Fréttablaðið - 23.02.2012, Page 20

Fréttablaðið - 23.02.2012, Page 20
20 23. febrúar 2012 FIMMTUDAGUR FRÁ DEGI TIL DAGS greinar@frettabladid.is ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI OG ÚTGÁFUSTJÓRI: Ari Edwald RITSTJÓRI: Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Steinunn Stefánsdóttir steinunn@frettabladid.is Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Issn 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík SÍMI: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir arndis@frettabladid.is, Kristján Hjálmarsson, kristjan@frettabladid.is Trausti Hafliðason trausti@frettabladid.is og Atli Fannar Bjarkason (dægurmál) atlifannar@frettabladid.is HELGAREFNI: Sigríður Björg Tómasdóttir, ritstjórnarfulltrúi, sigridur@frettabladid.is MENNING: Bergsteinn Sigurðsson bergsteinn@frettabladid.is ALLT OG SÉRBLÖÐ: Roald Eyvindsson roald@frettabladid.is og Sólveig Gísladóttir solveig@frettabladid.is ÍÞRÓTTIR: Sigurður Elvar Þórólfsson seth@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Kolbrún Ingibergsdóttir kolbrun@frettabladid.is HALLDÓR Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is SKOÐUN Einkenni núverandi heimskreppu er erfið skuldastaða einstakra ríkja. Ekki er hægt að tengja kreppuna evr- unni, heldur frekar að ákveðin ríki í Evrópu standa frammi fyrir erfiðleik- um meðal annars vegna óráðsíu í rekstri og skuldasöfnunar, aðgerða til bjargar bankakerfi, og verðhækkana á eignum knúðum áfram af útlánaglöðum bönkum. Þá var þess ekki gætt að halda í sam- keppnishæfni í alþjóðavæddum viðskipta- heimi. Þetta þekkja Grikkir, Spánverjar og Ítalir. Kreppan hefur á hinn bóginn sýnt fram á marga kosti myntsamstarfsins. Í fyrsta lagi hefur sameiginleg mynt komið í veg fyrir að einstök ríki bregðist við sam- drætti með því að setja upp hindranir eða höft í viðskiptum sín á milli. Í öðru lagi kemur evran í veg fyrir að hægt sé að gengisfella myntir einstakra landa til að styrkja framleiðslu innanlands. Þess- lags úrræði hafa í för með sér gríðarlega kjaraskerðingu neytenda, verðbólgu og skuldasöfnun og gengur því þvert gegn hagsmunum almennings til lengri tíma. Í þriðja lagi hefur evran gert sameigin- legar aðgerðir mögulegar, þó að slík samstilling hafi tekið tíma og ekki verið þrautalaus. Þannig hefur evran í raun mildað áhrif alvarlegrar heimskreppu, samhæft aðgerðir og komið í veg fyrir höft, viðskiptahindranir og gengisfell- ingar. Vissulega hefur kreppan leitt fram galla á evrusamstarfinu. Mikil vinna hefur verið lögð í að taka á þeim vanda- málum. Allt eftirlit hefur verið bætt, aukin samvinna er um stjórn fjármála ríkjanna og alþjóðlegt aðhald aukið. Evran er því sterkari eftir kreppu en fyrir kreppu og verður áfram áhugaverð- ur kostur fyrir Íslendinga. Nánara sam- starf um stjórn ríkisfjármála er ákjós- anlegt fyrir Íslendinga sem hafa góða reynslu af utanaðkomandi aga á ríkisfjár- mál. Samþykki þjóðin aðild að ESB getur hún strax gengið inn í ERM2 samstarfið og um leið tengt krónu við gengi evru með stuðningi evrópska seðlabankans. Þannig næst jafnvægi í gengið og möguleiki gefst til afnáms hafta. Evran er ákjósanleg fyrir heimili og fyrirtæki á Íslandi sem vilja stöðugleika, minni verðbólgu, lægri vexti og afnám verðtryggingar. Raun- verulegar kjarabætur fyrir íslensk heim- ili felast í upptöku nýrrar myntar. Skulda- eða evrukreppa? ESB-aðild Magnús Orri Schram alþingismaður S jö fyrirtæki sem eru beint eða óbeint, að hluta eða í heild í eigu Landsbankans verða skráð í Kauphöll Íslands á næstu misserum, eins og Fréttablaðið sagði frá í gær. Þá hefur Steinþór Pálsson, forstjóri bankans, sagt að hugsanlegt sé að bankinn sjálfur verði skráður á markað á þessu ári og þá væntanlega minnihluti í honum seldur. Landsbankinn er í meirihlutaeigu ríkisins og því óhætt að tala um að framundan sé mesta einkavæðing Íslandssögunnar, en um leið hægt að fullyrða að með því að ríkið fékk bankann í fangið og hann fyrirtækin hafi átt sér stað einhver mesta ríkisvæðing eða þjóðnýting Íslandssögunnar. Það er af ýmsum ástæðum fagnaðarefni að til stendur að skrá þessi fyrirtæki