Fréttablaðið - 23.02.2012, Page 8
23. febrúar 2012 FIMMTUDAGUR8
SÉRSTAKUR SAKSÓKNARI ÁKÆRIR VEGNA AL THANI-MÁLSINS
Þrír af æðstu stjórnendum
Kaupþings og einn stærsti
eigandi bankans hafa verið
ákærðir vegna meintra
umboðssvika og markaðs-
misnotkunar. Ákæran snýr
að meintum lögbrotum
tengdum kaupum Sheikh
Al Thani á 5% hlut í Kaup-
þingi seinni hluta septem-
ber 2008.
Hreiðar Már Sigurðsson, fyrrver-
andi forstjóri Kaupþings, Sigurð-
ur Einarsson, fyrrum starfandi
stjórnarformaður og formaður
lánanefndar bankans, Ólafur Ólafs-
son, sem átti 9,88% hlut í Kaup-
þingi í gegnum félög í sinni eigu,
og Magnús Guðmundsson, fyrr-
um framkvæmdastjóri Kaupþings
í Lúxemborg, hafa verið ákærðir
fyrir brot gegn almennum hegning-
arlögum og lögum um verðbréfavið-
skipti vegna aðkomu sinnar að svo-
kölluðu Al Thani máli. Sérstakur
saksóknari telur fjórmenningana
hafa framið umboðssvik og mark-
aðsmisnotkun eða átt hlutdeild í
slíkum brotum. Verði þeir fundn-
ir sekir um þau brot sem þeim er
gefið að sök að hafa framið gæti
beðið þeirra allt að sex ára fangelsi.
Í ákærunni, sem er fjórtán blað-
síðna löng, eru þær röksemdir sem
málsóknin er byggð á raktar ítar-
lega. Fréttablaðið hefur ákæruna,
sem er dagsett 16. febrúar 2012,
undir höndum. Enn átti eftir að
birta einhverjum fjórmenninganna
ákæruna í gærmorgun en búist var
við því að það myndi takast þegar
liði á daginn. Stefnt er að því að
þingfesta málið í byrjun mars.
Málið sem ákært er fyrir snýst
um kaup Q Iceland Finance ehf. á
5,01% hlut í Kaupþingi í lok septem-
ber 2008, rúmum tveimur vikum
fyrir bankahrun. Opinberlega var
látið líta út fyrir að Sheikh Moha-
med bin Khalifa Al Thani, skráður
eigandi félagsins, hefði keypt hlut-
inn fyrir samtals tæpa 26 milljarða
króna og að um erlenda fjárfest-
ingu væri að ræða. Eftir fall Kaup-
þings kom hins vegar í ljós að Kaup-
þing hafði fjármagnað kaupin með
því að lána tveimur aflandsfélög-
um, Gerland Trading (í eigu Ólafs
Ólafssonar) og Serval Trading
Group Corp. (í eigu Al Thani), 12,9
milljarða króna hvoru til að fjár-
Kaupþingsstjórar og Ólafur ákærðir
1 Hreiðar Már Sigurðsson er ákærður fyrir umboðssvik. Í ákærunni segir að hann
hafi misnotað aðstöðu sína sem forstjóri
Kaupþings og farið út fyrir heimildir sínar þegar
hann lét bankann veita Brooks Trading Ltd.,
eignalausu félagi með takmarkaða ábyrgð sem
skráð er á Tortola-eyju, peningamarkaðslán
upp á 50 milljónir dala 19. september 2008.
Eigandi félagsins var Sheikh Mohamed bin
Khalifa Al Thani. Magnús Guðmundsson er auk
þess ákærður fyrir hlutdeild í umboðssvikum
Hreiðars Más í þessum kafla.
Umrætt peningamarkaðslán var ekki undirritað,
lánanefnd Kaupþings hafði ekki samþykkt það
og endurgreiðsla þess var ekki tryggð með
neinum hætti samkvæmt ákærunni. Lánsfjár-
hæðin var lögð inn á reikning Al Thani í Kaup-
þingi í Lúxemborg. Lánið var á gjalddaga 30.
september 2008 en var síðar framlengt til 14.
október og loks til 18. nóvember 2008. Hreiðar
Már hætti störfum hjá Kaupþingi í lok dags 21.
október.
