Fréttablaðið - 23.02.2012, Síða 36

Fréttablaðið - 23.02.2012, Síða 36
23. febrúar 2012 FIMMTUDAGUR28 BAKÞANKAR Friðriku Benónýs 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 krossgáta ■ Pondus Eftir Frode Øverli ■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman ■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes ■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman LÁRÉTT 2. íþrótt, 6. hvort, 8. þvottur, 9. farvegur, 11. kringum, 12. laust bit, 14. enn lengur, 16. strit, 17. þjálfa, 18. almætti, 20. persónufornafn, 21. ögn. LÓÐRÉTT 1. klöpp, 3. pot, 4. reiðufé, 5. fát, 7. fáskiptinn, 10. gras, 13. frjó, 15. kviður, 16. siða, 19. tveir eins. LAUSN LÁRÉTT: 2. golf, 6. ef, 8. tau, 9. rás, 11. um, 12. glefs, 14. áfram, 16. at, 17. æfa, 18. guð, 20. ég, 21. arða. LÓÐRÉTT: 1. berg, 3. ot, 4. lausafé, 5. fum, 7. fálátur, 10. sef, 13. fræ, 15. magi, 16. aga, 19. ðð. Nei... komdu sæl Erna! Það eru ár og dagar síðan síðast! Sæl Beate! Og þú ert með litla með þér, sé ég! Jájá einmitt, gaman að hjálpa mömmu að versla! Hvað heitir þú litli vinur? Emma! Og ég fylgdi þessu eftir með því að segja „Jáhá, þú ert mjög lík mömmu“! Beate! Svona mikið klúður krefst einstakra hæfileika! Ég er stoltur af þér! Hvernig ertu búin að hafa það, Sara? Gott Ég sakna þín og vildi að þú myndir bjóða mér út aftur. Hvernig hefur þú haft það. Gott Ég sakna þín og vildi að þú myndir bjóða mér út aftur. Ég ætti að drífa mig. Ég líka. Þetta er vonlaust. Opnar bráðleg a Hvernig gengur með skiltið? Kannski ættum við að fara í almennilegt ferðalag með börnin í sumar. Já... Æji, gleymum þessu. Úff! Og þetta var bara það sem við sáum fyrir okkur. Ég hef aldrei kosið í alþingiskosningum. Hefur aldrei verið boðið upp á valkost sem ég felli mig við. Geri mér grein fyrir því að kosningarétturinn er mikils virði en finnst sú hugmynd að kjósa flokk, sem hefur alls kyns mál sem ég sætti mig ekki við á stefnuskránni, ógeðfelld. Það væri svona álíka og að deita mann sem ég væri ekkert skotin í, bara til að deita. Sú til- hugsun höfðar ekki til mín og ég sit heima. Tek ekki þátt í leitinni að þeim rétta. ÞESSI samlíking er ekki eins mikið út í hött og ætla mætti. Utan frá séð virðist hegðun margra íslenskra kjósenda eiga margt sameiginlegt með hegðun örvæntingarfullr- ar konu í makaleit. Hún sækir sama skemmtistaðinn ár eftir ár og hefur stofnað til lengri eða skemmri sambanda við flesta ein- hleypa karla sem þar er að finna. Allir hafa þeir brugðist henni á einn eða annan hátt, svikið loforð, haldið framhjá, hunsað óskir hennar og sýnt skoðunum hennar fyrir- litningu. Hún rígheldur þó enn í vonina um að finna þann rétta og fyllist bjartsýni í hvert sinn sem inn slæðist óþekktur maður sem hugsanlega, mögulega, kannski gæti uppfyllt óskir hennar. SUMIR þessara nýju gæja eru sætir, aðrir fyndnir og enn aðrir gáfaðir, að minnsta kosti við fyrstu kynni. Spennandi valkost- ir sem örugglega munu reynast traustari en gömlu sleðarnir sem hún hefur reynt að viðhalda samböndum við. Hún hellir sér út í viðreynsluna, ástin blómstrar og glýjan í augum hennar birgir alla sýn á galla sæta/ fyndna/gáfaða gæjans sem er svo allt öðruvísi en allir hinir. Maður óskar henni góðs gengis og vonar það besta, en nokkr- um vikum seinna er allt komið í hund og kött, vonirnar brostnar og tárin flæð- andi. Nýi gæinn reyndist nefnilega vera nákvæmlega eins og allir hinir. AÐRIR kjósendur líkjast meðvirku kon- unni sem var ung gefin einhverjum Njáli og heldur tryggð við hann þrátt fyrir síendurtekin svik hans. Hann er ekki svip- ur hjá sjón, slæðist heim í morgunsárið illa til reika eftir að hafa sóað mánaðar- launum þeirra beggja í sukk og svínarí, en hún gefst ekki upp. Hann var nú sætur einu sinni, þetta var ást, jafnvel sálufélag og einhvers staðar þarna inni í flakinu sem hann er orðinn hlýtur að leynast eitt- hvað af því sem fékk hana til að elska hann í upphafi. Hann hefur bara lent í slæmum félagsskap þessi elska. Bráðum, bráðum verður allt eins og var ef hún bara lokar augunum nógu lengi. Einhvern til að elska Prófakralestur Andra BLÆS Á SLÚÐURSÖGUR „Í sumum tilfellum eru sögurnar svo galnar að maður getur ekki gert neitt annað en hlegið að þeim,“ segir sjónvarpskokkurinn Rikka í einlægu viðtali við Lífið þar sem hún blæs á slúðursögurnar og ræðir um fjölskylduna og framann.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.