Fréttablaðið - 23.02.2012, Qupperneq 16
23. febrúar 2012 FIMMTUDAGUR16 16
hagur heimilanna
Hollustumerkið Skráargatið
verður tekið upp á Íslandi
á næstunni. Þar með eiga
neytendur að geta gengið
að því vísu að matvæli sem
merkt eru með þessu merki
uppfylli þá kröfu að vera
hollust í sínum flokki. Myll-
an hefur beðið spennt eftir
þessari leið til þess að koma
á framfæri hollum vörum
sínum, að sögn Iðunnar
Geirsdóttur, matvælafræð-
ings hjá fyrirtækinu.
Skráargatið, sem er eitt elsta holl-
ustumerkið í Evrópu, var tekið
upp í Svíþjóð 1989. Fyrir þremur
árum gengu Danir og Norðmenn
til samstarfs við Svía um merkið.
Vegna samstarfsins þurfti að taka
tillit til ýmissa nýrra matvæla og
ólíkra neysluvenja. Breyta varð
bæði skilyrðunum og matvæla-
flokkunum til þess að kerfið hent-
aði betur stærri og fjölbreyttari
hópi neytenda. Mögulega leggja
Íslendingar fram óskir og/eða
kröfur varðandi endurskoðun á
matvælaflokkum og/eða skilyrð-
um fyrir Skráargatinu.
Alls eru nú skilgreindir á
þriðja tug matvælaflokka sem
geta notað Skráargatið og til ein-
földunar hafa þeir verið dregnir
saman í níu hópa, það er mjólk og
mjólkurvörur, fita og olíur, kjöt
og kjötvörur, fiskur og fiskafurð-
ir, tilbúnir réttir, brauð og korn-
vörur, ávextir og grænmeti.
Sem dæmi um skilyrði má
nefna að mjólk og sýrðar mjólk-
urvörur án viðbættra bragðefna
mega ekki innihalda meira magn
af fitu en 0,7 g í hverjum 100 g
vörunnar. Heildarsykurmagn í
sýrðum mjólkurvörum með við-
bættum bragðefnum verður að
vera undir 9 g í 100 g. MS hefur
þegar merkt Skyr.is drykki með
Skráargatinu þó svo að hollustu-
merkið hafi ekki enn verið tekið
formlega í notkun.
Brauð má ekki innihalda meira
en 7 g af fitu og ekki meira en
0,5 g af salti í hverjum 100 g. Hins
vegar þarf brauð að innihalda að
minnsta kosti 5 g af trefjum í
hverjum 100 g.
Iðunn Geirsdóttir, matvæla-
fræðingur hjá Myllunni, segir
fyrirtækið þegar með á markaði
sjö brauðtegundir sem uppfylla
skilyrði Skráargatsins. „Það eru
Eyrarbrauð, nýja brauðið Lífs-
korn, tvær tegundir af maltbrauði,
danskt rúgbrauð og speltbrauð.
Við eigum eftir að draga úr salt-
magni í fleiri tegundum af rúg-
brauði en við stöndum vel hvað
varðar viðmið um magn trefja,
fitu og sykurs í þeim,“ segir Iðunn.
Hún getur þess að gerð sé krafa
um að 25 prósent af mjölinu séu
heilkorn en heilkorn er heilt fræ
korntegundar (kím, fræhvíta
og klíð). „Heilkorn getur verið
kornið sjálft eða heilmalað korn.
Fræ eins og hörfræ og sólkjarnar
flokkast ekki undir heilkorn þótt
þau séu líka afar holl. Heilkorna-
skilgreiningin segir ekki alla sög-
una.“
Að sögn matvælafræðingsins
hefur Myllan beðið lengi eftir leið-
um til þess að koma á framfæri
hollum vörum sínum á sýnileg-
an hátt. „Við erum ánægð með að
Skráargatið hafi verið samþykkt
en munum bíða með að merkja
vörurnar þar til Matvælastofnun
hefur sett formlega umgjörð utan
um þetta.“
ibs@frettabladid.is
Vara merkt Skráar-
gatinu er hollust í
sínum flokki
Í MYLLUNNI Til þess að mega bera Skráargatið má brauð ekki innihalda meira en
7 g af fitu og 0,5 g af salti í hverjum 100 g. Innihald trefja verður að vera að minnsta
kosti 5 g í hverjum 100 g. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
GÓÐ HÚSRÁÐ
Viðbrenndir pottar
Í stað þess að henda potti má láta
reyna á húsráð sér til bjargar.
