Bændablaðið - 24.11.2011, Side 38
39Bændablaðið | fimmtudagur 24. nóvermber 2011
Halldóra Íris Magnúsdóttir er 15
ára gamall nemandi við Vallaskóla
á Selfossi. Hún er farin að hlakka
til jólanna og allra kræsinganna
sem þá verða á borðum. Sá siður
er á hennar heimili að fjölskyld-
an opnar öll jólakortin saman á
aðfangadagskvöld eftir að búið er
að glugga í alla pakkana.
Nafn: Halldóra Íris Magnúsdóttir.
Aldur: 15 ára.
Stjörnumerki: Vatnsberi.
Búseta: Selfoss.
Skóli: Vallaskóli.
Hvað finnst þér skemmtilegast
í skólanum? Stærðfræði og nem-
endaráðsfundir.
Hvert er uppáhalds dýrið þitt?
Hundar og hestar.
Uppáhaldsmatur: Fiskisúpan
hennar mömmu.
Uppáhaldshljómsveit: Emilíana
Torrini.
Uppáhaldskvikmynd: The Last
Song.
Fyrsta minningin þín? Ég man
eftir Suðurlandsskjálftanum árið
2000.
Æfir þú íþróttir, eða spilarðu á
hljóðfæri? Já, ég æfi fótbolta og
fimleika ásamt því að spila á gítar
og píanó.
Hvað er það skemmtilegasta sem
þú gerir í tölvu? Ég er aðallega
bara á Facebook.
Hvað ætlar þú að verða þegar þú
verður stór? Verða læknir eða ljós-
móðir.
Hvað er það klikkaðasta sem þú
hefur gert? Ég var einu sinni í
sumarbúðum og sagði stelpunum í
næsta herbergi að setja sjampó og
hárnæringu á gólfið og dreifa því vel
því þá væri hægt að skauta á gólfinu.
Ráðskonan varð brjáluð og ég náði
að ljúga mig út úr þessu öllu.
Hvað er það leiðinlegasta sem þú
hefur gert? Ég geri ekkert leiðin-
legt.
Eru einhverjar sérstakar jólahefð-
ir á þínu heimili? Við opnum alltaf
öll jólakortin saman á aðfangadags-
kvöld þegar við erum búin að opna
pakkana. Jólakortin eru eiginlega
jólagjafir mömmu og pabba.
Hvað finnst þér skemmtilegast við
jólin/áramótin? Allur maturinn.
/ehg
Fiskisúpan hennar mömmu best
FÓLKIÐ SEM ERFIR LANDIÐ
Prjónaðar jólakúlur
PRJÓNAHORNIÐ
Núna þegar jólin nálgast
óðfluga og dagurinn verður
sífellt styttri er óskaplega
notalegt að kúra sig niður í sófa
undir teppi og byrja að dunda
við að prjóna jólaskraut. Láta
sig síðan dreyma um jólatré
sem skreytt er eingöngu með
heimatilbúnu jólaskrauti sem
maður tekur upp úr kössunum
ár eftir ár.
Þessar jólakúlur eru fallegar
og hægt að leika sér með að
gera mismunandi útfærslur af
mynstrum og nota mismunandi
gróft garn fyrir mismunandi
stórar kúlur (kúlan á myndinni
er frekar stór).
Efni: Tyra frá garn.is, hvítt nr. AF0001 og
rautt nr. AN3127. Tróð til að fylla upp í.
Prjónar: Sokkaprjónar nr. 4 eða nr. 5, (fer
eftir hvað kúlan á að vera stór).
1. umf.: Fitjið upp 12 lykkjur á sokkaprjóna,
3 lykkjur á hvern prjón.
2. umf.: Prjónið slétt.
3. umf.: *Prj 2L slétt, aukið út um eina
lykkju, prj 1L slétt*. Endurtakið þetta á
hverjum prjón. Þá eiga að vera 16 lykkjur
samtals.
4. umf.: Prjónið slétt.
5. umf.: *Prj 1L slétt, aukið út um eina
L, 2L slétt, aukið út um eina L, 1L slétt*.
Endurtakið á hverjum prjón. Samtals 24
lykkjur.
