Bændablaðið - 24.11.2011, Qupperneq 12
Bændablaðið | fimmtudagur 24. nóvember 201112
Fréttir
Slátrarar hjá SS á Hellu komu
saman til endurfunda eftir hálfa
öld í Árhúsum við Ytri-Rangá á
laugardaginn 5. nóvember sl. Yfir
sláturtíðina bjuggu þeir flestir í
bragganum sæla á bakka Ytri-
Rangár. Þetta fólk var margt við
störf hjá SS ár eftir ár og traust
vinátta skapaðist sem enst hefur
vel og lengi lifir í gömlum glæðum.
„Harmónikuleikarinn Baldur
Loftsson í Þorlákshöfn tók á móti
gestum við útidyr með seiðandi spili
og hélt áfram að leika milli atriða og
fyrir dansi eftir borðhald. Guðmar í
Meiri-Tungu sýndi gamla snilldar-
takta. Hann greip í nikkuna og spilaði
og söng einnig um skeið fyrir dansi,“
segir Sigurður Sigurðarson, einn af
aðstandendum hátíðarinnar.
„Dagskráin byrjaði á því að
kveðin var stemma um ,,Ekkilinn í
Álfahamri“. Þetta er eins konar vöggu-
vísa, úrvalsgóð til að svæfa börn og
jafnvel fullorðna, sem ásannaðist
nýlega norður í landi. Gestirnir, sem
voru á áttunda tuginn, lærðu stemm-
una og tóku hraustlega undir. Þeir
voru hvattir til að taka hana með
sér heim og prófa á afkomendum
sínum, mökum og nánum vinum.
Síðan var önnur tekin til að vekja
allan lýðinn.
Sagðar voru sögur af samverunni
forðum og brugðið upp myndum
af ýmsum samverkamönnum, lífs
og liðnum. Ýmis atriði fleiri voru
á dagskránni. Sungin voru gömlu
og góðu lögin og ljóðin úr söng-
heftinu frá 1958 og upp söngst allt
að mestu."
Dansað fram í rauðan dauðann
„Dansað var fram í rauðan dauðann,
vináttusambönd endurnýjuð og til
nýrra stofnað. Það var svo skemmti-
legt hjá okkur að við hyggjumst
gleðjast með sýslungum okkar og
vinum, sem unnu við Sláturhús SS
í Djúpadal á sama tíma, er þeir efna
til samskonar endurfunda með sínu
fólki bráðlega. Við hugum að því
að endurtaka okkar leik eftir 2 ár.
Væri það góð hugmynd að sam-
eina þá þessa endurfundi. Aldrei var
neinn rígur milli húsanna, enda um
sýslunga og vini að ræða. Slátrarar
frá öðru húsinu fóru til vinnu í hinu,
ef þörf var á því,“ segir Sigurður
Sigurðsson.
Hugað að gömlum myndum
Til er myndband frá „slúttum“1999
og 2005, auk margra góðra ljós-
mynda frá horfinni tíð sem hægt
væri að setja á geisladisk ef áhugi
væri á slíku síðar. Sigurður hvetur
samt alla sem þarna störfuðu á
sínum tíma til að leita í gömlum
myndasöfnum að myndum sem
hægt væri að miðla milli manna.
Sigurður segir upplagt að viðkom-
andi hafi samband við Siggu frá Núpi
í síma 486-6634 eða Sigga frá Hemlu
í síma 892-1644.
Mikil gleði á hálfrar aldar
endurfundum SS slátrara
Á þessari hópmynd gefur að líta sjálfskipuðu nefndina syngja slúttbraginn frá 1958. Talið frá vinstri: Lóa frá Árbæ,
\ %@]&(
&
= &5^_"
\&\ #
8 `
"
_
&'
]]
\ '
"
E ]&
&
8 ' Eyjafjöllum.
Magnús Sigurðsson frá Sauðhúsvelli kom með íslistaverk til minningar um
horfna félaga og vini. Það er útskorið af Ottó syni hans, matreiðslumanni í
'@
$
&
leik lífsins. Á borðum var gómsætt og mjúkt lambalæri og úrvalskjúklingur
@]z
E&@
]& og gleðin skein á vonarhýrri brá.
Sunginn var slúttbragur frá
1958 við lagið ,,Komdu og
skoðaðu í kistuna mína“. Anna
frá Hvammi lék undir á slag-
hörpuna á hátínni á Hellu eins
og forðum daga.
Að sláturtíð lokinni slettum úr klaufum
á slúttinu síðan við bregðum á leik.
