Fréttablaðið - 29.02.2012, Blaðsíða 2
29. febrúar 2012 MIÐVIKUDAGUR2
FÓLK Ragnheiður Hildigerður Hann-
esdóttir á einungis afmæli á fjög-
urra ára fresti og heldur því upp
á 22 ára afmælið sitt í dag. Hún
er elsti Íslendingurinn fæddur á
hlaupári 29. febrúar og hefur lifað
í 88 ár, þrátt fyrir að hafa átt mun
færri afmælisdaga.
„Það er oft sagt í gríni að ég sé
svona ung. En ég hef upplifað ýmis-
legt á minni ævi sem 22 ára mann-
eskja hefði sennilega ekki getað,“
segir Ragnheiður. Fyrir um tíu
árum byrjaði hún að missa sjónina
og er lögblind í dag.
„Það er auðvitað margt sem
mætti vera betra, en ég á mörg góð
ár að baki. Maður verður að vera
bjartsýnn og líta fram á veginn, það
þýðir ekkert annað. Ég á góða fjöl-
skyldu og vini og lít á lífið björtum
augum.“
Ragnheiður býr með eiginmanni
sínum, Völundi Sigurjónssyni, á
Sléttuvegi í Reykjavík. Hún ætlar
að gera sér glaðan dag á afmælis-
daginn og halda upp á hann á heim-
ili sínu með fjölskyldu sinni og
vinum. Þau hjónin eiga þrjú börn,
fjögur barnabörn og sjö barna-
barnabörn. „Ég er rík kona,“ segir
hún.
Aðspurð segist Ragnheiður ekki
hugsa mikið um að vera elsta hlaup-
ársafmælisbarn þjóðarinnar. „Kona
sem ég þekkti lést nýlega og hún
varð 101 árs gömul og hún var með
heila hugsun fram í það síðasta. Það
þarf alls ekki að vera slæmt að eld-
ast,“ segir hún.
Ragnheiður fæddist hlaupárs-
daginn 29. febrúar árið 1924, á
bænum Litla-Vatnshorni í Hauka-
dal. Hún segir afmælisdaga ekki
hafa verið haldna hátíðlega í
sveitinni þegar hún var að alast
upp og gjafirnar oftast verið vett-
lingar eða sokkar. Hún minnist
þess að hafa fengið epli og app-
elsínur að gjöf frá frænku sinni.
Móðir Ragnheiðar gaf henni
nafnið Hildigerður, sem er eftir
afmælisdeginum, en í almanaki
Þjóðvinafélagsins heitir hlaup-
ársdagur Hildigerður.
„Hún hélt sig alltaf við það hún
móðir mín. Þetta nafn er í gildi
þó ég hafi ekki notað það mikið.
En það er vissulega mjög heil-
steypt og fallegt,“ segir Ragn-
heiður Hildigerður afmælisbarn.
sunna@frettabladid.is
Elsta hlaupársbarn
þjóðarinnar 22 ára
Ragnheiður Hildigerður Hannesdóttir á 22 ára afmæli í dag. Hún hefur þó lifað
í 88 ár. Hún er elsti Íslendingurinn sem á afmæli á hlaupársdegi. Móðir hennar
nefndi Ragnheiði Hildigerði eftir hlaupársdeginum 29. febrúar árið 1924.
HELDUR DAGINN HÁTÍÐLEGAN Ragnheiður Hildigerður, elsta afmælisbarn landsins,
heldur upp á 22. afmælisdaginn sinn í dag með fjölskyldu og vinum.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Hafsteinn, nennir fólk ekki að
tala við ykkur?
„Jú, en allir nema þrír sem hafa haft
samband við mig síðustu tíu ár hafa
hringt eða sent mér tölvupóst.“
Hafsteinn Karlsson, bæjarfulltrúi Sam-
fylkingar í Kópavogi, telur óþarft að hafa
sérstaka viðtalstíma þar sem íbúar geta
hitt bæjarfulltrúa eins og nýr meirihluti
hefur ákveðið því það mæti enginn í
viðtalstímana.
KENÍA, AP Ítalska skemmtiferða-
skipið Costa Allegra kemur
væntanlega til hafnar á morgun á
Seychelles-eyjum í Indlandshafi.
Skipið rak stjórnlaust á sjóræn-
ingjaslóðum vegna vélarbilunar
þangað til dráttarskip kom því til
bjargar í gær. Rúmlega þúsund
manns um borð. Þeir gætu þurft
að bíða sólarhringum saman áður
en skipið getur lagst að bryggju.
