Fréttablaðið - 23.02.2012, Síða 6
23. febrúar 2012 FIMMTUDAGUR6
Lesa skal vandlega leiðbeiningar á umbúðum og fylgiseðli.
Nicotinell lyfjatyggigúmmí inniheldur 2 mg eða 4 mg nikótín (nikótínpólacrillín). Nicotinell lyfjatyggigúmmí er notað til að draga úr nikótínþörf og
fráhvarfseinkennum nikótíns hjá einstaklingum sem eru háðir nikótíni. Þannig getur það auðveldað reykingafólki sem vill hætta að reykja að hætta
eða að draga úr reykingum. Ekki má nota fleiri en 25 stk. 2 mg lyfjatyggigúmmí eða meira en 15 stk. 4 mg lyfjatyggigúmmí á sólarhring. Ef þú ert
með ofnæmi fyrir nikótíni eða einhverju öðrum innihaldsefnum eða reykir ekki má ekki nota Nicotinell lyfjatyggigúmmí. Ráðfærðu þig við lækninn
eða lyfjafræðing ef þú hefur nýlega fengið hjartabilun eða hjartastopp - ert með hjartasjúkdóma, of háan blóðþrýsting, sykursýki, ofvirkan
skjaldkirtil, ofvirkar nýrnahettur, alvarlega skerta nýrna- og/eða lifrarstarfsemi eða magasár. Ef þú ert barnshafandi eða með barn á brjósti máttu
einungis nota lyfið í samráði við lækni. Lyfið er ekki ætlað börnum yngri en 18 ára nema í samráði við lækni. Geymið þar sem börn hvorki ná til né
sjá. Markaðsleyfishafi: Novartis Healthcare. Umboð á Íslandi: Artasan ehf., Suðurhraun 12a, 210 Garðabæ.
20%
afslátturGildir einungis í verslunum Lyfja & heilsu
Síðustu forvöð
15-50% afsláttur af öllum pottum og pönnum
100 tegundir
SPARAÐU
ÞÚSUNDIR
VIÐSKIPTI Viðræður hafa staðið
yfir milli Framsóknar í Reykja-
vík og forsvarsmanna fyrirtæk-
isins JCDecaux, sem á og rekur
strætóskýli borgarinnar, um upp-
gjör skuldamáls þeirra. Þess
vegna segir lögmaður flokks-
félagsins frétt Fréttablaðsins í
gær af árangurslausu fjárnámi hjá
flokknum koma „verulega á óvart“.
Þetta kemur fram í yfirlýsingu
sem lögmaðurinn Snorri Sturluson
hefur sent fjölmiðlum. Þar segist
hann jafnframt hissa á ummælum
framkvæmdastjóra JCDecaux í
Fréttablaðinu, í ljósi þess að unnið
hafi verið að lausn málsins.
Framkvæmdastjórinn Einar
Hermannsson sagðist í Frétta-
blaðinu í gær ekki vera búinn að
ákveða sig hvort hann mundi krefj-
ast þess að Framsókn í Reykjavík
yrði tekin til gjaldþrotaskipta, eins
og hægt er að gera innan þriggja
vikna frá árangurslausu fjárnámi.
Deilan snýst um skuld vegna
auglýsinga í strætóskýlum fyrir
alþingiskosningarnar 2009. JCDe-
caux telur Framsókn skulda sér
3,6 milljónir en flokksfélagið
telur að þáverandi kosningastjóri
þess, Hallur Magnússon, hafi
gert munnlegt samkomulag um
mun lægri greiðslu. Héraðsdómur
hefur dæmt JCDecaux í vil í mál-
inu.
Snorri segir að „meint skuld“
verði greidd upp þegar samn-
ingar liggi fyrir eða Hæstiréttur
hafi kveðið upp lokaorð í málinu.