Magnúsi er gefið að sök að hafa tekið þátt
í undirbúningi og framkvæmd umboðssvika
Hreiðars Más. Í ákærunni segir að hlutdeild
hans hafi falist „í því að Magnús hafði bæði
milligöngu um samningsviðræður við raun-
verulegan eiganda Brooks Trading Ltd., Sheikh
Mohamed bin Khalifa Al Thani, og um að
útvega félagið sem notað var af hálfu Al Thani
í viðskiptunum“. Magnús á auk þess að hafa
tekið þátt í því með Hreiðari Má að fyrirskipa
starfsmönnum Kaupþings að borga lánið út og
„hlaut honum að vera ljóst að Hreiðari Má brast
heimild til lánveitingarinnar og að lánið var veitt
án nokkurra ábyrgða eða trygginga“.
Lánið til Brooks Trading Ltd. hefur ekki inn-
heimst.
2 Hreiðari Má og Sigurði Einarssyni er gefið að sök að hafa framið
umboðssvik með því að hafa mis-
notað aðstöðu sína þegar þeir fóru út
fyrir heimildir sínar með því að veita
Gerland Assets Ltd., eignalausu félagi
með takmarkaða ábyrgð sem er skráð
á Tortola-eyju, tæpa 12,9 milljarða
króna peningamarkaðslán 29. sept-
ember 2008.
Gerland var í eigu Ólafs Ólafssonar,
eins stærsta eiganda Kaupþings.
Fjárhæðin var síðan millifærð inn á
reikning Choice Stay Ltd., félags sem
var m.a. í eigu Ólafs og í kjölfarið
ráðstafað áfram til Q Iceland Finance
ehf., félags í eigu Al Thani, sem notaði hana til
að greiða fyrir helming upphæðarinnar sem
hann reiddi fram fyrir hlutabréf í Kaupþingi
í september 2008. Lánið var ekki undirritað,
samþykki lánanefndar lá ekki fyrir veitingu þess
og endurgreiðsla var ekki tryggð.
Ólafur er ákærður fyrir hlutdeild í þessum
umboðssvikum, og til vara fyrir peningaþvætti
og hylmingu, fyrir að hafa „ásamt meðákærðu
Hreiðari Má og Sigurði, lagt á ráðin um að
umrætt lán yrði greitt úr sjóðum bankans“.
Lánið til Gerland Assets Ltd. hefur ekki inn-
heimst.
3 Hreiðar Már og Sigurður eru ákærðir fyrir markaðsmisnotkun í viðskiptum með
hlutabréf Kaupþings í september 2008. Ólafur
og Magnús eru ákærðir fyrir hlutdeild í þeirri
markaðsmisnotkun.
Hreiðari Má og Sigurði er gefið að láta
ranglega líta svo út að þekktur fjárfestir frá
Katar, Sheikh Al Thani, „hefði lagt til fé til að
kaupa 5,01% hlutafjár í Kaupþingi […] þegar Q
Iceland Finance ehf., dótturfélag í eigu eignar-
haldsfélags hans Q Iceland Holding ehf., keypti
umræddan hlut af bankanum og leyna fullri
fjármögnun bankans á hlutabréfakaupunum og
aðkomu meðákærða Ólafs að þeim“.
Í ákærunni segir að í þessum tilgangi hafi
verið sett upp viðskiptaflétta sem var fólgin í
því að Kaupþing lánaði Serval Trading Group
Corp, eignalausu félagi í eigu Al Thani skráð
á Tortola-eyju, um 12,9 milljarða króna. Hinn
helmingur kaupverðsins, 12,9 milljarðar króna,
var lánaður til Gerland og þaðan ráðstafað eftir
krókaleiðum til Q Iceland Finance, líkt og lýst er
í öðrum kafla ákærunnar.
Í ákærunni segir að „Hreiðar Már og Sigurður
tóku sameiginlega ákvörðun um hlutabréfa-
viðskiptin og fjármögnun þeirra og gaf ákærði,
Hreiðar Már, starfsmönnum bankans fyrirmæli
um framkvæmd þeirra“. Um hafi verið að ræða
viðskipti sem fólu í sér „blekkingu og sýndar-
mennsku“ og voru líkleg til að gefa misvísandi
upplýsingar um eftirspurn og verð hlutabréfa í
Kaupþingi. Þá hafi full fjármögnun bankans á
viðskiptunum , aðkoma Ólafs að þeim og að
helmingur markaðsáhættu vegna hlutabréf-
anna hvíldi enn á bankanum verið dulin.
