Bændablaðið - 24.11.2011, Side 2
Bændablaðið | fimmtudagur 24. nóvember 20112
Fréttir
Með gildistöku þess hluta nýrrar
matvælalöggjafar sem snýr að
framleiðslu búfjárafurða. 1.
nóvember síðastliðinn urðu ýmsar
breytingar sem snerta bændur.
Þegar hefur verið fjallað ítarlega
um sumar þeirra í fjölmiðlum,
t.a.m. breytingar á dýralækna-
málum, en minna um aðrar.
Meðal þeirra breytinga sem snerta
bændur með mjög afgerandi hætti
eru breytingar á merkingum á naut-
gripum. Frá og með 1. nóvember
er skylt að merkja alla kálfa fædda
eftir þann tíma með eyrnamerkjum
í bæði eyru. Ekki er skylt að merkja
eldri gripi með sama hætti. Ekki er
um breytingar á grunnskráningar-
kerfi að ræða heldur er eingöngu
um að ræða að merkja skuli í bæði
eyru. Samkvæmt upplýsingum frá
Matvælastofnun eru þó enn hnökrar
á breytingunum, m.a. er ekki hægt
að panta tvöfalt sett af merkjum í
tölvukerfinu en unnið er að því að
uppfæra það. Þá stendur til að breyta
reglugerð 289/2005 um merkingar
búfjár til að uppfæra hana í samræmi
við áorðnar breytingar. Unnið er að
þeirri útfærslu og ætti breytingin að
ganga í gegn á næstu vikum. /fr
Aðalfundur Félags hrossabænda
fór fram í Bændahöllinni 18.
nóvember sl. Auk hefðbundinna
aðalfundarstarfa kynnti Ólafur H.
Einarsson frá Eiðfaxa nýja vefgátt
fyrir hrossaræktarbú. Þá flutti
Ágúst Sigurðsson, rektor LbhÍ
og hrossaræktandi í Kirkjubæ,
erindið „Hesturinn okkar?“ þar
sem hann varpaði ljósi á erfða-
framfarir í íslenskri hrossarækt
innanlands og utan.
Fram kom í máli Ágústs að erlend-
ar þjóðir sæki mjög á og nauðsynlegt
sé fyrir íslenska ræktendur að horfa
til framtíðar og íhuga nýja stöðu, ætli
þeir sér að halda forystuhlutverkinu
í ræktun íslenska hestsins. Ágúst
hvatti hrossaræktendur einnig til að
„fara út fyrir þægindarammann“ og
taka erfiða en nauðsynlega umræðu
um hugsanlegan inn- og útflutn-
ing á sæði, aukningu í sæðingum
og fósturvísaflutningum og fleira
ræktunartengt.
Kosið var um tvo menn í stjórn,
en Eyþór Einarsson í Sólheimagerði
gekk úr stjórn eftir tíu ára farsælt
starf og voru honum færðar sérstakar
þakkir fyrir. Sigbjörn Björnsson á
Lundum II, núverandi varaformaður,
var endurkjörinn í stjórn og nýr kom
svo inn Vignir Sigurðsson í Litlu-
Brekku. Nánari upplýsingar um
fundinn munu birtast í fundargerð
sem hægt verður að skoða á vef
félagsins, www.fhb.is, á næstunni.
/HGG
Á ráðstefnunni Hrossarækt 2011
sem fram fór á Hótel Sögu sl.
laugardag voru afhent ýmiss konar
verðlaun í heimi hrossaræktar-
innar, auk þess sem Gunnfríður
Elín Hreiðarsdóttir flutti áhuga-
vert erindi um uppruna íslenska
hestsins. Einnig fór fram vinna í
umræðuhópum þar sem rætt var
um mögulegar leiðir í framtíð-
arþróun kynbótasýninga á lands-
mótum, sem myndu miða að því að
stytta þær og gera áhugaverðari
fyrir áhorfendur.
Einstakur árangur
Fjórtán hrossaræktarbú voru til-
nefnd til ræktunarverðlaunanna í
ár og fengu fulltrúar þeirra afhenta
viðurkenningu á ráðstefnunni.
Hrossaræktarbú ársins var útnefnt
Auðsholtshjáleigubúið í Ölfusi þar
sem Gunnar Arnarson og Kristbjörg
Eyvindsdóttir stunda hrossarækt,
ásamt börnum sínum Þórdísi Erlu
og Eyvindi Hrannari.
Þetta er í fimmta sinn sem búið
hlýtur þennan titil, en árangurinn í
ár var einstakur. Ekki aðeins voru 20
hross frá búinu sýnd og dæmd í ár,
með meðalaldur 5.35 ár og meðal-
einkunn 8.01, heldur voru þrjár efstu
heiðursverðlaunahryssur ársins frá
þeim, þær Gígja, Trú og Vordís, sem
og handhafi Sleipnisbikarsins, Gári
frá Auðsholtshjáleigu, efstur heiðurs-
verðlaunastóðhesta á landsmótinu sl.
sumar. Stóðhesturinn Gígjar hampaði
einnig 1. verðlaunum fyrir afkvæmi
og stóðhesturinn Arnoddur stóð efstur
í sínum flokki á heimsmeistaramótinu
í Austurríki svo eitthvað sé nefnt.
