Bændablaðið - 24.11.2011, Síða 24
Grænir orkugjafar 25BLAÐAUKI BÆNDABLAÐSINS 24. NÓVEMBER 2011
Minnt er á að lög um gistináttaskatt
taka gildi 1. janúar 2012
Gistináttaskattur
Gistináttaskatturinn er 100 kr. á hverja selda gistináttaeiningu,
en gistináttaeining er leiga á gistiaðstöðu í allt að einn sólarhring.
Með gistiaðstöðu er átt við herbergi, húsnæði eða svæði sem leigt
er út í þeim tilgangi að þar sé dvalið yfir nótt, að svefnaðstaða sé
fyrir hendi eða hægt sé að koma henni fyrir og leigan sé almennt
til skemmri tíma en eins mánaðar.
Lögin taka til þeirra sem selja gistingu, svo sem hótela,
gistiheimila, tjaldsvæða, orlofssjóða stéttarfélaga og ferða-
og útivistarfélaga. Ber þeim að tilkynna um starfsemi sína
til ríkisskattstjóra.
Nánari upplýsingar er að finna á vefslóðinni
rsk.is/gistinattaskattur og í síma 442-1000.
Bændablaðið
Smáauglýsingar. 5630300
nýta það sem eldsneyti á farartæki
fremur en til raforku- og hitafram-
leiðslu. Þegar staðan var tekin aftur,
í byrjun október á síðasta ári, sá
fyrir endann á öðrum áfanga sem
fólst í því að koma upp hreinsistöð
fyrir gasið. Í þriðja áfanga fer fram
uppsetning á áfyllingarstöð og
prufukeyrsla. Vísir að áfyllingar-
stöð var kominn þegar Bændablaðið
var síðast á ferð í Hraungerði og að
sögn Jóns Tryggva hefur nú náðst
að þurrka gasið, þannig að daggar-
mark þess er undir 60-70 gráðum.
Þannig er tryggt að vatn þéttist
ekki í geymslukútum farartækja.
Að sögn Jóns Tryggva hefur ekki
gefist mikill tími til að sinna verk-
efninu síðastliðið ár, en hann vonast
til að geta tekið upp þráðinn næsta vor
og haldið áfram með prófanir.
Það er þó ekki á allra færi að
ráðast í slíka einkaframkvæmd sem
fram fer í Hraungerði. Jón Tryggvi
er véltæknifræðingur af orkusviði og
hefur unnið mest sjálfur – einn í frí-
tíma sínum – að þessu verkefni. Hann
skoðaði þann möguleika að kaupa
tilbúna hreinsi- og afgreiðslustöð og
fékk tilboð í litla stöð frá Svíþjóð upp
á um 40 milljónir íslenskra króna. Það
verð var of hátt sem stofnkostnaður
og hann ákvað því að hanna og smíða
sjálfur, en íhluti í stöðina keypti hann
m.a. frá Ítalíu, Bandaríkjunum og
Bretlandi. Mikill tími hefur því farið
í hönnun, gerð útreikninga og teikn-
inga, en líklega mestur tími í smíði,
samsetningu, prófanir og skráningar.
Að litlu leyti hefur hann fengið styrki
til verkefnisins. Hann fékk þó styrk
frá Framleiðnisjóði landbúnaðarins
sem nam um 1/3 af stofnkostnaði
verkefnisins.
Allir græða
Eftir nokkru er að slægjast að nýta
lífræna úrganginn á þennan hátt. Auk
orkunnar, sem fengin er úr haugnum,
fæst betri áburður út úr úrgangnum
eftir að metanið er farið. Þá eru sterk
umhverfissjónarmið með því að
vinna metangasið á þennan hátt, því
við brennslu á því, t.d. í dráttarvél,
minnka hin slæmu umhverfisáhrif
af ferlinu um nærri 95%. Metan er
afar stórtæk gróðurhúsalofttegund
og eru hlýnunaráhrif þess talin vera
um 21 sinni meiri en hins „illræmda“
koltvísýrings. Við brennslu á metani
verður til koltvísýringur sem nýtist
svo plöntunum aftur. Í raun verður
engin aukning á koltvísýringi í and-
rúmsloftinu, því í ferlinu er einungis
verið að flytja þann koltvísýring sem
varð til í haugnum út í andrúmsloftið.
Þá sparast í þessu ferli sá koltvísýr-
ingur sem notkun á jarðefnaeldseyti
hefði í för með sér.