Skipið er systurskip skemmti-
ferðaskipsins Costa Concordia
sem strandaði við Ítalíuströnd í
síðasta mánuði. - gb
Vélarvana á Indlandshafi:
Skemmtiskip
dregið að landi
STJÓRNSÝSLA Valtýr Sigurðsson,
fyrrverandi ríkissaksóknari, segir
saksóknara Alþingis, Sigríði J. Frið-
jónsdóttur, ekki sinna hinu veiga-
miklu eftirlitshlutverki ríkissak-
sóknara í máli Geirs H. Haarde.
Taka ætti það hlutverk að gæta
almennra grundvallaratriða saka-
málaréttarfars, sem er á hendi rík-
issaksóknara, fram yfir hlutverk
saksóknara Alþingis.
Þetta sagði Valtýr í grein í Frétta-
blaðinu í gær. Hann sagði ríkissak-
sóknara æðsta handhafa ákæru-
valds lögum samkvæmt og að hann
hefði boðvald yfir öðrum ákær-
endum og eftir-
lit með þeim. „Í
því felst m.a. að
hann beri ábyrgð
á að samræmis
sé gætt við með-
ferð ákæruvalds
og að grundvall-
arreglur saka-
málaréttarfars
séu virtar.“
Sigríður sendi
frá sér yfirlýsingu í gær þar sem
hún benti á að Valtýr hefði verið
ríkissaksóknari þegar Alþingi sam-
þykkti ákæru á hendur Geir, nokkuð
sem Valtýr segi að hafi þýtt brot á
réttindum Geirs. Hann hafi þó ekki
séð ástæðu til að bregðast við þeim
meinta órétti á þeim tíma þrátt fyrir
eftirlitshlutverk ríkissaksóknara.
„Þetta aðgerðaleysi fv. ríkissak-
sóknara gæti tengst þeirri stað-
reynd, sem ekki er fjallað um í
grein Valtýs, að boðvald ríkissak-
sóknara nær ekki til Alþingis, þó
svo að Alþingi hafi ákæruvald þegar
kemur að brotum ráðherra. Um rétt-
indi sakbornings í málum sem varða
ráðherraábyrgð fjallar sérdómstóll
sem heitir Landsdómur,“ segir Sig-
ríður. - kóp
Fyrrum ríkissaksóknari segir saksóknara Alþingis vanrækja eftirlitshlutverk sitt:
Sigríður segir Valtý fara með fleipur
SIGRÍÐUR J.
FRIÐJÓNSDÓTTIR
DÓMSMÁL Tveir menn, Guðni
Guillermo Gorozpe og Hall-
dór Arnar Karlsson, voru í gær
dæmdir í tveggja ára óskilorðs-
bundið fangelsi fyrir hrottalega
líkamsárás í miðbæ Reykjavík-
ur. Sá þriðji hlaut sextán mánaða
fangelsisdóm fyrir sinn þátt.
Árásin var framin aðfaranótt
7. maí 2010. Þá réðust þremenn-
ingarnir, að því er virðist að til-
efnislausu, á grískan ferðamann,
slógu hann í jörðina og spörkuðu
í hann liggjandi. Ferðamaður-
inn, sem svipti sig lífi í fyrra,
var mjög illa leikinn eftir árás-
ina og í símaskýrslu sem móðir
hans gaf fyrir dómi kom fram að
atburðurinn hefði fengið mjög á
hann andlega.
Í niðurstöðu dómsins segir að
þremenningarnir eigi sér engar
málsbætur. - sh
Þrír fengu fangelsisdóm:
Dæmdir fyrir
hrottalega árás
LÖGREGLUMÁL Gefin hefur verið
ákæra á hendur tveimur mönn-
um fyrir manndráp af gáleysi og
umferðarlagabrot vegna banaslyss
sem varð að kvöldi 27. desember
2010. Þá rákust saman tveir vöru-
flutningabílar með tengivagna
á Norðurlandsvegi í Húnavatns-
hreppi.
Ökumaður bílsins sem talinn er
valdur að slysinu er ákærður og
aðaleigandi fyrirtækisins sem gerði
út bílinn er ákærður fyrir hlutdeild
í brotinu.
Ökumaðurinn er sagður hafa
ekið vöruflutningabifreiðinni norð-
ur Norðurlandsveg án nægilegrar
aðgæslu, með vélavagn, sem hentaði
ekki til flutninga á steinrörum sem
á hann hafði verið hlaðið. Þá var
vagninn sagður hafa verið bremsu-
lítill eða bremsulaus, á mismunandi
stórum dekkjum og með mismun-
andi loftþrýsting í hjólbörðum.