6. umf.: Prjónið slétt.
7. umf.: *1L slétt, aukið út um eina L,
4L slétt, aukið út um eina L, 1L slétt*.
Endurtakið á hverjum prjón. Samtals 32
lykkjur.
8. umf.: Prjónið slétt.
9. umf.: *1L slétt, aukið út um eina L,
6L slétt, aukið út um eina L, 1L slétt*.
Endurtakið á hverjum prjón. Samtals 40L.
10. umf.: Prjónið slétt.
11. umf.: *1L slétt, aukið út um eina L,
8L slétt, aukið út um eina L, 1L slétt*.
Endurtakið á hverjum prjón. Samtals 48L.
12. umf.: Prjónið slétt.
13. umf.: *1L slétt, aukið út um eina L,
10L slétt, aukið út um eina L, 1L slétt*.
Endurtakið á hverjum prjón. Samtals 56L.
14. umf.: Prjónið slétt.
15. umf.: *1L slétt, aukið út um eina L,
12L slétt, aukið út um eina L, 1L slétt*.
Endurtakið á hverjum prjón. Samtals 64L.
16.-27. umf.: Prjónið slétt.
28. umf.: *1L slétt, 2L sléttar saman,
10L sléttar, 2L sléttar saman, 1L slétt*.
Endurtakið á hverjum prjón. Samtals 56L.
29. umf.: Prjónið slétt.
30. umf.: *1L slétt, 2L sléttar saman,
8L sléttar, 2L sléttar saman, 1L slétt*.
Endurtakið á hverjum prjón. Samtals 48L.
31. umf.: Prjónið slétt.
32. umf.: *1L slétt, 2L sléttar saman,
6L sléttar, 2L sléttar saman, 1L slétt*.
Endurtakið á hverjum prjón. Samtals 40L.
33. umf.: Prjónið slétt.
34. umf.: *1L slétt, 2L sléttar saman,
4L sléttar, 2L sléttar saman, 1L slétt*.
Endurtakið á hverjum prjón. Samtals 32L.
35. umf.: Prjónið slétt.
36. umf.:*1L slétt, 2L sléttar saman,
2L sléttar, 2L sléttar saman, 1L slétt*.
Endurtakið á hverjum prjón. Samtals 24L.
37. umf.: Prjónið slétt.
38. umf.: *1L slétt, 2L sléttar saman,
2L sléttar saman, 1L slétt*. Endurtakið á
hverjum prjón. Samtals 16L.
39. umf.: Prjónið slétt.
40. umf.: *1L slétt, 2L sléttar saman, 1L
slétt*. Endurtakið á hverjum prjón. Samtals
12L. Fyllið kúluna með tróði.
41. umf.: Klippið þráðinn, um 20 sentí-
metra langan. Dragið þráðinn gegnum
síðustu 12 lykkjurnar.
Heklið svo loftlykkjulengju, lengd eftir
smekk, til að gera upphengilykkju, og
festið í kúluna.
Bókabásinn
Hjá bókaútgáfunni Sölku er
komin út bókin „Er lítið mein
yfirtók líf mitt“ eftir Lilju Sólrúnu
Halldórsdóttur. Bókin er persónu-
leg reynslusaga konu sem greinist
með krabbamein og fer í gegnum
átakamikla meðferð.
„Miðinn vill ekki í ruslið og er
búinn að þvælast á borðinu í mánuð.
Það er eins og einhver sé að ýta á mig
og segja mér að ég skuli fara svo ég
panta tíma og dríf mig af stað. Eftir
nokkra daga er hringt og rödd í sím-
anum segi: „Lilja, það þarf að endur-
taka myndatökuna. Geturðu komið
á morgun, best að ljúka þessu af.“
Á sólríkum
haustdegi fékk Lilja Sólrún þær frétt-
ir að hún væri með brjóstakrabba-
mein. Við tók þriggja ára tímabil
sjúkdómsins þar sem hún upplifði
slæmar aukaverkanir af lyfjameð-
ferðinni sem þó bjargaði lífi hennar.
Hér lítur hún til baka og dregur upp
svipmyndir, minningar um sköllótta
konu; sumar eru sláandi, aðrar ljóð-
rænar sagðar í trúnaði og enn aðrar
spaugsamar og kaldhæðnar í senn.
