Fréttablaðið - 29.02.2012, Blaðsíða 28
KYNNING − AUGLÝSINGPlastiðnaður MIÐVIKUDAGUR 29. FEBRÚAR 20124
HVERNIG VERÐUR PLAST TIL?
Þegar jarðolía er hreinsuð og unnin myndast
ýmsar smáar og hvarfgjarnar gas-sameindir, en
hvarfgjarnar kallast þær sameindir sem hvarfast
tiltölulega auðveldlega við aðrar og mynda
nýjar sameindir. Með því að safna þessum
sameindum saman, stilla aðstæður rétt og
blanda við lítið magn hvataefnis má fá
slíkar litlar sameindir til að hvarfast saman í
langar keðjusameindir, svonefndar fjölliður.
Plastið sem myndast er fljótandi massi sem
auðvelt er að forma, til dæmis steypa
í mót.
Heimild: visindavefur.is
NÆR ALLIR NOTA PET
Flestir nota PET án þess að gera sér grein fyrir því. PET stendur fyrir polyethylene
terephthalate og var fyrst þróað árið 1941 fyrir þræði í efnavöru (flís) en upp úr
1960 var byrjað að nota það sem umbúðir utan um filmur og síðar, eða um
1970, til framleiðslu á drykkjarvöruumbúðum.
Framleiðsluferli PET-flöskunnar er frekar flókið. PET efnið kemur í stórum
stæðum. Fyrst þarf að brjóta það niður í smærri einingar, síðan er það brætt
og því sprautað í þar til gerð mót og til verður „preform“ sem lítur helst út
eins og tilraunaglas. „Preformið“ er síðan sett í annað mót þar sem það
er hitað svo hægt sé að blása það hægt út og þá myndast hin eiginlega
plastflaska. 35 gramma plastflaska heldur öruggum 2 lítrum af gosi án
þess að eiga á hættu að springa eða brotna. PET er endurunnið í margar ólíkar
vörur, ekki bara í flöskur. Meirihluti PETs er endurunninn í þræði sem síðan eru notaðir
í framleiðslu á flísvörum s.s. teppum, fötum og umbúðum. Heimild: Endurvinnslan.is
ENDURUNNIN TÍSKA
Umhverfismeðvitaðir tísku-
hönnuðir hafa öðru hverju nýtt
sér tískuvett-
vanginn til
að beina
sjónum fólks
að endur-
vinnslu. Á
sérstökum
tískusýn-
ingum hafa
verið sýndir
kjólar og
aðrar flíkur
úr gömlum
plastpokum,
flöskum
og jafnvel
brúsum.
Niðurstaðan er oft ansi mögnuð.
Pils úr endurunnu efni af tískusýn-
ingunni Ecofashion í Kólumbíu á
síðasta ári.
FJÓRTÁN KRÓNUR Á
FLÖSKUNA
Endurvinnslan tekur á móti
einnota plastflöskum og borgar
14 krónur fyrir hverja einingu.
Plastflöskur með skilagjaldi
eru fyrir gos-
drykki, ávaxtasafa,
orkudrykki og vatn.
Plastflöskur sem
ekkert gjald fæst
fyrir eru undan
tómatsósu,
þvottalegi,
mjólkur-
drykkjum,
ávaxtaþykkni
og ýmsum
matarumbúð-
um.
Plastflöskur
svo og áldósir
eru sendar
utan til frekari
endurvinnslu.