Fréttablaðið - 23.02.2012, Side 54

Fréttablaðið - 23.02.2012, Side 54
23. febrúar 2012 FIMMTUDAGUR46 LÖGIN VIÐ VINNUNA „Sé ég eftir þessu? Já, ætli það ekki. Veskið mitt sér líka eftir þessu,“ segir rapparinn Emmsjé Gauti, sem hefur verið ákærður fyrir að henda glerflösku í lög- reglubíl. Atvikið átti sér stað á stúdentagörðum í Reykjavík. Lögreglan hafði stöðvað teiti sem Gauti var gestur í, en flaskan átti að hans sögn að hafna við hliðina á lögreglu- bílnum. „Ég ætti auðvitað að vera með gleraugu,“ segir hann. „Ég sá ekki alveg hvert ég var að kasta og hitti beint ofan á húddið á löggubílnum.“ Gauti var handtekinn ásamt öðrum manni sem hafði leikið svipaðan leik og voru þeir færðir niður á lögreglu- stöðina við Hverfisgötu þar sem þeir viðurkenndu brotin. „Þá urðum við og lögreglumennirnir mestu mátar og spjöll- uðum um lífið,“ segir Gauti. „Hann laug svo að mér að þetta myndi kosta mig 15 þúsund kall, en sektin var vel yfir 100 þúsund kallinn.“ Gauti er ekki góðkunningi lögreglunnar og síðast þegar lögreglan þurfti að hafa afskipti af honum var þegar hann fór á vindsæng út á Reykjavíkurtjörn. Þetta er í fyrsta skipti sem Gauti fer fyrir hér- aðsdóm, en málið verður þingfest í mars. „Þetta hefði getað farið illa, flaskan hefði getað hafnað í einhverjum,“ segir Gauti þegar hann rifjar atvikið upp. „Þá hefði grínið ekki verið eins fyndið. Ég ætlaði hvorki að meiða neinn né skemma lög- reglubílinn. Ég ætlaði aðeins að stríða þeim, þeir eru alltaf að stríða okkur.“ - afb Ákærður fyrir henda flösku í lögreglubíl SÉR EFTIR ÖLLU Gauti sér eftir að hafa hent flöskunni í lög- reglubílinn og vill færa lögreglunni fría tónlist á vefsíðunni Emmsjegauti.com. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM „Við fengum einfaldlega tilboð sem við gátum ekki hafnað,“ segir Birg- ir Þórarinsson, einn meðlima hljóm- sveitarinnar GusGus, en tískurisinn Bulgari fær sveitina til Mílanó til að halda uppi fjörinu á tískuvikunni. Hljómsveitin flaug út í dag og kemur heim á laugardaginn en ásamt Birgi, sem betur er þekktur sem Biggi veira, skipa þau Urður Hákonardóttir, Daníel Ágúst Har- aldsson, Stephan Stephensen og Högni Egilsson danssveitina. Biggi vissi ekki mikið um viðburðinn en taldi að um væri að ræða stórt eftir- partí eftir sýningu Bulgari á tísku- vikunni. „Þetta verður eitthvað tískupartý og bara mikið stuð. Það verða eflaust allir rosa flottir og fínir eins og tískupartíum sæmir,“ segir Biggi en Bulgari bókaði sveit- ina í gegnum umboðsskrifstofu Gus- Gus í Þýskalandi. „Við spiluðum í Mílanó síðasta sumar og þeir tónleikar gengu svakalega vel. Mig grunar helst að útsendarar frá þeim hafi séð okkur á þeim tónleikum og því ákveðið að fá okkur yfir.“ Mikið flakk er á sveitinni þessa dagana en hún er nýkomin frá norsku tónlistarhátíðinni by:Larm sem fór fram í Ósló um síðustu helgi. „Það var frábært í Ósló og gekk vel. Við höfum ekki verið að spila mikið í Skandinavíu heldur einbeitt okkur að Austur-Evrópu og Þýska- landi. Nú höfum við kannski opnað einhverjar dyr þar í kjölfarið á hátíðinni.“ - áp Tilboð sem þau gátu ekki hafnað EFTIRSÓTT Íslenska dansveitin GusGus fékk tilboð frá tískuhúsinu Bulgari sem þau gátu ekki hafnað. Þau koma frá í partýi á tískuvikunni í Mílanó um helgina. MYND/ARIMAGG „Ég kveiki á útvarpinu á morgn- ana og ég flakka á milli Rásar 2 og Bylgjunnar en annars er ég ekki að hlusta á neitt sérstakt þessa dagana.