Fréttablaðið - 29.02.2012, Blaðsíða 34
29. febrúar 2012 MIÐVIKUDAGUR22
timamot@frettabladid.is
JA RULE bandaríski rapparinn og
leikarinn er 36 ára í dag.
„Það er bara einn ég.“
36
„Í raun varð tvennt til þess að við réðumst í að setja þessa
vefsíðu á fót. Þessi mikla gróska sem á sér stað í íslenskum
skákheimi um þessar mundir og löngunin til þess að færa
skáklistina til barna úti á landi. Hið síðara vegur þyngra á
metunum,“ segir Siguringi Sigurjónsson skákáhugamaður,
sem ásamt Henrik Danielsen, stórmeistara í skák, hefur sett
vefinn Krakkaskak.is í loftið.
Vefsíðan er ætluð börnum og unglingum sem vilja kynnast
skáklistinni og mennta sig í henni. Siguringi segir börn úti
á landi ávallt hafa átt erfiðara um vik að krækja sér í slíka
fræðslu en ungmenni á höfuðborgarsvæðinu. „Við lögðum
upp með að engin hindrun yrði að vefnum. Því er aðgengi
að efninu frítt fyrir notendur, en hann er rekinn á styrkjum
og frjálsum framlögum. Á netinu skapast aðstæður til að
gera skákfræðslu rosalega skemmtilega,“ segir Siguringi,
en meðal þess sem finna má á vefnum eru kennslumyndbönd
sem Siguringi og Henrik framleiða sjálfir, meðal annars
með hjálp ungs sonar Siguringa, teiknimyndasamkeppnir,
möguleiki á að tefla við önnur börn í rauntíma og þátttaka
í skákmótum á vegum vefsins.
„Vefurinn er gagnvirkur, en við leggjum líka mikla
áherslu á öryggi notenda. Þannig eru kennslumyndböndin
ekki á YouTube heldur öll vistuð á sjálfri síðunni. „Þetta er
gert til að forðast þær hættur sem geta steðjað að ungu fólki
á netinu,“ segir Siguringi og bætir við að Krakkaskáksíðan
hafi hlotið góðar viðtökur. kjartan@frettabladid.is
SIGURINGI SIGURJÓNSSON: SETUR Á
FÓT NÝJAN SKÁKVEF FYRIR BÖRN
Engin hindrun
að skákfræðslu
KRAKKASKÁK Siguringi Sigurjónsson er umsjónarmaður nýrrar
skáksíðu fyrir börn ásamt Henrik Danielsen stórmeistara í skák.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Yfirlitssýning á verkum Rúríar verður
opnuð í Listasafni Íslands við Fríkirkju-
veg föstudaginn 2. mars. Rúrí hefur í
um fjóra áratugi verið í framvarðar-
sveit íslenskra listamanna og einn helsti
gjörningalistamaður þjóðarinnar, mynd-
höggvari sem vinnur út frá forsendum
hugmyndalistarinnar.
Rúrí er fædd árið 1951 og nam meðal
annars við nýlistadeild Myndlista- og
handíðaskóla Íslands og í De Vrije Aca-
demie Psychopolis í Haag í Hollandi.
Rúrí í Listasafninu
RÚRÍ
Vaktsími:
581 3300 & 896 8242
www.utforin.is
Allan sólarhringinn
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Sverrir Einarsson Kristín Ingólfsdóttir Hermann Jónasson
Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is Símar: 565 5892 & 896 8242
ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR
Okkar ástkæri faðir, tengdafaðir og afi,
Kristján Daníelsson
matreiðslumeistari,
Starengi 28, Reykjavík,
lést á Landspítalanum á Hringbraut í faðmi
fjölskyldunnar, sunnudaginn 26. febrúar.
Útför hans verður gerð frá Grafarvogskirkju
föstudaginn 9. mars kl. 13.00.
Ásta Sjöfn Kristjánsdóttir Guðmundur Ólafsson
Dagný Kristjánsdóttir Jónas B. Jónsson
Silvía Kristjánsdóttir
og barnabörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir og afi okkar,
Sævar Geir Svavarsson
í Norma
til heimilis að Furuási 8, Garðabæ,
lést á líknardeild Landspítala – háskólasjúkrahúss
í Kópavogi laugardaginn 25. febrúar. Hann verður
jarðsunginn frá Kálfatjarnarkirkju, þriðjudaginn
6. mars kl 15.00.
Unnur I. Þórðardóttir
Guðrún A. Sævarsdóttir
Þórður Magnússon
Unnur L. Þórðardóttir
Magnús S. Þórðarson
Sævar J. Þórðarson
Ástkær móðir okkar, dóttir,
barnsmóðir og systir,
Ragnheiður Kristín
Benónýsdóttir (Heiða)
Heiðarhvammi 4f, Keflavík,
varð bráðkvödd á heimili sínu þann 10. febrúar
síðastliðinn. Útförin fór fram í kyrrþey.
