein- stakra starfsstétta. Í þessu ljósi gæti maður vænst mikillar umræðu um stöðu og framtíð landbúnaðar hér á landi, en er það svo? Greinaskrif bænda um stöðu og framtíð landbúnaðar eru sjaldséð, helst að Indriði á Skjaldfönn haldi uppi mjög þarfri umræðu um tófu- plágu af mannavöldum. Þess vegna fagnaði ég því þegar ég las grein í Bændablaðinu um hvort útflutningur mjólkurvara væri raunverulegur kostur, eftir Runólf Sigursveinsson, einn reyndasta ráðunaut landsins. Þessi grein kallar svo sannarlega á umræðu, hugsaði ég, því þarna setur Runólfur fram býsna róttækar hug- myndir sem vissulega er þörf á að skoða í fullri alvöru. Enn hef ég ekki séð nokkur við- brögð við þessari ágætu grein, hvorki frá forystu bænda né mjólkuriðnað- arins. Ég hef lengi verið þeirrar skoð- unar að það sé ekki spurning um hvort heldur hvenær bændur þurfa að horfast í augu við minnkandi toll- vernd og aukinn innflutning land- búnaðarvara. Hvort það gerist vegna alþjóðasamninga á vegum WTO eða vegna inngöngu í ESB skiptir í sjálfu sér engu máli og þegar horft er til þess hvort þessi staða komi upp eftir 5 eða 20 ár skiptir það í raun engu máli heldur. Það sem skiptir máli er að land- búnaður hér á landi verði undir þessar breytingar búinn þegar þær verða. Nú veit ég að margir eru mér ósammála og halda því fram að ein- mitt nú höfum við séð enn frekari takmarkanir á hverskonar innflutn- ingi, ekki síst í tíð núverandi land- búnaðarráðherra. Gott og vel, en trúa bændur því að núverandi tollvernd og hvers kyns höft verði hér um aldur og ævi og trúa bændur því því virkilega að hérlendir neytendur muni sniðganga innfluttar landbúnaðarvörur og kaupa eingöngu íslenska framleiðslu, jafnvel þó þær innfluttu verði ódýrari? Ég held að þetta sé tálsýn, tengslin milli bændastéttarinnar og fólks í þétt- býli fara þverrandi og þegar láglauna- fjölskyldan í Breiðholti er að kaupa í matinn, jafnvel þó hún hugsi hlýtt til hérlendra bænda, verður það hálftóm buddan sem endanlega ræður valinu. Mér finnst það því skynsamlegt af LK að samþykkja framtíðarstefnumörkun þar sem m.a er stefnt að lækkun á framleiðsluvörum greinarinnar. En hvernig er það hægt án þess að slík lækkun komi einvörðungu niður á bændum? Ég held því fram að nokkrar leiðir séu færar að þessum markmiðum. Í því sambandi er rétt að skoða hugmyndir Runólfs ofan í kjölinn og oft hefur verið skipuð nefnd af minna tilefni en þessu. Runólfur leggur beinlínis til að með skipulögðum hætti verði stefnt að útflutningi, það mundi þýða aukna framleiðslu mjólkur án þess þó að fastur kostnaður aukist, betri nýtingu fjósa og tækja og þar með væntanlega betri afkomu greinarinnar. Í öðru lagi vil ég benda á grein Jóhanns Nikulásarsonar góðbónda, sem birtist á vef LK naut.is, en þar leggur hann fram róttækar breyt- ingar á leiðbeiningarþjónustu við kúabændur sem án efa myndu hjálpa þeim til að ná fram settum mark- miðum um lækkun kostnaðar. Það er reyndar umhugsunarefni hvers vegna Bændablaðið hefur ekki birt þessa grein, því stundum hafa greinar af vef LK ratað á síður þess blaðs, en þær greinar hafa þá væntanlega fallið meir að skoðunum stjórnar BÍ. Þá er ekki hægt að horfa fram hjá stærðarhagkvæmni kúabúa, en þar er mikið verk óunnið og