Fréttablaðið - 23.02.2012, Side 38

Fréttablaðið - 23.02.2012, Side 38
23. febrúar 2012 FIMMTUDAGUR30 30 menning@frettabladid.is Þátturinn Orð skulu standa er á fjölum Þjóðleikhús- kjallarans á fimmtudags- kvöldum. Þar velta kepp- endur fyrir sér meiningu orða, ljóða og orðatiltækja og bresta í söng eða grín þess á milli. „Formið hefur lítið breyst frá því þátturinn var í útvarpinu. Hann býður sem fyrr upp á heilabrot og bollaleggingar um íslenskt mál. Nú er hann bara með áhorfendum sem ósjálfrátt fara að glíma við gáturn- ar enda eru þeir allir með blöð og penna.“ Þannig lýsir Sólveig Arn- arsdóttir leikkona fyrirkomulagi sýningarinnar Orð skulu standa í Þjóðleikhúskjallaranum. Hún er þar liðsstjóri ásamt Guð- mundi Steingrímssyni alþingis- manni og í hverri viku fá þau með sér nýja og nýja keppendur. Stjórn- andinn er Karl Th. Birgisson og við píanó situr Pálmi Sigurhjartarson því að sögn Sólveigar er tónlist orðin fastur liður í dagskránni. En taka gestir í sal bara þátt í skemmt- uninni í eigin hugskoti eða eru þeir til einhvers gagns fyrir keppendur? „Í Þjóðleikhúskjallaranum situr fólk við borð með kertaljós og veit- ingar og stundum verður til spjall á milli salar og sviðs en það er eng- inn þvingaður til að vera með. Fólk er oft hrætt við að vera drifið upp á svið til að gera eitthvað sniðugt, þetta er ekkert þannig. En fólk hefur alveg möguleika á því að taka þátt og í salnum er alltaf ein- hver klárari en við á sviðinu. Svo fá gestir í salnum líka spurningar og sá sem er fyrstur að leysa þrautina fær veglega gjöf.“ Margir af fremstu listamönnum þjóðarinnar hafa verið meðal kepp- enda, að sögn Sólveigar, og gera sitt til að létta lund gesta. Í síðustu viku voru Eva María Jónsdóttir dag- skrárgerðarkona og Ari Eldjárn uppistandari og í kvöld verða Þór- unn Lárusdóttir leikkona og Karl Sigurðsson Baggalútur. Sólveig kveðst alin upp við til- tölulega gott og kjarnyrt mál og hafa alla tíð lesið mikið, segist þó ekki vera neitt íslenskunörd – eins og Davíð Þór sem hafi ótrúlega þekkingu á tungunni. „En íslenskt mál er svo ríkt og getur verið enda- laus uppspretta vangaveltna,“ bend- ir hún á. Hún segir ógerning að lesa sér til fyrir þáttinn. „Ég gluggaði reyndar aðeins í skólaljóðin til að rifja upp helstu höfundana okkar,“ viðurkennir hún. „En orðin sem hann Kalli dregur upp úr hatti sínum hefur yfirleitt ekki nokkur maður heyrt svo listin gengur út á að finna einhvern punkt í þeim og spinna sig áfram. Ótrúlega oft er hægt að ramba á rétt svar en ger- ist það ekki þá skiptir það heldur engu máli. Þessi kvöldstund geng- ur ekki út á það hver veit mest, það eru engin stig talin og annað liðið stendur aldrei uppi sem sigurveg- ari kvöldsins heldur er um hreina gleðistund að ræða.“ gun@frettabladid.is Íslenskt mál er endalaus uppspretta vangaveltna LEIKKONA OG LIÐSSTJÓRI Ótrúlega oft er hægt að ramba á rétt svar en gerist það ekki þá skiptir það heldur engu máli,“ segir Sólveig Arnarsdóttir um þátttökuna í þættinum Orð skulu standa í Þjóðleikhúskjallaranum. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Leikhús ★★★ ★★ Sjöundá Leikhópurinn Aldrei óstelandi sýnir í Kúlunni í Þjóðleikhúsinu Leikgerð: Marta Nordal, Edda Björg Eyjólfsdóttir auk leik- hópsins Leikmynd og lýsing: Egill Ingibergsson Búningar: Helga I. Stefánsdóttir Myndefni: Bergsteinn Björgúlfsson Dans og hreyfingar: Marta Nordal Tónlist: Stefán Már Magnússon Leikarar: Sveinn Ólafur Gunn- arsson, Edda Björg Eyjólfsdóttir, Stefán Hallur Stefánsson, Harpa Arnardóttir, Leikstjóri: Marta Nordal. Leikritið Sjöundá var frumsýnt í Kúlunni, minnsta leikrými Þjóð- leikhússins, síðastliðið föstudags- kvöld. Að því stendur leikhópur- inn Aldrei óstelandi sem fékkst við Fjalla-Eyvind síðasta vetur og heldur þannig áfram að gera sér mat úr íslenskum örlagasögum. Fjórar vesælar mannverur á hjara veraldar steyptu hver annarri í glötun á Sjöundá. Flestir kann- ast við frásögnina af afspurn og eins úr sagnaminninu í Svartfugli Gunnars Gunnarssonar. Marta Nordal leggur upp með svipaða vinnuaðferð og hún notaði í hinni góðu sýningu um Fjalla-Eyvind, það er að láta útvarpsraddir leiða okkur inn í leikmyndina, mála upp fyrir okkur umhverfið. Þetta gerði Gunnar Gunnarsson hér, þar sem hann af bandi lýsti því umhverfi sem við honum blasti af sjó, þá er hann barði grónar rústir þessa örreytiskots augum. Síðan var mynd af ströndinni varpað upp á tjald að baki leikaranna og marg- ar slíkar birtust meðan á verkinu stóð. Textinn var byggður á spuna unnum úr Svartfugli og eins klipptar inn glefsur úr Galdra- Lofti en yfirheyrslur voru einmitt aðaluppistaðan í verkinu. Tvenn hjón á sömu þúfu. Jón á Steinunni og Bjarni á Guðrúnu. Eitthvað á þetta fólk af börnum en nærvera þeirra er engin í verkinu hér, raun- ar aðeins minnst á þau í eitt sinn þegar Jón er að tala um vanlíðan sína og löngun til þess að komast á brott frá þessum stað. Steinunn og Bjarni fella ekki aðeins hugi saman heldur verða hreinlega svo heltekin af hvort öðru að samvisk- an og skynsemin yfirgefur þau og allt gengur út á að koma hinum tveimur fyrir kattarnef. Edda Björg Eyjólfsdóttir lék Steinunni og Sveinn Ólafur Gunn- arsson fór með hlutverk Bjarna. Sú brennandi erótík og óslökkv- andi löngun sem stjórnaði gjörð- um þeirra kemst hér heldur illa til skila því nálgun þeirra er allan tímann svo vélræn. Það var frem- ur eins og verið væri að lýsa kyn- lífsfíklum heldur en undirliggjandi mögnuðum ástríðum. Leikstjórinn velur þá leið að leysa leikinn upp í einhvers konar óskilgreindum dansi og voru þau atriði heldur kauðsleg þar sem hin kattliðuga Harpa Arnardóttir var í raun og veru sú eina sem réði við þessa titrandi skjálfandi tjáningu. Harpa var líka á allan hátt hreint frábær í hlutverki Guðrúnar sem smám saman breyttist í vofu og engu líkara en að hún yrði græn í fram- an. Hinir leikararnir skiluðu hlut- verkum sínum ágætlega, einkum Stefán Hallur í argandi hlutverki yfirvaldsins. Loks má þess geta að tónlistin og hljóðmyndin öll sem Stefán Már Magnússon er skrif- aður fyrir var hrífandi. Elísabet Brekkan Niðurstaða: Heldur endurtekn- ingarsöm leikgerð á Svartfugli en þó nokkuð af góðum lausnum. Harpa Arnardóttir er stjarnan í annars ágætlega leikinni sýningu. SJÖUNDAÁ Yfirheyrslur eru uppistaðan í verkinu. Ástarglóð í taktföstum tómleika Hefur þú gert góðverk í dag? Hefst í mars á Stöð 2 Kate Winslet í glænýrri þáttaröð FÁÐU ÞÉR ÁSKRIFT | 512 5100 | STOD2.IS UPPBOÐ verður á verkum af sýningunni Veggir í Norræna húsinu á laugardag klukkan fjögur. Aðstandendur lofa samtímalist á góðu verði en meðal listamanna eru fremstu graffítí-listamenn landsins.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.