Hlutdeild Magnúsar og Ólafs er m.a. skýrð
með því að þeir hafi átt „milligöngu um að
koma viðskiptunum á og áttu samskipti“ við Al
Thani. Þá hafi þeir báðir komið að undirbúningi
viðskiptafléttunnar auk þess sem Magnús hefði
komið að framkvæmd hennar og Ólafur að fjár-
mögnun hennar.
4 Í þessum kafla eru allir fjórir mennirnir ákærðir fyrir markaðsmisnotkun með
því að hafa „í september 2009, í fréttatilkynn-
ingu sem birt var á vef Kauphallar Íslands og
viðtölum við fjölmiðla í kjölfarið, dreift fréttum
og upplýsingum sem hver fyrir sig og í heild
gáfu eða voru líklegar til að gefa misvísandi
upplýsingar og vísbendingar“ um kaup á 5,01%
hlut í Kaupþingi í september 2008. Gefið hafi
verið í skyn að fjármagn væri að koma inn í
bankann með viðskiptunum og að gefið hafi
verið til kynna að Al Thani stæði einn að við-
skiptunum en aðkomu Ólafs að þeim leynt.
Í ákærunni segir að upplýsingarnar hafi gefið
„til kynna að bankinn nyti mikils trausts virts
erlends fjárfestis sem væri tilbúinn að verja
miklu fé til að fjárfesta í hlutabréfum hans.
Upplýsingarnar voru til þess fallnar að hafa
áhrif á ákvarðanir varðandi viðskipti
með hlutabréf bankans“.
Í ákærunni er síðan talin upp frétta-
tilkynning vegna viðskiptanna sem send
var að morgni 22. september 2008, fimm
ummæli sem Hreiðar Már lét falla um
kaupin í fjölmiðlum 22.-23. september,
tvenn ummæli sem Ólafur lét falla í fjöl-
miðlum 23. september 2008 og ein ummæli
sem Sigurður lét falla í fjölmiðli 23. september
2008. Öll eiga ummælin það sameiginlegt að
þau eru látin falla í þeim tilgangi að láta líta út
fyrir að Al Thani hefði raunverulega keypt hluti í
bankanum, væri að gera það með erlendri fjár-
festingu og að kaupin styrktu bankann.
Kaflar ákærunnar:
19. SEPTEMBER 2008
Kaupþing lánar Brooks Trading, í
eigu Al Thani, 50 milljónir Banda-
ríkjadala.
22. SEPTEMBER
Tilkynnt um kaup Al Thani á
5,01% hlut í Kaupþingi fyrir tæpa
26 milljarða króna.
29. SEPTEMBER
12,9 milljarða króna lán til Ger-
land Assets Ltd. og 12,9 milljarða
króna lán til Serval Trading Group
Corp. greidd út. Í kjölfarið voru
greiddir tæplega 26 milljarðar
króna fyrir kaupin á 5,01% hlut
í Kaupþingi sem látið var líta út
fyrir að Sheikh Al Thani væri að
kaupa.
8. OKTÓBER
Lánið til Brooks Trading flutt heim
til Íslands og umbreytt í íslenskar
krónur á tvöföldu gengi Seðla-
bankans. Krónurnar notaðar til að
greiða niður lán sem Al Thani var
í persónulegum ábyrgðum fyrir.
Við það losnaði um ábyrgðirnar.
9. OKTÓBER
Kaupþing fellur og
Fjármálaeftirlitið tekur
yfir bankann.
13. MARS 2009
Rannsókn á kaupum Al Thani á
hlut í Kaupþingi og þeirri fléttu
sem sett var á fót vegna þeirra
kaupa er vísað frá FME, sem hafði
rannsakað málið um tíma, til
embættis sérstaks saksóknara.
7. MAÍ 2010
Hreiðar Már og Magnús hand-
teknir vegna rannsóknar á
starfsemi Kaupþings fyrir
bankahrun. Þeir eru síðar um
daginn úrskurðaðir í gæsluvarð-
hald á grundvelli rannsóknarhags-
muna. Í gæsluvarðhaldsúrskurði
Magnúsar kemur fram að eitt
þeirra mála sem verið sé að rann-
saka séu kaup Al Thani á bréfum
í Kaupþingi og sú flétta sem sett
var á svið í kringum þau kaup.