Dustin Lee Post
Stefán Jón Friðriksson
Kristín Hrönn Ragnarsdóttir John R. Brantley
Benóný Haraldsson Vilborg Jóhannesdóttir
Friðrik Friðriksson
systkin hinna látnu og aðrir aðstandendur.
Elskulegur eiginmaður minn,
faðir, afi og sonur,
Eiríkur Ó. Þorvaldsson
frá Höfn í Hornafirði,
búsettur í Færeyjum,
lést á krabbameinsdeild Landspítalans föstudaginn
24. febrúar. Minningarathöfn verður haldin miðviku-
daginn 29. febrúar kl. 13.00 í Fossvogskapellu. Útförin
fer fram frá Vestmannakirkju í Færeyjum laugardaginn
3. mars. Sérstakar þakkir sendum við Heimahlynningu
LSH, starfsfólki líknardeildar Landspítalans í
Kópavogi, starfsfólki krabbameinsdeildar 11E og Höllu
Skúladóttur fyrir einstaka hlýju og umönnun.
Rannvá Didriksen
Anna Eiríksdóttir
Björgvin Annar Gústavsson
Rannvá Björk Jakobsdóttir
Sveinbjörg Eiríksdóttir
Kær móðir mín, tengdamóðir,
amma okkar og langamma,
Ingibjörg Magnúsdóttir
sem andaðist á Dvalarheimili aldraðra í Borgarnesi
sunnudaginn 26. febrúar, verður jarðsungin
frá Borgarneskirkju laugardaginn 3. mars kl. 11.00.
Rebekka Björk Þiðriksdóttir Viðar Pétursson
Hjalti Viðarsson
Kári Viðarsson
Ingibjörg Viðarsdóttir
Þiðrik Örn Viðarsson
og fjölskyldur.
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi,
Friðrik H. Ólafsson
tannlæknir, frá Kálfatjörn
Hátúni 10, Reykjavík,
lést á heimili sínu fimmtudaginn 23. febrúar.
Erlendur Steinar Friðriksson og fjölskylda
Ingibjörg Sunna Friðriksdóttir og fjölskylda
Elísabet Guðrúnardóttir og fjölskylda
Elskulegur eiginmaður minn,
faðir okkar, afi og langafi,
Hallgrímur V. Jónsson
Skálanesi, Reykhólahreppi,
lést fimmtudaginn 23. febrúar á Hjúkrunar-og dvalar-
heimilinu Barmahlíð, Reykhólum. Útförin fer fram frá
Reykhólakirkju laugardaginn 3. mars klukkan 14.00.
Blóm og kransar afþakkaðir en þeim sem vilja minn-
ast hans er bent á Hjúkrunar- og dvalarheimilið
Barmahlíð.
Katrín Ólafsdóttir
Ólafur Arnar Hallgrímsson Sigrún Halldóra Arngrímsdóttir
Sveinn Berg Hallgrímsson Andrea Björnsdóttir
Elías Már Hallgrímsson Arna Vala Róbertsdóttir
Guðrún Þuríður Hallgrímsdóttir Oddur Hannes Magnússon
Ingibjörg Jóna Hallgrímsdóttir Helgi Ingvarsson
barnabörn og barnabarnabarn.
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir,
afi og langafi,
Sigurður Guðmundsson
húsasmíðameistari,
Dælengi 17, Selfossi,
lést á Kanaríeyjum að morgni miðvikudagsins
15. febrúar. Útför hans fer fram frá Selfosskirkju
föstudaginn 2. mars kl. 13.00.
Guðmundur Sigurðsson
Ingvi Rafn Sigurðsson Laufey Jóna Kjartansdóttir
Sesselja Sigurðardóttir Örn Grétarsson
Sigurður Þór Sigurðsson Kristín Gunnarsdóttir
Óðinn Sigurðsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Friðgerður Laufey
Oddmundsdóttir
Bárugötu 9, Dalvík,
andaðist á Hornbrekku, heimili aldraðra í Ólafsfirði,
sunnudaginn 26. febrúar. Útförin fer fram frá
Dalvíkurkirkju laugardaginn 3. mars kl. 13.30.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem
vildu minnast hennar er bent á Dalvíkurkirkju.
Sigurlaug Guðrún Sverrisdóttir Gunnþór Árnason
Sveinbjörn Sverrisson Sigrún Sumarliðadóttir
Guðný Rut Sverrisdóttir Ólafur Viðar Hauksson
Sverrir Már, Laufey, Katla Valdís, Eva Björk,
Guðmundur Hagalín og Íris Ósk.