Fréttablaðið - 23.02.2012, Page 46
23. febrúar 2012 FIMMTUDAGUR38
folk@frettabladid.is
■ Ekki reykja og forðastu reyk frá öðrum. Ekki nota
munn- og neftóbak.
■ Reyna að ná hálftíma hreyfingu á dag.
■ Borða hollan og fjölbreyttan mat. Dagleg ávaxta- og
grænmetisneysla.
■ Forðast að vera of þungur.
■ Takmarka neyslu áfengis.
■ Varast ber ljósabekki og óhófleg sólböð.
■ Vera vakandi fyrir krabbameinsvaldandi efnum í
umhverfinu.
HVERNIG KARLMENN GETA DREGIÐ ÚR LÍKUM Á KRABBAMEINI
Fjórar stúlkur í Fjölbrauta-
skóla Garðabæjar hafa
útbúið slaufur sem líkj-
ast yfirvaraskeggi og selja
til styrktar átaki Krabba-
meinsfélagsins, Mottu-
mars. Slaufurnar hafa sleg-
ið í gegn og þær íhuga nú að
ráða saumakonu til að anna
eftirspurn.
TÍSKA „Viðtökurnar hafa verið
framar okkar björtustu vonum og
pöntunum rignir inn,“ segir Ása
Þórdís Ásgeirsdóttir nemandi í
frumkvöðlafræði við Fjölbrauta-
skóla Garðabæjar.
Ása hefur hannað skemmtilegar
slaufur sem líta út eins og yfirvara-
skegg í félagi við skólasystur sínar,
Irenu Sveinsdóttur, Hrafnhildi
Heiðu Sandholt og Camillu Rut
Arnarsdóttur. Slaufurnar tengja
þær krabbameinsátakinu Mottu-
mars, Karlmenn og krabbamein,
og eru fyrir þá sem af einhverjum
ástæðum ekki geta eða vilja safna
yfirvaraskeggi en langar samt að
leggja sitt af mörkum.
„Ég fékk þessa hugmynd fyrir
tveimur árum síðan þegar kær-
astinn minn ætlaði að taka þátt
í mottu mars en var einfaldlega
ekki með nógu gott yfirvaraskegg.
Þá fattaði ég að það vantaði eitt-
hvað fyrir þá sem geta ekki safn-
að skeggi,“ segir Ása en slaufurn-
ar eru ætlaðar báðum kynjum og
hitta vel á þar sem slaufur af öllum
stærðum og gerðum eru einmitt í
tísku þessa stundina.
Verkefnið er hluti af námi stúlkn-
anna í frumkvöðlafræði en 9. mars
næstkomandi fara þær með verk-
efnið í eins konar vörukeppni þar
sem þær etja kappi við aðra fram-
haldsskóla. Slaufurnar hafa verið
mjög vinsælar og gerðu stelpurn-
ar ráð fyrir að selja margar fyrir
árshátíð skólans sem fer fram í
kvöld.
„Við erum að gera þetta í höndun-
um og sitjum sveittar við að sauma
en það tekur um 20-30 mínútur að
gera eina slaufu. Við erum byrjaðar
að spá í að ráða saumakonu svo við
náum að sinna öllum pöntunum og
öðrum skólaverkefnum líka.“
Hver slaufa kostar 2.500 krónur
og af því renna 500 krónur beint
til Krabbameinsfélagsins. Hægt
er að nálgast frekari upplýsingar
um verkefnið á Facebook-síðunni
Arcos Slaufur en hægt er að leggja
beint inn pöntun á póstfangið arcos.
ehf@gmail.com.
alfrun@frettabladid.is
SLAUFUR FYRIR STELPUR OG MOTTULAUSA
SLAUFUR Í STAÐINN FYRIR YFIRVARASKEGG Þær Ása Þórdís Ásgeirsdóttir, Irena Sveinsdóttir, Hrafnhildur Heiða Sandholt og
Camilla Arnarsdóttir hafa hannað slaufur sem líkjast yfirvaraskeggi til styrktar átaki Krabbameinsfélagsins, Mottumars.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
TÆKNI Framúrstefnuleg Google-
gleraugu sem tengjast Android-
snjallsímum eru væntanleg á
markað í lok ársins, samkvæmt
frétt The New York Times.
Hinar ýmsu upplýsingar úr sím-
anum munu sjást þegar maður
setur gleraugun upp, þannig að
ekkert fari framhjá manni. Þann-
ig er hægt að skoða tölvupóst-
inn, uppfæra stöðuna á
Facebook og ýmislegt
fleira með hjálp
gleraugnanna á
meðan maður er
á gangi án þess
að þurfa að gjóa
augunum sífellt á
farsímann. Talið
er að í gleraugunum
verði innbyggð mynda-
vél og að verðmiðinn verði í
kringum 30 til 75 þúsund krónur.
Orðrómur er uppi um að þau muni
líta svipað út og Oakley Thumps-
gleraugu.
Svo virðist sem gleraugun séu
hluti af langtímaáætlun Google
um að auka notkun Android-stýri-
kerfisins. „Android-kerfinu var
alltaf ætlað stærra hlutverk en
eingöngu fyrir farsíma,“ sagði
Hugo Barra, háttsettur markaðs-
maður hjá Google.
Google-sólgleraugu
á markað í lok ársins
TÆKNI Koma þarf tæknibúnaði fyrir í hátt í milljón breskra heimila til
að koma í veg fyrir að bylgjur úr 4G-farsímum trufli ekki sjónvarpsút-
sendingar. Þessi aðgerð mun kosta rúma tuttugu milljarða króna, sam-
kvæmt frétt BBC.
Búnaðinum verður komið fyrir í stafrænum sjónvarpsafruglara
sem hindrar að hávaði sem bylgjur úr 4G-símum skapa komist þar að.
Þrátt fyrir aðgerðirnar muni skapa töluvert rask eru þær sagðar mik-
ilvægar. Að sögn menningarmálaráðherra Bretlands mun 4G-farsíma-
kerfið hleypa nýju blóði í stafræna iðnaðinn í landinu.
4G-farsímar valda truflun
SJÓNVARP Koma þarf tækjabúnaði fyrir í hátt í milljón breskra sjónvarpsafruglara.
STEIK Í MORGUNMAT Samkvæmt rannsókn sem framkvæmd var í
háskólanum í Tel Aviv léttust tveir hópar offitusjúklinga jafn mikið þrátt fyrir
að annar hópurinn hafi verið látinn borða kolvetnislítinn morgunverð á meðan
hinn hópurinn fékk að gæða sér á veislumáltíð, og eftirrétti, á hverjum morgni.
NÝ GLERAUGU Talið er að Google-gler-
augun muni líkjast þessum Oakley
Thumps-sólgleraugum.
lifsstill@frettabladid.is
38