Farmurinn vó 12,1 tonn og náði
2,5 metra hæð. „En rörin höfðu
verið sett þvert á vagninn, án lög-
boðinna klossa framan og aftan
við farminn og engra klossa eða
styttur til varnar hliðarskriði og
farmurinn aðeins bundinn niður
að hluta, en ástand vagnsins og
háfermi hans skertu rásfestu hans,
með þeim afleiðingum að vagninn
fylgdi ekki bifreiðinni, heldur leit-
aði of mikið til vinstri yfir miðlínu
vegarins,“ segir í ákærunni.
Þetta varð til þess að bíllinn rás-
aði í veg fyrir annan vöruflutninga-
bíl. Bílstjóri þess bíls lést nær sam-
stundis, þegar steinrör köstuðust
inn í ökumannshús bílsins. - óká
Gáleysi og vanbúinn vagn áttu stóran þátt í banaslysi í Langadal í árslok 2010:
Ákært fyrir manndráp af gáleysi
HJÓLBARÐAR Misstór dekk með mis-
munandi þrýstingi áttu þátt í banaslysi í
árslok 2010.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
VIÐ ÞINGFESTINGU MÁLSINS Agné Kra-
tavicuité mætir í Héraðsdóm Reykjavíkur
þegar mál hennar var fyrst tekið fyrir í
byrjun nóvember. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
DÓMSTÓLAR Agné Krataviciuté,
kona sem ákærð hefur verið fyrir
að bana nýfæddu barni sínu á
Hótel Fróni í fyrrasumar, neitar
sök og kannast ekki við að hafa
fætt barn.
Þetta kom fram við aðalmeð-
ferð máls á hendur Agné í Héraðs-
dómi Reykjavíkur í gær. Henni er
gefið að sök að hafa veitt nýfæddu
barninu tvo skurðáverka á andlit
með bitvopni og banað því svo með
kyrkingu. „Mér finnst enn þá mjög
erfitt að skilja hvað gerðist,“ hefur
Vísir. is eftir Agné, þegar hún bar
vitni í gær. Hún kvaðst þó fyrir
dómi hafa fundið fyrir miklum
verkjum á hótelherberginu þar
sem talið er að barnið hafi fæðst.
Nánari fréttaflutning af málinu
má finna á Vísi. - óká
Aðalmeðferð í dulsmáli:
Segist ekki hafa
fætt barn
4,67 bæjarfulltrúar
Bæjarfulltrúi Samstöðu í Vestur-
byggð hefur gert athugasemd við að
tekin var á dagskrá bæjarráðs ósk
eins bæjarfulltrúans á dögunum um
að láta af störfum. Málið hafi verið
tekið á dagskrá með afbrigðum fyrir
atbeina fjögurra af sjö bæjarráðs-
mönnum. Samkvæmt samþykktum
Vesturbyggðar þurfi hins vegar tveir
þriðju hlutar bæjarráðsmanna að
greiða atkvæði með því að mál séu
tekin á dagskrá með afbrigðum. Það
séu 4,67 bæjarfulltrúar en ekki aðeins
fjórir.
VESTURBYGGÐ
STJÓRNSÝSLA Skúli Bjarnason,
lögmaður Gunnars Anderson,
forstjóra FME, hefur kraf-
ist þess að Oddný Harðardótt-
ir, fjármálaráðherra, taki af
allan vafa um hvort Gunnar og
embætti hans falli undir lög
um réttindi ríkisstarfsmanna.
Vill Skúli skýrt hvort Gunnar
njóti réttarverndar sem opinber
starfsmaður.
Krafan kemur í kjölfar þess
að stjórn FME sagði í bréfi að
hún teldi embætti Gunnars ekki
falla undir ákvæði þessara laga.
Forstjórinn beri ábyrgð gagn-
vart stjórn FME og sé því ekki
embættismaður í skilningi lag-
anna.
Eins og kunnugt er hefur
stjórn FME tilkynnt Gunnari að
hún hyggist segja honum upp en
Gunnar telur uppsögnina ólög-
mæta. - mþl
Uppsögn Gunnars Andersen:
Ráðherra skýri
réttarstöðu
SPURNING DAGSINS
Alveg mátulegur
Heimilis
GRJÓNAGRAUTUR
H
V
ÍT
A
H
Ú
SI
Ð
/
S
ÍA
Það er oft sagt í gríni
að ég sé svona ung.
En ég hef upplifað ýmislegt á
minni ævi sem 22 ára mann-
eskja hefði sennilega ekki
getað,“
RAGNHEIÐUR HILDIGERÐUR
HANNESDÓTTIR
AFMÆLISBARN