Hreint ekki strákar við grissurnar gaufum
en grömsum og holdinu bregðum á kreik.
Stúlkurnar handsama herra ég sé,
sem hertust í blóði og gori úr meeee
tralla la lalla ... o.s.frv.“
Sláturhúsið Hellu 10 ára
Sláturhúsið Hellu hf. átti tíu ára
afmæli á dögunum en fyrirtækið
var stofnað undir þessu nafni þann
10. október 2001 af 182 aðilum.
Langflestir þeirra voru bændur
eða um 150, ásamt nokkrum af
starfsmönnum, sem og viðskipta-
vinum og velunnurum sláturhúss-
ins.
Í afmælishófi sem fram fór fyrir
skömmu sagði Þorgils Torfi Jónsson,
sláturhússtjóri að starfsemin hefði
gengið ótrúlega vel. Hrósaði hann
stjórn félagsins og starfsfólkinu fyrir
frábært starf.
Í dag starfa 22 starfsmenn hjá
fyrirtækinu og í desember verður
í fyrsta skipti opnuð kjötvinnsla á
vegum sláturhússins. Í máli Þorgilsar
Torfa kom einnig fram að samkvæmt
úttekt Creditinfo væri Sláturhúsið
Hellu hf. fyrirmyndarfyrirtæki, sem
væri í efsta gæðaflokki ásamt aðeins
177 fyrirtækjum af 30 þúsund fyrir-
tækjum á landinu.
„Þetta voru bestu fréttir sem hægt
var að hugsa sér fyrir Sláturhúsið
og góð viðurkenning fyrir að sýna
ráðdeild og gætni í rekstri félagsins",
sagði Þorgils Torfi. /MHH.{
_
?
@
Ungir og efnilegir strákar
lærðu rúning
Sex ungir og efnilegir strákar,
sem ætla sér að verða fjár-
bændur, höfðu frumkvæði að
því að fá rúningsnámskeið fyrir
sig á vegum endurmenntunar-
deildar Landbúnaðarháskóla
Íslands, þar sem Guðmundur
Hallgrímsson sá um að kennsl-
una.
Námskeiðið var haldið 19. og
20. nóvember í fjárhúsinu á Fjalli
í Skeiða- og Gnúpverjahreppi.
Guðmundur, sem hefur kennt
rúning frá 1975, gaf strákunum
sín bestu meðmæli og sagði þá
hafa staðið sig einstaklega vel á
námskeiðinu. /MHH
Rúningsstrákarnir sem sóttu námskeiðið á Fjalli, frá vinstri; Einar Magn-
@
}
&(= =
'
&'
#&8
=
\ ^
=@] ]]' 9 ?
\
\ E?
\
\ ^
=@] ]]
= '&
~ 8
8
'@
&\ ^
=@] ]]
var á námskeiðinu en hafði skroppið frá þegar myndin var tekin. Myndir /MHH.
Guðmundur sló á létta strengi á nám-
skeiðinu eins og hans er von og vísa.
? E! \
]
&
"
{ kvæmdastjórinn sjálfur, Finnbogi Magnússon sem stendur vaktina og bakar
&
=&
&E
5 (
"
]
!" Mynd / MHH.
Finnbogi á vöffluvaktinni
Jötunn Vélar eru að undirbúa
kynningu á nýrri endurhann-
aðri Valtra dráttarvél af gerðinni
A-sería
Fyrstu vélarnar koma til landsins
nú í 47. viku og er fyrirhugað að
kynna þær á völdum stöðum um allt
land á næstu dögum.
Helstu nýjungarnar í þessari seríu
Valtra traktora eru að nú er kominn í
þær vökvavendigír, sá sami og hefur
fengist í öðrum gerðum Valtra véla
um árabil, vökvaaflúrtak (pto), raf-
magnsbeisli er orðið staðalbúnaður,
gólf húss hefur verið lækkað og ped-
alar eru hangandi, stærri olíutankur
er kominn í vélarnar (úr 73 lítrum í
90 lítra) mótorinn er af nýrri kyn-
slóð Sisu dieselvéla, hljóðlátur og
sparneytinn, 3 cyl 101 hö. Þrátt
fyrir að fyrstu vélarnar séu að taka
land nú í vikunni eru þegar seldar
8 vélar fyrirfram og mikill áhugi á
meðal bænda að kynna sér gripinn
því þarna er á ferðinni gamall félagi
í nýjum búningi.
Ný endurhönnuð Valtra dráttarvél
E 8^