á hluta- bréfamarkað og í því geta falizt ótal tækifæri. Í fyrsta lagi er þannig undið ofan af þeirri afar óheilbrigðu stöðu að fjöldi stórra fyrirtækja á samkeppnismarkaði hafi verið í eigu bankanna (og í þessu til- viki í óbeinni eigu ríkisins). Það hefur skekkt samkeppnisstöðuna á viðkomandi mörkuðum og sett keppinautana í klemmu. Of hægt hefur gengið að renna fyrirtækjum úr mjúkum faðmi bankanna. Í öðru lagi skiptir miklu máli að fyrirtækin séu skráð á hluta- bréfamarkað til þess að sala þeirra sé gegnsæ og menn geti forðazt tortryggni og ásakanir um einkavinavæðingu eða spillingu. Í þriðja lagi mun skráning þessara félaga í Kauphöllina efla hlutabréfamarkaðinn, sem þarf nauðsynlega að ná sér á strik á nýjan leik eftir hrun. Virkur hlutabréfamarkaður er nauðsynlegur til að bæta aðgang fyrirtækja að fé og fjölga möguleikum almenn- ings og fagfjárfesta til að ávaxta fé sitt. Alltof mikið af peningum liggur nú í bankainnistæðum á lágum vöxtum eða í ríkisskulda- bréfum og gerir lítið gagn í atvinnulífinu. Í fjórða lagi fá lífeyrissjóðirnir með eflingu hlutabréfamark- aðarins ný tækifæri til að ávaxta fé sjóðsfélaga og dreifa áhættu sinni. En þeir fá líka tækifæri til að beita sér í þágu þroska og siðvæðingar markaðarins; tækifæri sem þeir létu sér úr greipum ganga fyrir hrun. Páll Harðarson forstjóri Kauphallarinnar hvatti forsvarsmenn lífeyrissjóðanna á síðasta ársþingi landssamtaka þeirra til að vera virkari á hlutabréfamarkaðnum og aðhalds- samari gagnvart félögum sem þeir fjárfesta í; ganga til dæmis fastar eftir því að stjórnarhættir fyrirtækja séu í lagi og ekki tekin óhófleg áhætta. Með því að grípa þetta tækifæri myndu lífeyrissjóðirnir stuðla að heilbrigðum hlutabréfamarkaði, þar sem mistök fortíðarinnar yrðu ekki endurtekin, og fengju um leið færi á að bregðast við hluta af þeirri gagnrýni, sem að þeim var beint í úttektarskýrsl- unni á dögunum. Endurreisn hlutabréfamarkaðarins hefur farið vel af stað. Hagar, sem voru fyrsta fyrirtækið sem skráð var í Kauphöllina eftir hrun, hafa hækkað í verði um fimmtung og fjárfestar þannig fengið ágæta ávöxtun nú þegar. Það skiptir þó máli að stilla vænt- ingum í hóf og gæta þess að hjarðhegðun útrásartímans, þar sem jafnvel afleitar fréttir af fyrirtækjum virtust ekki geta komið í veg fyrir að þau héldu áfram að hækka í verði, verði ekki endurtekin. Mörg fyrirtæki á leið á hlutabréfamarkað: Ótal tækifæri Krónulaust Ísland eftir 5 ár Leiðin að upptöku evrunnar VILHJÁLMUR ÞORSTEINSSON, frumkvöðull og fjárfestir. Hvað kostar krónan íslensk heimili? ÓLAFUR DARRI ANDRASON, hagfræðingur ASÍ. Fundarstjóri er MARGRÉT ARNARDÓTTIR, verkfræðingur. Fundurinn verður haldinn í dag, fimmtudaginn 23. febrúar kl. 20, að Skipholti 50A, 2. hæð. A l l i r v e l k o m n i r. Ljóst Gunnar Þ. Andersen fékk upp- sagnarbréf á föstudaginn frá stjórn Fjármálaeftirlitsins. Bréfið, sem var birt opinberlega í gær, er býsna afdráttarlaust. Þar segir berum orðum að stjórnin hafi komist að þeirri niður- stöðu að borin von væri að semja um málalyktir við Gunnar. Þar sem það væri orðið ljóst að hann væri ekki samstarfsfús og bullandi vanhæfur í þokkabót yrði honum sagt upp og ekki óskað eftir vinnuframlagi hans á uppsagnartíma. Orðið „ljóst“ kemur raunar fjórum sinnum fyrir í þessu eða svipuðu samhengi í bréfinu, sem þó er innan við síða að lengd. Rekinn Málið lá með öðrum orðum mjög ljóst fyrir og skilaboð bréfsins eru eins skýr öllu læsu fólki og orðið getur: Þú, Gunnar Andersen, ert rekinn og því fær ekkert breytt – en við verðum samt að leyfa þér að skila and- mælum. Villandi Aðalsteinn Leifsson, stjórnarformaður FME, lagði annan og einkennilegri skilning í bréfið ef marka má yfirlýs- ingar hans í fjölmiðlum eftir að málið kvisaðist út. „Það hefur ekki verið tekin ákvörðun um að segja Gunnari upp störfum og ég veit ekki hvort sú ákvörðun verði tekin,“ sagði hann við Fréttablaðið. Þetta er í besta falli villandi hártogun hjá stjórnarformanninum, sem rak forstjórann einmitt fyrir að villa um fyrir sér. stigur@frettabladid.is

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.