þar er ég einvörðungu að horfa til stækkunar venjulegra fjölskyldubúa, en með nútíma fjósgerð og mjaltatækni er hægt að tala um byltingu í vinnuað- stöðu. Þá er ekki endalaust hægt að horfa fram hjá þeirri staðreynd að með til- tölulega einfaldri aðgerð er hægt að lækka framleiðslukostnað mjólkur verulega og renna jafnframt styrkari stoðum undir framleiðslu nautakjöts. Með innflutningi á nýju, afkasta- miklu kúakyni og því að ganga jafnframt inní norrænt kynbótastarf er hægt að auka samkeppnishæfni kúabænda gagnvart innflutningi mjólkurvara verulega. Samruni fyrirtækja í mjólkuriðn- aði og nánara samstarf hefur leitt til verulegrar lækkunar á vinnslukostn- aði mjólkur, neytendum til hagsbóta. Ég tel að leita eigi eftir samstarfi og ef til vill samruna við erlend mjólkur- iðnaðarfyrirtæki með enn frekari hag- ræðingu sem markmið. Ef hins vegar ekkert verður að gert er hætt við að íslensk fram- leiðsla verði undir í samkeppni við innflutta vöru, nema því aðeins að tryggt verði um ókomna framtíð að ekki komi til aukins innflutnings. Trúa bændur því virkilega að slíkt sé hægt og hver getur í reynd ábyrgst að svo verði? Enginn, hvorki Alþingi né nokkur ríkisstjórn getur lofað því að núverandi kerfi verði óbreytt um ókomna framtíð. Ráðamenn í landbúnaði hafa síð- ustu misseri notað nánast alla orku, tíma og fjármuni til að berjast gegn hugsanlegri aðild að ESB. Baráttu gegn því sem þeir vilja alls ekki sjá gerast, en hvernig væri að nota það afl sem býr í samtökum bænda til að berjast fyrir því sem þeir vilja virkilega sjá gerast í nánustu fram- tíð? Því varla getur nokkur starfsstétt byggt framtíð sína á draumsýn og óskhyggju. /Guðmundur Lárusson. Hver er framtíð kúabænda? Guðmundur Lárusson. Nýlega lauk árlegum haustfund- um Landssambands kúabænda, en að þessu sinni voru haldnir 14 fundir víðsvegar um land og urðu fundargestir alls á fjórða hundrað. Þessir fundir hafa verið með svipuðu sniði um langt árabil og eru afar mikilvægur þáttur í starfsemi Landssambandsins. Að venju bar margt á góma hjá fundarmönnum, bæði þættir sem snúa að hefðbundnum hagsmuna- málum greinarinnar og eins hlutir sem tengjast einstökum svæðum. Þannig var talsvert rætt um afkomu greinarinnar og fram kom að þrátt fyrir nokkurn árangur á yfirstandandi ári í leiðréttingu afurðaverðs, mætti ekki gefa eftir í verðlagsmálum greinarinnar. Þá komu fram miklar áhyggur af því að verið væri að brjóta búvörulög með því að markaðs- færa mjólk umfram greiðslumark á innanlandsmarkað og jafnframt áhyggjur af því skeytingarleysi sem stjórnvöld sýna málinu. Viðskipti með greiðslumark voru fundarmönnum einnig hugleikin og það hvort kvótamarkaðurinn væri að virka sem skyldi. Rík áhersla kom fram á að fjölga markaðs- dögum og að nauðsynlegt væri að draga úr þeim kostnaði sem fylgdi greiðsluábyrgðum tilboðsgjafa. Þá var velt upp þeirri spurningu hvort hægt væri að hverfa frá þessu fyrirkomulagi í greiðslumarksvið- skiptum, ef ekki fengjust eðlilegar lagfæringar á skipulagi kvótamark- aðarins. Reyndar virðist niðurstaða síðasta markaðar 1. nóvember s.l., þar sem viðskipti urðu með tæpa 660 þúsund lítra af þeim rúmlega 900 þúsund lítrum sem boðnir voru til sölu, benda til að aðilar séu að ná betri