“ Sara Sigurðardóttir, nýkjörinn formaður stúdentaráðs og nemi í stjórnmálafræði og hagfræði. Pantaðu í síma 565 600 0 eða á w ww.som i.is Frí heim sending * TORTILLA VEISLUBAKKI EÐALBAKKI LÚXUSBAKKI DESERTBAKKI GAMLI GÓÐI TORTILLA OSTABAKKI 30 bitar 30 bitar 20 bitar 20 bitar 20 bitar 50 bitar Fyrir 10 manns ÁVAXTABAKKI Fyrir 10 manns ÁVAXTABAKKI Hver samlokubakki er hæfilegur fyrir fjóra eða fimm. *Frí heimsending gildir aðeins ef pantaðir eru 4 eða fleiri bakkar. FERSKT & ÞÆGILEGT „Þetta er svo fyndið og absúrd að ég get ekki verið stressuð yfir þessu,“ segir Hildur Kristín Stefáns- dóttir, tónlistarkona og skiptinemi frá Háskóla Íslands í Tokyo. Hildur syngur þjóðsöng Íslands fyrir vináttu- leik íslenska landsliðsins í knattspyrnu við Japani á morgun. Landsleikurinn fer fram í Osaka í Japan og er búist við um 50.000 áhorfendum á leikvanginn. „Þetta er lang stærsti hópur sem ég hef sungið fyrir og mjög spennandi allt saman,“ segir Hildur en hún er meðlimur í hljómsveitinni Rökkurró þar sem hún bæði syngur og spilar á selló. Íslenski þjóðsöngurinn er þekktur fyrir að vera heldur óþjáll með sína háu tóna og hefur Hildur feng- ið að kynnast því undanfarna daga. „Þetta er erf- iðasta lag sem hægt er biðja mann um að syngja en ég fékk sem betur fer heilan mánuð til að undirbúa mig. Ég þakka bara fyrir að hafa tekið eitt ár í óperu- söng fyrir nokkrum árum.“ Það var íslenski sendiherrann í Tokyo sem benti á Hildi í verkefnið en hún kom í fyrsta sinn fram í Japan í litlu boði hjá sendiráðinu. „Þegar ég kom út bjóst ég við að vera í pásu frá tónlist því hljómsveit- in mín er auðvitað staðsett á Íslandi. En ég sá fljótt að það myndi aldrei ganga, enda elska ég tónlist of mikið og tækifærin hér eru svo spennandi. Ég tróð svo upp á samnorrænni kvikmyndahátíð hérna úti og þá fór boltinn að rúlla. Það er frábært að vera hér í námi og geta fengið að upplifa japanska menningu en um leið fá tækifæri til að sinna tónlistinni,“ segir Hildur sem kallar sóló verkefni sitt Lily and Fox. Mikill áhugi er á leiknum hérlendis þó einungis sé um vináttulandsleik að ræða en leikurinn verður sá fyrsti undir stjórn Svíans Lars Lagerbäck. Hildur hefur verið í miklu sambandi við þá sem sjá um undirbúning leiksins í aðdragandanum og segir þau samskipti hafa verið skondin. „Japanir eru rosalega nákvæmir í öllu sem þeir gera og ég hef fengið fullt af reglum sem ég verð að fylgja. Til dæmis er mér bannað að mæta í háhæluðum skóm því það skemmir grasið á vellinum. Svo má ég ekki syngja lengur en nákvæmlega 95 sekúndur,“ segir Hildur sem stend- ur með hljóðnema á miðjum leikvanginum í Osaka klukkan 10.15 í fyrramálið á íslenskum tíma. alfrun@frettabladid.is HILDUR KRISTÍN: ERFIÐASTA LAG SEM HÆGT ER AÐ SYNGJA Syngur þjóðsönginn fyrir 50 þúsund Japani í Osaka JAPANIR NÁKVÆMIR Hildur Kristín Stefánsdóttir hefur fengið reglur frá Japönunum sem sjá um vináttulandsleikinn við Ísland. Hún má til dæmis ekki vera í hælaskóm og flutningur íslenska þjóðsöngsins má alls ekki vera lengri en 95 sekúndur. Alla daga kl. 19.00 og 01.00 CNN er fáanleg í ALLT FRÆÐSLA TOPPUR PIERS MORGAN tonight

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.