Bændablaðið - 24.11.2011, Blaðsíða 25

Bændablaðið - 24.11.2011, Blaðsíða 25
26 Grænir orkugjafar BLAÐAUKI BÆNDABLAÐSINS 24. NÓVEMBER 2011 Kristján Haraldsson, orkubús- stjóri hjá Orkubúi Vestfjarða, segir að fyrirtækið hafi hvatt alla þá sem áhuga hafi til að skoða uppsetningu lítilla virkjana á Vestfjörðum. Fáir kostir séu um stórvirkjanir í fjórðungnum en margar litlar virkjanir geti því skipt töluverðu máli. Fyrirhyggja nauðsynleg „Ef menn eiga möguleika í sveit- unum, þá er um að gera að virkja bæjarlækina. Það er þó ekki nóg að horfa á lækinn bakkafullan á vorin. Að mínu viti þurfa menn að þekkja söguna og fá staðfestar mælingar áður en lagt er út í verulegar fjár- festingar í þessa veru. Annars lenda menn yfirleitt í vandræðum,“ segir Kristján. „Menn þurfa að þekkja ákveðnar stærðir eins og meðal- rennsli í læknum yfir árið, hvað það getur orðið minnst og hvað mest. Út frá því geta menn tekið skynsamlegar ákvarðanir. Við erum þó alltaf að skoða nýjar lausnir í virkjanamálum á Vestfjörðum. Til þess að tryggja rekstraröryggið þarf að auka fram- leiðsluna. Því erum við að hvetja menn til að setja upp virkjanir þar sem það er hægt.“ Margar virkjanir undir hatti OV Stærstu virkjanir Vestfirðinga eru Mjólkárvirkjun 1 í Arnarfirði sem gangsett var 1958 og Mjólkárvirkjun 2 sem gang- sett var 1975. Auk þeirra á og rekur OV Þverárdalsvirkjun við Steingrímsfjörð sem gangsett var 2001, Tungudalsvirkjun sem nýtir vatn úr Vestfjarðagöngum, skilar 700 kílówöttum og var gangsett 2006, Fossavatnsvirkjun í Engidal sem gangsett var 1936, Nónhornsvirkjun í Engidal sem gangsett var 1946, Reiðhjallavirkjun í Bolungarvík sem upphaflega var gangsett 1958 og síðan endurnýjuð 1992, Mýrarárvirkjun sem gangsett var 1965 og Blævardalsárvirkjun í Ísafjarðardjúpi, sem endurbyggð var á árunum 2004 og 2005. Smávirkjanir á Vestfjörðum Auk þessa er OV 10% eignar- aðili að um 500 kílówatta bænda- virkjun sem reist var í Botni í Súgandafirði og skilar nú mylj- andi hagnaði til eigenda sinna, að sögn Kristjáns. Virkjunin nýtir að stórum hluta útrennslisvatn úr Vestfjarðagöngum og kaupir OV rafmagnið. Í Hvestudal er 1,4 MW einkavirkjun sem selur OV líka raf- magn sem og lítil 30 kW virkjun í Tálknafirði. Þar að auki hefur OV rekið litla 200-300 kW virkjun sem Jón Fannberg byggði í landi sínu í Mjóafirði við Ísafjarðardjúp fyrir allmörgum árum. Endurnýjun í Mjólkárvirkjun Hjá Orkubúi Vestfjarða hefur verið unnið að því að endurnýja vélasam- stæðu í Mjólkárvirkjun 1. Þann 1. október var lokið prófunum á nýrri aflvél sem getur mest gefið 6,990 megawött (MW) og leysir af hólmi Skoda-vél sem gat afkastað 5,7 MW við 1,7 rúmmetra álag á sek- úndu. Miðað við sama afl er nýja vélin að nota 14% minna vatns- magn og gefur tæp 7 MW miðað við 1,82 rúmmetra á sekúndu, eða örlítið meira vatn en gamla vélin. Osmósuvirkjunartilraun í bið Varðandi aðra virkjanakosti en hefðbundnar vatnsaflsvirkjanir hefur Orkubú Vestfjarða tekið þátt í verkefni með Nýsköpunarmiðstöð sem miðar að því að setja upp lítið osmósutilraunaorkuver. Kristján segir að vegna fjárskorts hjá Nýsköpunarmiðstöð hafi þess- ari vinnu verið slegið á frest. Hugmyndin sé fyrst og fremst að gefa mönnum kost á að kynna sér þessa tækni af eigin raun en hún byggir á því að virkja spennumun sem verður þar sem ferskvatn mætir sjó. „Þetta er bara svo dýr lausn að hún kemur vart til skoðun- ar í alvöru fyrr en allir aðrir kostir í virkjanamálum eru upp urnir,“ segir Kristján. /HKr. Um að gera að virkja bæjarlækina þar sem mögulegt er - Fyrirhyggja þó nauðsynleg, segir Kristján Haraldsson orkubússtjóri Smávirkjanir eins og víða þekkj- ast í sveitum landsins eru síður en svo nýjar af nálinni. Fyrstu virkjanir landsins voru í raun ekkert annað en smávirkjanir, en til að auðvelda áhugasömum bændum og öðrum að kynna sér málið er til handbók um slíkar virkjanir á netinu. Litlar vatns- aflsvirkjanir - Kynning og leið- beiningar um undirbúning, 2. útgáfa er rit sem Mannvit verk- fræðistofa gaf út í apríl 2010 fyrir iðnaðar- og viðskiptaráðuneytið. Ritið er aðgengilegt í pdf-útgáfu á netinu á slóðinni http://www. os.is/gogn/Skyrslur/OS-2010/ Litlar-vatnsaflsvirkjanir-2- utgafa.pdf. Í riti Mannvits er farið mjög ítarlega yfir allt sviðið frá undir- búningi til framkvæmda og