Bændablaðið - 24.11.2011, Blaðsíða 21

Bændablaðið - 24.11.2011, Blaðsíða 21
Grænir orkugjafar Blaðauki 24. nóvember 2011 Ýmsir möguleikar í vatnsaflsvirkjunum 24 Landbúnaðarháskóli Íslands og Bændasamtök Íslands hrinda af stað átaksverkefni í orkumálum bænda: Stefnt að því að íslenskur land- búnaður verði sjálfbær um orku -„Búorku" ætlað að minnka aðkeypta orku bænda um 80% fyrir árslok 2020 24 24 Landbúnaðarháskóli Íslands (LbhÍ) og Bændasamtök Íslands (BÍ) hafa ákveðið að hrinda af stað sannkallaðri byltingu í orkumálum landbúnaðarins. Ákveðið hefur verið að efna til samstarfs um stór- átak á sviði orkuvinnslu og orku- nýtingar í landbúnaði til næstu fjögurra ára. Langtímamarkmiðið er að gera íslenskan landbúnað sjálfbæran um orku þegar fram líða stundir og hámarka nýtingu hennar. Takmarkið er að aðkeypt orka bænda minnki um 20% fyrir árslok 2015 og um 80% fyrir árs- lok 2020, eða eftir aðeins níu ár. Í erindi sem sent hefur verið til fjárlaganefndar Alþingis kemur fram að átakið muni gera íslenskan land- búnað óháðan sveiflum í framboði og á eldsneytisverði í framtíðinni og það muni leiða til aukins fæðu- öryggis og stöðugleika íslensks hagkerfis. Stofna sérstakt átaksverkefni í orkumálum Til þess að vinna málinu brautar- gengi verður stofnað sérstakt átaksverkefni í orkumálum land- búnaðarins. Ráðnir verða sérstakir starfsmenn tímabundið í fjögur ár en aðrir sérfræðingar skólans og BÍ munu jafnframt leggja fram vinnu eftir því sem þörf krefur. Munu BÍ, LbhÍ og eftir atvikum fleiri aðilar gera með sér samning um rekstur átaksins í því skyni að efla faglegt starf þeirra á þessu sviði. Óskað er eftir stuðningi fjárlaganefndar við rekstur verkefnisins. Sótt er um 20 milljónir króna til að styðja við rekstur verkefnisins og með ósk um áframhaldandi stuðning til ársloka 2015. Markmið Haraldur Benediktsson, formaður BÍ, segir að „búorka" geti orðið mjög mikilvæg fyrir íslenskan landbúnað. Með þessu framtaki sé einnig verið að búa til gagna- og upplýsingaveitu um orkumál í sveitum landsins og miðla þekkingu milli manna sem annars séu að vinna hver í sínu horni. Í erindinu til fjárlaganefndar segir að verkefnið miði að því að innleiða í íslenskan landbúnað þekk- ingu á framleiðslu og nýtingu orku úr lífrænum hráefnum sem falla til á búunum eða í nágrenni þeirra, eða eru sérstaklega framleidd í þeim tilgangi. Þá segir að greina skuli núver- andi orkunotkun og veita ráðgjöf um aðferðir sem leitt geta til minni notkunar og aukinnar hlutdeildar endurnýjanlegrar orku í þeirri notkun. Gert er ráð fyrir að niður- stöður greiningarinnar liggi fyrir innan tveggja ára. Bændur nýti eigin orku við framleiðsluna Verkefninu er ætlað að styðja með faglegum hætti við bændur sem hafa áhuga á að framleiða orku úr lífrænum hráefnum á búum sínum og yfirfæra þá þekkingu sem aflað er hérlendis og erlendis til allra sem málið varðar. Takmarkið er að aðkeypt orka bænda minnki um 20% fyrir árslok 2015 og um 80% fyrir árslok 2020. Lögð verður áhersla á að styðja og nýta tengslanet bænda þannig að þekking og reynsla brautryðjenda nýtist sem best. Fjölmargir áhugasamir samstarfsaðilar Í greinargerð með erindinu kemur fram að fjölmargir aðilar á Íslandi hafi á undanförnum árum látið sig málið varða. Mikilvægt sé að virkja þá þekkingu sem þegar hefur verið aflað. Þar kemur einnig fram að Landbúnaðarháskóli Íslands og bændur séu reiðubúnir til að hafa for- göngu um öflugt starf á þessu sviði. Þá hafi Orkustofnun lýst eindregnum áhuga á að taka þátt í þessu átaks- verkefni. Aðrir áhugaverðir sam- starfsaðilar eru nefndir Verkís – verk- fræðiþjónusta, Skeljungur, Metan hf., Metanorka, innlendir háskólar (HÍ, HA, HR, Keilir) og erlendir sam- starfsaðilar. /HKr. Kúamykjan er hið svarta gull landbúnaðarins. Mikil verðmæti felast í mykjunni. Þar er ekki bara um að ræða verðmætan áburð, heldur er líka hægt að vinna úr henni eldsneyti í formi metangass sem hægt er að nýta á ýmsum vinnslus-   †  "  @   <   & &       @     <   Frá því um sumarið 2008 hefur Siglingastofnun stýrt verkefni sem felst í því að kanna hvernig gengur að fá vetrarrepju til að þroska fræ hér á landi. Var verkefnið sett af stað í tengslum við