Fréttablaðið - 23.02.2012, Qupperneq 44
23. febrúar 2012 FIMMTUDAGUR36
bio@frettabladid.is
Nýjasta mynd leikstjórans Stevens
Soderbergh, Haywire, verður frum-
sýnd á morgun. Myndin fjallar um
málaliðann Mallroy Kane sem
vinnur ýmis verkefni sem yfirvöld
loka augunum fyrir þar sem þau
geta ekki heimilað þau, en vilja
að þau séu unnin. Þegar Kane er
svikin þarf hún að elta uppi þá
sem sviku hana og fá þá til að
segja sannleikann til að bjarga
lífi sínu og fjölskyldu sinnar.
Nicholas Cage snýr aftur í
hlutverki Johnny Blaze í kvik-
myndinni Ghost Rider: Spirit of
Vengeance sem verður frumsýnd
á morgun. Blaze er enn þjakaður af
bölvun kölska, en fær tækifæri til
að losna undan bölvuninni og bjarga
ungum dreng frá því að verða hýsill
Satans.
Önnur Journey-myndin, The Mys-
terious Island, fjallar um Sean And-
erson sem fer í leiðangur á smáeyju
sem býr yfir miklum töfrum til að
leita að afa sínum sem týndist þar.
Dwayne Johnson, Michael Caine og
Josh Hutcherson fara með aðalhlut-
verkin.
Austfirska spennumyndin Glæpur
og samviska eftir Ásgeir Hvítaskáld
verður einnig frumsýnd um helgina
og á laugardaginn verður svo sýnd
óperan Ernani eftir Verdi.
Hasarfull helgi með spennuívafi
STJÖRNUMYND Myndin Haywire er stjörnum prýdd
en auk Ginu Carano, sem leikur aðalhlutverkið, er þar
að finna leikarana Ewan McGregor, Michael Douglas,
Antonio Banderas, Bill Paxton, Channing Tatum og
Michael Fassbender.
Kvikmyndaverið Paramount
Pictures hefur kært Anthony
Puzo, son rithöfundarins Mario
Puzo, til að koma í veg fyrir
útgáfu nýrrar bókar um Guð-
föðurinn, „The Family Cor-
leone“. Kvikmyndaverið heldur
því fram að það hafi keypt höf-
undarréttinn á skáldsögu Puzo
um Guðföðurinn árið 1969 og
að aðeins hafi verið samþykkt
að gefa út eina framhalds-
sögu, „The Godfather Returns“
sem kom út árið 2004. Að sögn
kvikmyndaversins er tilgangur
kærunnar að „vernda heilindi
og orðspor þríleiksins um Guð-
föðurinn“.
Útgáfa „The
Family Cor-
leone“ kærð
DON CORLEONE Marlon Brando sést hér
í hlutverki sínu sem Don Corleone.
Kvikmyndin The Artist
er talin sigurstranglegust
á Óskarsverðlaunahátíð-
inni, sem haldin verður
í 84. skipti næstkomandi
sunnudag í Kodak Theatre í
Hollywood.
The Artist hefur verið að raka inn
verðlaunum að undanförnu. Hún
kom, sá og sigraði á Golden Globe-
hátíðinni fyrr í mánuðinum og þykir
líkleg til sigurs í flestum þeirra tíu
flokka sem hún er tilnefnd í. Mynd-
in er þó ekki með flestar tilnefn-
ingar, því nýjasta mynd Martins
Scorsese, Hugo, er tilnefnd í ell-
efu flokkum. Myndirnar The Help,
Moneyball og War Horse fengu sex
tilnefningar og The Descendants er
með fimm. Mikill fjöldi tilnefninga
þarf þó ekki endilega að skila sér
í styttu, því skemmst er að minn-
ast Óskarsverðlaunahátíðarinn-
ar í fyrra, þar sem True Grit var
tilnefnd til tíu verðlauna en hlaut
engin.
