Fréttablaðið - 29.02.2012, Blaðsíða 38
29. febrúar 2012 MIÐVIKUDAGUR26 26
menning@frettabladid.is
Leikhús ★★★★ ★
Dagleiðin langa eftir Eugene
O‘Neill
Sýnt í Kassanum, Þjóðleikhúsinu
Leikstjórn: Þórhildur Þorleifsdóttir, leik-
arar: Arnar Jónsson, Guðrún Snæfríður
Gísladóttir, Hilmir Snær Guðnason,
Atli Rafn Sigurðarson, leikmynd og
búningar: Jósef Halldórsson, lýsing:
Hörður Ágústsson, hljóðmynd: Kristinn
Gauti Einarsson, þýðing: Illugi Jökulsson,
leikstjórn: Þórhildur Þorleifsdóttir
Dagleiðin langa er
mikið drama sem að
margra mati er besta
verk höfundarins,
Bandaríkjamanns-
ins Eugene O´Neill,
sem hlaut Pulitzer-
verðlaunin fyrir það
árið 1957, þremur
árum eftir að hann
lést. Þórhildur Þor-
leifsdóttir leikstýr-
ir verkinu og hefur
hún valið þá leið að
kasta sér beint inn í
fjölskylduerjurnar
og skræla vel utan
af verkinu það helsta sem tefur
fyrir því að kynna okkur fyrir
hinum eiginlega harmleik.
Sögutími sýningarinnar er
ágúst 1912 og þó svo að öll örlaga-
saga Íra komi hér lítið fyrir, þá
er hinn samansaumaði James
Tyron, leikarinn sem allt snýst
um, engu að síður Íri og við fáum
að vita að það var hræðslan við
fátækrahælið sem pískaði hann
áfram. Á fátækrahælinu endaði
móðir hans sína lífdaga, eftir að
hafa þrælað fyrir börnum sínum
þegar eiginmaður hennar sneri
til Írlands til að deyja.
James Tyron hefur skrölt um
land og ríki með sýningu sem
að eigin mati var honum ekki
samboðin og eiginkonan fylgdi
honum á léleg hótel og synirnir
ólust upp við blekkingar og viskí-
tár ef eitthvað á bjátaði. Arnar
Jónsson fer hér listilega með
hlutverk hins plássfreka leikara
sem haldið hefur eiginkonu sinni
og sonum í sínu eigin fangelsi.
Eldri sonurinn sem Hilmir
Snær Guðnason leikur, fetar í
fótspor föður síns en áfengið hel-
tekur hann. Hilmir nær mjög
góðum tökum á þeirri örvænt-
ingu og um leið síendurteknu
viðbrögðum sem samtölin við
föðurinn kalla fram. Atli Rafn
Sigurðarson leikur yngri son-
inn sem þegar hér er komið sögu
er mjög veikur og fær raunar að
vita að hann sé með berkla en
á sér draum um að verða skáld.
Atli kemur hinu sjúklega og við-
kvæma ástandi Edmunds vel til
skila. Allir sem hér koma við
sögu áttu sér drauma sem ekki
rættust því gjöreyðingarhvötin
varð viljanum yfir-
sterkari.
Guðrún Gísladótt-
ir sem hin helsjúka
Mary sveiflaðist
inn og út úr afkim-
um sálarinnar og
var hrein unun að
fylgjast með henni
í eintalinu þá er hún
er verulega farin að
delera. Guðrún sem
er ein albesta leik-
kona sinnar kyn-
slóðar kann vel þá
list að príla á ein-
stigi örvæntingar
og flækjast inn í lokuð öngstræti
sálarinnar. Andrúmsloftið er
yfirhlaðið orðum sem verður að
vef sem umlykur þau öll, gerir
þau að föngum en veitir þeim þó
enga samstöðu því í raun eru þau
öll á flótta hvert frá öðru.
Leikmynd Jósefs Halldórsson-
ar þjónar vel uppfærslunni hér
með þessum tveimur stigum til
beggja handa sem frúin klifr-
ar upp um og skrönglast niður í
verra og verra ástandi, og sömu-
leiðis sem vísun í dramatískar
innkomur stórleikara á svið-
ið. Búningar voru góðir, einkar
þegar hinn sjálfumglaði stjörnu-
leikari skverar sig upp til kráar-
farar í hvítum smókingbuxum
og fínpússuðum spjátrungsskóm.