Samgönguáætlun fyrir árin 2007-2010, þar sem lagt var upp með það markmið að leita ætti að umhverfisvænu eldsneyti fyrir fiskiskipaflotann. Repjufræ má pressa og úr þeim fæst olía. Þegar búið er að bæta tréspíra og sóda út í olíuna er auðvelt að hreinsa hana þannig að eftir stendur svo- kallaður lífdísill – sem nota má á allar dísilvélar. Jón Bernódusson, verkfræðingur hjá Siglingastofnun, hefur haft umsjón með verkefninu og hann segir að samstarf hafi verið frá byrjun við Landbúnaðarháskóla Íslands (LbhÍ) og nokkra bændur. „Valdir voru tíu tilraunareitir víðsvegar um landið, þar sem bæði mátti búast við góðri upp- skeru og þar sem verri uppskeru var að vænta. Uppskera haustið 2009 var misjöfn og var einungis tekið í hús frá þremur bæjum; Þorvaldseyri, Ósum og Möðruvöllum. Þar var uppskera að meðaltali mjög góð, eða yfir 4 tonn af fræjum á hvern hektara, sem er 30% meiri uppskera en á repjuræktunar- svæðum í Norður-Evrópu. Það hefur svo verið staðfest í endurteknum til- raunum að repjan vex ágætlega hér á landi og mjög vel við góðar aðstæður.“ Á Þorvaldseyri nam uppskera árið 2009 um 5 tonnum af fullþurrkuðu fræi – af tveimur hekturum. Um 1.500 lítrar af olíu fengust svo út úr því. Áhugaverðir kostir repjunnar „Áhugi okkar beindist snemma að repjunni og þá fyrst og fremst vegna þess að 85% af lífmassa hennar má nýta beint eða óbeint til manneldis og 15% í matarolíu eða eldsneyti. Fóðurmjölið, sem til verður við pressun fræjanna og er þriðjungur lífmassans, er það verðmætt að það eitt og sér stendur undir kostnaði allrar uppskerunnar. Því er hægt að horfa þannig á dæmið að olían sé hjáafurð og í raun ókeypis í framleiðsluferlinu,“ segir Jón. „Gæði frækornanna og afurða þeirra eru hreint frábær. Bændur geta notað fóðurmjölið í heilfóður fyrir nautgripi, svín, fugla og fleira. Fóðurmjölið má einnig nýta fyrir eldisfiska og þar eru Matorka, Matís og Fóðurblandan að gera tilraunir með íslenskt fóðurmjöl sem uppistöðu í fiskafóður. Þá hefur Siglingastofnun komið sér upp búnaði til að breyta jurtaolíu í bíódísil. Þar eru prófanir gerðar bæði með nýja jurta- olíu og notaða (steikingarolíu) – sem annars er fargað. Niðstöðurnar lofa góðu því gæði lífdísilsins er í samræmi við alþjóðlegra staðla.“ Umhleypingar eru óhagstæðir Jón segir að veðurfarið hér á landi hafi mikil áhrif á ræktunina. „Ástæðan fyrir góðri meðaltalsuppskeru er sú að tvo mánuði á sumrin er viðvarandi heilsdagsbirta – og það vegur upp skort á hita. Repjan er tvíær jurt, býr sig undir vetur og tekur svo við sér á vorin. Snjór hefur engin áhrif á vetrar- repjuna, en ef frost fer undir -15°C í nokkurn tíma, og engin snjóþekja liggur yfir akrinum, þá getur repjunni verið hætta búin. Slíkt hefur varla gerst síðan Siglingastofnun byrjaði á þessum rannsóknum. Repjan þolir frostið annars ansi vel. En stærsta vandamálið hér eru umhleypingar á vorin þegar ýmist frýs eða þiðnar. Þá getur rót repjunnar lyfst upp úr jarð- veginum og jurtin drepst við það. Þess vegna er mikilvægt að sá repjunni á réttum tíma á sumrin, því sterkari rót kemur í veg fyrir að hún þrýstist upp úr jarðveginum við frost og þíðu á víxl. Með aukinni reynslu læra menn á þetta eins og annað sem bændur sjálfir best ná tökum á,“ segir Jón. Tækifæri bænda Hann metur það svo að niðurstöður úr verkefninu gefi til kynna að miklir framtíðarmöguleikar felist í repju- ræktun á Íslandi. Siglingastofnun muni áfram vinna að markmiðum verkefnisins. „Bændur þurfa að koma meira að verkefninu, en þeir hafa þó verið að taka við sér einn af öðrum. Nauðsynlegt er að aðstoða þá til að eignast olíupressur svo þeir geti sjálfir framleitt sína olíu og fóðurmjöl og aukið tekjur sínar, en þar eru miklir möguleikar til nýsköpunar; matarolía, íblöndun í smjör, nuddolía og fleira. “ Jón bendir þeim sem áhuga hafa á að kynna sér verkefnið betur að skoða greinargerð um það (á www.sigling. is) sem gefin var út í lok síðasta árs. Þar er einnig að finna úttekt á öðrum umhverfisvænum orkugjöfum sem Siglingastofnun hefur skoðað. /smh Vonir enn bundnar við repjuna      Hvað er metan og hvernig má nýta það ? Vakning í notkun á varmadælum

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.