Átta hryssur hlutu heiðursverð-
laun fyrir afkvæmi á ráðstefnunni að
þessu sinni, efst eins og áður segir
var Gígja frá Auðsholtshjáleigu,
önnur Trú og þriðja Vordís frá sama
stað. Þar næstar komu Álfadís frá
Selfossi, Þruma frá Hofi 1, Askja frá
Miðsitju, Ísold frá Gunnarsholti og
Ösp frá Háholti.
Spuni og Þórður báru af
Félag hrossabænda veitir að auki
tvenn verðlaun á ráðstefnunni, annars
vegar fyrir hæst dæmda kynbóta-
hross ársins, sem að þessu sinni var
stóðhesturinn Spuni frá Vesturkoti
með 8,92 og hins vegar verðlaun til
þess knapa sem sýnir hross í hæstan
hæfileikadóm á árinu, án áverka.
Þau verðlaun féllu í hlut Þórðar
Þorgeirssonar fyrir sýningu hans
á Spuna, með 9,25 í einkunn fyrir
hæfileika. Tímamótasýning þar að
margra mati.
Að verðlaunaafhendingum lokn-
um flutti Gunnfríður Elín erindi sitt
og þar á eftir tóku við umræður í
hópum. Þetta er í fyrsta skipti sem
boðið er upp á slíka umræðuhópa á
ráðstefnunni og komu margar áhuga-
verðar tillögur fram sem munu fara
til fagráðs í hrossarækt til úrvinnslu.
Ráðstefnan var fjölmenn og vel
heppnuð og gott dæmi um þann mikla
áhuga sem er á hrossarækt í landinu.
/HGG
Góður árangur kynntur á ráðstefnunni Hrossarækt 2011 á Hótel Sögu:
Auðsholtshjáleiga hrossaræktarbú ársins
- Einstakur árangur og í fimmta sinn sem búið hlýtur þennan titil
Haraldur Benediktsson, formaður BÍ, afhenti fjölskyldunni í Auðsholtshjáleigu ræktunarverðlaunin 2011. Myndir / HGG
Magnús Benediktsson tók við
knapaverðlaununum fyrir hönd
Þórðar Þorgeirssonar, sem nú er bú-
settur í Þýskalandi. Rosemarie Þor-
leifsdóttir, brautryðjandi í reiðken-
nslu á Íslandi, afhenti verðlaunin.
Átta hryssur hlutu heiðursverðlaun fyrir afkvæmi, hér má sjá eigendur þeirra
með verðlaunin sem Kristinn Guðnason, formaður Félags hrossabænda,
afhenti.
Matvælasýningunni Igeho í Basel
lauk í gær en hún er ein sú stærsta
og glæsilegasta sinnar tegundar í
Sviss. Um 80 þúsund gestir úr hótel-
og veitingageiranum mæta til að
skoða það sem sýnendur hafa upp
á að bjóða í mat, tækjum og ýmissri
þjónustu. Fulltrúar Íslands voru í
Basel að kynna lambakjöt undir
merkjum „Iceland Lamb“ en það er
sameiginlegt vörumerki íslenskra
kjötútflytjenda. Alls komu um
5.000 manns á íslenska básinn og
brögðuðu á ofnsteiktu lambakjöti
sem hafði mikið aðdráttarafl.
Það var Sölufélag Austur-
Húnvetninga sem sá um fram-
kvæmdina af hálfu Íslendinganna en
svissneska fyrirtækið Pernet Pearl er
samstarfsaðili sölufélagsins og stóðu
sölumenn þess jafnframt vaktina á
sýningunni ásamt fulltrúum íslenskra
sauðfjárbænda. Meira verður sagt frá
Igeho í næsta Bændablaði og mark-
aðsstarfi með íslenska lambið í Sviss
þar sem markmiðið er að selja kjötið
á háu verði til kröfuharða veitinga-
manna og neytenda. /TB
Íslenska lambið í Sviss:
Nýr og spennandi markaður sem greiðir hátt verð
Hulda Finnsdóttir tók við verðlaun-
um fyrir Spuna frá Vesturkoti úr
hendi Ingimars Sveinssonar hesta-
og fræðimanns.
Aðalfundur Félags hrossabænda:
Vignir nýr
í stjórn
Þessi kynntu íslenska lambið á svissnesku matvælasýningunni Igeho. Frá vinstri: Patric sölumaður, Sigurður
Jóhannesson frá SAH, Helga Ágústsdóttir frá SAH , Christofer sölumaður, Sindri Sigurgeirsson formaður Lands-
samtaka sauðfjárbænda og Urs Tohmann samstarfsaðili Pernet og SAH. Mynd / TB
Skylt að eyrnamerkja
nautgripi í bæði eyru