Það er mjög áhugavert að mynd-
irnar tvær sem fara inn í hátíðina
með flestar tilnefningar eru báðar
eins konar ástarbréf til „gömlu
Hollywood“. The Artist er öll í
svarthvítu, hún er næstum alveg
þögul og í henni eru engir þekktir
leikarar. Þetta er í fyrsta skipti
í næstum áttatíu ár sem svart-
hvít mynd þykir líklegust til að
taka heim Óskarinn fyrir bestu
myndina, og fari svo verður
það aðeins í annað skipti í sögu
verðlaunanna sem þögul
mynd stendur uppi
sem sigurvegari
en þögla myndin
Wings vann þau
verðlaun á fyrstu
Óskarsverð-
launahátíðinni
árið 1929.
Jean Du-
jardin
hlaut Gol-
den Globe-
verðlaunin
2012 sem
besti leikari í aðalhlutverki fyrir
hlutverk sitt í The Artist, og þykir
líklegur til að leika þann leik eftir
á sunnudagskvöldið. Sömu sögu er
að segja um Meryl Streep
sem þykir sigurstrang-
leg fyrir túlkun sína
á Margaret Thatcher
í myndinni The Iron
Lady. Streep hefur
áður unnið til verð-
launanna tvisvar sinn-
um, árin 1979 og
1982 en hún
á metið yfir
flestar til-
nefningar
til Óskars-
verðlauna
fyrir leik, með alls 17 tilnefningar.
Næst á eftir henni koma þau Kath-
arine Hepburn og Jack Nicholson
með tólf.
Gamli sjarmörinn Christopher
Plummer er tilnefndur sem besti
aukaleikarinn fyrir leik sinn í mynd-
inni Beginners, og fari svo að hann
hljóti Óskarinn verður hann elsti
verðlaunahafinn í sögu hátíðarinnar.
Jafnaldri hans, Max von Sydow, er
einnig tilnefndur sem besti aukaleik-
arinn og á því líka möguleika á að
vera elsti verðlaunahafinn. Jessica
Tandy á nú metið, en hún var áttræð
þegar hún hlaut Óskarinn fyrir leik
sinn í myndinni Driving Miss Daisy.
Leikarinn Billy Crystal mun
kynna hátíðina í níunda skipti, en
aðeins Bob Hope hefur gert það
oftar eða 19 sinnum. Crystal hefur
hingað til þótt standa sig mjög vel í
hlutverkinu og jafnvel verið nefnd-
ur einn besti kynnir í sögu hátíðar-
innar sem verður send út beint til
225 landa út um allan heim.
tinnaros@frettabladid.is
THE ARTIST TALIN
SIGURSTRANGLEGUST
Besta myndin:
■ The Artist
■ The Descendants
■ Extremely Loud &
Incredibly Close
■ The Help
■ Hugo
■ Midnight in Paris
■ Moneyball
■ The Tree of Life
■ War Horse
Besti leikari
í aðalhlutverki:
■ Demián Bichir - A
Better Life
■ George Clooney -
The
Descendants
■ Jean Dujardin - The
Artist
■ Gary Oldman -
Tinker Tailor Soldier
Spy
■ Brad Pitt - Money-
ball
Besta leikkona
í aðalhlutverki:
■ Glenn Close -
Albert Nobbs
■ Viola Davis - The
Help
■ Rooney Mara -
The Girl with the
Dragon Tattoo
■ Meryl Streep - The
Iron Lady
■ Michelle Williams
- My Week With
Marilyn
Besti leikstjóri:
■ Michel Hazanavicius
- The Artist
■ Alexander Payne -
The Descendants
■ Martin Scorsese -
Hugo
■ Terrence Malick -
The Tree of Life
Besti leikari
í aukahlutverki:
■ Kenneth Branagh
- My Week With
Marilyn
■ Jonah Hill - Money-
ball
■ Nick Nolte - Warrior
■ Christopher Plum-
mer - Beginners
■ Max von Sydow -
Extremely Loud &
Incredibly Close
Besta leikkona
í aukahlutverki:
■ Bérénice Bejo - The
Artist
■ Jessica Chastain -
The Help
■ Melissa McCarthy -
Bridesmaids
■ Janet McTeer -
Albert Nobbs
■ Octavia Spencer -
The Help
HELSTU TILNEFNINGAR TIL ÓSKARSVERÐLAUNANA
KYNNIR HÁTÍÐINA Billy
Crystal þykir einn besti
kynnir á Óskarsverðlaunahá-
tíðinni frá upphafi.