Hrólfur Ölvisson, framkvæmda-
stjóri Framsóknarflokksins, segir
að flokksfélagið í Reykjavík eigi
sama og engar eignir, en komi til
þess að greiða þurfi skuldina verði
það mál leyst. - sh
Framkvæmdastjóri Framsóknar segir að staðið verði við skuldbindingar:
Framsókn hissa á fjárnámsfrétt
FRAMSÓKNARHÚSIÐ Framsóknarflokk-
urinn undrast ummæli framkvæmda-
stjóra JCDecaux. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
STJÓRNSÝSLA Gunnar Þ. Ander-
sen, forstjóri Fjármálaeftirlits-
ins (FME), áskilur sér rétt til að
láta reyna á málatilbúnað stjórnar
FME við ætlaða brottvikningu hans
úr starfi með stjórnsýslukæru.
Þetta kemur fram í bréfi sem Skúli
Bjarnason, lögmaður hans sendi
stjórnarformanni FME í gær.
„Sú kærumeðferð, ef af verð-
ur, fyrirbyggir ekki að látið verði
reyna á aðra þætti málsins fyrir
dómstólum, samhliða eða í kjöl-
farið,“ segir jafnframt í bréfinu.
„Miðaldaréttarfar á Íslandi á 21.
öld verður aldrei liðið.“
Eins er áréttað í
bréfinu að Gunnar
hafni því að hafa á
nokkurn hátt beitt
blekkingum vegna
aðkomu hans að
málefnum Lands-
bankans árið 2001.
„Væri þetta skoð-
að til fulls fellur
að sjálfsögðu hinn
meinti blekking-
arþáttur út og málatilbúnaðurinn
hrynur.“
Gunnar og lögmaður hans líta
svo á að þriggja sólarhringa svar-
frestur sem stjórn FME gaf þann
20. þessa mánaðar byrji ekki að líða
fyrr en stjórnin hafi svarað öllum
spurningum sem að henni hafi verið
beint vegna fyrirhugaðrar uppsagn-
ar Gunnars.
Í bréfinu sem forstjóri FME fékk
boðsent frá stjórn FME 17. þessa
mánaðar er honum kynnt fyrir-
ætlan stjórnar um að segja honum
upp störfum með sex mánaða fyrir-
vara. „Þá er það jafnframt fyrirætl-
an stjórnar að lýsa því yfir að ekki
verði óskað eftir vinnuframlagi
þínu á uppsagnartímanum,“ segir
þar. - óká
Forstjóri FME hótar stjórn stofnunarinnar stjórnsýslukæru og málaferlum:
Miðaldaréttarfar verður aldrei liðið
GUNNAR Þ.
ANDERSEN
FERÐAIÐNAÐUR Sveitarfélagið
Árborg hefur veitt vilyrði fyrir
sex hektara lóð undir nýja verslun-
ar- og þjónustumiðstöð fyrir ferða-
menn á Suðurlandi. Miðstöðin kall-
ast Miðja Suðurlands og á að rísa
við fyrirhuguð gatnamót Suður-
landsvegar og Biskupstungnabraut-
ar þegar hringvegurinn verður
fluttur norðaustur fyrir Selfoss.
Fullbyggð á verslunar- og þjón-
ustumiðstöðin að vera 14 til 18
þúsund fermetrar. Í fyrsta hluta
byggingarinnar er gert ráð fyrir
að reisa fjölorkustöð sem býður
jafnt upp á hefðbundið eldsneyti
sem og þjónustu við farartæki
knúin nýjum orkugjöfum á borð
við metan og rafmagn. Þá á sér-
staklega að huga að þjónustu við
húsbíla og fellihýsi.
Að byggingu Miðju Suðurlands
stendur fyrirtækið Gatnamót ehf.
Í forathugunum þess kemur fram
að alls fari daglega 9.000 bílar um
þennan kafla Suðurlandsvegar. Þá
telji íbúafjöldi svæðisins 50.000
manns ef talin er með sumarhúsa-
byggð á sumrin.
