Fréttablaðið - 23.02.2012, Qupperneq 27
Kynning - Auglýsing
FJÖLDI ANNARRA FERÐA
Í BOÐI
Trans-Atlantic býður einnig fjölda
annarra ferða, allt frá borgar-
ferðum og sólarferðum til ýmissa
valinna sérferða. Hér er hægt að
sjá nokkrar þeirra en nánari upp-
lýsingar um allar ferðir er að finna
á vefsíðunni www.transatlantic.is.
ÆVINTÝRAFERÐ Á
SLÓÐIR MAYA
2.-15. NÓV. 2012
Tveggja landa sérferð til Mexíkó
og Guatemala. Þessi ferð veitir
einstaka innsýn inn í hinn forna
menningarheim Maya indíána.
Stórkostleg náttúra og fjölbreytt
dýralíf ásamt töfrandi regn-
skógarsvæðum. Heimsókn í
afskekkt þorp Maya til að kynnast
menningu þeirra, handverki og
daglegu lífi. Einstök ferð sem
mun lifa í minningunni um
ókomin ár.
ALBANÍA VEGAMÓT
SÖGUNNAR
28. SEPT. -08. OKT. 2012
Ferðamenn kynnast ævafornri
menningu og upplifa söguna
á hverju horni. Sjá ótrúlega
fagurt landslag og kynnast
alveg einstaklega viðkunnan-
legu heimafólki sem á alltaf
bros handa ferðalöngum. Land
Móður Theresu er fyrst núna að
opnast og einstakt tækifæri hér
á ferðinni til að kynnast einum
mest spennandi áfangastöðum
og perlum Evrópu með því að
heimsækja Albaníu.
Trans-Atlantic hefur hefur skipulagt ferðir til Mexíkó frá árinu 2005 og flutt þúsund-ir manna. Starfsfólk ferðaskrifstof unnar
hefur því viðamikla þekkingu á svæðinu. Í ár
skipuleggur ferðaskrifstofan ferðir á Yucatan-
skagann (sjá að neðan). Skaginn er í suð-
austurhluta Mexíkó og eitt vinsælasta ferða-
mannasvæði í Mexíkó. Með fallegasta svæð-
inu er strandlengjan Riviera Maya en stærsti
bærinn þar heitir Playa Del Carmen.
Viva Vyndham Maya er fjögurra stjörnu
hótelsvæði í bænum þar sem allt er innifalið
og ferðalangar þurfa ekki að taka upp veskið.
Hótelið er spennandi fyrir alla aldurshópa,
unga sem aldna. Þar er boðið upp á mikla af-
þreyingu, til dæmis stórar sýningar á hverju
kvöldi. Þá er boðið upp á sérstaka dagskrá fyrir
börnin.
Svæðið býður upp á heilmikil ævintýri,
pálmatré, hvítar strendur og kristaltæran
sjó. Fjölmargt er að sjá, Maya pýramída, forn
Maya þorp, frumskóg, tær lón, skemmtigarða,
eyjar, þjóðgarða með fjölbreyttri dýraflóru
og neðanjarðarhellum. Er þetta aðeins hluti
af fjölmörgu í þessu stórbrotna umhverfi sem
heillar ferðamanninn. Rétt utan við ströndina
er svo næststærsta kóralrif heims með öllum
sínum litaafbrigðum og ótrúlegum fjölda
fiska í öllum regnbogans litum. Betri staður til
köfunar eða til að snorkla er vandfundinn.
Mexíkó allt árið um kring
Ferðaskrifstofan Trans-Atlantic býður ferðir allt árið til Mexíkó. Til dæmis lúxusferðir á Viva Vyndham Maya hótelið
við bæinn Playa Del Carmen á Yucatan-skaga, þar sem allt er innifalið og ævintýraferð á slóðir Maya-indíána til
Mexíkó og Gvatemala í nóvember. Þá getur fólk einnig bókað ferðir hvenær sem er og verið eins lengi og það vill.
Strandlengjan Riviera Maya er með fallegasta svæðinu á Yucatan-skaga. Þar eru hvítar strendur og kristaltær sjór. Rétt utan við ströndin er næststærsta kóralrif heims.