Hefst þriðjudaginn 28. febrúar
FÁÐU ÞÉR ÁSKRIFT | 512 5100 | STOD2.IS
Ashton Kutcher mætir til leiks
Alla daga kl. 19.00 og 01.00
CNN er fáanleg í ALLT FRÆÐSLA TOPPUR
PIERS
MORGAN
tonight
Spænski leikarinn Antonio Bande-
ras leikur Pablo Picasso í nýrri
kvikmynd um listmálarann. Mynd-
in ber nafnið 33 Days og er leikstýrt
af spænska leikstjóranum Carlos
Saura. Hún fjallar um tímabilið
þegar Picasso málaði málverkið
Guernica árið 1937. Hún mun einn-
ig fjalla um samband listmálarans
við frönsku listakonuna Doru Maar.
Samkvæmt tímaritinu Variety er
áætlað að hefja tökur sumarið 2013.
Banderas sagði í viðtali við
spænska blaðið El País að hann
hefði fæðst aðeins nokkrum húsa-
röðum frá staðnum þar sem Picasso
fæddist, en þeir eru báðir fæddir í
Malaga á Spáni. Hann hafi lengi
ætlað að taka að sér að leika list-
málarann en ávallt neitað þangað
til nú.
Pablo Picasso er einn af þekkt-
ustu listamönnum 20. aldar, en
hann lést árið 1973 þá 91 árs að
aldri. Hann er best þekktur fyrir að
hafa þróað kúbisma ásamt George
Braque. Einnig þótti hann afar
afkastamikill, en eftir hann liggja
um 50.000 listaverk. Guernica er
eitt af hans þekktustu verkum, en
hann málaði það eftir að þýskar
og ítalskar herflugvélar sprengdu
bæinn Guernica á Spáni. Málverk-
ið er nú til sýnis í Museo Reina Sofí
safninu í Madríd.
Banderas hefur áður leikið sögu-
frægar persónur en hann lék Che
Guevara í kvikmyndinni Evita.
Sögusagnir hafa verið um að
Banderas muni taka að sér að leika
Fidel Castro í nýrri kvikmynd um
dóttur Castros, sem ber nafnið
Castro‘s Daughter.
Antonio Banderas leikur Picasso
ANTONIO BANDERAS vílar ekki fyrir sér
að taka að sér krefjandi hlutverk.
THIS MEANS WAR
★★★★★
Óvönduð útfærsla á ágætri
hugmynd. Þolanleg í fluginu til
Tenerife í sumar.
SAFE HOUSE
★★★★★
Mundu eftir eyrnatöppunum. Og
sjóveikipillunum.
EXTREMELY LOUD AND
INCREDIBLY CLOSE
★★★★★
Ekki alslæm mynd, en rembist
ítrekað við að græta áhorfendur.
Leikararnir halda þessu uppi.
SHAME
★★★★★
Hugrökk mynd sem gleymist ekki
í bráð.
HUGO
★★★★★
Heillandi mynd fyrir börn og
barnalegt fólk á öllum aldri. Ég
skal glaður setja sjálfan mig í
síðari flokkinn.
KVIKMYNDARÝNI
> ÁNÆGÐUR MEÐ CRAIG
Sam Mendes sem leikstýrir nýj-
ustu Bond-myndinni, Skyfall, er mjög
ánægður með Daniel Craig sem leik-
ur njósnarann 007. „Mér fannst Cas-
ino Royale frábær. Daniel Craig
var venjulegur maður í raun-
verulegum kringumstæðum,“
sagði Mendes, sem á að baki
myndirnar American Beauty og
Road to Perdition. „Þessi mynd
minnti mig á þegar ég horfði á
Sean Connery-myndirnar.“