Fréttablaðið - 23.02.2012, Síða 1

Fréttablaðið - 23.02.2012, Síða 1
veðrið í dag MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI* Sími: 512 5000 *Samkvæmt prentmiðlakönnun Capacent Gallup júlí - september 2011 Fimmtudagur skoðun 20 SÉRBLAÐ í Fréttablaðinu Allt 23. febrúar 2012 46. tölublað 12. árgangur Sölufulltrúar: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Snorri Snorrason snorris@365.is 512 5457 Haust og vetrarlína Ingvars Helgasonar og Suzanne Ostwald fékk frábærar viðtökur í New York. Þ etta er ótrúlega spenn-andi. Við bjuggumst ekki við slíkri umfjöll-un enda mikið að gerast á tískuvikunni og fjöldi ungra hönnuða að gera það sama og við. Þetta er fyrsta línan sem við sýnum á tískuviku,“ segir Ingvar Helgason fatahönnuð-ur en nýjasta lína hans og Sus-anne Ostwald, fékk feykigóðar viðtökur á tískuvikunni í New York í síðustu viku. Meðal annars mátti lesa á Style.com að Ostwald Helgason hafi komið hvað mest á óvart þetta sýningarkvöld og fylgj-ast ætti með þeim í fram-tíðinni. Á Style Bubble.co.uk voru þau sögð hafa farið af stað með hvelli og WWD sagði sýninguna „stjörnu frumraun“. Þá var farið fögrum orðum um línuna á Vogue.com og sagt að þau sigldu af stað með vind í seglunum. Ingvar og Suzanne hófu samstarf árið 2008 og reka vinnustofu í London. Milk Studios í London valdi þau í hóp ungra hönnuða sem fyrirtækið styrkir til þátttöku í tískuvikunni í New York. Tóku tísku-vikuna með trompi 2 Laugavegi 178 - Sími: 551 3366Þú mætir - við mælum og aðstoðumwww.misty.isOpið frá 10-18 virka daga.10-14 laugardaga STÓR FLOTTUR teg MAGGIE - með sérstaklega gott hald fyrir þung brjóst, fæst frá 36-42 í skálum E,F,FF,G,GG,H,HH,J,JJ á kr. 10.985,- glæsilegar buxur frá M-4xl á kr. 4.750,- Vertu vinur okkar á facebook Skrefamæ Sýnir vegalengd orkunotkun og tíma • Skynjar hröðunOpið kl. 9 -18 • laugardaga kl. 11 - 16 • Stórhöfða 25 • 569 3100 • eirberg.is Verð: 6.950 kr. MosiDesign.nl er ný hollensk sölusíða með íslenskri hönnun. Þar er meðal annars að finna skart frá Hring eftir hring og Stássi, tréslaufur eftir Guðmund Jón Stefánsson og ýmiss konar íslenska vöruhönnun. 29.900 .-VERÐ KR. IFÖ BAÐINNRÉTTING STÆRÐ: 29 X 46 X 51,5 Baldursnesi 6 Akureyri Sími 414 1050 Smiðjuvegi 76 Kópavogi Sími 414 1000 í kvöld Opið til 21 E N N E M M / S ÍA / N M 5 0 7 5 1 raudikrossinn.is Mannvinir Rauða krossins hjálpa börnum í neyð Hjálpaðu núna HEILBRIGÐISMÁL Fegrunaraðgerðir á innri skapabörmum kvenna hafa færst í aukana á síðustu árum. Hver aðgerð kostar á bilinu 150 til 200 þúsund krónur og eru þær algengastar meðal kvenna á aldr- inum 20 til 45 ára. Sæunn Kjartansdóttir sálgrein- ir segir þessa þróun varhuga- verða og veltir upp gagnrýnum sjónarmiðum í grein sem birtast mun í fræðiriti sem kemur út í næsta mánuði. Hún segir að vert sé að velta fyrir sér hvaðan ungar konur fái skilaboð um að skapa- barmar þeirra líti illa út, hvert viðmiðið sé og hver komi konun- um í skilning um að útliti þeirra sé ábótavant. Á heimasíðunni Lytalaeknar.is segir að helstu ástæður aðgerð- anna séu útlitslegar, auk þess sem stórir innri skapabarmar geti stundum valdið ertingu og sviða við kynlíf. - sv / sjá síðu 4 Sálgreinir gagnrýnir þróun: Fegrunaraðgerð- um á kynfærum kvenna fjölgar SAKAMÁL Embætti sérstaks sak- sóknara segir að ef kaup Sheikh Mohamed bin Khalifa Al Thani í Kaupþingi í september 2008 hefðu skilað hagnaði hefði Ólafur Ólafs- son, þá einn stærsti eigandi bank- ans, hagnast á því. Þetta er meðal þess sem kemur fram í ákæru embættisins þar sem Ólafur, Hreiðar Már Sig- urðsson, fyrrverandi forstjóri Kaupþings, Sigurður Einarsson, fyrrverandi stjórnarformaður bankans, og Magnús Guðmunds- son, fyrrum framkvæmdastjóri Kaupþings í Lúxemborg, eru ákærðir fyrir umboðssvik og markaðsmisnotkun eða hlutdeild í slíkum brotum. Í ákærunni segir að „í sept- ember 2008 létu ákærðu starfs- menn Kaupþings og Kaupþings Lúxemborg setja upp viðskipta- fléttu í kringum kaup á 5,01% hlut í Kaupþingi. Í fléttunni fólst að Kaupþing lánaði tveim- ur félögum, Gerland og Serval, samtals um 26 milljarða króna. Var Gerland í eigu ákærða Ólafs en Serval í eigu Sheikh Mohamed bin Khalifa Al Thani. Lánsfé því sem ákærðu, Hreiðar Már og Sig- urður, létu veita til félaganna […] var sama dag veitt áfram til kýp- verska félagsins Choice Stay Ltd.