tökum á aðferðinni og að lesa í þau skilaboð sem markaðurinn er að senda milli kaupenda og seljenda. Á fundunum kom einnig fram hörð gagnrýni á þá ákvörðun ráðherra landbúnaðarmála, að beita sér fyrir niðurfellingu á heimild til gjald- færslu vegna greiðslumarkskaupa. Dýralæknaþjónustan var bænd- um ofarlega í huga, einkum á hinum dreifbýlli svæðum, enda var sú þjónusta víða í talsverðu uppnámi á meðan fundaferðin stóð yfir. Lýstu fundarmenn yfir miklum áhyggjum af vinnubrögðum MAST í málinu og hve seint var farið í að ganga frá þjónustusamningunum, þrátt fyrir að aðdragandinn væri langur. Endurskipulagningu ráðgjafarþjón- ustunnar bar einnig nokkuð á góma. Misjöfn sjónarmið komu fram um hvert bæri að stefna í þeim efnum og ljóst að þar er mikið verkefni fyrir höndum. Málefni nautakjöts- framleiðslunnar urðu nokkrum fundarmönnum að umtalsefni. Kom fram það mat manna að ein helsta skýringin á núverandi stöðu væri allt of sveiflukennd afkoma greinarinnar á undanförnum árum. Þá var einnig talsvert mikið rætt um fyrirhugaða upptöku á EUROP-mati í nautakjötsframleiðslunni. Á þessum fundum var jafnframt kynnt ný stefnumörkun fyrir íslenska nautgriparækt til ársins 2021, sem unnið hefur verið að síðustu misseri. Leiðarstef þessarar stefnumörkunar er að benda á möguleika til að draga úr framleiðslukostnaði og bæta nýt- ingu í greininni, fyrst og fremst til að styrkja samkeppnishæfni hennar gagnvart innflutningi, en ekki síður til að skapa henni möguleika sem arðbærri útflutningsgrein. Í þessu efni þótti því nauðsynlegt að líta til allra þeirra þátta sem tengjast kostnaðarmyndun í greininni, hvort sem þeir þættu félagslega viðkvæmir eða ekki. Eðlilega sýnist sitt hverjum um það efni sem texti stefnumörkunar- innar ber með sér. Þannig komu fram í máli fundarmanna ýmsar vangaveltur um veigamikla þætti eins og kvótakerfið, beingreiðslur, verðlagningarfyrirkomulagið, mark- mið í ræktun kúastofnsins, bústærðir og nýliðun. Á sumum þessara funda spunnust um þetta efni afar líflegar en hreinskiptnar umræður, en sú gagnrýni sem stefnumörkunin fékk var þó fjarri því einsleit, eins og búast mátti við. Það er afar mikilvægt fyrir nautgriparæktina eins og aðrar framleiðslugreinar að marka sér stefnu til framtíðar. En til þess að stefnumörkun af þessu tagi sé lif- andi þarf hún hinsvegar að vera í sífelldri endurskoðun og aðlögun að ríkjandi aðstæðum. Meginlínan þarf að vera skýr og segja má að íslenskir kúabændur standi frammi fyrir þeirri spurningu hvort þeir vilji að áfram verði horft til þess, fyrst og fremst, að takmarka framleiðsluna við inn- anlandsmarkað eins og verið hefur, eða hvort vilji er til að greinin þróist til aukins vaxtar sem útflutnings- grein. Eins og áður sagði er megin- stef hinnar nýju stefnumörkunar að auka samkeppnishæfni greinarinnar. Hinsvegar er ljóst að margir mikil- vægustu hagkvæmniþættir hennar nást ekki fram, án þess að stjórnvöld skapi greininni það svigrúm sem nauðsynlegt er. Óvíst er að vilji sé til þess hjá þeim sem nú fara fyrir landsstjórninni. Raddir kúabænda - af naut.is Að loknum haustfundum – kynning á stefnumörkun LK Sigurður Loftsson Formaður Landssambands kúabænda

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.