Fréttablaðið - 29.02.2012, Blaðsíða 22

Fréttablaðið - 29.02.2012, Blaðsíða 22
KYNNING − AUGLÝSINGPlastiðnaður MIÐVIKUDAGUR 29. FEBRÚAR 20122 PLASTIÐJAN BJARG – IÐJULUNDUR Plastiðjan Bjarg var stofnuð árið 1968 af Sjálfsbjörgu, félagi fatlaðra. Iðju- lundur var stofnaður árið 1981 og voru vinnustaðirnir tveir sameinaðir árið 1999. Í dag er Plastiðjan Bjarg – Iðjulundur 70 manna vinnustaður þar sem einstaklingum með skert starfsþrek er veitt atvinna til skemmri og lengri tíma. Áhersla er lögð á iðnframleiðslu sem krefst vinnu með höndunum eða minni vélum. Fyrir utan eigin framleiðslu tekur fyrirtækið meðal annars að sér pökkun og álímingu á umbúðir fyrir önnur framleiðslufyrirtæki. Nánari upplýsingar er að finna á www.plastidjan.hlutverk.is. Útgefandi: 365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24, s. 512 5000 Umsjónarmenn auglýsinga: Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is s. 512 5432. Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal. Plastframleiðslan hjá okkur á Bjargi er tvíþætt, ann-ars vegar framleiðum við raflagnaefni, má þar nefna rofa- dósir, loftadósir og hólka og aðra fylgihluti með þessu efni. Hins vegar búfjármerki fyrir bændur. Við erum jafnframt eini aðilinn sem framleiðir þessar vörur hér á landi,“ útskýrir Magnús Kristjáns- son rekstrarstjóri Plastiðjunnar Bjargs á Akureyri. Búfjármerkin eru f lutt inn steypt en númer og texti er brennt með leiser-prentara á PBI. Raf- lagnaefnið er hins vegar steypt á staðnum og er PBI í samstarfi við fyrirtækið Ásverk á Akureyri um smíði móta. Magnús segir eitt af markmiðum Plastiðjunnar Bjargs – Iðjulundar að stofna til samstarfs við framleiðslufyrirtæki og efla þannig íslenskan iðnað. „Við erum stöðugt að þróa og bæta framleiðsluna okkar og bæta við fylgihlutum. Við sækj- umst eftir klasasamstarfi við innlend fyrirtæki og ef fram- leiðsluaðila vantar eitthvert sér- stakt stykki getum við þróað það í samstarfi við hann og framleitt það. Sem dæmi þá unnum við að þróun plastkubba til að festa ge- reft á hurðir fyrir innréttingafyr- irtæki hér á Akureyri. Við steyp- um kubbana og sjáum um pökkun á smáhlutum sem þarf til,“ útskýr- ir Magnús. Plastiðjan Bjarg – Iðjulundur er starfsþjálfunar- og endurhæfingar- vinnustaður þar sem áhersla er lögð á bæði einföld og flóknari störf. Alls starfa tólf fastir starfsmenn; leið- beinendur, verkstjórar og iðjuþjálf- ar á staðnum. „Markmiðið er að koma fólki inn á almennan vinnu- markað og að meðaltali eru í kring- um 55 manns hverju sinni í starfs- þjálfun hjá okkur, mislangan tíma í senn. Eftir hrun höfum við aukið markaðshlutdeild okkar í ýmsum vöruflokkum enda horfir markað- urinn á íslenska vöru í dag sem er jákvætt. Gæðalega stenst hún full- komlega samanburð,“ segir Magn- ús. Efla innlendan iðnað með samstarfi Plastiðjan Bjarg – Iðjulundur (PBI) er starfsþjálfunar- og endurhæfingarvinnustaður á Akureyri þar sem unnið er að ýmiss konar iðnaðarframleiðslu .Meðal þess sem er framleitt er íslenskt raflagnaefni og búfjármerki. Ólöf Elfa Leifsdóttir forstöðumaður og Magnús Kristjánsson, rekstrarstjóri hjá Plastiðj- unni Bjargi – Iðjulundi. Í kringum 55 manns eru að jafnaði í starfsþjálfun í verksmiðjunni þar sem framleitt er meðal annars raflagnaefni og búfjármerki. MYND/HEIDA.IS Rofadósir í veggi og loft eru steyptar hjá Plastiðjunni Bjargi og þeim pakkað. Stöðugt er unnið að vöruþróun hjá