Að sögn Árna Blöndals, eins for-
svarsmanna Gatnamóta, er gert ráð
fyrir að framkvæmdir hefjist við
fyrsta tækifæri. „Við gerðum sam-
starfssamning við Sveitarfélagið
Árborg í janúar og fengum þá vil-
yrði fyrir þeirri lóð sem við hyggj-
umst nýta undir starfsemina,“
segir hann og kveður bæði minni-
hluta og meirihluta í stjórn sveitar-
félagins áfram um að sjá verkefnið
verða að veruleika.
Árni segir að búa eigi til „hlýlegt
og notalegt umhverfi“, en staðsetja
eigi stórverslanir í báðum endum
byggingarinnar. Öðrum megin er
gert ráð fyrir lágvöruverðsversl-
un og hinum megin byggingavöru-
verslun.
Í samgönguáætlun 2011-2022 er
gert ráð fyrir nýjum vegi norðaust-
an Selfoss með nýrri brú á Ölfusá
á árunum 2019 til 2022. Á árunum
2015 til 2018 stendur hins vegar til
að tvöfalda og endurnýja veginn
milli Hveragerðis og Selfoss. Sam-
kvæmt áætluninni gætu nýlegar
upplýsingar um takmarkað burð-
arþol Ölfusárbrúar við Selfoss þó
orðið til að breyta forgangsröðun.
„Því er settur sá fyrirvari að unnt
verði að víxla framkvæmdum á
Suðurlandsvegi í áætlun þessari,“
segir þar.
Árni kveðst hins vegar von-
góður um að hægt verði að hefja
framvæmdir við Miðju Suðurlands
innan fárra ára, en það ráðist svo-
lítið af ákvörðunum á sviði stjórn-
málanna. olikr@frettabladid.is
Þjónustumiðstöð á
nýjum gatnamótum
Bygging verslunar- og þjónustumiðstöðvarinnar Miðja Suðurlands er í undir-
búningi. Byggingin er tengd færslu Suðurlandsvegar norðaustur fyrir Selfoss og
byggingu nýrrar brúar yfir Ölfusá. Árborg hefur lofað lóð undir starfsemina.
STÓRHUGA
ÁÆTLANIR Auk
þjónustu við
bifreiðaeigendur
er gert ráð fyrir
að í Miðju
Suðurlands verði
meðal annars
þjónustumiðstöð
fyrir ferðamenn,
matvöruverslanir,
sérvöruverslanir,
veitingastaðir og
kaffihús, auk
svæðis fyrir margs
konar afþreyingu
fyrir ferðamenn.
MYND/GATNAMÓT EHF.
NÝ GATNAMÓT Rými er við fyrirhuguð gatnamót Suður-
landsvegar, Biskupstungnabrautar og afleggjara niður að
Selfossi. MYND/GATNAMÓT EHF.
GRÍMSNES,
GULLFOSS,
GEYSIR
HVERAGERÐI
SUÐURLAND
LANDEYJAHÖFN
SELFOSSVERSLUNAR- OG ÞJÓNUSTUMIÐSTÖÐ
14.000 - 18.000 m2
BÍLASTÆÐI BÍLASTÆÐI
Hefur þú lært skyndihjálp og
endurlífgun?
Já 74,9%
Nei 25,1%
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Finnst þér fyrirhuguð hækkun
bílastæðagjalds í Reykjavík rétt-
lætanleg?
Segðu þína skoðun á Vísi.is
FÉLAGASAMTÖK Skrifað hefur verið
undir útgáfusamning vegna sögu
Alþýðusambands Íslands (ASÍ)
sem koma á út í tveimur bindum
næsta haust.
Gylfi Arnbjörnsson, forseti
ASÍ, og Egill Örn Jóhannsson,
framkvæmdastjóri Forlagsins,
skrifuðu í gær undir samninginn,
að því er fram kemur á vef ASÍ.
Sumarliði Ísleifsson sagnfræð-
ingur hefur undanfarin fjögur ár
unnið að ritun bókarinnar. Áætl-
aður útgáfudagur verksins er
sagður fyrsti október. - óká
Skrifað undir útgáfusamning:
Saga ASÍ kemur
út í október
NÝR SUÐ
URLAND
SVEGUR
KJÖRKASSINN