Meistararitgerð um metangas
Síðastliðið haust varði Kristján
Hlynur Ingólfsson meistararitgerð
sína í umhverfis- og auðlinda-
fræðum við Háskóla Íslands, en
hún heitir Búorka og er hugsuð sem
eins konar handbók um gasvinnslu
í sveitum. Markmiðið með henni er
að miðla upplýsingum og þekkingu
til Íslendinga um reynslu af lífgas-
vinnslu erlendis frá. Í ritgerðinni eru
metangasvinnslu gerð skil á býsna
víðtækan hátt. Þar er t.a.m. gert
kostnaðaryfirlit fyrir samlagsver
sex býla (í mismunandi búrekstri)
austan Reykholts í Árnessýslu.
Kostnaðaráætlun við að koma
upp slíku samlagsveri nemur 400
milljónum samkvæmt útreikningum
Kristjáns og tæpast hagkvæm fjár-
festing miðað við gefnar forsendur.
Við frekari skoðun á samlagsveri
sem væri enn stærra, kemur hins
vegar í ljós að það gæti hugsanlega
borgað sig út frá stærðarhagkvæmn-
inni.
Í viðtali við Bændablaðið þann
1. september sl. kom fram að hugur
Kristjáns stendur nú til að rannsaka
einfaldari metanvinnslustöðvar fyrir
stök býli og hagkvæmni þeirra. Hann
segir þar að ýmsir möguleikar séu
fyrir hendi; bæði á þeim svæðum þar
sem jarðvarmi nýtist til eldsneytis-
framleiðslu og einnig þar sem nýta
má hrágas með litlum tilkostnaði til
vatnshitunar eða t.d. á grófar ljósa-
vélar.
Meistararitgerð Kristjáns er
aðgengileg á vefslóðinni www.
skemman.is. /smh
Dekkjainnflutningur
Viltu spara
Eigum á lager flestar stærðir traktors, vagna og
vinnuvéladekkja á góðu verði.
Einnig mikið úrval fólksbíla og jeppadekkja
á lager, 10% aukaafsláttur.
Verðdæmi:
Skotbómulyftaradekk 405/70-24 kr. 116.000 m/vsk
Traktorsdekk 380/70 R24 kr. 109.000 m/vsk
Traktorsdekk crossply 16,9-34 kr. 122.000 m/vsk
Verð gildir á afhendingastöðvar Landflutninga um
allt land.
Jason ehf
Hafnarstræti 88
Akureyri
Vinsamlegast hafið samband við
Ármann Sverrisson 896-8462 - e-mail manni@gott.is
Tryggva Aðalbjörnsson 896-4124
varma úr lofti þar eð íbúðarhúsið er
stórt, á mörgum hæðum og nokkuð
lokað.
Einar Ófeigur lét smíða dæluna
hér heima og setja hana upp. „Dælan
kostaði upp komin um tvær millj-
ónir króna. Við þurftum hins vegar
ekki að fara í neinar stórfelldar
framkvæmdir, hér var rafmagns-
túba sem einfaldlega var tekin út og
varmadælan tengd við ofnakerfið
og neysluvatnslagnirnar einnig.
Dælan eyðir tæpum tveimur
kílówöttum af rafmagni en skilar
hitaorku sem er einhvers staðar
milli átta og níu kílówött. Við erum
að kynda um 300 fermetra hús og
inni í þessum tölum er öll rafmagns-
notkun, í útihúsum og í íbúðarhús-
inu. Fyrsta árið eftir að dælan var
tekin í notkun lækkaði rafmagns-
reikningurinn um helming, niður í
300.000 krónur. Kyndikostnaðurinn
lækkaði því gríðarlega mikið með
þessari aðgerð.“
„Malar bara gull“
Eingreiðslan sem Einar Ófeigur
nýtti til að greiða hluta stofnkostn-
aðarins við varmadæluna dekkaði
ríflega helming kostnaðarins. Þó
ber að geta þess að þar til skömmu
áður en ráðist var í framkvæmdina
höfðu verið tvær íbúðir í húsinu og
þar með hafði niðurgreiðsla vegna
húshitunar verið meiri en ef um eina
íbúð hefði verið að ræða. Þá var
vatnslögnin sem vatnið er tekið um
til staðar og því lítill kostnaður við
þann hluta.
„Það mun taka mig þrjú til fjögur
ár að greiða niður stofnkostnaðinn
við framkvæmdina og eftir það
malar þetta bara gull. Það er ekki
nokkur spurning að þeir sem eru
á köldum svæðum ættu að íhuga
verulega að koma sér upp varma-
dælum, sérstaklega ef fólk er í þeirri
aðstöðu að hafa vatnslind á bilinu
10 til 20 stig. Hins vegar skiptir
verulegu máli að það sé vatnskerfi
á hituninni í húsinu. Ef því er ekki
til að dreifa þarf að reikna út hver
kostnaðurinn við að koma upp slíku
kerfi er og það er ekki víst að það
borgi sig,“ segir Einar Ófeigur. /fr
Varmadælur