16. FEBRÚAR 2012
Gefin út ákæra á hendur Hreiðari
Má Sigurðssyni, Sigurði Einars-
syni, Magnúsi Guðmundssyni og
Ólafi Ólafssyni í Al Thani-málinu.
TÍMALÍNA
Al Thani-málsins
Hörður Felix Harðarson, verjandi Hreiðars Más Sigurðssonar,
segir að ákæran á hendur fjórmenningunum séu vonbrigði.
„Það hefur verið látið í það skína í fjölmiðlaumræðu að
þessi viðskipti hafi verið ein allsherjar sýndarviðskipti, en við
rannsókn málsins var upplýst að svo var ekki,“ sagði hann
við fréttastofu Stöðvar 2 og Vísis í gær. „Kaupandi hlutabréf-
anna bar mikla fjárhagslega áhættu af þessum viðskiptum,
og þau byggðu á eðlilegum forsendum. Þess vegna eru það
vonbrigði að málið sé komið í þennan farveg.“
- sh
Al-Thani tók mikla áhættu
„Ég hafna alfarið ásökunum sérstaks saksóknara og lýsi mig saklausan af þeim
öllum,“ segir Ólafur Ólafsson í yfirlýsingu til fjölmiðla í gær.
Í yfirlýsingunni segir Ólafur að Sheikh Al Thani hafi staðfest við sérstakan
saksóknara að hann hafi einn staðið að kaupunum og hann hafi því vonað að
rúmlega þriggja ára rannsókn „með tilheyrandi skoðun bankagagna á Íslandi
og erlendis, símhlerunum, yfirheyrslum, húsleit á skrifstofum, í íbúðarhúsum,
hesthúsi og verkfærageymslu“ myndi leiða í ljós að hann hefði engin lög brotið.
Ákæran komi honum því mjög á óvart.
Þá segir hann allar vangaveltur í ákærunni um að hann hafi getað hagnast á
viðskiptunum rangar. - sh
Leitað í hesthúsi og verkfærageymslu
magna kaupin. Til viðbótar lánaði
Kaupþing á sama tíma öðru félagi
í eigu Al Thani, Brooks Trading
Ltd. 50 milljónir dala. Stjórnendur
Kaupþings hafa sagt opinberlega
að lánið hafið verið til að kaupa
skuldatryggingar á bankann, en
álag þeirra var á þeim tíma orðið
mjög hátt.
Al Thani var í persónulegum
ábyrgðum fyrir láninu til Serval.
Í ákærunni kemur fram að eftir
hádegi þann 8. október 2008, dag-
inn áður en Kaupþing féll, hafi láns-
féð sem Brooks Trading fékk lánað
verið „ráðstafað í flýti til Íslands
þar sem því var umbreytt í íslensk-
ar krónur á genginu 256 krón-
ur fyrir hvern Bandaríkjadal og
andvirðið notað til að endurgreiða
bróðurpartinn af láni bankans til
félagsins Serval“. Við það voru 12,8
milljarðar króna af tæplega 12,9
milljarða láni Serval greiddir upp.
Þennan dag fengust 127 íslenskar
krónur fyrir hvern Bandaríkja-
dal hjá Seðlabanka Íslands og því
ljóst að Kaupþing umbreytti láni
Brooks Trading á rúmlega tvö-
földu því gengi. Í ákærunni segir
að „Al Thani hafði gengist í pers-
ónulega ábyrgð á láni Kaupþings til
Serval, en sem fyrr segir var lánið
til Brooks Trading veitt án ábyrgða
og trygginga. Á endanum stóð
Kaupþing því uppi með ótryggða
kröfu á hendur eignalausu félagi,
þ.e. Brooks, en krafa á Serval,
sem tryggð var með persónulegri
ábyrgð, hafði verið greidd niður
með lánsfé bankans til Brooks“.
2008
2009
2010
2012
Þórður Snær
Júlíusson
thordur@fréttabladid.is
HINIR ÁKÆRÐU Sérstakur saksóknari hefur ákært þá Hreiðar Má Sigurðsson, Magnús Guðmundsson, Sigurð Einarsson og Ólaf
Ólafsson vegna meintra umboðssvika og markaðsmisnotkunar. Allt að sex ára fangelsi bíður þeirra ef þeir verða sakfelldir.