Ekki er annað að heyra en að Ill-
ugi Jökulsson hafi snúið textan-
um yfir á mjög þjált mál.
Elísabet Brekkan
Niðurstaða: Þétt og flott sýning þar sem hvergi
var dauður punktur.
Áhrifamikil sýning
og afar vel leikin
DAGLEIÐIN LANGA Arnar Jónsson, Atli Rafn Sigurðarson og Hilmir Snær Guðnason í
hlutverkum sínum.
Arnar Jónsson
fer hér listilega
með hlutverk hins
plássfreka leikara
sem haldið hefur
eiginkonu sinni og
sonum í sínu eigin
fangelsi.
…
ÓBÆRILEGUR LÉTTLEIKI TILVERUNNAR eftir Milan Kundera hefur
verið gefin út á ný. Bókin kom fyrst út á íslensku árið 1986 en hefur verið ófáanleg
um hríð. Í henni segir frá kvennagullinu Tómasi lækni og þjónustustúlkunni Teresu í
ástarsögu sem er full af heimspekilegum vangaveltum.
Rauðarárstígur 10
105 Reykjavík
Sími: 562 4082
www.yggdrasill.is
Verslunin er staðsett við
hliðina á Hlemm. Það er
tilvalið að gera stórinnkaupin
á afsláttardeginum.
Afsláttar dagur
10% afsláttur af öllum vörum
Landsins mesta úrval af lífrænum vörum
Útboðsþing Samtaka iðnaðarins
- Verklegar framkvæmdir 2012 -
Grand Hótel Reykjavík, Gullteigur A
Föstudaginn 2. mars kl. 13:00 – 16:30
Reykjavíkurborg
Framkvæmdasýsla ríkisins
HS Orka
Landsvirkjun
Eftirtaldir aðilar kynna framkvæmdaáætlanir sínar á árinu:
Siglingastofnun
Landsnet
Orkuveita Reykjavíkur
Vegagerðin
Skráning á www.si.is
Systurnar Sigurlaug og Lovísa
Björk Skaftadætur opna mál-
verkasýningu á Café Loka í
Reykjavík föstudaginn 2. mars
klukkan 17. Þá mun móðursystir
þeirra, Anna Dóra Antonsdóttir,
kynna bók sína Hafgolufólk sem
er nýkomin úr prentun.
Sigurlaug er lærður húsamál-
ari. Hún stundaði listnám í Fokus
og Nordjyllands Kunstskole í
Danmörku og hefur tekið þátt í
samsýningum í Danmörku og á
Spáni. Hún málar myndir með
akrýl á striga og leikur sér með
form og sterka liti. Lovísa stund-
aði nám á listnámsbraut Iðn-
skóla Hafnarfjarðar. Hún hefur
undanfarin ár numið við Mynd-
listaskóla Kópavogs og tekið þátt
í samsýningum á vegum skól-
ans. Hún málar frjálst með olíu
á striga.
Hafgolufólk er sjötta bók Önnu
Dóru og fjallar um stóra viðburði
í lífi venjulegs fólks norður við
ysta haf.
Skyldfólk á Café Loka
FRJÁLST Á STRIGA Ein mynda Lovísu
Bjarkar Skaftadóttur sem hún sýnir á
Café Loka.
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
Miðvikudagur 29. febrúar 2012
➜ Námskeið
20.15 Endurmenntun Háskóla Íslands
býður á námskeiðið Innlit í heim óper-
unnar í umsjá Bergþórs Pálssonar,
söngvara. Námskeiðið er í húsnæði
Endurmenntunar að Dunhaga 7 og er
öllum opið.
➜ Fræðslufundir
16.30 Lionshreyfingin stendur fyrir
fræðslufundi um Alzheimer í húsi
Blindrafélagsins Hamrahlíð 17, sam-
komusal á 2. hæð. Fundurinn er hald-
inn í minningu Þórunnar Gestsdóttur og
er aðgangur ókeypis.
➜ Uppákomur
20.00 Framsóknarkonur heiðra komu
Góu með fögnuði í Framsóknar-
húsinu að Hverfisgötu 33 í Reykjavík.
Talnaspekingur, leynigestur, ljúffengar
veitingar og fleira.
Upplýsingar um viðburði sendist á
hvar@frettabladid.is og einnig er
hægt að skrá þá inni á visir.is.