ALLT INNIFALIÐ Í ÖLLUM FERÐUM
Fjórar ferðir á Viva Vyndham Maya hótelið hafa þegar verið skipulagðar.
7.-19. júní
22. júlí-3. ágúst
12.-24. ágúst
12.-25. október
1. Matur.
2. Sértækir veitingastaðir reknir á
hótelsvæðinu í allar máltíðir.
3. Ótakmarkaðir drykkir.
4. Snakk allan sólarhringinn.
5. Ávextir og drykkir.
6. Kokteill við komu.
7. Heilsufæði sé þess óskað.
8. Öryggishólf í herbergi.
9. Straujárn og borð í herbergi.
10. Tónlistarstöðvar í herbergi.
11. Herbergjaþrif daglega.
12. Skipulagt viðburðaprógram.
13. Sundlauga- og strandleikir.
14. Þemakvöld, partí og kvöld-
matur.
15. Lifandi tónlist.
16. Danstímar.
17. Danskeppni með verðlaunum.
18. Alþjóðlegt lið skemmtikrafta.
19. Líkamsrækt með þjálfara.
20. Matreiðslutímar.
21. Kennslutímar í gerð kokteila.
22. Förðunartímar.
23. Stólar og handklæði við
ströndina og sundlaugina.
24. Vikulegur handverksmarkaður.
25. Seglbretti með hópkennslu.
26. Siglingar með hópkennslu.
27. Kanó eða kajak.
28. Kennslutími í köfun.
29. Vatnapóló.
30. Vatnaleikfimi.
31. Tennis með ókeypis hóp-
kennslu.
32. Fótbolti.
33. Eróbik.
34. Teygjuæfingar.
35. Bogfimi með ókeypis hóp-
kennslu.
36. Reiðhjól til afnota.
37. Boogie bretti.
38. Strand- og sundlaugablak.
39. Bocce-bolti á ströndinni.
Verðdæmi 7.- 19. júní
Verð á mann 2 í herbergi 289.510 kr.
Verð á mann miðað við 2 fullorðna og
2 börn 7-12 ára 249.800 krónur.
Verð á mann miðað við 2 fullorðna og
2 börn 2-6 ára 241.605 krónur.
Innifalið: Flug, skattar, gisting í
Mexíkó/Allt innifalið og 1 nótt í NY,
rúta til og frá flugvelli, íslenskur farar-
stjóri.
SRÍ LANKA EYJAN FALLEGA
5.-17. OKT. 2012
Einstök ferð á slóðir dulúðar, ótrúlegrar
náttúru, landið sem í arabísku sögunum
Þúsund og ein nótt segir frá að Sinbað
sæfari hafi farið til. Komdu í spennandi
ferð á sömu slóðir og Marco Polo sem
taldi að eyjan væri hin jarðneska Paradís.
RIGA Í LETTLANDI
25.-28. OKT. 2012
Hvort sem það er menningin, söfn,
fallegar byggingar, lystigarðar, tón-
listarviðburðir eða úrval verslana með
allt það nýjasta á góðu verði þá
finnur þú það í Riga. Röltu um gamla
bæinn frá miðöldum, skoðaðu Art
Noveau byggingarstílinn, prófaðu
eitthvað gott og framandi að borða og
njóttu þess að vera í umhverfi þar sem
gamlir og nýir tímar mætast.
ÍTALÍA RÓM OG FLÓRENS
Í ágúst og september
Yndisleg og áhugaverð ferð þar
sem tvinnast saman skoðunarferð
um Flórens og svo nokkrir dagar í
Rómarborg, borginni eilífu. Ítölsk
matar- og vínmenning í einstaklega
fallegu umhverfi, ríkuleg menn-
ing og iðandi mannlíf. Ítarlegar
skoðunarferðir innifaldar.
Nánari upplýsingar á www.transatlantic.is og í síma 588-8900
Beint flug frá Kefl
avík
www.transatlantic.is
28. júní- 6. júlí.
Tvær af glæsilegustu
borgum Evrópu