Bókin er 128 bls. og prentuð hjá
Prentmeti ehf.
Er lítið mein
yfirtók líf mitt
Út er komin þriðja prentun af upp-
skriftabókinni vinsælu Bakað og
matreitt í 90 ár sem Kvenfélag
Villingaholtshrepps gefur út.
Bókin hefur notið mikilla vin-
sælda allt frá því hún kom fyrst út
haustið 2009 og vegna aukinnar
eftirspurnar nú í haust var ákveðið
að ráðast í þriðju prentun. Í bókinni
eru yfir 100 uppskriftir af ýmis-
konar mat og bakkelsi sem fylgt hafa
félaginu í þau rúmu 90 ár sem það
hefur starfað.
Bókin verður til sölu hjá for-
manni félagsins Valgerði Gestsdóttur
í Mjósyndi fram til jóla, eða meðan
birgðir endast. Bókin kostar kr.
1.500.
Bakað og matreitt í 90 ár
Ævisaga Elfríðar
Pálsdóttur
Bókaútgáfan Hólar var að gefa
út bókina Elfríð sem er ævisaga
Elfríðar Pálsdóttur sem fædd-
ist í Þýskalandi og ólst þar upp á
stríðsárunum. Frásögn hennar er
hvort tveggja í senn óhugnanleg og
hugljúf.
Eftir hörmungar stríðsáranna
ákvað Elfríð að freista gæfunnar á
Íslandi og réðst sem vinnukona í sveit
á Norðurlandi. Líklega hefur hana
ekki grunað þá hver einangrunin yrði,
en Siglunes var staðurinn og þar var
allt með öðrum hætti en hún hafði
vanist. Þar kynntist hún mannsefni
sínu, Erlendi Magnússyni, og urðu
þau síðar vitaverðir á Dalatanga í
aldarfjórðung. Frá árunum á Siglunesi
og Dalatanga segir Elfríð vitaskuld
í þessari áhugaverðu bók sem dóttir
hennar, Helga Erla Erlendsdóttir,
hefur fært í letur.
Hitlersæskan
„Við krakkarnir, sem vorum innan
við fermingu, þurftum að ganga í og
starfa með svokallaðri Hitlersæsku
þar sem aðaláherslan og tilgangur-
inn var að trúa á og virða Adolf
Hitler. Við þurftum að
mæta tvisvar í viku minnir mig í
æskulýðsheimilið sem var í hverf-
inu. Það voru mjög strangar reglur
og við urðum að vera í sérstökum
búningum. Hart var tekið á aga-
brotum og refsingarnar einkennd-
ust af barsmíðum eða niðurlægjandi
athöfnum. Einu sinni mismælti ég
mig þegar flokkstjórinn spurði mig
hvort ég myndi afmælisdag Hitlers.
Ég sagði 20. febrúar í staðinn fyrir
20. apríl og mér var refsað harðlega
fyrir það og lamin fast með priki í
bakhlutann."
'
] &
]&
Húsráðakver frú Kitschfríðar
Bókaforlagið Salka
hefur gefið út bók-
ina „Húsráðakver
frú Kitschfríðar en
bókin er 188 blað-
síður og er prentuð
í Odda. Í fréttatil-
kynningu segir að
frú Kitschfríður hafi
fleiri rif en aðrar
konur – og ráð undir
þeim öllum!
Frú Kitschfríður
Kvaran er mörgum kunn, en hún
hefur um árabil skrifað vinsæla
húsráðapistla í tímaritið Vikuna. Hér
hefur hún tekið saman allra handa
húsráð, sem gagnast reyndum hús-
mæðrum jafnt
og óreyndum, að
sumri sem vetri, í
kreppu og á upp-
gangstímum.
Glæsileg bók
með húsráðum
sem bjarga mál-
unum og gera
lífið skemmti-
legra. Eldhúsið,
þrifin, garðurinn,
þvotturinn, bíllinn
- Marta Stjúart hvað? Kitschfríður
veit það!
Húsráðakver frú Kitschfríðar á
heima á öllum betri heimilum enda
agalega gagnlegt.