Fréttablaðið - 29.02.2012, Blaðsíða 37
MIÐVIKUDAGUR 29. febrúar 2012 25
Enska hljómsveitin Blur spilar á
tónlistarhátíðinni Way Out West
sem verður haldin í Gautaborg í
ágúst. Meðal annarra flytjenda
verða The Black Keys, Bon Iver
og Florence and the Machine.
Alex James, bassaleikari
Blur, hafði áður gefið í skyn að
síðustu tónleikar hljómsveitar-
innar yrðu hugsanlega á Brit-
hátíðinni sem var haldin fyrr í
vikunni. Gítarleikarinn Graham
Coxon hefur núna látið hafa
eftir sér að ný plata með Blur
komi pottþétt út í framtíðinni.
Níu ár eru liðin síðan sveitin gaf
út plötuna Think Tank.
Blur spilar í
Gautaborg
BLUR Hljómsveitin spilar í Gautaborg í
ágúst.
„Ég var bílstjórinn hans þegar
ég var 19 ára,“ sagði George
Clooney við kærustu sína Stacy
Keibler þegar hún kynnti hann
fyrir Tony Bennett á Óskars-
verðlaunahátíðinni síðastliðinn
sunnudag.
Þegar kynnirinn Billy Bush
óskaði eftir nánari útskýringu
á þessum orðum Clooney kom í
ljós að hann hafði unnið sem bíl-
stjóri söngvarans í þrjár vikur á
árum áður.
Bennett varð að játa að hann
myndi ekki eftir því þegar leik-
arinn keyrði hann um, en að
Clooney hefði þó rifjað það upp
fyrir honum nokkru áður.
Clooney sagði söngvaranum
að hann væri enn tilbúinn til að
keyra hann hvert sem væri, hve-
nær sem væri.
Áður en leiðir þeirra
skildi tjáði Bennett
leikaranum vinsæla
að hann væri einstak-
lega stoltur af honum.
„Þú ert að gera allt
rétt,“ sagði hann við
Clooney áður en báðir
héldu sína leið inn í
kvöldið.
Clooney keyrði Bennett
Rokkararnir í The Vaccines
með bassaleikarann Árna
Hjörvar innanborðs ætla í hljóð-
ver í næstu viku til að taka upp
sína aðra plötu. Upptökurnar
fara fram í Belgíu og upptöku-
stjóri verður Ethan Johns sem
hefur unnið með Kings of Leon
og Ryan Adams.
„Við getum ekki beðið. Þegar
maður er í hljóðveri vill maður
bara fara út og spila á tónleik-
um en þegar maður er búinn
að vera á tónleikaferð í átján
mánuði viljum við bara fara
inn í hljóðver og búa til plötu,“
sagði söngvarinn Justin Young.
Í sumar spilar sveitin svo á tón-
listarhátíðunum Benicassim og
Isle of Wight.
Í hljóðver í
næstu viku
NÝ PLATA The Vaccines ætlar að taka
taka upp nýja plötu í Belgíu.
BÍLSTJÓRINN
George
Clooney vann
sem bílstjóri
Tony Bennett
í þrjár vikur
á sínum yngri
árum.
Platan Pólýfónía Remixes
er komin út. Hún inniheld-
ur endurhljóðblandanir af
níu lögum plötu Apparats
Organ Quartet, Pólýfóníu,
eftir FM Belfast, Blood-
group, Dreamtrak, Beta
Satan, Reptilicus, Fred-
erik Schikowski, Flemming
Dalum, Thomas Troelsen og
Robotaki.
Pólýfónía kom út í lok árs-
ins 2010 á vegum 12 Tóna
en tæpu ári síðar kom hún
út erlendis á vegum danska
útgáfufyrirtækisins Crunchy Frog. Pólýfónía Remixes er fáanleg á
öllum helstu tónlistarveitum á netinu, til dæmis á iTunes, Amazon og
Gogoyoko.
Pólýfónía í nýrri útgáfu
APPARAT ORGAN QUARTET Platan Pólýfónía
Remixes er komin út á netinu.
Vorkvöld í Reykjavík
- Raggi Bjarna og gestir í Hörpu
Afslátturinn fæst þegar greitt er með greiðslukorti frá
Íslandsbanka eða Byr í miðasölu Hörpu í síma 528 5050 eða á
midasala@harpa.is. Tilboðið gildir ekki í netsölu.
Söngvarar: Raggi Bjarna, Eivør Pálsdóttir,
Björn Jörundur, Diddú, Guðrún Gunnarsdóttir,
Óskar Pétursson, Bjarni Arason og Álftagerðisbræður.
Jón Ólafsson og hljómsveit
Miðasala hefst 2. mars
islandsbanki.is | Sími 440 4000
Harpa mun óma á stórtónleikum Ragga Bjarna
í Eldborgarsalnum laugardaginn 12. maí kl. 20.
Viðskiptavinum Íslandsbanka bjóðast miðar á
þennan einstaka tónlistarviðburð
á 20% afslætti.
Sérstök forsala fyrir viðskiptavini Íslandsbanka
dagana 29. febrúar og 1. mars í miðasölu Hörpu.
Miðaverð frá 4.900 kr. til 8.900 kr.
Almenn miðasala í miðasölu Hörpu,
á harpa.is, midi.is og í síma 528 5050