rekst- urs og lýst hinum ýmsu gerðum virkjana. Ástreymisvirkjanir Flestar virkjanir hérlendis byggj- ast á að nýta sem best mikla fall- hæð og er þá vatn gjarnan leitt um aðrennslispípur að vatnshjólum virkjunarinnar. Minna hefur verið rætt um virkjanir sem nýta ein- göngu staðbundið rennsli án bygg- ingar mikilla uppistöðulóna en umfjöllun um slíkar virkjanir er líka að finna í riti Mannvits. Þar er um að ræða notkun svokallaðra ástreymishverfla sem nýta straum- hraða þar sem fallhæð er lítil. Tvær gerðir hverfla eru þar teknar til skoðunar, þ.e. Kaplan og Francis hverflar. Þverstraumshverfill Cross Flow hverfill eða þver- straumshverfill er svo enn ein gerð- in sem flokkast til spyrnuhverfla. Helsti kostur Cross Flow hverfla er að þeir henta vel þar sem álag er breytilegt og þar sem keyra þarf á hlutaálagi, svo sem vegna breyti- legs álags eða rennslis. Nýtnin er nokkuð jöfn yfir vinnslusvið, en er lægri en í hefðbundnum hverflum. Virkjanir sem nýtt hafa straum í sjó og ám voru vel þekktar við upphaf vélvæðingar á Íslandi. Voru slíkar virkjanir oft með bein- tengdum spaðahjólum og beinu aflúrtaki sem notað var m.a. til að snúa kvörn sem malaði korn; vind- myllur voru nýttar á sama hátt og er gamla vindmyllan í eynni Vigur í Ísafjarðardjúpi gott dæmi um það. /HKr. Vatnsaflsvirkjanir í sveitum: Hægt að virkja fleira en mikla fallhæð Myndir úr riti sem Mannviti tók saman fyrir iðnaðar- og viðskiptaráðu- neytið 2010.. Orkuveita Reykjavíkur og Geo- greenhouse ehf. skrifuðu á dögun- um undir samning sem felur í sér að byggt verði upp stórt ylrækt- arver á svæði sem skipulagt hefur verið fyrir slíka starfsemi vestan Hellisheiðarvirkjunar. Fyrirhugað er að framleiða þar tómata í gróðurhúsum og flytja á erlenda markaði. OR mun selja til starfseminnar rafmagn til lýsingar, heitt vatn til upphitunar og kalt vatn til vökv- unar. Allt þetta er þegar fyrir hendi í rekstri Hellisheiðarvirkjunar. Samkvæmt tilkynningu frá félögunum er uppbyggingin áformuð í þremur áföngum á næstu árum. Samningurinn, sem lagður var fyrir stjórn OR 18. nóvember, nær til fyrsta áfang- ans. Áætlað að hann skapi um 50 manns störf og verði tekinn í notkun haustið 2012. Hann er fjórðungur af áætlaðri endanlegri stærð versins. Annar áfanginn, sem er jafnstór, á að vera tilbúinn haustið 2014 en sá síðasti, sem er jafnstór hinum tveimur til samans, er enn ótímasettur. Fyrsti áfang- inn, sem felur í sér byggingu 50.000 fermetra ylræktarvers, krefst um 9 megavatta rafafls. Sölufélag garðyrkjumanna stærsti eigandinn Geogreenhouse ehf. er fyrir- tæki sem stofnað var sérstak- lega um þetta uppbyggingar- verkefni. Stærsti eigandi þess er Sölufélag garðyrkjumanna og aðrir stórir eigendur eru fjárfest- ingarfélagið Investum Holding og Nýsköpunarsjóður. Áætlað er að framleiða árlega nokkur þúsund tonn af tómötum aðallega fyrir Bretlandsmarkað. Fyrirtækið mun sjálft greiða fyrir tengingu við vatns- og hitaveitu auk rafmagnsins. Flutningaleiðir eru raunar stuttar þar sem verið mun verða rúman kílómetra frá stöðvarhúsi Hellisheiðarvirkjunar og liggur lóð þess rétt við kalda- vatnsæðina til virkjunarinnar og heitavatnsæðina frá henni. Samið er um orku- og vatns- verð í erlendri mynt og er það verðtryggt. Samningurinn er til 20 ára. Fjárfesting OR vegna samningsins er hverfandi og því eru áhrif teknanna á arðsemi Hellisheiðarvirkjunar bein. Væri byggð ný virkjun vegna verk- efnisins, með um þriðjungs eiginfjárframlagi, næmi arðsemi samningsins um 13% af eigin fé. Miðað við byggingarkostnað Hellisheiðarvirkjunar er arðsemin þó meiri. Á síðustu misserum hefur Sveitarfélagið Ölfus unnið að skipulagi svæðis fyrir iðn- og tæknigarða á flatlendinu vestur af Hellisheiðarvirkjun. Í gild- andi aðalskipulagi er nú gert ráð fyrir iðnaði á svæðinu. Við virkjunina eru nú þegar rekin nokkur vísindaverkefni tengd jarðhitanýtingunni. Umfangsmest þeirra er CarbFix verkefnið, sem nýverið hlaut myndarlegan fjár- styrk frá Evrópusambandinu. Ekki er loku fyrir það skotið að í framtíðinni geti ylræktarverið einnig fengið koltvísýring frá Hellisheiðarvirkjun. Orkuveita Reykjavíkur semur við Geogreenhouse vegna ylræktarvers: Samið um orku til tómataræktunar fyrir erlendan markað Mjólkárvirkjun. Mynd /HKr.

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.