fyrir- tækinu. Lögð er áhersla á einföld og flóknari störf en markmiðið með starfsþjálfun á Bjargi er að koma fólki út á almennan vinnumarkað. MYND/HEIDA.IS Plastiðjan Bjarg framleiðir búfjármerki fyrir íslenska bændur. Merkin eru flutt inn tilsteypt en í þau eru brenndar merkingar á staðnum eftir pöntun hvers bónda. Hjá Format – Akron er unnið með fjölbreytt verkefni úr plasti og tengdum efnum. „Við flytjum inn plastefni frá Danmörku, Þýska- landi og Belgíu og gerum allt frá lófastórum smáhlutum upp í heilu verslanirnar. Hjá fyrirtæk- inu starfar fólk með mjög fjöl- breytta menntun og mikla reynslu af plastvinnslu úr plötum en meðal fjöldi starfsmanna er 11-13 manns,“ segir framkvæmdastjór- inn Pétur Ingi Arnarson. Efnissala hefur að sögn Péturs alltaf verið stór liður í starfsem- inni. Litaúrvalið af plexígleri er fjölbreytt auk þess sem hægt er að fá þykkt að eigin vali. Hann segir þónokkra þróun hafa orðið á plast- markaðinum og ýmislegt breyst með tilkomu nýrra plasttegunda sem gerir möguleikana fleiri. Pétur Ingi segir hægt að skipta framleiðslunni niður í nokkra flokka. „Við erum hvað þekktust fyrir að framleiða ýmsa standa úr plexígleri. Má þar nefna borð og veggstanda fyrir bæklinga og pappír. Eins framleiðum við póst- kassa, nammibox og kynningar- standa úr sama efni svo dæmi séu nefnd. Þá höfum við sérhæft okkur í að framleiða lausnir sem tengjast sjálfsafgreiðslu eins og vörur fyrir nammibari, bakarí og aðra sem þurfa sérlausnir. Eins gerum við töluvert af því að blanda saman plastefnum og krossviði, eða nokkrum tegundum af plasti þannig að niðurstaðan verði góð,“ lýsir Péturs Framleiðslan er að hans sögn nær öll hönnuð á staðnum sem gerir það að verkum að auðvelt er að gera breytingar sé þess óskað. „Við notum svokallaða CNC- skurðartækni sem er mjög full- komin en auk þess var ný laser- skurðarvél tekin í notkun í fyrra.“ Pétur segir verkefnin af öllum stærðum og gerðum eins og al- gengt er með íslensk framleiðslu- fyrirtæki. „Þetta eru allt frá litlum laserskornum hlutum upp í heilu verslanirnar.“ „Nýlega hönnuðum við og framleiddum til dæmis endur- nýjaða verslun fyrir Hátækni og ZO-ON en það er nokkuð sér- stakt að bæði hönnunin og fram- leiðslan fari fram á sama stað. Þá erum við að framleiða standa fyrir tvö hundruð sportvöruverslanir í Svíþjóð. Í því tilfelli hönnuðum við standana með útflytjanda og framleiddum einnig sem sparar mikinn tíma fyrir fólk sem er að huga að framsetningu.“ Pétur segir sýningarhönn- un vaxandi lið í starfseminni. „Dæmi um slíkt er sýning í tilefni tvö hundruð ára afmælis Jóns Sig- urðssonar í fyrra en hún var unnin í samstarfi við aðra hönnuði. Þá höfum við framleitt sýningar fyrir Vatnajökulsþjóðgarð og Land- græðsluna svo dæmi séu nefnd.“ Fjölbreytt framleiðsla og lausnir Hjá Format – Akron fer fram hönnun og framleiðsla á alls kyns hlutum úr plasti og tengdum efnum. Má þar nefna smáhluti, alls konar standa úr plexígleri og nammibox en einnig heilu verslanirnar, auk þess sem sýningarhönnun er vaxandi liður í starfseminni. Laserskornir smáhlutir úr plexígleri gerðir eftir pöntun. Format-Akron framleiðir meðal annars póstkassa sem þessa. „Við höfum alltaf verið lausnamiðuð og ráðleggjum okkar viðskiptavinum um framleiðslu efni, allt eftir því sem við á,“ segir framkvæmdastjórinn og iðnhönnuðurinn Pétur Ingi Arnarson.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.