Því hefur til dæmis verið fleygt að
lyftiduft kunni að koma að notum
í aðstæðum þar sem kolsvartar
viðbrenndar matarleifar eru eins og
límdar í botninn á pottinum. Þá er
sett í pottinn eins og ein matskeið
af lyftidufti, eða matarsóda, og góð
botnfylli af vatni. Þetta er svo látið
sjóða upp og eiga þá matarafgang-
arnir og sótið að losna upp af botn-
inum. Annar kostur mun svo vera að
setja skvettu af uppþvottavélardufti
í botnfylli af vatni í potti sem svona
er fyrir komið og láta liggja í 15 til
20 mínútur. Eftir það á að nægja að
skola óhreinindin burt. - óká
EFNAHAGSMÁL Laun landsmanna
stóðu í stað í janúar frá mán-
uðinum á undan. Þetta leiðir
launavísitala Hagstofu Íslands í
ljós en gildi hennar fyrir janúar-
mánuð var birt í gær.
Kaupmáttur launþega minnkaði
því um 0,3% í mánuðinum þar sem
vísitala neysluverðs hækkaði um
0,3%. Er janúar þar með annar
mánuðurinn í röð þar sem kaup-
máttur lækkar en hann lækkaði
um 0,1% í desember. Á síðustu tólf
mánuðum hefur kaupmáttur launa
þrátt fyrir þetta aukist um 2,5%.
Fram kemur í Morgunkorni
greiningardeildar Íslandsbanka
að búast megi við nokkurri hækk-
un á kaupmætti í febrúar vegna
þeirra kjarasamningsbundnu
hækkana sem tóku gildi um síð-
ustu mánaðamót. Laun flestra á
almennum markaði hækkuðu um
3,5%.
Vísitala kaupmáttar launa
stendur nú í 110,8 stigum og hefur
hækkað um rúmlega 6,4% frá því
að hún náði sínu lægsta gildi í maí
árið 2010. Kaupmáttur er þó enn
talsvert minni en þegar hann var
mestur fyrir hrun í janúar 2008.
Nemur munurinn 7,8%. - mþl
Gert ráð fyrir kaupmáttaraukningu í febrúar:
Kaupmáttur örlítið dregist saman
KAUPMÁTTUR Greiningardeild Íslands-
banka á von á því að kaupmáttur launa
hafi aukist nokkuð í febrúar vegna
kjarasamningsbundinna launahækkana.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Danska matvælastofnunin hefur bannað framleiðendum að nota orðið ofur-
ávexti, það er að segja superfrugter, superfruit eða powerfruit, á umbúðir
ávaxtadrykkja. Framleiðendurnir eru ósammála stofnuninni um að orðin séu
villandi. Þeir segja að hollusta ávaxtanna réttlæti nafnið sem þeim er gefið.
Matvælastofnunin í Danmörku segir að ekki hafi verið sannað að um ofurávexti
sé að ræða. Sumir framleiðendanna segjast nú hafa selt þessar vörur sínar
til annarra landa þar sem menn hafi ekki áhyggjur af fyrrgreindum nöfnum á
drykkjunum.
■ Matvæli
Bannað að kalla ávexti ofurávexti
Norskir vísindamenn hafa þróað aðferð til þess að fjarlægja meirihluta krabba-
meinsvaldandi efnis, akrýlamíðs, úr kartöflum sem á að steikja. Efnið finnst ekki
í matvælum sem eru framleidd eða elduð við suðuhitastig, heldur myndast
það í mestu magni í kolvetnaríkum matvælum sem eru hituð mikið. Hefur það
fundist í kartöfluflögum, steiktum kartöflum, djúpsteiktum kartöflum, hrökk-
brauði, kexi og smákökum.
■ Matvæli
Fjarlægja krabbameinsmyndandi efni
418
KRÓNUR var meðalverðið á einu kílói af agúrkum í nóvember sam-
kvæmt mælingu Hagstofu Íslands. Verðið hefur ríflega tvöfaldast frá
árinu 2005 þegar kílóverðið var 194 krónur að meðaltali.