Bændablaðið - 24.11.2011, Blaðsíða 7

Bændablaðið - 24.11.2011, Blaðsíða 7
Bændablaðið | fimmtudagur 24. nóvermber 2011 7 il að reyna að rétta hlut kvenna hér í þessum þáttum, hóf ég nokkra leit, og víst er þar margt fémætt að finna. Þegar Auðunn Bragi gaf út vísnasafn sitt, „Í fjórum línum” orti Helga Björg Jónsdóttir frá Þorvaldsstöðum í Breiðdal: Ferhendurnar, flestar slyngar, frægur saman tók. En alltof fáir Austfirðingar eru í þeirri bók. Og systir Helgu, Þórey Jónsdóttir frá Þorvaldsstöðum kveður svo um karlanga nokkurn: Að þú ert maður það má sjá, en þér var ekkert gefið utan það, sem allir sjá: augu, munn og nefið. Kristbjörg F. Steingrímsdóttir húsfreyja og bóndi á Hrauni í Aðaldal er velþekktur vísna- smiður. Í vísnabók Kveðanda, vísnafélags í Þingeyjarsýslu, er að finna þessa vísu Kristbjargar: Þjóðarstoltið stakan var. Styrk og fegurð málsnilldar áfram grýttar götur bar gegn um myrkar aldirnar. Og um ævistarfið yfirleitt yrkir Kristbjörg. Ég hef unnið árum saman oft og tíðum þreytt. Núna finnst mér gott og gaman að gera ekki neitt. Femur lítið hefur farið fyrir gangnavísum þetta haustið og því rétt að bæta þar úr. Ásta Sverrisdóttir sendi þættinum svofellt bréf. „ Hér í Skaftártungu er með- virknin í algleymingi. Við sem sitj- um heima „ undir kúnum“, tökum af áhuga þátt í kjörum þeirra sem eru í fyrsta safni á afrétti. Það hefur viðrað vel, svifryk að vísu lítillega yfir heilsuverndarmörkum, en allt er betra en bölvuð þokan, sem er stundum þaulsætin á haustin. Ég reyni að fylgjast með hvar bóndinn er að smala, hvort féð sé óþægt osfrv. En í morgun fékk ég erindi gegnum síma. Ég var beðin um að senda ljósaperu inní kofa:" Í gær skein sólin heit á hlíð hlupu sauðir víða, „alltaf verður ár og síð við óþægt fé að stríða“. Í dag var þoka grá um geim, gumar öfugt snéru. Fjallkóngurinn hringdi heim „heimtaði ljósaperu“. „Svo þá eru allar líkur á að réttað verði í Gröf á laugardaginn kemur“: Nú er bara að bíða og sjá: Svo best hún sé ósprungin, annars bara í þoku þá þæfa‘ þeir á sér punginn. Umsjón: Árni Jónsson kotabyggd1@simnet.is Í umræðunni MÆLT AF MUNNI FRAM T Mikil stemming var á meðal bænda og annarra gesta á opnu húsi á tilraunabúinu Stóra-Ármóti í Flóa föstudaginn 11. nóvember síðastliðinn. Það voru Búnaðarsamband Suðurlands og Landbúnaðarháskóli Íslands sem stóðu fyrir veglegri dag- skrá og fyrirtæki tengd landbúnaði kynntu vörur sínar og þjónustu. Á þriðja hundrað gestir fengu m.a. að virða fyrir sér klaufskurð, ómmæl- ingar, rúning og búfjárdóma. Það var mál manna að vel hefði tekist til enda alltaf gaman þar sem bændur koma saman. Krakkarnir komu sér vel fyrir inni á vélaverkstæði Stóra-Ármóts og teiknuðu. Vel heppnað mannamót á Stóra-Ármóti Guðmundur Lárusson, Höskuldur Gunnarsson og Kristján Bjarndal Jónsson slógu á létta strengi. Kát ungmenni virtu fyrir sér búskapinn. Helga Sigurðardóttir frá BSSL. Halldór Gunnlaugsson bóndi. Lúðvík Bergmann hjá Búaðföngum. Sverrir Geirmundsson sölumaður hjá Vélaborg sýndi m.a. skilvindur. Hrafnhildur Baldursdóttir frá BSSL kynnti bændum þjónustu. Halldór G. Guðlaugsson og Pétur Diðriksson. Sigrún Hildur Ragnarsdóttir og Karítas Hreinsdóttir brostu breitt. Magnús B. Jónsson landsráðunautur í nautgriparækt dæmdi kýr fyrir opnum tjöldum. Kristín Bjö rnsdóttir s tarfskona BSSL. Myndir / TB

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.