“ Eigendur þess félags voru Sheikh Mohamed bin Khalifa Al Thani, Ólafur og Sheikh Sultan Al Thani, vinur Ólafs og ráðgjafi Sheikh Mohamed. Féð var síðan látið renna til Q Iceland Finance og hlutirnir í Kaupþingi keyptir í nafni þess félags. Í ákærunni segir að svo „virðist sem hugsunin með fléttunni hafi verið sú að nær allur mögulegur hagnaður af viðskiptunum myndi flæða frá Q Iceland Finance til Choice Stay í gegnum hagnaðar- tengt lán (e. profit participation loan). Ef hagnaður hefði orðið af viðskiptunum með hlutabréf- in hefðu það því verið eigendur Choice Stay[…]sem hefðu deilt honum með sér“. Samkvæmt hagnaðartengda láninu áttu lána- kjörin að „endurspegla gengi bréfa Kaupþings þannig að ef t.d. 100 krónu hagnaður hefði orðið á bréfunum hjá Q Iceland Finance hefðu 90-100 krónur farið til Choice Stay“. Ólafur neitaði því í yfirlýsingu í gær að einhver hagnaðarhlutdeild hefði átt að rata til hans. - þsj / sjá síðu 8 Ólafur gat grætt á kaupunum Ef hagnaður hefði orðið á kaupum Al Thani í Kaupþingi hefði hann að hluta til runnið til Ólafs Ólafssonar, samkvæmt ákæru. Þrír af æðstu stjórnendum Kaupþings og einn stærsti eigandi bankans ákærðir. SAMFÉLAGSMÁL Jón Baldvin Hannibalsson, fyrrver- andi ráðherra, biðst í Fréttablaðinu í dag afsökunar á því að hafa árið 2001 sent sextán ára frænku eigin- konu sinnar bréf sem á köflum voru erótísk. Tíma- ritið Nýtt líf fjallar um málið í dag. Fréttablaðið hefur ekki séð umrædd bréf, en Jón Baldvin lýsir þeim í aðsendri grein í blaðinu í dag. Þar segist hann hafa sent stúlkunni, sem þá var skiptinemi í Venesúela, bók eftir Vargas Llosa um samskipti Norður- og Suður-Ameríku. Bæði bókin og bréf sem fylgdi séu „á köflum erótísk“. Hann segir það hafa verið dómgreindarbrest, hvorugt hafi átt erindi við stúlkuna. Jón Baldvin segir stúlkuna hafa kært sig fyrir kynferðislega áreitni á grundvelli bréfanna árið 2005. Kærunni hafi verið vísað frá sem tilefnis- lausri. Þá hafi saksóknari ákveðið að rannsaka sér- staklega árið 2006 hvort refsivert væri að skrifa slík bréf í Bandaríkjunum, þar sem Jón Baldvin bjó á þeim tíma, eða í Venesúela. Því hafi síðar verið vísað frá. „Öllum verður okkur á í lífinu. Öll þurfum við ein- hvern tíma á fyrirgefningu að halda. Ég harma það alla daga að hafa valdið fólki sem mér þykir vænt um í minni nánustu fjölskyldu sárindum og hugar- angri að ósekju. Ég hef viðurkennt mína sök og beð- ist fyrirgefningar,“ skrifar Jón Baldvin í Frétta- blaðinu í dag. - bj / sjá síðu 24 Nýtt líf birtir sendibréf Jóns Baldvins Hannibalssonar til sextán ára stúlku: Biðst afsökunar á „erótísku“ bréfi Mottuslaufur slá í gegn Fjórar stúlkur í Garðabæ hafa hannað slaufur sem líta út eins og yfirvaraskegg. fólk 38 Endalaus uppspretta Það er endalaust hægt að velta íslensku fyrir sér segir Sólveig Arnarsdóttir liðsstjóri í Orð skulu standa. menning 30 HVÖSS A-ÁTT um S-vert landið í dag og slydda eða rigning. Hægari og úrkomulítið N-til fram eftir degi. Hiti víða um frostmark en 0-5 stig syðra. VEÐUR 4 4 3 0 0 -1 HREIÐAR MÁR SIGURÐSSON MAGNÚS GUÐMUNDSSONÓLAFUR ÓLAFSSON SIGURÐUR EINARSSON KÖTTUR Í TUNNU Ýmiss konar furðuverur og fígúrur fóru um borg og bæ í gær til að syngja fyrir sælgæti og slá ketti úr tunnum. Þessir hressu krakkar fylltu Smáralindina. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Niðurfærsla skulda Íslenskir skattgreiðendur myndu greiða kostnað við skuldaniðurfellingu skrifar Þórarinn G. Pétursson. skoðun 22 Fáheyrðir yfirburðir Kiel fór létt með Rhein- Neckar Löwen í þýsku úrvalsdeildinni í gær. sport 42

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.